Fleiri fréttir

Fá ekki upplýsingar frá Seðlabankanum

Þórður Snær Júlíusson blaðamaður mun ekki fá afhentar upplýsingar um bókfært virði seljendaláns Seðlabanka Íslands til nýrra eigenda hins danska FIH banka um áramótin 2011 til 2012. Seðlabankinn hafði neitað því að láta blaðamanninum í té þessar upplýsingar og úrskurðarnefnd um upplýsingamál staðfesti þá synjun Seðlabankans í nýjum úrskurði. Þá vísaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál frá kæru vegna kröfu um afhendingu afrits af kaupsamningi sem Seðlabankinn gerði um sölu FIH bankans í október 2010.

Meintir fíkniefnasmyglarar fyrir dóm í morgun

Þrír pólverjar, sem ákærðir eru fyrir að flytja 8,6 kíló af amfetamíni, til landsins um miðjan apríl tóku sér allir frest til að lýsa yfir afstöðu til sakarefnisins þegar ákæra gegn þeim var þingfest í morgun.

Ólafur undirritaði lög um veiðileyfagjöld

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, undirritaði lög um veiðigjald á útgerðarfyrirtæki á þriðjudaginn síðastliðinn. Þetta fékkst staðfest í forsætisráðuneytinu í morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu bárust forsetanum nær engar áskoranir um að vísa frumvarpinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hin nýsamþykktu lög um veiðigjald þykja umdeild en þau eiga að skila ríkissjóði 12,8 - 13,6 milljarða króna sem útgerðarfyrirtækin þurfa greiða í endurgjald fyrir afnot af sameiginlegri fiskveiðiauðlind þjóðarinnar.

Gera heimildarmynd um Guðmund Felix

Danska ríkissjónvarpið og RÚV hafa keypt sýningarrétt á íslenskri heimildarmynd um Guðmund Felix Grétarsson, sem er á leiðinni til Frakklands í handaágræðslu. Fleiri erlendir aðilar hafa sýnt verkefninu áhuga.

Fór hágrátandi heim frá Gillzenegger

Stelpan sem kærði Egil Einarsson fyrir nauðgun í haust fór hágrátandi af heimili Egils nóttina sem hún fullyrðir að hann hafi nauðgað sér. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem réttargæslumaður stúlkunnar hefur sent fjölmiðlum.

Hugsanlega hætt að refsa hælisleitendum

Horfið verður frá því að refsa hælisleitendum á Íslandi fyrir að framvísa fölsuðum skilríkjum, verði tillögur starfshóps innanríkisráðherra sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan evrópska efnahagssvæðisins að veruleika. Tillögurnar voru kynntar blaðamönnum í gær. Hópurinn leggur að auki til að komið verði á laggirnar sjálfstæðri úrskurðarnefnd í málefnum hælisleitenda, sem hugsanlega nái til allra kærumála á grundvelli útlendingalaga.

Eldur í sorpgeymslu

Eldur kom upp í sorpgeymslu við Hótel Marínu, sem er við Slippinn í Reykjavík, um klukkan níu í morgun. Sem betur fer var eldurinn lítill og varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að slökkvistarfið hafi einungis staðið yfir í skamma stund. Engar upplýsingar hafa fengist um skemmdir af völdum elds eða reyks.

Erill hjá björgunarsveitum

Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarmenn komu í gærkvöldi ungum manni til hjálpar í hlíðum Esjunnar, sem hafði veikst skyndilega rétt við svonefndan Stein. Þeir báru manninn niður og fluttu hann á Landsspítalann.

Um 57% styðja Ólaf Ragnar

Nærri sex af hverjum tíu kjósendum ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í forsetakosningum sem fram fara á morgun. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi og fyrrakvöld.

Ökumaður bifhjóls mældur á 153 km hraða

Ökumaður bifhjóls mældist á 153 kílómetra hraða á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Hann missir ökuréttindi í mánuð og þarf að greiða 130 þúsund krónur í sekt.

Þurftu að setja bróður ökumanns í járn

Þegar Selfoss lögreglan stöðvaði ökumann í gærkvöldi í uppsveitum Árnessýslu, grunaðan um ölvunarakstur, brást bróðir hans ókvæða við, en hann var farþegi í bílnum.

Hróplegur munur á slætti

Grasflötin á Eiðisgranda tekur stakkaskiptum við bæjarmörk Reykjavíkur og Seltjarnarness. Flötin Seltjarnarnesmegin er slegin en Reykjavíkurmegin fá njólarnir og úr sér sprottið grasið að vera í friði fyrir sláttuvélunum.

Slegin óhug yfir ofbeldisverkum

Ísland lýsir yfir óhug og þungum áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Sýrlandi og hvetur til þess að mögulegum kerfisbundnum brotum, sem kunni að reynast glæpir gegn mannkyni, verði vísað til Alþjóðlega sakamáladómstólsins.

Börsungar gefa áritaða treyju

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF á Íslandi, stendur fyrir happdrætti þar sem einn heppinn þátttakandi fær áritaða treyju Barcelona, knattspyrnuliðsins katalónska. Knattspyrnuliðið gaf landsnefndum UNICEF um allan heim treyjur. Aðeins ein er í boði á Íslandi.

Mikilvægt framlag til mannréttinda

Stefnt er að því að frumvarp að nýjum heildarlögum um málefni útlendinga verði lagt fram á Alþingi í haust. Þetta kom fram á fundi í gær þar sem skýrsla nefndar, sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins, var kynnt.

Fleiri stelpur í hestaíþróttinni

Þátttaka stelpna í hestaíþróttum hefur farið vaxandi. Hér á landi hafa strákar verið duglegri við að stunda íþróttina þótt kynjahlutföll skráðra meðlima í hestamannafélögum á Íslandi séu nokkuð jöfn.

Forsíðumynd og flugmiðar með Wow-air í fyrstu verðlaun

Útivist er þema fyrstu ljósmyndasamkeppni sumarsins sem Fréttablaðið efnir til meðal lesenda sinna. Þeir eru hvattir til að senda sem fjölbreytilegastar myndir af viðfangsefnum sem tengjast útivist með einum eða öðrum hætti.

Vill ekki „tákn um sundrungu“ hjá Jóni

„Mér finnst að Jón Sigurðsson, okkar sameiningartákn, eigi að fá að vera þarna í friði,“ segir Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í skipulagsráði Reykjavíkur. Marta er andvíg því að listaverkið Svarta keilan verði á Austurvelli.

Smygluðu dópi í sápubrúsum

Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá pólska karlmenn fyrir að flytja til landsins 8,6 kíló af amfetamíni um miðjan apríl.

Ráðherrann biður fatlaða afsökunar

Sigurður Kári Kristjánsson, þáverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram tillögu um miðjan síðasta áratug sem uppfylla átti kröfu fatlaðra um aðstoðarmann að eigin vali í kosningum. Málið fékkst ekki afgreitt frekar en þegar Sigurður ásamt öðrum lagði það fram aftur á þinginu 2010-2011, í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings.

Forskot Ólafs Ragnars stórt

Ólafur Ragnar Grímsson er líklegur til að hljóta endurkjör til næstu fjögurra ára í embætti forseta Íslands ef marka má niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gær og fyrrakvöld.

Fréttaskýring: Refsiaðgerðir frekar ólíkleg framtíðarsýn

Eru refsiaðgerðir af hendi Evrópusambandsins yfirvofandi vegna makrílveiða? Nú liggur fyrir samkomulag fulltrúa Evrópuþingsins og ráðherraráðs Evrópusambandsins, þar sem Danir fara með forsæti, um að reglugerð verði sett sem veitir heimild til aðgerða gegn ríkjum sem stunda ósjálfbærar veiðar. Reglugerðin er sett til höfuðs Íslendingum og Færeyingum vegna makrílveiða. Refsiaðgerðir gegn Íslandi hafa hins vegar ekki verið samþykktar, og myndu reynast bitlitlar ef til þeirra kæmi. Framhald málsins ræðst líklega á haustmánuðum.

Gamalt sláturhús verður hótel

Fosshótel opnar 41 herbergis hótel á Patreksfirði í maí á næsta ári. Samningar þess efnis voru undirritaðir á Patreksfirði í gær. Það verður langstærsta hótelið á svæðinu segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstýra Vesturbyggðar. Hótelið verður í endurbyggðu vinnsluhúsi en í því var áður rekið sláturhús og fiskvinnsla.

Krakkar í Kópavogi með hærri laun

Unglingar í vinnuskólanum í Kópavogi fá allt að þrjátíu prósent hærri laun en jafnaldrar sínir í vinnuskólanum í Reykjavík. Vinnuskólinn er á vegum sveitarfélagana sem ákveða sjálf laun unglingana.

Langar raðir á kjörstað í kvöld

Nú klukkan hálf tíu í kvöld voru langar raðir fyrir utan Laugardalshöllina af fólki sem ætlaði að greiða atkvæði fyrir forsetakosningarnar utan kjörfundar.

Cruise grillaði pylsur í eldfjallagíg

Sonur Tom Cruise skemmtir sér stórkostlega á Íslandi og virðist elska land og þjóð. Á þriðjudaginn grillaði hann pylsur ofan í eldfjallagíg. Hann er búinn að fara og kafa í Silfru, fara í jöklaferðir og nú síðast fór hann í river rafting.

Fékk heldur ekki að heita Blær og fagnar málaferlum

Þuríður Blær, leikaranemi, fagnar málaferlum gegn innanríkisráðherra til að fá úrskurði mannanafnanefndar um að konur megi ekki heita Blær ógilta. Þuríður er einn þeirra stúlkna sem aldrei fékk að heita Blær opinberlega og hefur gegnum tíðina staðið í miklu stappi við mannanafnanefnd vegna þessa.

Komst í hann krappan á Esjunni

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fóru á Esju nú í kvöld til aðstoðar ungum manni sem veiktist á göngu á fjallinu. Þegar hann var kominn upp að Steini þvarr honum kraftur og komst ekki lengra. Menn frá slökkviliðinu voru fyrstir á staðinn og hjálpuðu þeir honum niður hluta af leiðinni, þangað sem björgunarsveitir biðu með fjórhjól. Aðgerðinni lauk á níunda tímanum.

Bein útsending frá setningarathöfn Landsmóts

Setningarathöfn Landsmóts hestamanna hefst núna klukkan hálfníu og er sýnd í beinni útsendingu á Vísi. Á athöfninni er meðal annars hópreið, sem þau Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, og Dorrit Moussaief leiða. Smelltu á hnappinn "Horfa á myndskeið með frétt“ til að fylgjast með athöfninni.

Verið að gera stjórnvöld að blóraböggli

Sjávarútvegsráðherra segir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum reyna að gera stjórnvöld að blóraböggli í rekstravanda fyrirtækisins. Útskýringar stjórnenda gangi ekki upp.

Aðeins einn forsetaframbjóðandi lagði á Esjuna

Hannes Bjarnason var eini forsetaframbjóðandinn sem mætti í viðtal í Reykjavík síðdegis á Esjunni í dag. Þáttarstjórnendurnir sendu þáttinn út af toppi Esjunnar í dag og buðu öllum forsetaframbjóðendunum að koma í viðtal.

Í sjöunda himni eftir heimsókn til lögreglunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bjargaði degi konu nokkurrar sem kom á stöðina til að tilkynna um týnda Sony videotökuvél. Konan var að vonum niðurdregin og gerði sér engar vonir um að vélina væri að finna hjá lögreglunni, kom bara á stöðina til að fylla út þar til gert eyðublað eins og ber að gera í tilvikum sem þessum.

„Þetta er gríðarlega þungt högg fyrir okkur"

"Þetta er gríðarlega þungt högg fyrir okkur. Það sem er kannski verst er að sjá þennan helkalda veruleika berast fyrir framan sig eftir að hafa fengið það ítrekað í andlitið frá þingmönnum að við séum að stunda hræðsluáróður."

Krummi krunkaði með börnunum

Hann Krummi var kátur þegar hann hitti krakkana í sumarskóla Ísaksskóla í Skaftahlíðinni í morgun. Krummi, sem er heimaalningur í húsi í nágrenni við skólann og 365 miðla, þáði kex og brauðmylsnu úr hendi krakkanna og foreldrarnir fylgdust spenntir með. Krummi krunkaði síðan til þeirra allra í þakklætisskyni. Samkvæmt upplýsingum frá Ísaksskóla er sumarskólinn rekinn fyrir 5 og 6 ára gömul börn.

Ögmundur biðst afsökunar

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra biður fólk með fötlun afsökunar á því að hafa ekki breytt kosningalöggjöfinni á þann hátt að fólk geti valið sér aðstoðarmenn þegar það fer inn í kjörklefa. Freyja Haraldsdóttir, ötull talsmaður fyrir réttindum fólks með fötlun, vakti athygli á því í tölvupósti til þingmanna og fjölmiðla í gær að löggjöfinni hafi ekki verið breytt. Nokkrir þingmenn hafa þegar brugðist við og lofað því að flytja þingmál á næsta þingi.

Reykjavík síðdegis á Esjunni

Þeir félagarnir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni munu standa skör hærra í þættinum í dag en venjulega því þeir ætla að senda þáttinn út ofan af Esjunni.

Maður frá Eritríu óskaði eftir hæli

Í morgun knúði maður dyra á lögreglustöðinni á Egilsstöðum. Hann kvaðst hafa komið með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar frá Danmörku fyrr um morguninn og óskaði eftir hæli á Íslandi.

Viltu eiga áritaða treyju Barcelona-manna

Íslendingum gefst nú kostur á að eignast áritaða treyju fimm leikmanna knattspyrnuliðsins Barcelona. Unicef á Íslandi stendur fyrir SMS-leik þar sem allur ágóði rennur til samtakanna. Stórstjörnurnar Gerard Pique, Victor Valdés, Xavi Hernandez, Carlos Pyol og David Villa hafa skrifað nafn sitt á treyjuna.

Í anda siðareglna að upplýsa fyrirfram um boðsferðir

Fram kemur í áliti innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar að það sé í anda siðareglna og góða starfshætti að borgarfulltrúar upplýsi fyrirfram um ferðir sem þeim eru boðnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tveggja blaðsíðna úttekt innri endurskoðunar borgarinnar á boðsferð sem Einar Örn Benediktsson þáði hjá WOW Air í lok maí.

Ólína efast um rökstuðning Vinnslustöðvarinnar

"Það er alveg viðbúið að menn fari nú að skella skuldinni á veiðigjaldið, frekar en að taka ábyrgð á eigin rekstrarákvörðunum og fjárfestingum." Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.

Bensínþjófur á sextugsaldri dæmdur

Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa stolið bensíni þrisvar sinnum á síðustu þremur árum.

Sjá næstu 50 fréttir