Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir gamla muni vinsælt skotmark skemmdarvarga Eignaspjöll voru unnin á Byggðasafninu að Görðum á Akranesi í síðustu viku. Safnastjóri safnsins segir slík skemmdarverk hafa verið ákveðið vandamál upp á síðkastið og að "gamlir og sérstakir munir" verði frekar fyrir barðinu á skemmdarvörgum. 3.7.2012 10:54
Ól barn í bíl á leiðinni á sjúkrahús Lítilli stúlku lá svo á að komast í heiminn þegar foreldrarnir voru á leið á Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupstað um hálfáttaleytið í morgun að móðirin ól stúlkuna í bíl á leiðinni á sjúkrahúsið. Sjúkrabíll ók svo á móti fjölskyldunni og móðir og barn voru flutt á sjúkrahúsið með sjúkrabílnum. Samkvæmt upplýsingum frá Birni Magnússyni, forstöðulækni á sjúkrahúsinu, eru mæðgurnar enn á sjúkrahúsinu og heilsast þeim vel. 3.7.2012 10:48
Hélt konu nauðugri í tvær klukkustundir Eftir að hafa stungið kunningja sinn fjórum sinnum með litlum hníf ruddist karlmaður á þrítugsaldri óboðinn inn í íbúð á Ólafsfirði. Þar var ein kona fyrir sem hann varnaði útgöngu, hélt þar fanginni í um tvo tíma og kom í veg fyrir að hún hringdi á lögreglu. Atvikin áttu sér stað á aðfararnótt laugardagsins. 3.7.2012 09:59
Líkamsárás á mann á sextugsaldri í nótt Maður á sextugsaldri kom á slysadeild um tvö leytið í nótt og kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás við Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir hvað þar átti sér stað. 3.7.2012 06:30
Gjaldskrá vegna tannlækninga hækkar tímabundið um 50% Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að hækka gjaldskrá vegna almennra tannlækninga barna yngri en 18 ára tímabundið um 50%. Gjaldskrárbreytingin gildir frá 1. júlí til næstu áramóta, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Áætlað er að með þessu hækki hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar úr tæpum 42% í að meðaltali í 62,5% og hefur það ekki verið hærra í tæpan áratug. Ákvörðun velferðarráðherra er í samræmi við tillögu starfshóps sem hann skipaði um miðjan maí síðastliðinn. 3.7.2012 15:22
Tökum á mynd Cruise lokið Tökum á myndinni Oblivion lauk í gærkvöld. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi myndarinnar Claire Raskind í samtali við Vísi. "Við erum hætt tökum hér. Þeim lauk í gærkvöldi. Það er það eina sem ég get sagt," sagði Raskind í samtali við Vísi. 3.7.2012 11:22
Ættum að framleiða okkar eigið eldsneyti Efnafræðingurinn Surya Prakash segir að Ísland sé betur til þess fallið en nokkur önnur þjóð að verða sjálfu sér nægt um eldsneyti. Íslenskt fyrirtæki hefur uppi áform um að framleiða 80 milljón tonn af metanóli á ári. 3.7.2012 08:00
Segja starfsöryggi sínu ógnað Reykjavíkurborg hefur nú ákveðið að hefja innritun barna sem eru fædd í janúar 2011 í leikskóla borgarinnar. 3.7.2012 07:00
Veðurupplýsingar geta forðað slysi Vindar og vindhviður skapa ferðalöngum með húsvagna oft mikla hættu. Dæmi eru árlega um að húsbílar fjúki af þjóðvegum landsins vegna strekkings, jafnvel svo að þeir velti og lífi fólks sé stefnt í hættu. Á landinu eru þjóðvegir þó misvarasamir. 3.7.2012 07:00
Jafnræði að laun allra sem lækkuðu séu hækkuð á ný Kópavogsbær hækkaði laun allra starfsmanna sem tóku á sig launalækkun 2009, líka þeirra sem ekki heyra undir kjararáð. Vildum tryggja jafnræði, segir upplýsingafulltrúi bæjarins. Kallað er eftir því að Reykjavíkurborg geri slíkt hið sama. Formaður kjarafé 3.7.2012 06:30
Kauphallarstjóri ánægður með breytt umhverfi Hlutabréf í fasteignafélaginu Regin, sem meðal annars á og rekur Smáralind og Egilshöll, voru tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands í gærmorgun. Gengi bréfa félagsins stóð í stað í 8,2 í lok dags, en heildarvelta viðskipta með bréf í félaginu nam tæplega 40 milljónum á þessum fyrsta viðskiptadegi. Með Regin hafa nú tvö ný félög verið skráð á markað frá hruni, en auk Regins hefur smásölurisinn Hagar, sem á og rekur Bónus og Hagkaup, einnig verið skráður á markað. 3.7.2012 06:30
Gagnrýna nýtt gjald fyrir kafanir í Silfru Eigandi Arctic Adventures segir nýtilkomið gjald Þingvallanefndar á kafara og snorklara í gjánni Silfru mismuna gestum þjóðgarðsins og koma á óvart. Helmingur gjaldsins fari væntanlega í laun starfsmanns sem eigi að rukka það. 3.7.2012 06:00
Gæðaeftirlitsmenn skoða verkferla „Embættismenn Kópavogsbæjar hafa lagt ómælda vinnu við það undanfarin fjögur ár að endurskoða og skrá niður alla vinnuferla innan stjórnsýslusviðs sem snerta til dæmis vistun skjala, innheimtu, innkaup, fjárhagsáætlunargerð, upplýsingagjöf og mannaráðningar,“ segir Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar. 3.7.2012 06:00
Drottningin dregin í svaðið Hópurinn Handverkskonur á milli heiða gagnrýnir harðlega að íslenskar lopapeysur séu framleiddar í Kína eða löndum með ódýru vinnuafli. Fjórar vikur eru síðan Fréttablaðið benti á að íslenskar lopapeysur væru í miklum mæli prjónaðar erlendis. 3.7.2012 05:00
Fær ekki bætur fyrir varðhaldsvist Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af bótakröfu íslensks atvinnurekanda sem sat í gæsluvarðhaldi um þriggja vikna skeið haustið 2009 grunaður um aðild að mansalsmáli. Maðurinn var ákærður í málinu en fundinn sýkn saka. 3.7.2012 05:00
Fjórir í stærðfræði með ágætiseinkunn Fjórir stærðfræðinemar brautskráðust úr grunnnámi með yfir níu í meðaleinkunn frá Háskóla Íslands fyrir viku. Stærðfræði er nytsamleg, segir einn þessara nema, hún er notuð í hvert skipti sem lesa þarf úr talnagögnum. 3.7.2012 04:30
Fallegri undirgöng í vændum Veggjakrotarar voru ekki lengi að setja mark sitt á nýmálaða veggi í göngunum undir Miklubraut við Lönguhlíð. Stutt er síðan göngin voru máluð. 3.7.2012 04:30
Vatnsholt fær viðurkenningu Tripadviser Gistiheimilið Vatnsholt við Villingaholtsvatn hlaut nýlega viðurkenningu ferðasíðunnar Tripadviser fyrir framúrskarandi þjónustu. 2.7.2012 21:30
Vill sameina sjúkraflug á landinu "Við gætum hugsanlega gert betur með því að vera ávallt með vakt á staðnum og það hlýtur auðvitað að vera framtíðin,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi þar um þá hugmynd að sameina sjúkraflug á landinu og að hafa ávallt mannaða vakt á flugvöllum. 2.7.2012 20:45
Guðir og vættir takast á í nýjum íslenskum tölvuleik Nýr íslenskur tölvuleikur sem byggir að hluta á norrænu goðafræðinni er í burðarliðnum. Ef vel gengur búast framleiðendur hans við að milljónir manna um allan heim muni spila hann í nánustu framtíð. 2.7.2012 20:15
Strandaði við Skagaströnd Báturinn Eyjólfur Ólafsson HU-100 strandaði norðan við Spákonufellshöfða við Skagaströnd á fimmta tímanum í dag. Engin hætta skapaðist en einn maður var um borð. Hann kom sér sjálfur í land við strandstaðin. Björgunarbátur frá Landsbjörg dró bátinn til hafnar. 2.7.2012 19:25
Móðir telpnanna leitar til dómstóla Móðir telpnanna þriggja, sem teknar voru með lögregluvaldi fyrir helgi, ætlar ásamt lögmanni sínum að leita til dómstóla til að fá úr því skorið hvort aðgerðin hafi verið lögleg. Lögmaður föðurins segir Ísland skuldbundið alþjóðasáttmálum til að beita þessu neyðarúrræði. 2.7.2012 19:03
Þörf á strangari kröfum til fjölda meðmælenda Prófessor við lagadeild Háskóla Íslands telur rétt að auka þann fjölda meðmælenda sem forsetaframbjóðendur þurfa að afla til að framboð telst löglegt. Niðurstöður kosninganna þar sem þrír frambjóðendur fengu samtals um fimm prósent atkvæða bendi til þessa að þröskuldurinn sé of lágur í dag. 2.7.2012 18:45
Vill að lopapeysur verði merktar framleiðslulandi sínu "Það eru hundruð íslendinga sem vinna við það að prjóna peysur og ég vill ekki að þetta handverk eigi í hættu við erlenda samkeppni." Þetta segir Aðalsteinn Baldurssonar, formaður verkalýðsfélagsins Framsýnar. 2.7.2012 17:44
Athugasemdir eldri borgara í Gerðubergi verða skoðaðar Reykjavík verð rúmum hálfum milljarði króna til félagsmiðstöðvanna í Reykjavík á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni vegna bænaskjals sem eldri borgarar, sem nýta sér þjónustu Gerðubergs, færðu borgarfulltrúum í dag til að mótmæla niðurskurði í starfi eldri borgara í Gerðubergi. 2.7.2012 17:00
Konan formlega tekin við af Karli Agnes M. Sigurðardóttir tók formlega við starfi biskups Íslands í dag. Dagurinn byrjaði klukkan níu á Biskupsstofu. Fyrsta formlega verkefnið var innanhúss helgistund. 2.7.2012 16:30
Sakborningur í mansalsmáli fær engar bætur frá ríkinu Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfu manns sem var handtekinn og sætti einangrun í þrjár vikur vegna mansalsmálsins 2009. Um er að ræða eina mansalsmálið sem hefur verið ákært í á Íslandi, en maðurinn var sýknaður af ákærunni. 2.7.2012 16:04
Gordon spilar ekki með Bretum á Ólympíuleikunum Það er nú ljóst að NBA-leikmaðurinn Ben Gordon mun ekki spila með breska landsliðniu á Ólympíuleikunum í Lundúnum sem hefjast síðar í mánuðinum. 2.7.2012 16:00
Ólíklegt að kosningarnar verði ógiltar Þó að framkvæmd atkvæðagreiðslu fatlaðra í forsetakosningunum á laugardag gæti talist ágalli á kosningunum er ólíklegt að það leiði til ógildingar þeirra. Þetta segir Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst. 2.7.2012 15:53
Framleiðendur Oblivion vildu loka svæðinu yfir Veiðivötnum Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion óskuðu eftir því að flugbann yrði sett yfir svæðinu þar sem tökur fara fram á Veiðivatnasvæðinu. Eins og kunnugt er leikur Tom Cruise aðalhlutverkið í myndinni. Flugmálayfirvöld fengu beiðni um að svæðinu yrði lokað fyrir flugumferð þar sem einhverjar sprengingar voru fyrirhugaðar vegna töku kvikmyndar þar. 2.7.2012 15:42
Vinna hafin við þriðja bindi sögu Akraness Samningar um að hefja vinnu við þriðja bindið af sögu Arkaness voru samþykktir í bæjarráði Akraness í júní. Vinnan við þriðja bindi sögunnar er því hafin og sem fyrr sér Gunnlaugur Haraldsson um ritunina. Upphæðin sem samþykkt var fyrir þetta ár var 4,2 milljónir króna en í heild sinni er gert ráð fyrir að vinnan við bindið kosti 14 milljónir. 2.7.2012 14:54
Eldri borgarar biðla til borgarfulltrúa Eldri borgarar úr Gerðubergi í Breiðholti afhentu borgarfulltrúum í dag bænaskjal þar sem þess er farið á leit að starfi eldri borgara í Gerðubergi verði bjargað. Undirskriftir 450 manns sem tengjast starfinu voru afhentar borgarfulltrúunum. Á meðal þeirra sem hittu borgarfulltrúana var Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður velferðarráðs. 2.7.2012 14:24
Tökur á Oblivion enn í gangi Það ræðst líklega á morgun hvenær tökum á myndinni Oblivion, sem skartar Tom Cruise í aðalhlutverki, mun ljúka. Þetta staðfestir talsmaður tökuliðsins við Vísi. Tökur hafa farið fram undanfarna daga samkvæmt áætlun, þrátt fyrir þrálátar sögusagnir í erlendum miðlum um að Tom Cruise hafi yfirgefið landið eftir að Katie Holmes sótti um skilnað frá honum. Tökur fara fram núna á Suðurlandi, í nágrenni við Veiðivötn. 2.7.2012 14:04
Leita vitnis að umferðarslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Nýbýlavegi í Kópavogi um hádegisbil föstudaginn var. Í hringtorgi á móts við Toyota-umboðið var svörtum Range Rover ekið í veg fyrir bifhjól með þeim afleiðingum að ökumaður þess missti stjórn á hjólinu, ók á vegkant og féll síðan af því. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. 2.7.2012 13:13
Guðmundur: Forsetinn kominn í pólitík Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir þjóðina hafa sent þau skilaboð í forsetakosningunum að forsetinn eigi að láta til sín taka í umræðunni um hin stærstu mál. Guðmundur Steingrímsson, formaður stjórnmálaflokksis Bjartrar framtíðar, segir að með þessu sé forsetinn kominn í pólitík og að breytingar þurfi að verða á embættinu í samræmi við það. Skoðanir forsetans geti ekki komið úr vernduðu umhverfi. 2.7.2012 12:17
Telpurnar fluttar til Danmerkur í gær Telpurnar þrjár, sem voru teknar með lögregluvaldi af móður sinni á föstudag, voru fluttar úr landi síðdegis í gær til Danmerkur. Lögmaður móðurinnar furðar sig á að börnin hafi ekki verið kyrrsett á Íslandi. 2.7.2012 12:11
Brotist inn í nýbyggingu í Mosfellsbæ Brotist var inn í nýbyggingu í Mosfellsbæ og nokkrum verkfærum var stolið. Tilkynning um innbrotið barst lögreglunni um hálftíuleytið í morgun. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki en þeirra er leitað. 2.7.2012 11:52
Hundruð handverkakvenna óttast um hag sinn Verulegur hiti er meðal handverkakvenna sem hafa haft lífsviðurværi sitt af því um árabil að selja ferðamönnum prjónaðar vörur og annað íslenskt handverk. Stórfyrirtæki á Íslandi eru farin að senda lopa til Kína þar sem íslenskir minjagripir eru framleiddir. Í morgun greindi Verkalýðsfélagið Framsýn greindi frá því að félagið hyggðist kanna hver kjör kinversk verkafólks væru. 2.7.2012 10:38
Viðbragðsáætlun virkjuð á Keflavíkurflugvelli Viðbragðsáætlun var virkjuð á Keflavíkurflugvelli nú á níunda tímanum vegna flugvélar sem á að lenda um klukkan korter í níu. Tilkynnt var um reyk í flugstjórnarklefa vélarinnar, en á þessari stundu er ekki vitað hvað veldur reyknum. Ekki hafa fengist um það upplýsingar á þessari stundu hvaðan vélin var að koma. 2.7.2012 08:38
Vilja að lopapeysurnar séu prjónaðar á Íslandi Verkalýðsfélagið Framsýn íhugar að óska eftir upplýsingum frá íslenskum aðilum sem láta framleiða íslenskar lopapeysur í Kína til þess að selja á Íslandi. Óskað verður eftir upplýsingum um kjör og aðbúnað fólksins í Kína sem framleiðir lopapeysurnar fyrir markaðinn á Íslandi. Á vef Framsýnar segir að Kínverjar hafi fram að þessu ekki verið þekktir fyrir góð launakjör eða aðbúnað verkafólks, sé tekið mið af því sem gerist á Íslandi. 2.7.2012 08:52
Snjallsímaleiðsögn í boði um Austurland Austfirðingar hafa tekið nýjustu tækni í þjónustu sína til að auka gildi ferðalaga um fjórðunginn. Nýtt smáforrit fyrir snjallsíma og spjaldtölvur gerir ferðalöngum kleift að nálgast leiðsögn um sex aðskilin svæði á héraði og niðri á fjörðum. 2.7.2012 08:00
Bílvelta á Mosfellsheiði Bílvelta varð á Mosfellsheiði í gærkvöld um tíu leytið. Tvennt var í bílnum, ungur ökumaður og stúlka. Þau slösuðust ekki að ráði, fengur skrámur og eymsli á öxl en voru flutt á slysadeild til skoðunnar. Bíllinn er hinsvegar stórskemmdur. 2.7.2012 07:03
Örtröð strandveiðibáta á miðin Um áttahundruð bátar hafa streymt á sjó í morgunsárið en öll svæði þar sem stunda má strandveiðar eru nú opin. 2.7.2012 06:29
Þvottastöðvar knúnar fótafli viðskiptavina Ef hugmyndir átta bandarískra listhönnuða ganga eftir verður ekki langt í að þvottastöðvar, sem í leiðinni verða hálfgerðar félagsmiðstöðvar, skjóti upp kollinum víða um land. 2.7.2012 06:00
Þóra var duglegust á samfélagsmiðlum Rannsóknir benda til þess að fylgni sé á milli úrslita kosninga og áhrifa frambjóðenda á samfélagsmiðlum. Þekkingarfyrirtækið Cloud engineering tók saman upplýsingar um virkni forsetaframbjóðenda á Facebook í aðdraganda kosninganna. Skemmst er frá því að segja að Þóra Arnórsdóttir og stuðningsmenn hennar nýttu samfélagsvefinn mest allra frambjóðenda til að kynna sig og eiga samskipti við kjósendur. Gagnasöfnunin um Facebook-notkunina spannaði allan júnímánuð. 2.7.2012 04:00