Fleiri fréttir

Fyrrverandi þingmaður vill verja Hrafnabjargafoss

Húsvíkingurinn Jón Ármann Héðinsson, fyrrverandi alþingismaður, hvetur til þess að Skjálfandafljót verði látið í friði. Hann segir að svokölluð Hrafnabjargavirkjun muni ekki aðeins hafa áhrif á Aldeyjarfoss heldur einnig á fagurt umhverfi Hrafnabjargafoss, sem fáir hafi séð. Við greindum í gær frá umsóknum tveggja orkufyrirtækja um leyfi til rannsókna við ofanvert Skjálfandafljót til undirbúnings virkjun við Aldeyjarfoss sem kölluð er Hrafnabjargavirkjun.

Líkir gögnum Íra um dreifingu markríls við skáldskap

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, líkir vísindagögnum írskra stjórnvalda um dreifingu makríls við Ísland við skáldskap, enda byggi gögnin ekki á rannsóknum innan íslensku lögsögunnar. Hann efast um að Evrópusambandið og Norðmenn muni fallast á kröfu Íra um refsiaðgerðir gegn Íslandi.

Sakar ríkisstjórnina um að stunda blekkingarleik með fjárlögin

Formaður Framsóknarflokks sakar ríkisstjórnina um að stunda blekkingarleik með fjárlögin. Sífellt sé verið að vísa í árangur af aukinni hagræðingu og niðurskurði en raunveruleikinn sé hins vegar allt annar. Halli ríkissjóðs á síðasta ári var tvöfalt meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Rafrænar kosningar hluti af tíðarandanum

"Ég er sannfærður um að almenningur mun brátt geta kosið með rafrænni kosningu.“ Þetta segir Halldór Halldórsson, formaður Samtaka sveitarfélaga. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar ræddi hann við þáttastjórnendur um rafrænar kosningar.

Stúlka kom í heiminn á Reykjanesbrautinni

Stúlka kom í heiminn í sjúkrabíl á Reykjanesbrautinni í nótt en óskað var eftir sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja rétt fyrir klukkan fimm til að flytja móðurina á fæðingardeild í Reykjavík. Á vef Víkurfrétta segir að engin ljósmóðir eða læknir hafi verið í bílnum og því hafi tveir sjúkraflutningamenn tekið á móti stúlkunni við Hvassahraun, á bæjarmörkum Voga og Hafnarfjarðar. Móður og barni heilsast vel, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta.

Næstum eitt skemmtiferðaskip á dag

Höfuðborgarbúar hafa ekki farið varhluta af miklum fjölda skemmtiferðaskipa við hafnir borgarinnar í sumar. Alls koma 82 skip með 100 þúsund manns yfir sumarið. Það er næstum því eitt skip á dag miðað við tímabilið júní-september.

Áfrýja málinu gegn Einari til Hæstaréttar

Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir einstaklingum tengdum Vítisenglum til Hæstaréttar en áfrýjunarfrestur í málinu rann út í gær. Fjórir voru dæmdir fyrir að ráðast á konu í Hafnarfirði í desember síðastliðnum og hlutu þeir tveggja og hálfs árs til fjögurra og hálfs árs fangelsis dóma.

Íslenska lögreglan skarar framúr á facebook

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna fyrir notkun á samfélagsmiðlum í þágu löggæslu. Tilkynnt var í gær hvaða þrjú embætti þykja skara fram úr í heiminum. Í október verður tilkynnt hver verður sigurvegari þegar upp er staðið.

Maggý komin til hafnar

Skipið Maggý VE 108 er nú komið til hafnar í Vestmannaeyjum en það var dráttarskipið Lóðsinn sem dróg það í land.

Vírar úr grillburstum geta fests í þörmum

Ábendingar hafa borist til Neytendastofu um að vírburstar, sem notaðir eru til að hreinsa grill, hafi valdið alvarlegum slysum á fólki í Bandaríkjunum og víðar. Neytendastofa hefur ekki fengið upplýsingar um sambærileg atvik hér á landi telur mikilvægt að fólk sé meðvitað og skipti reglulega um vírbursta, sérstaklega þegar vírarnir eru byrjaðir að losna af, og hristi þá fyrir og eftir notkun.

Koma til Vestmannaeyja klukkan hálf þrjú

Dráttarskipið Lóðsinn er nú á leið til Vestmannaeyja með skipið Maggý VE 108 í togi og áætlað er að það verði komið til hafnar eftir rúman hálftíma.

Snorra var ekki sagt upp vegna ummæla um samkynhneigð

Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir í samtali við vikublaðið Akureyri að það sé af og frá að Snorra Óskarssyni, kenndan við trúarsöfnuðinn Betel, hafi verið sagt upp störfum sem kennari við Brekkuskóla í bænum vegna trúarskoðana sinna eða ummæla hans um samkynhneigð.

Ben Stiller kominn í Hólminn

Ben Stiller lenti í morgun við höfnina í Stykkishólmi, en sem kunnugt er kom leikarinn á dögunum til landsins til að endurgera myndina The Secret of Walter Mitty. Myndin verður að hluta til tekin upp í Stykkishólmi. Stiller mun bæði leika í myndinni og leikstýra henni. Fram kemur á fréttavefnum Skessuhorni að þyrlan þurfti fjórar tilraunir til þess að lenda við höfnina.

Þór kominn með Maggý í tog

Björgunarskipið Þór er komið með skipið Maggý VE 108 og fylgir skipið Glófaxi strax á eftir. Eins og Vísir greindi frá fyrr í morgun kom eldur um borð í Maggý og kom leki inn í vélarrúmið á sama tíma. Sjö manns eru um borð í skipinu. Þeir fóru strax í flotgalla en eru óhultir, en áhafnarmeðlimir slökktu eldinn sjálfir. Dæla var sett um borð í Maggý og er talið að með því verði hægt að toga skipið að landi.

Metandælan var rangt tengd

Metandæla við bensínstöð N1 á Ártúnshöfða brotnaði, þegar strætisvagn rakst utan í hana um fjögur leitið í nótt, með þeim afleiðingum að metan streymdi óhindarð út í andrúmsloftið, vegna rangra tenginga í dælunni.

Bann á munntóbaki leiðir ekki til aukinna reykinga

Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Landlækni, telur að þó munntóbak væri bannað myndi það ekki leiða til þess að fleiri færu að reykja. Fram hefur komið að stærsti notendahópur munntóbaks sé ungir karlmenn. "Ungir strákar reykja í mjög svipuðum mæli og ungar stúlkur. Það styður þá kenningu að munntóbaksnotkun hjá ungum karlmönnum sé viðbótartóbaksnotkun," segir hann. Því myndi bann á munntóbaki líklega ekki leiða til mjög aukinna reykinga. Þeir ungu strákar sem byrja að fikta með munntóbak hefðu mögulega ekki byrjað að reykja, að mati Viðars.

Almenningur sniðgangi verslunarkeðjur í nafni tjáningarfrelsis

Á nýlegri síðu er almenningur hvattur til að sniðganga verslanirnar Krónuna, Nóatún, Elko og Byko sem eru í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, sem m.a. rekur Kaupás. Ástæðan er sú að á sínum tíma var tímaritið Ísafold tekið úr sölu í verslunum Kaupáss eftir að það fjallaði um skemmtistaðinn Goldfinger.

Bátur í neyð - björgunarsveitarmenn á leiðinni

Björgunarsveitarmenn eru nú á leið að báti sem staðsettur er skammt fyrir utan Vestmannaeyjar. Samkvæmt óstaðfestum upplýsingum fréttastofu kom leki að bátnum og eru sjö manns eru um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar Björgunarsveitarmenn eru nú á leið að báti sem staðsettur er skammt fyrir utan Vestmannaeyjar.

Reykurinn kom frá pizzaofni

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um reyk frá húsnæði í miðborg Reykjavíkur á ellefta tímanum í dag. Einn bíll var sendur á staðinn og inn fóru fjórir slökkviliðsmenn.

Ný stikla úr myndinni Frost frumsýnd

Kvikmyndin Frost, sem er vísindatryllir í leikstjórn Reynis Lyngdal, verður frumsýnd þann 7. september næstkomandi. FROST fjallar um ungt par, Öglu, sem er jöklafræðingur, og Gunnar, kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á hálendi Íslands. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Agla og Gunnar standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli. Vísir frumsýnir nýja stiklu úr myndinni sem

Engar skurðaðgerðir í Neskaupstað

Það eru ekki aðeins fæðingar sem geta ekki farið fram á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í næstu viku því ómögulegt verður að framkvæma hvers kyns skurðaðgerðir í fjórðungnum. Eins og Vísir greindi frá í gær forfallaðist skurðlæknir sem átti að vera á vakt með litlum fyrirvara. Að jafnaði er aðeins einn skurðlæknir á vakt á sjúkrahúsinu og því verður skurðlæknislaust vegna forfallanna.

Sjúkratryggingar greiddu út 30 milljarða

Útgjöld til sjúkratrygginga, slysatrygginga og sjúklingatrygginga í fyrra námu samtals 30,6 milljörðum króna. Það eru um 5,4% af heildarútgjöldum ríkisiins og um 1,9% af landsframleiðslu. Útgjöldin jukust um 767 milljónir frá fyrra ári.

Kölluðu lögreglu til vegna síbrotakattar

Starfsmönnum í næturverslun í borginni var nóg boðið í nótt, þegar köttur læddist þar enn einusinni inn, reif upp harðfiskpoka og tók að gæða sér á innihaldinu.

Alvarlega slasaður eftir að torfærubíll valt

Karlmaður slasaðist alvarlega á höfði þegar óskráður torfærubíll valt í grennd við Flúðir í Árnessýslu um klukkan fjögur í nótt. Hann hlaut meðal annars höfuðáverka og missti meðvitund.

Kona særð í vopnaðri árás í heimahúsi

Kona var flutt á slysadeild Landspítalans um klukkan tíu í gærkvöldi, vegna sára sem hún hlaut, þegar ótilgreindur aðili réðst að henni með einhverskonar vopni í heimahúsi í Reykjavík.

Fá ekki fólk til að semja frumvarp um staðgöngu

Starfshópur sem á að undirbúa frumvarp um að heimila staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni hefur ekki enn verið skipaður þrátt fyrir að þingsályktunartillaga um málið hafi verið samþykkt í janúar. Tillagan fól velferðarráðherra að skipa starfshóp um málið og leggja fram frumvarp "svo fljótt sem verða má".

Sólarlagið heillar

Íslenska kvöldsólin skartar sínu fegursta nú þegar dagurinn tekur vart enda. Landsmenn og ferðamenn fara í miðnæturferðir og fylgjast með sól síga í sæ. Strandlengjan meðfram Sæbraut og Grótta eru vinsælir útsýnisstaðir.

Tófan haslar sér völl nærri byggðu bóli

Tófan hefur fært sig nær byggð og ef fram heldur sem horfir verður hún farin að leita ætis innanbæjar innan skamms. Greni hafi fundist skammt frá bæjum. Í Skagafirði er óvenju mikið af henni í ár. Búið að skjóta yfir hundrað tófur.

Samþætta þarf ríki evrunnar enn frekar

Forgangsmál er að rjúfa vítahring neikvæðrar þróunar banka, ríkja og vaxtarhorfa í löndum evrunnar. Þetta kemur fram í nýju áliti sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) birti í gær. Sjóðurinn kallar eftir enn nánara samstarfi og samþættingu á sviði efnahagsstjórnar í evrulöndunum 17, eigi þau að komast skaðlaust út úr núverandi efnahagsþrengingum.

Rannsóknin langt komin

Rannsókn lögreglu á máli ungu mannanna, sem fóru í leyfisleysi inn á öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli og þaðan upp í flugvél, er langt komin og henni ætti að ljúka á næstunni.

Nýr prestur í Bolungarvík

Séra Ásta Ingibjörg Pétursdóttir hefur verið kjörin nýr prestur í Bolungarvíkurprestakalli. Hún tekur við embættinu af séra Agnesi M. Sigurðardóttur sem vígð var til biskups yfir Íslandi á dögunum.

Óbreyttir mokveiddu í boði borgarstjórnar

Nokkrir borgarstarfsmenn gerðu góða ferð inn að Elliðaám í síðustu viku og lönduðu 27 löxum á einum degi. Borgarfulltrúar og fyrrverandi borgarstjórar eru áfram úti í kuldanum eftir áratuga forgang að veiðidögum borgarinnar.

Forystukonu illa við vínsölu á Hrafnistu

Formanni Landssambands eldri borgara er illa við áformaða áfengissölu á Hrafnistu. Formaður Samtaka aldraðra segir að ekki megi hefta eldri borgara. Málið sé þó viðkvæmt því sumum öldruðum sé hætt við misnotkun á áfengi.

Hefðu fært gömlu húsin á Ingólfstorg

Tillagan sem lenti í öðru sæti í samkeppni um Ingólfstorg og Kvosina gerði ráð fyrir því að gömul hús við Ingólfstorg yrðu færð inn á torgið og nýbygging kæmi í þeirra stað. Myndu líka byggja við Kirkjustræti og endurbyggja Nasa.

Undirbúa stofnun íslensks sjóræningjaflokks

Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyfingarinnar, undirbýr nú stofnun nýs stjórnmálaflokks ásamt hópi fólks. Flokkurinn er kallaður Píratapartýið en hann sækir fyrirmyndir sínar til svokallaðra sjóræningjaflokka sem hafa boðið fram í fjölda landa. Stefnir hópurinn á framboð í næstu alþingiskosningum.

Sækja bæði um rannsóknarleyfi við Aldeyjarfoss

Tvö stærstu orkufyrirtæki landsins, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við Norðlendinga, bítast nú um rannsóknarleyfi vegna 90 megavatta virkjunar við Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti. Orkustofnun þarf að gera upp á milli þeirra þar sem aðeins einn aðili getur haft slíkt leyfi á hverjum tíma. Virkjun Skjálfandafljóts efst í Bárðardal er áratugagömul hugmynd, um tíma var hún kölluð Íshólsvatnsvirkjun en nú Hrafnabjargavirkjun.

Norðmenn og Dani með fyrsta vinning

Þrír höfðu heppnina með sér í Víkingalottóinu í kvöld. Dani og tveir Norðmenn skiptu fyrsta vinnings á milli sín, hver og einn fær tæpar 40 milljónir í sinn hlut.

Huga að gröfum hermanna sem féllu í heimsstyrjöldunum

Sérstök nefnd sem passar upp á að vel sé hugsað um grafir þeirra hermanna sem féllu í heimsstyrjöldunum kom til Íslands í dag til skoða hermannagrafreitinn í Fossvogskirkjugarði. Nefndarmenn heimsækja tugi landa á hverju ári.

Sexfalt fleiri skjálftar í Kötlu en venjulega

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að eitthvað mjög óvenjulegt sé að gerast í Kötlu. Fjöldi smáskjálfta á þessu ári nálgist sexhundruð en venjulega mælist langt innan við eitthundrað skjálftar á sama tíma. Hegðun Kötlu var raunar allt annað en venjuleg í fyrrasumar þegar hún skyndilega sendi frá sér svo magnað hlaup að brúna yfir Múlakvísl tók af.

Segja kosningarnar sannanlega ógildar

Sá hópur kjósenda, sem gert var að kjósa með aðstoð kjörstjórnarfulltrúa, tók ekki þátt í leynilegum kosningum, segir í kæru sem öryrkjar hafa sent Hæstarétti vegna forsetakosninganna. Í kærunni segir að kjósendur hafi ekki haft ástæðu til að bera trúnað til umræddra kjörstjórnarfulltrúa og hann hafi að auki verið fulltrúi stjórnvalda.

Fundu afritunarbúnað á hraðbanka í Reykjavík

Afritunarbúnaður fyrir greiðslukort fannst á hraðbanka í miðborg Reykjavíkur þann 7. júlí síðastliðinn og hefur fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verið með málið til rannsóknar. Rannsókn málsins leiddi til þess að á fimmtudag í síðustu viku var erlendur karlmaður um þrítugt handtekinn á Akureyri grunaður um að hafa komið búnaðinum fyrir á hraðbankanum. Ekki er talið að tekist hafi koma afrituðum greiðslukortaupplýsingum í umferð.

Sjá næstu 50 fréttir