Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mistur yfir höfuðborgarsvæðinu Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands má búast við að svipaðar aðstæður ríki fram eftir degi. Búist er við úrkomu um mestallt sunnan- og austanvert landið í kvöld og í kjölfarið má reikna með að loftgæði batni í Reykjavík. 21.5.2012 13:41
Vill þyngri refsingu yfir konu sem varð barni sínu að bana Vararíkissaksóknari, Helgi Magnús Gunnarsson, hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Agné Krataviciuté sem var dæmd í tveggja ára fangelsi í mars síðastliðnum, fyrir að hafa orðið nýfæddu sveinbarni sínu að bana í júlí á síðasta ári. Þá veitti hún barninu skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif. 21.5.2012 13:24
Jóhanna hugsanlega fjarverandi við atkvæðagreiðslu stærstu mála Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók tveggja vikna leyfi frá þingstörfum á föstudag. Baldur Þórhallsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, tók hennar sæti á meðan. Ástæðan er sú að Jóhanna þarf, sem forsætisráðherra, að sinna fjölmörgum erindum erlendis. Þar á meðal er fundur Atlantshafsbandalagsins í Chicago sem stendur núna yfir. Þá mun Jóhanna sitja fleiri fundi erlendis undir lok mánaðarins. 21.5.2012 13:01
Haglabyssa fannst við húsleit hjá Vítisengli Fíkniefni, þýfi og haglabyssa fundust þegar lögregla gerði húsleit í Árbæ á föstudagskvöld, en húsráðandi tengist Hells Angels. Lögreglan naut aðstoðar fíkniefnahunds við þessa aðgerð. Í íbúð fjölbýlishúss í miðborginni, þar sem einnig var gerð húsleit á föstudag, fann lögreglan kókaín, amfetamín og stera. 21.5.2012 12:43
Björgunarsveitir farnar að rukka fyrir aðstoðina Björgunarsveitir eru farnar að rukka fyrir aðstoð við ökumenn, sem ekið hafa inn á lokaða vegi í trássi við merkingar. 21.5.2012 12:04
Stal loki af setlaug en tæmdi laugina af ótta við frostskemmdir Þeir eru misstillitsamir þjófarnir, en sumarhúsaeigandi í Þingvallasveit fékk að kynnast einum slíkum. Þannig var loki af rafmagnssetlaug stolið frá sumarbústað í landi Kárastaða í maí. Þjófurinn lét sig þó hafa það að tæma setlaugina, líklega af ótta við að laugin skemmdist vegna næturfrostsins. Þjófurinn stal einnig tröppum og útiljósi. Lögreglan á Selfossi telur að þjófnaðurinn gæti hafa átt sér stað á tímabilinu 1. til 18. maí. 21.5.2012 11:29
Vill að samfélagið taki þátt umræðunni um breytingar á kerfinu Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að það taki líklegast þrjú til fjögur ár að innleiða svo viðamiklar breytingar á húsnæðisbótakerfinu eins og þær sem vinnuhópur undir stjórn Lúðvíks Geirssonar hefur lagt fram. Í tillögunum er leitast við að jafna stöðu eigenda húsnæðis og leigjenda á markaði. 21.5.2012 11:09
Björgvin minnist Robin Gibb - frábærir lagahöfundar "Hljómsveitin Bee Gees hafði mikil áhrif á tónlistina um heim allan, mér fannst þeir æðislega góðir," segir stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson um andlát Robin Gibb, sem lést í gær, 62 ára að aldri. Björgvin segir að andlát Robin hafi ekki komið sér á óvart, hann var orðinn mjög veikur, enda háð harðvítuga baráttu við krabbamein í lifrinni síðustu mánuði. 21.5.2012 10:46
Allir fái húsnæðisbætur, óháð búsetuformi Nú stendur yfir kynningarfundur á tillögum vinnuhóps sem velferðarráðherra skipaði um breytingar á húsnæðisbótakerfinu. Lúðvík Geirsson þingmaður Samfylkingarinnar er formaður hópsins en tillögur hans miða að því að gjörbreyta kerfinu frá því sem nú er. "Með nýju kerfi yrði öllum tryggður sami réttur til fjárhagsstuðnings hins opinbera vegna húsnæðiskostnaðar, óháð búsetuformi, hvort sem fólk kýs að búa í eigin húsnæði, leiguhúsnæði eða búseturéttaríbúðum,“ segir í tilkynningu en í gildandi kerfi eru almennar húsaleigubætur mun lægri en vaxtabætur og uppbygging kerfanna ólík. 21.5.2012 10:08
Öskumistur í veðurblíðunni Rykmystur hefur verið víða á sunnanverðu landinu síðustu daga og urðu margir höfuðborgarbúar varir við það í morgunsárið. Hjá Veðurstofunni fengust þær upplýsingar að hluti væri aska úr Eyjafjallajökli og Grímsvötnum. Búast má við að mystur verði áfram meðan veður er þurrt. Svifryk mælist rétt undir heilsuverndarmörkum. 21.5.2012 09:35
Vítisenglar selja Viagra Skipulögð glæpasamtök í Svíþjóð á borð við Vítisengla virðast hafa fundið sér nýja gróðaleið. Að því er fram kemur í sænska blaðinu Dagens Nyheter hafa glæpaklíkurnar tekið upp á því að selja stinningarlyf á borð við Viagra á Netinu. Gríðarleg aukning hefur orðið á ólöglegri sölu slíkra lyfja síðustu misserin í Svíþjóð og bendir ýmislegt til þess að glæpaklíkurnar standi að baki innflutningnum. Salan getur skilað miklum gróða auk þess sem viðurlög við slíkum brotum eru mun vægari en þegar um hörð fíkniefni er að ræða. Fyrir nokkrum mánuðum fannst mikið af stinningarlyfjum í klúbbhúsi Vítisengla í Svíþjóð þegar lögreglan gerði þar húsleit. 21.5.2012 09:21
Talið að kviknað hafi í út frá Rafmagni Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni, þegar veitingahúsið Frú Lára á Seyðisfirði stórskemmdist í bruna í gærkvöldi. Eldsins varð vart upp úr klukkan átta í gærkvöldi og barst hann um allt húsið, en karlmaður, sem var þar á efri hæð, komst út um glugga og sakaði ekki. Slökkvistarf gekk vel en húsið, sem er eitt elsta hús á staðnum og í hjarta bæjarins, er stór skemmt. 21.5.2012 08:55
Unglingar brutust inn í bíla í Breiðholti Þrír unglingspiltar voru handteknir í Breiðholti um tvö leytið í nótt, grunaðir um að hafa farið inn í bíla í leit að verðmætum. Ekki liggur fyrir hvort þeir höfðu eitthvað upp úr krafsinu, en lögregla hafði samband við foreldra þeirra, sem sóttu þá á lögreglustöðina. 21.5.2012 07:29
Sigmaðurinn á gjörgæslu Maðurinn, sem féll í fuglabjargi við Aðalvík, norðan Ísafjarðardjúps síðdegis í gær, gekkst undir aðgerð á Landsspítalanum í gærkvöldi og liggur nú á gjörgæsludeild. 21.5.2012 07:10
Hitabylgja í spánni fyrir hvítasunnuna "Þetta lítur mjög vel út hvað varðar hita á norðan- og austanverðu landinu,“ segir Einar Magnús Einarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 21.5.2012 07:00
Malarnám leyft í Svarfaðardalsá Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar heimilar að teknir verði þrjú þúsund rúmmetrar af möl úr Svarfaðardalsá í Eyjafirði. Malartakan verður vestan Búrfellsár. Þetta er gert með samþykki landeigenda Búrfells og Veiðifélags Svarfaðardalsár. 21.5.2012 07:00
Tuttugu þúsund fyrir eitt kíló af laxi Snarhækkandi verð á villtum laxi á heimsmarkaði leiðir til þess að erfiðara er að kaupa upp netalagnir í íslenskum ám. Þetta kemur fram í grein Haraldar Eiríkssonar á vef Stangaveiðfélags Reykjavíkur. 21.5.2012 06:00
Meinað að sleppa silungi í fólkvangi Ekki fæst leyfi fyrir því að sleppa regnbogasilungi í Stórhólstjörn í Dalvíkurbyggð og selja íbúum í sveitarfélaginu veiðileyfi þar. 21.5.2012 06:00
Öxull brotnaði af sömu þotu Þotan sem missti eitt hjóla sinna við flugtak frá Keflavík á föstudag hefur áður orðið fyrir skakkaföllum. Þann 28. júní 2001 brotnaði öxull undan hægra hjólastellinu að aftan þar sem þotan stóð við flugstöðina í Kastrup. 21.5.2012 06:00
Rannsókn fyrirhuguð á bóluefni gegn krabbameini Umhverfisstofnun hefur til meðferðar leyfisumsókn fyrir rannsókn með erfðabreytt bóluefni þar sem prófuð verður ný aðferð við meðhöndlun blöðruhálskrabbameins. Nýja bóluefnið, PROSTVAC-V/F, er tvíþætt og inniheldur kúabóluveiru annars vegar og fuglabólusóttarveiru hins vegar, sem hefur verið breytt með erfðatæknilegum aðferðum til að tjá ónæmisvaka í þeim tilgangi að hjálpa ónæmisfrumum líkamans að þekkja og drepa krabbameinsfrumur. Í rannsókninni á að meta hversu öruggt bóluefnið er og hversu góða verkun það hefur á krabbamein. 21.5.2012 05:00
Ein sending fyrir 1,8 milljarða Actavis og dótturfyrirtæki þess Medis sendu um mánaðamótin lyf til Evrópu fyrir tæpa tvo milljarða króna, en um er að ræða eina stærstu markaðssetningu fyrirtækjanna frá upphafi. Lyfið er blóðfitulækkandi og ber nafnið Atorvastatín, og keppir við mest selda lyf í heimi sem lyfjarisinn Pfizer framleiðir og selur. 21.5.2012 05:00
Áhætta bæjarsjóðs sögð í lægsta þrepi „Þetta er náttúrulega alveg þrælmagnað,“ segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, um uppganginn á Siglufirði frá því Héðinsfjarðargöng voru opnuð og eftir tilkomu ferðaþjónustu- og veitingafyrirtækisins Rauðku. 21.5.2012 04:00
40 prósent fá ekki sumarstarf Akureyrarbær hafnaði rúmlega 40 prósentum umsækjenda um sumarstörf hjá bænum í fyrra og er útlit fyrir að hlutfallið verði svipað í ár. Í fyrrasumar voru ráðnir 430 einstaklingar í sumarafleysingar en alls sóttu 719 aðilar um auglýst störf. Flest eru störfin í þjónustu við fatlaða og aldraða. Sérstök átaksverkefni fyrir atvinnulausa eru ekki meðtalin í tölunum. 21.5.2012 03:15
Kominn á gjörgæslu Maðurinn sem féll þegar hann var við eggjatínslu á Hornströndum síðdegis er kominn á gjörgæsludeild. Hann mun vera með mikla áverka. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann og var kominn þangað á áttunda tímanum. 20.5.2012 22:24
Komst af eigin rammleik úr brennandi húsi Karlmaður komst af eigin rammleik út úr brennandi húsi þegar eldur kveiknaði í veitingastaðnum Kaffi Láru á Seyðisfirði um áttaleytið í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var mikill eldur í húsinu um stund og er það hugsanlega ónýtt. Slökkvistarf hefur gengið vel, enda hægviðri. Slökkviliðið naut aðstoðar björgunarsveitamanna á vettvangi. 20.5.2012 20:41
Gjörbreyting á húsnæðiskerfinu Nýjar tillögur um húsnæðisbætur verða kynntar í velferðarráðuneytinu í fyrramálið. Það er Lúðvík Geirsson, formaður vinnuhóps velferðarráðherra um húsnæðisbætur, sem kynnir tillögur hópsins. 20.5.2012 19:24
Slasaði sigmaðurinn komst í þyrlu um hálfsjö í kvöld Búist er við því að maðurinn sem féll niður um 25 metra þegar hann var við eggjatöku á Hornströndum verði kominn á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Maðurinn komst um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar um hálfsjö í kvöld. Björgunarsveitarmenn komu að manninum rétt fyrir sex. Þeir bjuggu um áverka hans eins og hægt var og fluttu hann svo um borð í björgunarskipið. Ágætlega gekk að koma honum um borð þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Björgunarskipið sigldi svo undir Grænuhlíð þar sem aðstæður voru betri og hífði þyrlan þann slasaða um borð. 20.5.2012 19:18
Herdís: Stefnir í hatramma og pólitíska kosningabaráttu Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, segir að það stefni í hatramma og pólitíska kosningabaráttu þar sem tekist verði á um ýmis grundvallar mál eins og afstöðunnar til ESB og kvótamálsins. 20.5.2012 19:15
Íslendingur í Bologna: "Þetta var eins og stór alda sem fór yfir" Íslensk stúlka sem býr í Bologna á Ítalíu líkir jarðskjálftanum sem reið yfir norðurhérað landsins í nótt við stóra öldu sem fór yfir. Hún segir að allt hafi verið á hreyfingu í hálfa mínútur. Margir litlir eftirskjálftar hafa fundist í dag og eru íbúar í borginni skelkaðir, sumir þora ekki að fara heim til sín. 20.5.2012 18:30
Björgunarmenn komnir í Aðalvík - maðurinn með meðvitund Björgunarmenn eru nú komnir að manninum sem féll við eggjatöku í Aðalvík á Hornströndum. Maðurinn, sem hrapaði um 10 til 20 metra, er með meðvitund. 20.5.2012 18:08
Féll 10 til 20 metra við eggjatöku Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á norðanverðum Vestfjörðum voru kallaðar út um klukkan hálf fjögur í dag. Tilkynning barst um að maður sem var við eggjatöku í Aðalvík á Hornströndum hafi hrapað um 10 til 20 metra niður klettabjarg. 20.5.2012 16:59
Hannes forsetaframbjóðandi: Þetta lítur ljómandi vel út Hannes Bjarnason forsetaframbjóðandi er nú að safna síðustu undirskriftunum fyrir framboð sitt. Skila á undirskriftum fyrir höfuðborgarsvæðið á morgun. Hannes segist í samtali við fréttastofu að margir séu tilbúnir að gefa honum meðmæli en það sé að sjálfsögðu erfiðara fyrir sig en aðra frambjóðendur þar sem hann er ekki eins þekktur. 20.5.2012 14:43
Steingrími var boðið að gerast fjármálastjóri Grikklands Steingrími J. Sigfússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, var boðið að gerast sérstakur fjármálastjóri á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Grikklandi í sex mánuði, en neitaði. Steingrímur greindi frá því að óskin hefði verið sett fram á fundi hjá sjóðnum í Washington. 20.5.2012 13:16
Lockerbie-morðinginn látinn Abdel Baset al-Megrahi sem var dæmdur fyrir að sprengja farþegaþotu í loft upp yfir skoska þorpinu Lockerbie árið 1988, er látinn 59 ára að aldri. 20.5.2012 13:10
Manni hent fram af svölum í Kópavogi Manni var hent fram af svölum íbúðar á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi í Kópavogi klukkan rúmlega korter yfir tíu í morgun. Maðurinn féll niður um eina hæð og lenti á svölum íbúðarinnar á hæðinni fyrir neðan. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu slasaðist maðurinn og var send sjúkrabifreið á staðinn. Ekki er vitað nánar um meiðsl hans. Karlmaður var handtekinn á staðnum en hann er grunaður um verknaðinn. Hann var færður í fangageymslu. Málið er í rannsókn. 20.5.2012 12:12
Áverkarnir alvarlegir - ekki í lífshættu Áverkar mannsins sem ráðist var á við Grandagarð í Reykjavík í gærkvöldi eru alvarlegir. Hann liggur á gjörgæsludeild. 20.5.2012 14:24
Sextán ára ölvaður undir stýri - foreldri sótti hann á lögreglustöðina Mikið var útköll vegna ölvunar og hávaða hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fimm ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur. 20.5.2012 09:57
Leituðu að hópi ferðamanna á Austurlandi Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út um eittleytið í nótt til að leita að hópi ferðamanna. 20.5.2012 09:52
Leki í vélarvana rækjuskipi Björgunarskipið Björg og Lífsbjörg á Snæfellsnesi voru kölluð út um klukkan tvö í nótt vegna vélarvana rækjuskips um 5 sjómílur utan við Rif. 20.5.2012 09:38
Á gjörgæslu eftir alvarlega líkamsárás Maður liggur á gjörgæslu eftir alvarlega líkamsárás við Grandagarð í Reykjavík rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Árásarmaðurinn var handtekinn skammt frá vettvangi og vistaður í fangageymslu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru mennirnir báðir mjög ölvaðir. Málið er í rannsókn. Fleiri líkamsárásir komu til kasta lögreglu í nótt. Um klukkan eitt var dyravörður kýldur af gesti sem verið var að vísa út en sá hafði verið að áreita gesti staðarins. Klukkan hálf sex í morgun var maður handtekinn við stjórnarráðið í Lækjargötu eftir að lögreglumenn horfðu á hann kýlda annan mann af engu tilefni. Tekin verður skýrsla af honum í dag. 20.5.2012 09:32
Kýldi mann af engu tilefni fyrir framan lögregluna Klukkan hálf sex í morgun var maður handtekinn við stjórnarráðið í Lækjargötu eftir að lögreglumenn horfðu á hann kýla annan mann af engu tilefni. Tekin verður skýrsla af honum í dag. Sá sem varð fyrir árásinni leitaði sér aðstoðar á slysadeild. 20.5.2012 10:01
Rappar gegn kvenfyrirlitningu Þórdís Nadia Semichat sendi frá sér sitt fyrsta lag og myndband, Passaðu þig, í síðustu viku. Hún segir íslenska hipphoppheiminum vera stjórnað af karlmönnum og vill veg kvenna meiri í dægurmenningunni. Kjartan Guðmundsson ræddi við hana. 19.5.2012 22:30
Getur ekki gert upp á milli Clapton og Simon: "Ég elska þá alla" Heimsþekktur trommuleikari ráðleggur upprennandi trommurum að fylgja hjarta sínu og ástríðu. Hann vill ekki gera upp á milli Eric Clapton og Paul Simon. 19.5.2012 19:32
Enginn með fyrsta vinning Enginn var með allar lottótölurnar réttar í útdrætti kvöldsins. Fimm voru þó með fjórar jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur í sinn hlut. 19.5.2012 19:25
Gunnar Bragi: Ríkisstjórnin er að hita upp fyrir kosningar Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ríkisstjórnina nota nýja fjárfestingaráætlun til að hita upp fyrir kosningar. Markmið hennar sé að safna að sér smáframboðum til stuðnings við mikilvæg mál. 19.5.2012 18:59