Íslendingur í Bologna: "Þetta var eins og stór alda sem fór yfir" Jóhanna Margrét Gísladóttir. skrifar 20. maí 2012 18:30 Frá Bologna í dag. mynd/AP
Íslensk stúlka sem býr í Bologna á Ítalíu líkir jarðskjálftanum sem reið yfir norðurhérað landsins í nótt við stóra öldu sem fór yfir. Hún segir að allt hafi verið á hreyfingu í hálfa mínútu. Margir litlir eftirskjálftar hafa fundist í dag og eru íbúar í borginni skelkaðir, sumir þora ekki að fara heim til sín. Að minnsta kosti sex létust í skjálftanum og fjölmargir eru slasaðir. Fjölmargar sögufrægar byggingar skemmdust í skjálftanum en hann er einn sá snarpasti í sögu Ítalíu. Bryndís Héðinsdóttir er skipinemi ásamt kærasta sínum í Bologna. Hún segist hafa fundið vel fyrir skjálftanum í nótt. „Þetta var í rauninni eins og stór alda sem fór yfir og það var allt á hreyfingu í hálfa mínútu," segir Bryndís. „Þetta gekk í rauninni fljótt yfir." Þau ákváðu hins vegar að fara aftur að sofa eftir skjálftann og áttuðu sig því ekki á alvarleika málsins fyrr en þau vöknuðu í morgun og sáu fréttirnar. Hún segir fólk í borginni vera skelkað og fáir séu á ferli. „Það er ennþá svolítil hræðsla í fólki," segir Bryndís. „Fólk er hvatt til að vera heima og vera tilbúið að fara út ef það koma eftirskjálftar. Það kom eftirskjálfti um þrjúleytið, það eru enn einhverjar hreyfingar hérna." Hún segir að íbúar séu vanir jarðskjálftum á þessu svæði en tæplega þrjú hundruð manns létust í skjálfta á svipuðu svæði árið 2009 „Eins og vinkona mín. Hún upplifði skjálftann árið 2009 og fór út þegar skjálftinn reið yfir í nótt, hún hefur ekki farið inn síðan. Það er mikil hræðsla í þeim." Hún segir þau vera óhrædd, enda Íslendingar sem eru vanir jarðskjálftum. „Ég sagði einmitt við kærastann minn að ég væri hrædd, en hann sagði mér bara að fara aftur að sofa og allt væri í góðu, bara smá jarðskjálfti," segir Bryndís.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Fleiri fréttir Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Sjá meira