Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir vörður skemma náttúru og stemningu „Náttúran er ekki ósnortin lengur því þar eru allar þessar fjandans vörður,“ segir Ingó Herbertsson leiðsögumaður, sem telur þann sið ferðalanga að hlaða vörður út um hvippinn og hvappinn vera til mikillar óþurftar. 13.7.2012 08:30
Slasaðist í bílveltu á Suðurlandsvegi Einn slasaðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi við skíðaskálann í Hveradölum í morgun. Viðkomandi mun ekki vera alvarlega slasaður en bíllinn er ónýtur eftir veltuna. Þrír sjúkrabílar eru á staðnum, tveir frá Reykjavík og einn frá Selfossi. 13.7.2012 08:16
Þjóðhátíð nær þolmörkum Búið er að selja um sjö þúsund miða á Þjóðhátíð í Eyjum. Svo mikil aðsókn var í miða í vikunni að netsíðan sem hýsir miðasöluna hrundi. 13.7.2012 08:15
Telja að makríllinn kunni að valda búsifjum sjófugla Erpur Snær Hansson, sviðsstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands, segir að margir hallist að þeirri kenningu að ágangur makrílsins geti að miklu leyti útskýrt þær búsifjar sem lundinn og aðrir sjófuglar hafi orðið fyrir síðustu ár. 13.7.2012 07:30
Ekki tilefni til verðlækkunar Steingrímur J. Sigfússon iðnaðarráðherra telur ekki tilefni til að endurskoða verðstefnu Landsvirkjunar varðandi raforku. Fréttablaðið sagði frá því í gær að raforkuverð hefði lækkað víða um heim, einkum í Bandaríkjunum, og stóriðjufyrirtæki væru að hugleiða enduropnun lokaðra verksmiðja. 13.7.2012 07:00
Sjómaður puttabrotnaði um borð í togara Sjómaður á togaranum Christina puttabrotnaði þegar skipið var um 100 mílur suðaustur af Skrúði. 13.7.2012 06:58
Vilja fá að framleiða ógerilsneydda osta Beint frá býli, félag bænda sem stunda sjálfstæða sölu eigin afurða, hefur óskað formlega eftir því við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að framleiðsla osta úr ógerilsneyddri mjólk verði heimiluð í takmörkuðu magni. 13.7.2012 06:30
Lágmark að halda illgresi í skefjum „Það er lágmarkskrafa að sá meirihluti sem hér er við völd standi undir því einfalda verkefni að láta slá græn svæði í borginni og halda illgresi í skefjum,“ segir í bókun sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram á borgarráðsfundi í gær 13.7.2012 05:30
Augun svíkja ekki lygarann Breskir vísindamenn segjast hafa afsannað þá kenningu að merkja megi lygar af augnagotum fólks. Vísindamennirnir tóku upp myndband með sjálfboðaliðum þar sem þeir ýmist lugu eða sögðu satt. 13.7.2012 05:00
Færri ráðnir án auglýsinga Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir mjög hafa dregið úr ráðningum án auglýsinga hjá ríkinu. Fréttablaðið greindi frá bréfi Umboðsmanns Alþingis, þar sem hann hvatti til að slíkum ráðningum yrði fækkað og sagði það myndu efla traust á ríkisvaldinu. 13.7.2012 04:00
Fagnar umræðu um Landssímahúsið "Við verðum að tryggja það að sýndur verði metnaður við skipulagningu á Landssímareitnum." Þetta segir Dagur B. Eggertsson, formaður Borgarráðs. 13.7.2012 11:24
Human Woman troða upp á Faktorý Íslensk Nýdanska dúóið Human Woman mun heiðra Íslendinga með nærveru sinni næstu helgi þegar þeir munu troða upp á Faktorý á laugardaginn næsta. Þrátt fyrir danskar tengingar þá er hljómsveitin alíslensk, en það eru þeir Gísli Galdur og Jón Atli sem skipa hið ofursvala dúó. 12.7.2012 20:24
Pétur Blöndal vill stöðva peningahringekjuna Hægt er að breyta milljónum í innistæðulausa milljarða með tiltölulega einföldum eignatilfærslum á milli hlutafélaga. Karen Kjartansdóttir fékk Pétur Blöndal þingmann til að útskýra hvernig er hægt að koma í veg fyrir slíkar eignabólur, en Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu hefur samþykkt tillögur hans sem miða að því. 12.7.2012 19:30
Sveinn Andri: Aðför kortafyrirtækjanna að málfrelsi stöðvuð Wikileaks getur starfað óhindrað af fullum krafti verði dómur Héraðsdóms Reykjavíkur gegn Valitor fordæmisgefandi annars staðar í heiminum, segir lögmaður Datacell. Vísa þarf að opna aftur greiðslugátt fyrir Datacell sem kortarisinn lokaði vegna tengsla við Wikileaks. 12.7.2012 18:32
Rúta með eldri borgurum hafnaði utan vegar Rúta með 50 eldri borgurum fór út af þjóðvegi 1 við Másvatn, leiðina á milli Lauga og Mývatns, um fimm leytið í dag. Lögreglan á Húsavík fékk tilkynningu um umferðaróhappið skömmu síðar. 12.7.2012 18:00
Snorri í Betel rekinn vegna skoðana sinna Snorra Óskarssyni, sem oft er kenndur við Betel söfnuðinn í Vestmannaeyjum, hefur verið sagt upp störfum sem kennari á Akureyri. Snorri bloggar um málið og segir að hann hafi verið kallaður á fund fræðslustjóra Akureyrarbæjar fyrr í dag. Þar hafi honum verið tilkynnt að honum hefði verið sagt upp. 12.7.2012 17:07
Hluturinn á botni Eystrasaltsins sagður verða vopn Talið er að dularfulli hluturinn sem sænsku kafararnir fundu á botni Eystrasaltsins fyrir nokkrum árum sé í raun leifar frá seinni heimsstyrjöld. Nánar tiltekið áður óséð tæki úr vopnabúri nasista. 12.7.2012 16:36
CCP er besti sjálfstæði leikjaframleiðandi Evrópu CCP var í gærkvöldi valið besti sjálfstæði leikjaframleiðandi Evrópu á Develop Awards. Eldar Ástþórsson telur verðlaunin "heilmikla viðurkenningu fyrir CCP sem fyrirtæki, enda þungavigtarmenn í tölvuleikjaiðnaðinum í dómnefnd." 12.7.2012 15:13
Veðurblíðan og leyndardómur íssalans Veðurblíðan leikur nú við landsmenn. Hiti hefur skriðið yfir 20 stig á nokkrum stöðum og heiðskírt er víðast hvar. Eins og svo oft áður þá er mikið um að vera hjá íssölum þegar viðrar vel — Fríða í Ísbúð Vesturbæjar brosir að minnsta kosti hringinn. 12.7.2012 14:53
Mjög dapurlegt að svindla á eldri borgurum "Þetta er auðvitað mjög dapurlegt," segir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um tilvik þar sem óþekktur aðili hringdi í eldri borgara og bauð þeim ókeypis heimilisþjónustu. Grunur leikur á um að viðkomandi aðili hafi haft eitthvað misjafnt í hyggju. "En því miður er ekkert sem kemur manni lengur á óvart," segir hann og beinir þeim tilmælum til eldra fólks og aðstandenda að vera á varðbergi. 12.7.2012 14:52
Grunur á að óprúttnir aðilar blekki eldri borgara með gylliboðum Svo virðist sem óprúttnir aðilar séu farnir að bjóða eldri borgurum heimilishjálp þeim að kostnaðarlausu. Lögreglan varar við slíkum gylliboðum. Ellilífeyrisþegi fékk hringingu af þessu tagi, en hringjandi sagði þjónustuna í boði tiltekinna samtaka. Hringt var úr leyninúmeri, en þegar haft var samband við umrædd samtök kannaðist enginn við málið og þjónustan var ekki á þeirra vegum. 12.7.2012 14:09
MS sjúklingar eygja von Ingunn Jónsdóttir fagna því að lyfið Gilenya verði innleitt hér á landi, en lyfið er við MS sjúkdómnum. 12.7.2012 14:03
Vill fella niður tolla af innfluttum ostum Stjórnvöld ættu að fella niður tolla af innfluttum ostum sem eru ekki framleiddir hér á landi. Slíkt væri fyrsta skrefið í átt að aukinni samkeppni á íslenskum búvörumarkaði, segir í nýjum pistli á vef Neytendasamtakanna í dag. Ástæða umfjöllunarinnar eru breyting á reglugerð þar sem dregið er úr innflutningshömlum á landbúnaðarvörur en greint var frá reglugerðinni á þriðjudag. 12.7.2012 13:46
Valitor þarf að opna greiðslugátt fyrir WikiLeaks Valitor þarf að opna greiðslugátt fyrir Datacell og WikiLeaks innan fjórtán daga, ellegar greiða 800 þúsund krónur í dagsektir á hverjum degi, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. 12.7.2012 13:24
Stendur ekki til að semja við blaðakonuna Í innanríkisráðuneytinu hefur ekki komið til tals að reyna að ná sáttum við blaðakonuna Erlu Hlynsdóttur um tvö dómsmál sem þegar hafa verið send út til Mannréttindadómstóls Evrópu. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu stendur ekki til að setjast að samningaborðinu í bili en þó er ekki útilokað að ákvörðun um það verði tekin síðar. 12.7.2012 13:15
Magnús sest í bæjarstjórastólinn eftir helgi Magnús Stefánsson fyrrverandi félagsmálaráðherra hefur störf sem bæjarstjóri í Garði strax eftir helgi. Bæjarstórnarfundur var haldinn fyrir hádegi þar sem gengið var formlega frá ráðningu hans. Magnús á að baki langa sögu í pólitísku starfi og stjórnsýslustörfum en hann var þingmaður Framsóknarflokksins um árabil og ráðherra til skamms tíma. 12.7.2012 13:06
Stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur Skemmtiferðaskipið Celebrity Eclipse fór frá bryggju í Reykjavík í gær eftir að hafa verið í sólarhring á Íslandi. Skipið er stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Íslands þetta sumar. Skipið er einungis tveggja ár gamalt, en það var vígt í apríl 2010, og er hið allra glæsilegasta eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Samkvæmt áætlun mun skipið koma aftur þann 7. ágúst næstkomandi og vera hér í sólarhring. 12.7.2012 10:37
Óléttar konur eiga ekki að borða fyrir tvo Sagan segir að óléttar konur eigi að borða fyrir tvo en staðreyndirnar tala öðru máli. Fjallað er um málið á fréttamiðli BBC. 12.7.2012 17:16
Strandveiðar stöðvast á svæði B eftir helgi Strandveiðar á svæði B munu stöðvast á þriðjudaginn næsta. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sendi frá sér auglýsingu þess efnis í dag. Svæðið er frá Strandabyggð til Grýtubakkahrepps á norðurlandi. 12.7.2012 12:47
Fá að kynnast lífsháttum frumbyggja Almenningi verður um helgina boðið að setja sig í fótspor frumbyggja í Viðey. Skátar í Landnemum munu kenna áhugasömum að reisa skýli, kveikja eld og ýmislegt fleira sem var frumbyggjum lífsnauðsynlegt á árum áður. 12.7.2012 11:59
Vaxtamöguleikar í skógrækt á Íslandi óendanlegir Á næstu 20 árum má gera ráð fyrir um 600 ársverkum við grisjun nytjaskóga á Íslandi. Aðalsteinn Sigurgeirsson á Mógilsá, forstöðumaður rannsóknarstöðvar skógræktar á Mógilsá, segir að þó það séu ekki mörg störf séu vaxtamöguleikarnir í greininni í raun óendanlegir. 12.7.2012 11:10
Björn Friðfinnsson látinn Björn Friðfinnsson lögfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri lést þann 11. júlí síðastliðinn, 72 ára að aldri. Björn Friðfinnsson lögfræðingur og fyrrverandi ráðuneytisstjóri lést þann 11. Júlí síðastliðinn, 72 ára að aldri. Björn átti að baki langan og farsælan starfsferil í opinberri stjórnsýslu. Hann starfaði sem ráðuneytisstjóri í viðskiptaráðuneyti, sameinuðu viðskipta- og iðnaðarráðuneyti og í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Hann var einn af framkvæmdastjórum ESA (EFTA Surveillance Authority) í Brussel, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri lögfræði-og stjórnsýsludeildar borgarinnar, fjármálastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og bæjarstjóri á Húsavík, formaður Almannavarnaráðs og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. 12.7.2012 11:09
Selurinn Eva fær ekki að koma til Íslands Dýravinir sem björguðu íslenskum sel sem villtist og synti til Lincolnskíris í Bretlandi vilja senda hann aftur til Íslands. Þau geta það hins vegar ekki vegna andstöðu íslenskra yfirvalda. Það var hópurinn Skegness Natureland sem bjargaði selnum Evu í desember síðastliðnum. Þau fengu þau svör að óttast væri að Eva myndi bera sjúkdóma með sér. Málið hefur vakið athygli í Bretlandi og gerir fréttastofa breska ríkisútvarpsins BBC því ítarleg skil í dag. 12.7.2012 10:14
Bændur eru sérlegir naglar Skráð vinnuslys meðal bænda eru mun færri en hjá öðrum stéttum. Yfirlæknir Vinnueftirlitsins telur að fleiri bændur verði fyrir vinnuslysum en tölur gefa til kynna en flestir harki af sér án þess að leita til Vinnueftirlitsins. Þetta kemur fram í Bændablaðinu í dag. 12.7.2012 09:59
Grímuklæddir menn ógnuðu starfsfólki með hnífi Tveir karlmenn um tvítugt, ruddust grímuklæddir inn á videoleigu og hótuðu bæði starfsfólki og viðskiptavinum með hnífi. Þetta átti sér stað í Bónusvideo í Fellahverfi í Breiðholti um hálf tíu leytið í gærkvöldi. 12.7.2012 09:50
Sveinn Andri: Niðurstaða héraðsdóms er "rock solid“ Ef Valitor ákveður að áfrýja dómi, um að fyrirtækinu beri að opna fyrir greiðsluþjónustu við WikiLeaks, verður það ekki á lögfræðilegum forsendum. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður DataCell, sem tekur við styrktarframlögum til Wikileaks. Sveinn Andri segir að rökstuðningur héraðsdóms sér "rock solid". 12.7.2012 16:04
Tónleikar til styrktar strokuþræl Tónleikar til styrktar strokuþrælnum Mohammed Lo verða haldnir á Faktorý í kvöld, 12. júlí. Fram koma hljómsveitirnar Retro Stefson, Ojba Rasta og Sudden Weather Change. 12.7.2012 15:45
Greinir ösku í kílómetra fjarlægð Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur hafið prófanir á öskunema sem á að lágmarka áhættu flugfarþega þegar flogið er um svæði mettað af eldfjallaösku. Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 og afleiðingar þess er stór þáttur í að þessi tækni er prófuð nú. 12.7.2012 08:00
Íslenskur salatbóndi leiðbeinir Kínverjum „Ég er mjög stoltur af hugmyndum þeirra um að láta peninga í þetta verkefni og gera það vel,“ segir Hafberg Þórisson, eigandi gróðrarstöðvarinnar Lambhaga, sem nýkominn er heim frá Kína þar sem hann ráðlagði heimamönnum um gróðurhúsaræktun. 12.7.2012 07:30
Eldur í bát norður af Siglufirði Eldur kom upp í vélarrúmi báts norður af Siglufirði um áttaleytið í gærkvöld. Engan sakaði og náðu skipverjar að ráða niðurlögum eldsins. 12.7.2012 07:03
Þyrla sótti slasaða konu í Landmannalaugar Kona slasaðist skammt frá Landmannalaugum, milli Bláhnjúka og Brennisteinsöldu um hálf níu leytið í gærkvöld. 12.7.2012 07:00
Góður árangur af aðgerðum hér 99 prósent sjúklinga sem fara í skurðaðgerðir vegna lungnakrabbameins á Íslandi lifa aðgerðina af og lífslíkur þeirra sem ganga undir aðgerðir hafa batnað mikið. Árangurinn af skurðaðgerðum hér á landi er mjög góður í alþjóðlegum samanburði. 12.7.2012 07:00
Lítið mál að flokka sorp - Fréttaskýring Það er lítið mál að umbylta ruslamálum þjóðarinnar, aðalatriðið er að fræða almenning. Þessu heldur Agnes Gunnarsdóttir fram. Hún er framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Íslenska gámafélaginu sem þjónar fjöldamörgum sveitarfélög um allt land. 12.7.2012 06:30
Fjórir handteknir eftir rán og innbrot Lögreglan handtók fjóra menn í tveimur málum í gærkvöldi og nótt. Í öðru málinu var um rán að ræða og innbrot í hinu. 12.7.2012 06:19
Bændum bannað að gera ógerilsneyddan ost Kúabændur furða sig á nýrri reglugerð sem heimilar ferðalöngum að flytja til landsins takmarkað magn af ógerilsneyddum ostum. Samkvæmt reglugerðum er íslenskum kúabændum óheimilt að framleiða ógerilsneyddar mjólkurvörur. 12.7.2012 06:00