Fleiri fréttir

Vélhjólaslys á Vesturlandsvegi

Vélhjólaslys varð á Vesturlandsvegi, nærri Höfðabakka, fyrir fáeinum míníutum. Vísir hefur ekki fengið nánari upplýsingar um málið. Sjúkraliðið er á vettvangi.

Jón Gnarr tók á móti Tiersen

Tónlistarmaðurinn Yann Tiersen er kominn til landsins ásamt hljómsveit sinni. Jón Gnarr, borgarstjóri, tók á móti þeim í Höfða í síðdegissólinni í dag en þaðan héldu þeir í Hörpu og tóku út Norðurljósasalinn fyrir tónleikana á morgun. Uppselt er á tónleika Tiersen, sem verða á morgun. Þar verður spilað órafmögnuð efnisskrá sem tileinkuð er nýjustu plötu hans, Skyline.

Lítið bólar á gjaldeyrismálum og ráðherra hefur áhyggjur

Efnahags- og viðskiptaráðherra segir það áhyggjuefni hve fá mál hafi komið til dómstóla frá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Tvö og hálft ár er liðið síðan kynnt var stór rannsókn á hendur mönnum sem grunaðir eru um gjaldeyrisbrot en ekkert bólar á niðurstöðu.

40% taka ekki afstöðu

Fjörutíu prósent þjóðarinnar vilja ekki taka afstöðu til þeirra stjórnmálaflokka sem hyggjast bjóða fram til alþingiskosninga. Sjálfstæðisflokkurinn hefur yfirburðarfylgi meðal þeirra sem taka afstöðu.

Kraftmesti "rib“ bátur Íslands sigldi á sker

Kraftmesti "rib"bátur landsins lenti á skeri á ferð sinni frá Reykjavík til Akureyrar í morgun. Óhappið varð rétt norðan Sauðárkróks. Við byltuna brotnuðu bæði hældrif bátsins. Tjónið er að sögn mikið og viðgerð gæti tekið 2-3 vikur. Bátur þessi er engin smásmíð, en hann er 12 metrar á lengd, vegur ein 5,5 tonn og búinn 700 hestafla vél. Hann er nefndur eftir Jóni Páli kraftajötni, enda kraftmesti bátur landsins.

Ofbeldismennirnir kröfðust hundruð þúsunda af fórnarlömbunum

Upphæðirnar sem Annþór Kristján Karlsson, Börkur Birgisson og félagar þeirra kröfðust af mönnunum sem þeir höfðu í hótunum við og lömdu námu hundruðum þúsunda króna. Þetta kemur fram í ákæru yfir mönnunum sem Vísir hefur undir höndum.

21 stigs hiti á Þingvöllum í dag

Þessi næstsíðasti dagur mánaðarins reyndist enn einn maídagurinn þar sem hitastig fer yfir 20 gráðurnar á landinu. Mestu hlýindin hafa mælst á Þingvöllum, 20,7 gráður, og í Húsafell, 20,2 gráðu, samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu. Á Hjarðarlandi í Biskupstungum mældi sjálfvirk stöð 19,5 gráðu. Hlýindin ná inn á hálendið. Í Veiðivatnahrauni hafa mælst 16,8 gráður í dag, í Vatnsfellsvirkjun 15,4 gráður og á Hveravöllum á Kili 15,3 gráður.

Guðgeir er sakhæfur

Guðgeir Guðmundsson, sem ákærður hefur verið fyrir að hafa stungið Skúla Sigurz, margsinnis á lögmannsstofunni Lagastoð er sakhæfur, samkvæmt niðurstöðum geðrannsóknar. Það var fréttavefurinn DV sem greindi frá þessu fyrr í dag en heimildir Vísis herma hið sama. Samkvæmt heimildum Vísis var það Sigurður Páll Pálsson, yfirlæknir á réttargeðdeildinni á Kleppi sem vann matið. Það verður svo dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur að taka endanlega niðurstöðu um málkð.

Gert að afhenda nöfn allra kvenna sem fengu PIP brjóstapúða

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, um að lögfræðingurin Saga Ýrr Jónsdóttir, héraðsdómslögmaður hjá Vox lögmannsstofu, skuli afhenda skattrannsóknarstjóra yfirlit yfir nöfn og kennitölur allra þeirra kvenna sem hafa leitað til hennar eftir lögfræðiaðstoð vegna brjóstastækkunar hjá lýtalækninum Jens Kjartanssyni. Allar konurnar fengu grædda í sig svokallaða PIP-brjóstapúða hjá Jens, sem síðar reyndust gallaðir.

Hrottafengnar árásir Annþórs og Barkar

Árásir Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar á sjö manns voru skipulagðar og sérstaklega ófyrirleitnar að því er fram kemur í ákærunni á hendur þeim. Málið verður þingfest á föstudag, að því er fréttavefur RÚV greinir frá. Alls eru tíu manns ákærðir

Steingrímur starfandi forsætisráðherra

Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra atvinnumála, er nú starfandi forsætisráðherra eftir að Jóhanna Sigurðardóttir fór til Þýskalands í gærdag.

Leið hvergi verr en á Íslandi

Söngkonan Leoncie prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Nýs lífs, sem kemur út á morgun. Nýtt líf heimsótti söngkonuna í bænum Leigh on Sea, í austurhluta London, þar sem hún hefur verið búsett undanfarin ár.

Býst við að fjórðungur lögmanna muni kjósa nýjan formann

Töluverð spenna ríkir á meðal lögmanna því nýr formaður Lögmannafélags Íslands verður kosin á aðalfundi í kvöld. Í framboði eru tveir félagar, þau Jónas Þór Guðmundsson, sem er núverandi formaður, og Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður á Mandat lögmannsstofu. Brynjar Níelsson, formaður félagsins, hefur setið í tvö ár en ætlar ekki að gefa kost á sér áfram.

Játuðu tug innbrota í Grafarvogi

Þrír karlmenn hafa játað tug innbrota í heimahús í Grafarvogi í Reykjavík á nokkurra vikna tímabili. Mennirnir voru handteknir eftir að íbúi lét lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir. Tveir af mönnunum sátu í gæsluvarðhaldi um tíma vegna málsins. Þeir stálu meðal annars myndavélum, fartölvum, símum, sjónvörpum, skartgripum og peningum frá íbúum í Grafarvogi. Mennirnir eru á þrítugsaldri og hafa allir komið við sögu lögreglu áður.

Göngustígurinn í Dyrhólaey færður vegna slyss

Göngustígurinn við Dyrhólaey, þaðan sem hollensku hjónin hrundu fyrir helgi, hefur verið færður allt að áttatíu metra frá bjargbrúninni. Teymi skriðufallasérfræðinga frá Veðurstofunni er væntanlegt austur í dag til rannsaka bergið.

Umferðaróhapp á Miklubraut

Umferðaróhapp varð á Miklubraut, skammt frá gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar, í morgun. Myndatökumaður Stöðvar 2 og Vísis, sem keyrði frammá vettvang óhappsins, fékk þær upplýsingar að ruslabíllinn sem sést á meðfylgjandi mynd hafi verið að skipta um akgrein með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbílsins missti stjórn á honum og lenti öfugur á grindverkinu. Vísir hefur ekki náð tali af lögreglumönnum til að spyrja þá hvort einhver hafi slasast í umferðaróhappinu.

Forsetaframbjóðendur á fundi í Iðnó - Bein útsending á Vísi

Allir frambjóðendur til embættis forseta Íslands koma í kvöld saman í fyrsta sinn á fundi sem Stjórnarskrárfélagið boðar til í Iðnó. Þar munu frambjóðendurnir ræða um embættið og stöðu þess fari svo að ný stjórnarskrá verði að veruleika. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og síðan aðgengilegur á í heild sinni á síðunni.

Eigandinn gaf sig fram - sá fréttina á Vísi

"Hann kom hingað í gærkvöldi og sótti vélina. Hann þekkti allar myndirnar í vélinni þannig það var góður endir á þessu,“ segir Þór Ólafur Ólafsson, staðarhaldari á tjaldsvæðinu Reykjamörk í Hveragerði. Á mánudaginn kom lögreglumaður á frívakt verðmætri myndavél í hendur Þórs en vélina fann hann upp í Reykjadal á sunnudagskvöldið.

Kanna möguleikann á lagningu sæstrengs

Möguleikinn á lagningu rafmagnsstrengs milli Bretlands og Íslands verður kannaður, samkvæmt viljayfirlýsingu um samstarf í orkumálum sem undirritaður var í dag.

Björgunaræfing í austanverðum Faxaflóa

Varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar, fulltrúar flugsveitar og C-130 leitar- og björgunarflugvél Bandaríkjamanna auk stjórnstöðva Landhelgisgæslunnar í Keflavík og Reykjavík munu síðdegis í dag taka þátt í björgunaræfingu á austanverðum Faxaflóa með björgunarliðum flugsveitar Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn hafa séð um loftrýmisgæslu hér við land undanfarnar vikur. Björgunarliðar hafa farið í æfingar með þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar þar sem tækifæri hefur gefist til að miðla reynslu og þekkingu beggja aðila.

Um 163 þúsund fóru á skíði síðasta vetur

Tæplega 163 þúsund skíðaiðkendur fóru á skíði á liðnum vetri samkvæmt tilkynningu frá Samtökum Skíðasvæða á Íslandi. Langflestir iðkendur fóru í Hlíðarfjall á Akureyri og í Bláfjöll.

Góða veðrið draumur fyrir frjókornin

Magn birkifrjókorna í lofti í Reykjavík síðustu daga hefur verið langt yfir meðaltali. Veðuspá næstu daga veitir frjókornum fullkomnar aðstæður til að dreifa sér.

Frambjóðendur svara spurningum Vísis

Vísir spurði alla frambjóðendur til embættis forseta Íslands út í nokkur af helstu álitamálum sem snerta embættið og sýn þeirra það. Á meðal þess sem Vísi lék forvitni á að vita er hvort forseti Íslands á að þeirra mati, undir einhverjum kringumstæðum, að tala gegn stefnu ríkisstjórnar Íslands. Einnig hvort frambjóðendur telji að leggja eigi embættið niður, eins og stundum er rætt um.

Ákærðir fyrir að ræna Michelsen úrsmið

Tveir pólskir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að rán í úra- og skartgripaverslun Michelsen að Laugavegi, þar sem þeir tóku 49 armbandsúr af gerðunum Rolex, Tudor og Michelsen að verðmæti 50 milljónir króna. Samkvæmt ákærðu var þetta allt gert eftir fyrirfram gerði áætlun mannanna og tveggja samverkamanna þeirra.

Árlegt hlaup til styrktar langveikum börnum

Fjórmenningarnir sem hlupu í kringum landið síðastliðið sumar fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hafa nú stofnað góðgerðarfélagið Meðan fæturnir bera mig. Markmið með stofnun félagsins er að halda úti árlegu hlaupi í Öskjuhlíðinni þar sem þátttökugjald rennur óskipt til félaga sem veita veikum og fötluðum börnum stuðning. Í ár hefur verið ákveðið að hlaupa fyrir Umhyggju sem er stuðningsfélag langveikra barna og er hlaupið tileinkað þriggja ára hetju, Mirru Wolfram Jörgensdóttur.

Sló ólögráða son sinn - fékk handarfar á kinnina

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi á föstudaginn í síðustu viku konu fyrir að slá ólögráða son sinn sem hún hafði í umsjá sinni. Konan sló piltinn einu sinni í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut mar á hægri vanga.

Jón Steinar stefnir Þorvaldi Gylfasyni

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardóamri hefur ákveðið að stefna Þorvaldi Gylfasyni prófessor fyrir dómstóla vegna greinar sem Þorvaldur skrifaði í ritröð háskólans í Munchen í Þýskalandi og birt var í mars slíðastliðnum. Jón STeinar greinir frá þessu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Í greininni segir Jón Steinar að Þorvaldur hafi verið með aðdróttun í sinn garð, um að hann hafi misfarið með vald sitt sem dómari við Hæstarétt með því að semja fyrst með leynd kæruskjal til réttarins og stjórna síðan afgreiðslu þess. Þar á Þorvaldur við kæru vegna framkvæmdar kosninga til stjórnlagaþings árið 2010.

Áfram spáð blíðu

Áfram er spáð blíðskaparveðri á landinu í dag og að hitinn geti sumstaðar farið upp í 20 stig. Þó verður mun kaldara ef þokubakkar ná inn á ströndina. Þrátt fyrir blíðuna í gær og góðar horfur í dag, náði aðeins að frjósa í nótt á Fjarðarheiði og Breiðdalsheiði fyrir austan, en á sama tíma var hátt í 13 stiga hiti á sunnanverðum Vestfjörðum.

Þurfa yfir tvo fjallvegi til að komast í banka

Bæjarráð Vesturbyggðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðum Landsbankans að loka útibúi sínu á Bíldudal. Til að bíta höfuðið af skömminni, eins og það er orðað, séu engar áætlanir hjá bankanum um að setja upp hraðbanka á svæðinu í staðinn. Þurfa íbúar Bíldudals nú að aka 30 kílómetra leið yfir tvo fjallvegi til að taka út peninga.

Ölfusárbrúin tekin út

Hópur sérfræðinga frá Vegagerðinni og verkfræðistofu hafa í nótt og í fyrrinótt verið að kanna ástand Ölfusárbrúar á Selfossi og ganga úr skugga um að hún beri enn alla þá þungaflutninga, sem um hana fara.

Vinnuskúr varð eldi að bráð

Vinnuskúr á hjólum brann til kaldra kola á Hólmsheiði, í grennd við hitaveitugeymana þar, um ellefu leytið í gærkvöldi. Hann var alelda og að hruni kominn þegar slökkviliðið kom á vettvang og slökkti í glæðum. Eldsupptök eru ókunn, en ekkert rafmagn var tengt við skúrinn.

Ástþór andvaka yfir framboði í uppnámi

Jóhannes Tómasson, upplýsingafulltrúi hjá innanríkisráðuneytinu, segir Ástþór Magnússon ekki hafa gert athugasemdir við tiltekna lista annarra frambjóðenda til embættis forseta. Hann hafi ekki tilgreint athugasemd sína nánar en að hann sæi á meðmælendalistum annarra frambjóðenda sömu rithönd.

Þingmenn vilja afturkalla aðildarumsókn

Atli Gíslason og Jón Bjarnason lögðu í dag fram þingsályktunartillögum um að afturkalla umsókn Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Þeir leggja til að ekki verði haldið áfram með aðildarviðræðurnar fyrr en fram hafi farið þjóðaratkvæðagreiðsla sem staðfestir vilja þjóðarinnar til aðildar. Tvímenningarnir telja umboð ríkisstjórnarinnar til að halda áfram aðlögunar- og aðildarvinnu ekki lengur fyrir hendi.

Tuttugu björgunarsveitarmenn leituðu ferðalangs

Blásið var til leitar eftir að tilkynnt var um erlendan ferðamann sem orðið hafði viðskila við hópinn sinn við Jökulsárlón í dag. Maðurinn fannst stuttu eftir að leitin hófst. Tuttugu björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Hornafjarðar tóku þátt í leitinni auk 5 starfsmanna Jökulsárlóns. Maðurinn varð viðskila við hóp sinn um klukkan sex. Björgunarsveit var kölluð út milli klukkan átta og níu, en þá hafði starfsfólk Jökulsárlóns leitað í um klukkutíma. Maðurinn var kominn í leitirnar fyrir klukkan níu. Hann er heill heilsu. Friðrik Jóns Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, telur ólíklegt að maðurinn hafi upplifað sig týndan. "Það er náttúrlega sól og blíða og blankalogn. Hann bara fór og fékk sér labbitúr."

Sjá næstu 50 fréttir