Fleiri fréttir

Leita að hótelgesti sem stundar það að stinga af

Lögreglan á Hvolsvelli tók við fjársvikakæru í vikunni en málin snýst um erlendan aðila sem bókaði sig inn á hótel í umdæminu á dögunum. Hann lét sig síðan hverfa frá ógreiddum reikningnum. Að sögn lögreglu hefur sami maður stundað þessa iðju víða um landið. Lögreglan leitar hans en hún telur sig vita um hvaða mann er að ræða.

Ákvörðun um ákæru tekin á næstu vikum

Ríkissaksóknari reiknar með að taka ákvörðun á næstu vikum hvort ákæra verði gefin út í máli Egils Einarssonar, betur þekktum sem Gillzenegger, og unnustu hans, en þau voru kærð fyrir nauðgun á síðasta ári.

Leggja væntanlega til breytingar á veiðigjaldi

Atvinnuveganefnd Alþingis stefnir að því að afgreiða kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar úr nefnd öðru hvoru megin við næstu helgi. Meirihluti nefndarinnar mun væntanlega leggja til breytingar á veiðigjaldi en önnur atriði eru einnig til skoðunar.

Kartöflubændur komu í veg fyrir stórtjón

Kartöflubændur á Hornafjarðarsvæðinu, sem er eitt af mestu kartöflusvæðum landsins, náðu flestir eða allir að verjast stórtjóni af óveðrinu með vökvun.

Tveir á slysadeild eftir harðan árekstur

Tveir voru fluttir með sjúkrabílum á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla á mótum Lyngháls og Stuðlaháls í Hálsahverfinu í Reykjavík á tíunda tímanum.

Segjast hafa fellt tugi sýrlenskra hermanna

Uppreisnarmenn í Sýrlandi fullyrða að 23 stjórnarhermenn hafi fallið í borginni Rastan í morgun. Þá segir að tugir séu særðir en þrír herflutningabílar voru sprengdir í loft upp í árás uppreisnarmanna.

Skemmtiferðaskip sigldi framhjá skipbrotsmönnum

Sjómaður frá Panama, sem lifði það af að vera 28 daga á reki á Kyrrahafi, hefur kært eigendur skemmtiferðaskips sem sigldi fram hjá honum og tveimur félögum hans. Hinir skipverjarnir tveir fórust báðir en Adrian Vasquez lifði af og hefur nú kært skipafélagið fyrir rétti í Flórída.

Fá skip á sjó

Aðeins 140 skip eru á sjó umhverfis landið og þá eingöngu stór skip. Þetta eru mikil umskipti frá fimmtudeginum í síðusut viku þegar 925 skip voru á sjó. Nú er bræla á flestum eða öllum miðum smábáta, þannig að strandveiðiflotinn er í landi. Ekki er vitað til að neitt skip hafi fengið á sig alvarlegan brotsjó þótt víða sé töluverð ölduhæð.

Von er á bótakröfum vegna strandstígs

Landeigendur á Arnarnesi krefjast bóta samþykki bæjaryfirvöld nýtt deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir almenningsstígum við strandlengjuna. Í lögfræðiáliti fyrir bæinn segir að landeigendurnir hafi réttinn sín megin.

Nóg að gera hjá björgunarsveitum og lögreglu

Enn er stormur og éljagangur um suðaustanvert landið, hvasst og gengur á með éljum á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Töluvert öskufok er úr Eyjafjallajökli er sumstaðar á Suðurlandi, og moldrok ofan af hálendinu.

Helmingurinn vildi sjá þyngri refsingar

Ný rannsókn leiðir í ljós afar ólík viðhorf fólks til refsinga við afbrotum, sér í lagi þegar kemur að kynferðisbrotum. Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands, kynnti niðurstöður rannsóknar sinnar á 50 ára afmælisráðstefnu Norræna sakfræðiráðsins sem fram fór á Hótel Selfossi í byrjun vikunnar.

Alltaf náðað vegna alvarlegra veikinda

Umsóknir fanga um náðanir hafa allar verið samþykktar á grundvelli heilsufarsástæðna. Síðan 1980 hafa alls verið náðaðir 167 einstaklingar hér á landi, þar af 45 á síðustu 16 árum. Skúli Þór Gunnsteinsson, lögfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu, segir allar náðanir byggðar á læknisfræðilegum rökum.

Aðstoða sjófarendur á Faxaflóa

Faxaflóahafnir sf. styrkja starfsemi Landsbjargar, Björgunarbátasjóðs Reykjavíkur og fjögurra björgunarsveita við Faxaflóa næstu fimm árin. Skrifað var undir samning þessa efnis á aðalfundi Faxaflóahafna á laugardag. Alls greiða Faxaflóahafnir út á samningstímanum tíu milljónir króna, tvær milljónir hvert ár.

Lést í hlíðum Esjunnar

Karlmaður sem var á göngu í Esjunni í dag varð bráðkvaddur uppi á fjallinu. Eins og greint var frá í fréttum í dag var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út auk sjúkraflutningamanna og björgunarsveitamanna. Þyrlan gat ekki athafnað sig vegna óveðurs. Maðurinn var því borinn niður. Samkvæmt upplýsingum sem fengust á slysadeild Landspítalans var hann látinn þegar þangað var komið.

Berfættur prestur fór á bólakaf

Það var líf og fjör í Salalauginni í dag þar sem hópur barna var mættur ásamt foreldrum sínum til að taka þátt í sunnudagsskóla Lindakirkju. Börnin tóku vel undir þegar sungið var og busluðu á meðan þau hlýddu á boðskap prestsins sem var berfættur.

Jóhanna segir samskipti við forsetann í samræmi við hefðir

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi, í samskiptum sínum við Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands, í einu og öllu fylgt stjórnarskrá og mótuðum stjórnskipunarhefðum. Það sé því óhjákvæmilegt að vísa á bug öllum ásökunum um að annað hafi átt við í samskiptum ríkisstjórnarinnar eða forystumanna hennar og núverandi forseta.

Ari Trausti hefur lokið undirskriftasöfnun

Ari Trausti Guðmundsson lauk í gær undirskriftarsöfnun vegna meðmæla með framboði sínu til embættis forseta Íslands. Það var gert í ferð til Mið-Norðurlands nú um helgina. Með síðustu undirskriftanna voru þær sem fengust á stuttum en skemmtilegum fundi að kvöldi föstudagsins síðasta í Grímsey. Flogið var til eyjarinnar á lítilli og nýuppgerðri tveggja hreyfla Piper Apache-vél og skundað í félagsheimilið þar sem heitt kaffi beið á könnu og hressir Grímseyingar tóku á móti gestunum.

Varaformaður Samfylkingarinnar gagnrýnir forsetann

Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir málflutning Ólafs Ragnars Grímssonar á Bylgjunni í morgun á facebooksíðu sinni. Þar spyr hann hvort Ólafur telji, eftir sextán ár í embætti, að nú þurfi að standa vörð um kvótann og krónuna, hrósa Davíð Oddssyni og sparka í Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Dagur spyr hvort til of mikils sé ætlast að Íslendingar geti átt eitt embætti sem sameini þjóðina. Viðtalið við Ólaf Ragnar má sjá á fréttavef okkar Vísi.

Veikur maður borinn niður úr Esjunni

Sjúkraflutningamenn og björgunarsveitamenn sóttu núna eftir hádegi mann á Esjuna sem veiktist skyndilega á fjallinu. Auk björgunarsveita, sjúkraflutningamanna og lögreglumanna var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar en hún gat ekki athafnað sig vegna slæms veðurs. Ekki er hægt að upplýsa á þessari stundu um líðan mannsins.

Stormur á landinu öllu

Stormur verður á öllu landinu í dag en samkvæmt viðvörun frá Veðurstofu Íslands er búist við vindhviðum allt að 23 metrum á sekúndu með hvössum vindhviðum hlémegin fjalla, einkum suðaustan til á landinu seint í dag. Hríðaveður verður á Vestfjörðum og krapi og slydda verður í byggð norðan- og austanlands en þar mun frysta. Gera má ráð fyrir snörpum vindhviðum 30-40 m/s á sunnanverðu Snæfellsnesi, einkum í Staðarsveit, fram á kvöld og einnig á Kjalarnesi 30-35 m/s frá því um miðjan dag og fram á kvöld.

Sextán ára dópaður ökumaður stöðvaður

Ökumaður bíls var stöðvaður við Stekkjabakka við Nettó rétt fyrir klukkan fjögur í nótt. Ökumaðurinn, sem er aðeins 16 ára og hefur aldrei öðlast ökuréttindi, er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Eftir upplýsinga og sýnatöku var ökumaður laus og tóku foreldrar hans á móti honum Farþegi í bílnum, sem var umráðamaður bifreiðarinnar, var kærð fyrir að fela próflausum akstur bílsins.

Öllu flugi til Ísafjarðar og Egilsstaða aflýst

Flugi Flugfélags Íslands á milli Egilsstaða og Reykjavíkur og á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur hefur verið aflýst vegna veðurs. Athugað verður með flug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur klukkan sjö á morgun. Á Egilsstöðum var fimleikamót sem átti að ljúka í kvöld. Þeir sem ekki komast til síns heima fá inni í Menntaskólanum á Egilsstöðum á meðan.

Björgunarsveitir standa í ströngu

Björgunarsveitir standa í ströngu víða á landinu vegna hvassviðris. Þetta á einkum við um Steingrímsfjarðarheiðina þar sem er snælduvitlaust veður og varla ferðafært. Björgunarsveitirnar eru með að minnsta kosti tvo eða þrjá bíla uppi á heiðinni til að hjálpa fólki og varaði björgunarsveitamaður sem Vísir talaði við, fólk við því að fara upp á heiðina.

Slökkviliðið kallað að Þjóðleikhúsinu

Slökkviliðið var kallað að Þjóðleikhúsinu snemma í morgun en ræstingarfólk fann mikla reykjalykt þar innandyra þegar það mætti til vinnu í morgun. Ekki reyndist neinn eldur hafa verið í húsinu heldur reyndist lyktin vera frá ljósköplum sem höfðu verði í notkun í gær.

Stunginn með hnífi á Laugavegi

Maður var stunginn með hnífi á Laugavegi rétt eftir klukkan sjö í gærkvöld. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar, en ekkert er vitað nánar um meiðsl hans.

Ríkisstjórnin á sjö tíma vinnufundi

Ríkisstjórnin sat á fundi í Ráðherrabústaðnum í allan dag að ræða ríkisfjármál. Samkvæmt upplýsingum Vísis var meðal annars farið yfir stöðuna vegna fjárlagafrumvarps fyrir næsta ár. Fundurinn tók um sjö tíma, eftir því sem Vísir kemst næst. Ekki er algengt að ríkisstjórnin fundi svo stíft á sunnudögum.

Ólafur gagnrýnir skoðanir Þóru í utanríkismálum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýndi Þóru Arnórsdóttur mótframbjóðenda sinn harðlega þegar hann ræddi komandi forsetakosningar í þættinum Sprengjusandi á Bylgjunni í morgun. Hann gagnrýndi meðal annars Þóru fyrir það að ætla að halda afstöðu sinni í Evrópusambandsmálum leyndri. Þá sagði hann að Þóra teldi að forsetinn ætti að fylgja stefnu ríkisstjórnar.

Forsetinn segir Jóhönnu vera í herferð gegn sér

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon hafi ekki fyrirgefið sér afstöðu sína í Icesave málinu. Forsætisráðherra og aðstoðarmaður hennar hafi verið í herferð gegn sér frá þeim tíma.

Barátta Ólafs forseta fyrir endurkjöri er hafin

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, telur að forsetinn eigi ekki einungis að vera veislustjóri á Bessastöðum. Samkvæmt stjórnarskránni sé forsetaembættinu falið mikið vald.

Milljónir í auglýsingar um kvótakerfið

Útvegsfyrirtæki og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa undanfarið varið milljónum í auglýsingaherferð gegn breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þingmaður segir herferðina ósvífna.

Meirihlutinn í Garði fallinn

Meirihlutinn í sveitastjórninni í Garði er fallinn eftir að Kolfinna S. Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna, ákvað í dag að mynda nýjan meirihluta með L lista og N lista.

Bjarni: Landið er stjórnlaust

"Landið er stjórnlaust," segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á fésbókarsíðu sinni. Þar ræðir Bjarni hugmyndir ríkisstjórnarinnar um að láta fram fara þjóðaratkvæðagreiðslu í haust um tillögur stjórnlagaráðs, eins og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur lagt til.

Ekki gefa öndunum brauð í sumar

Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til þess gefa fuglum við Tjörnina ekki brauð á meðan varptíminn stendur. Sílamávurinn, sem er helsti vargfuglinn við Tjörnina, er mættur til leiks en hann sækir stíft í skyndibita í miðborginni og tínir upp andarungana þegar þeir skríða úr eggi. Hægt er að leggja öndunum lið við að koma upp ungum sínum með því að hætta að gefa fuglum við Tjörnina brauð yfir sumartímann, enda laðar slíkt mávana að, en gagnast hvorki öndum né ungum þeirra. Mikilvægast er að gefa ekki brauð í júní og júlí á meðan andarungar eru að komast á legg.

Lögreglan hafði afskipti af gæsaveislu í Sóltúni

Lögreglan var kölluð að fjölbýlishúsi í Sóltúni í bítið í morgun vegna gæsapartýs sem fór úr böndunum. Ekki var þar um að ræða gáskafullar, lífsglaðar ungmeyjar að horfa á eftir vinkonu úr hópnum í hjónaband eins og oft er þegar orðið gæsapartý ber á góma.

Umhverfis Ísland í 50 myndum

Það er fátt fegurra en íslensk náttúra á björtum vordegi. Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, fékk að upplifa það þegar hann slóst í för með Landhelgisgæslunni við hefðbundið eftirlitsflug umhverfis landið. Ferðin tók um sex tíma og var heiðskírt nánast allan tímann eins og sést á þessum frábæru myndum.

Troðfullur salur þegar GusGus hélt tónleika

Hljómsveitin GusGus hélt tónleika fyrir troðfullum sal af fólki á veitingastaðnum NASA í gærkvöld. Á meðal þeirra sem létu sjá sig voru Geir Gunnlaugsson landlæknir og Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi. GusGus hafði reyndar boðið öllum borgarfulltrúum Reykjavíkurborgar til þess að vekja athygli á málefnum NASA, en til stendur að rífa húsið.

Grunaður um líkamsárás í Hafnarfirði

Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás við Dalshraun í Hafnarfirði á níunda tímanum í gær. Hinn handtekni var vistaður í fangageymslu lögreglu í nótt en engar fréttir hafa borist af þeim sem hann réðst á. Þetta var annars nokkuð erilsöm vakt hjá lögreglunni.

Kynntist sjálfum mér upp á nýtt

Breytingar á högum Halldórs Friðriks Þorsteinssonar urðu til þess að hann lagði upp í sex mánaða langt ferðalag um heiminn og heimsótti sextán lönd, meðal annarra Kína, Indland, Víetnam og Nýja-Sjáland. Kjartan Guðmundsson fræddist um ferðalagið.

Fullkomið frelsi á hjólunum

Postularnir nefnast Bifhjólasamtök Suðurlands. Meðlimir þeirra hjóla saman og hafa gaman en stunda fjölbreytt góðgerðastörf í þágu samfélagsins meðfram því.

Þungra dóma krafist yfir Exeter-mönnum

Saksóknari segir forstjóra Byrs ekki hafa haft heimild til að kasta út um gluggann. Taka þurfi fast á sakborningunum í svokölluðu Exeter-máli. Verjandi forstjórans segir fráleitt að hann hafi tekið þátt í „plotti“ og blekkingarleik.

Umferðaröryggi má auka með því að fjölga merktum gangbrautum

Talsmaður Umferðarstofu segir gangbrautum sem merktar eru með hvítum röndum hafa fækkað nokkuð í Reykjavík síðustu ár. Fyrrum lögreglumaður segir slys hafa hlotist af. Borgaryfirvöld leggja áherslu á að draga úr ökuhraða með fjölgun hraðahindrana.

Styrkja þarf samkeppnissjóði

Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík segir samkeppnissjóði á Íslandi vera allt of litla. „Okkar skoðun er að samkeppnissjóði beri að styrkja,“ segir hann. „Þeir gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki við útdeilingu fjármagns til vísindarannsókna.“

Herdís heimsækir Akureyri

Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi verður á Akureyri um helgina, þar sem hún mun kynna sig fyrir kjósendum. Hún mun meðal annars heimsækja dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð og verða viðstödd Fjölskylduhátíð í Laufási. Herdís er á ferð um landið þessa dagana en hún fór meðal annars til Vestmannaeyja í fyrradag. Þar heilsaði hún upp á fólk í fyrirtækjum og mætti á völlinn í leik ÍBV og Breiðabliks á Hásteinsvelli, eftir því sem Eyjafréttir greindu frá.

Strekkiþörf og samskipti við kanínur skoðuð

Gestir og gangandi geta nú barið augum í Öskjuhlíð í Reykjavík „örinnsetningar“ nemenda á fyrsta ári í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Verkin eru í tilkynningu sögð afrakstur skoðunar og greiningar nemenda á mismunandi notum borgarbúa á Öskjuhlíðinni.

Sjá næstu 50 fréttir