Fleiri fréttir

Opna á lyftur Skálafells í dag

Stefnt er að því að allar lyftur í Skálafelli verði opnar í dag. Skíðadeild KR hefur náð samningum við stjórn skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu um rekstur Skálafells það sem eftir lifir vetrar.

Leikskólagjöld aftur lækkuð

Byggðaráð Vesturbyggðar hefur ákveðið „áherslubreytingar“ í rekstri sveitarfélagsins fyrir árið 2012. Eru þær sagðar gerðar „í ljósi bættrar niðurstöðu í fjárhagsáætlun 2012 vegna niðurfellingar á láni í Landsbanka Íslands vegna stofnfjárbréfakaupa og endurfjármögnunar á lánum sveitarfélagsins“.

Áfengir koffíndrykkir sendir til EFTA-dóms

Bann íslenskra stjórnvalda við sölu á áfengum drykkjum með koffíni í vínbúðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) er á leið fyrir EFTA-dómstólinn til að fá úr því skorið hvort það standist ákvæði samningsins um evrópska efnahagssvæðið (EES).

Fjölgar í skipaflota á milli ára

Fiskiskipum á skrá Siglingastofnunar fjölgaði um þrjátíu milli áranna 2010 og 2011. Alls voru 1.655 skip á skrá í lok síðasta árs. Fjöldi vélskipa var 764, togarar voru 58 og opnir fiskibátar 833.

Svavar og Helga tilnefnd

Svavar Hávarðsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, er tilnefndur til verðlauna Blaðamannafélags Íslands fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2011. Tilnefninguna hlýtur Svavar fyrir viðamikla umfjöllun sína um díoxínmengun frá sorpbrennslustöðvum í Skutulsfirði, Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri.

Fálkinn var pirraður í baði

Fálki sem fannst útataður í grút í Grundarfirði var loks baðaður í dag. Hann hefur síðustu tvo daga dvalið við góðan kost í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Fálkinn var svangur og hrakinn, og því mikilvægt að hann fengi að nærast og jafna sig fyrir baðið, sem reynir mikið á.

Ódýrast að leigja á Norðurlandi

Leiga á hundrað fermetra íbúð í Reykjavík getur verið ríflega tvöfalt dýrari en leiga á sambærilegri íbúð á Norðurlandi.

Fleiri dómsmál þarf til þess að skera úr um vafaatriði með gengislánin

Bæði einstaklingar og fyrirtæki sem voru í skilum með gengislán, þrátt fyrir frystingar eða greiðslufresti, geta vænst þess að falla undir nýjasta gengislánadóminn, samkvæmt nýrri álitsgerð lögmanna. En þrátt fyrir víðtækt fordæmisgildi - telja menn að enn þurfi allnokkur dómsmál til að skera úr um vafaatriði.

Deilur FME við Gunnar ekki gott fyrir trúverðugleika eftirlitsins

Steingrímur J. Sigfússon segir ekki gott fyrir trúverðugleika Fjármálaeftirlitsins að deilur standi milli forstjóra og stjórnar. Þá metur hann það ekki sem svo að eftirlitsstofnanir hafi verið illa undirbúnar fyrir gengislánadóm Hæstaréttar í síðustu viku.

Kona á sjötugsaldri ákærð fyrir fjárdrátt í Kaupþingi

Kona á sjötugsaldri hefur verið ákærð fyrir að draga sér fé yfir fjögurra ára tímabil þegar hún starfaði fyrir heimabankaþjónustu Kaupþings á eignastýringasviði bankans. Alls á konan að hafa stolið rétt rúmlega 50 milljónum króna.

Olía á Drekasvæðinu: Gætum orðið ríkasta þjóð heims innan tólf ára

"Ég held að við getum brosað allan hringinn,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, þegar hann var spurður út í olíufundinn á Drekasvæðinu í Reykjavík síðdegis í dag. Vísindamenn eru nú fullvissir um að olíu sé að finna á Drekasvæðinu þó enn eigi eftir að koma í ljós hvert vinnanlegt magn hennar sé.

Segir frásögn Pressunnar um gróft ofbeldi fullkomlega ranga

"Þessu er fljótt svarað, þessi frétt er nánast í engu samræmi við veruleikann,“ sagði Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, þegar Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni hafði samband við hann vegna hryllilegrar lýsingar manns sem birtist á vefnum Pressunni í morgun.

Ofsótti íbúa við Garðaflöt

Karlmaður var handtekinn við hús við Garðaflöt í Garðabæ um hálfátta í morgun. Hann hafði ráðist á íbúa í húsinu sem hann hefur verið að ofsækja. Maðurinn var færður í fangaklefa, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um málavexti.

Fundu hestshaus á stöng í Seljahverfi

Kona sem var að viðra hundinn sinn í Jafnaseli í Breiðholti í morgun gekk fram á hrosshaus og stöng. Svo virðist sem hausinn hafi upphaflega verið festur á stöngina því að efsti endinn á stönginni var blóðugur þegar lögreglan kom að. Hann virðist svo hafa dottið af stönginni og lá í jörðinni þegar konan sá hann. Lögregla fjarlægði stöngina og hausinn. Ekki er enn vitað hver kom hausnum fyrir á þessum stað og engin skilaboð fylgdu. Þá hefur heldur enginn gefið sig fram með upplýsingar um málið. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar geta hringt í síma 4441000.

Vill ræða veginn um Oddskarð á Alþingi

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar fer fram á sérstaka umræðu á Alþingi um öryggi vegfarenda um Oddskarð, á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, eins fljótt og auðið er.

Vilja banna Passíusálmana vegna gyðingahaturs

Rabbíinn Abraham Cooper, aðstoðarforseti hjá Simon Wiesenthal stofnuninni í Los Angeles, hefur ritað Páli Magnússyni útvarpsstjóra bréf þar sem þess er krafist að Ríkisútvarpið hætti að flytja Passíusálma Hallgríms Péturssonar, eins og tíðkast ætíð á páskum. Stofnunin berst fyrir réttindum gyðinga um heim allan en Simon Wiesenthal sjálfur helgaði líf sitt leitinni að stríðsglæpamönnum nasista.

10 ára hetja bjargaði ársgömlu barni frá drukknun

Það mátti ekki tæpara standa þegar tíu ára gömul stúlka bjargaði ársgömlu barni frá drukknun í Vatnaveröld í Reykjanesbæ í gær. Stúlkan, sem heitir Anika Mjöll Júlíusdóttir, var á sundæfingu þegar atvikið gerðist.

Þjóðsöngur Hildar fyrir Japansleikinn

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá þegar Hildur Kristín Stefánsdóttir, tónlistarkona og skiptinemi frá Háskóla Íslands í Tókýó, söng íslenska þjóðsönginn, Lofsöng, fyrir leik Íslands og Japans í Osaka í morgun.

Forseti Singapúr ánægður með hugrakka Íslendinga

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands fundaði í gær með kollega sínum frá Singapúr, Dr. Tony Tan Keng Yam, en Ólafur er nú staddur í Singapúr. Á fundinum, sem fram fór í forsetahöllinni, var rætt um sameiginlega hagsmuni Íslands og Singapúr í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir verndun auðæva hafsins að því er frem kemur í tilkynningu frá embættinu. Forsetarnir voru sammála um að þessi brýnu verkefni fælu í sér aukna þörf á samstarfi eyríkja. Ísland og Singapúr gætu í þeim efnum, í ljósi sögu sinnar og árangurs, haft ákveðna forystu.

Óttast að fyrirtæki flýi úr miðborginni

Skiptar skoðanir eru um fyrirhugaða hækkun á bílastæðagjöldum í miðborg Reykjavíkur. Fultrúi Sjálfstæðisflokks, sem er í minnihluta, segir hækkunina of bratta og óttast að hún verði til þess að hrekja fyrirtæki úr miðborginni. Formaður umhverfis- og samgönguráðs segir hins vegar að ráðstöfunin sé til þess fallin að bæta flæði í bílastæðamálum og auðvelda akandi gestum miðborgarinnar að fá stæði.

Lögreglan braut upp hurð að fíkniefnasamkvæmi

Lögregla var kölluð að fjölbýlishúsi í borginni í nótt vegna hávaða frá samkvæmi þar. Þegar húsráðandi opnaði fyrir lögreglumönnum fundu þeir strax kannaislykt auk þess sem þeir sáu hvar gestur í samkvæminu var í miklum flýti að hella einhverjum efnum ofan í klósettið og sturta.

Bensínlítrinn kostar yfir 255 krónur hjá N1

Olíufélagið N1 hefur hækkað bensínlítrann um fimm krónur og kostar hann nú röskar 255 krónur. Dísillítrinn var líka hækkaður um tæpar fimm krónur hjá N1 og kostar nú 263,50 kr.

Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag

Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag föstudag vegna stórsjávar. Ölduhæð var 9 metrar á Surtseyjardufli og 6,8 metrar á Grindarvíkurdufli. Í tilkynningu segir að betra útlit sé með seinni ferð Herjólf.

Formaður gagnrýnir vinnubrögð Alþingis

Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs, gagnrýnir málatilbúnað Alþingis við að kalla ráðið saman í mars til að bregðast við tillögum þingsins varðandi frumvarp til stjórnskipunarlaga sem lá fyrir í ágúst. Skammur fyrirvari og óskýrt hlutverk vinnufundarins er hluti þeirrar gagnrýni.

Reykræsta þurfti bakarí í nótt

Bakaríi í Álfheimum í Reykjavík fyllltist af reyk í nótt. Kallað var á slökkviliðið um þrjúleitið og kom þá í ljós að eldur logaði glatt í ruslatunnu fyrir utan bakaríið og hafði reykinn lagt inn um glugga.

Vonskuveður á loðnumiðunum

Vonsku veður var í nótt við Suðurströndina og mikil ölduhæð þannig að loðnuskipin gátu ekki athafnað sig út af Ölfusárósum, þar sem gangan er núna.

Stór dráttarbíll valt á Fjarðarheiði

Ökumaður og farþegi slösuðust, en þó ekki alvarlega, þegar stór dráttarbíll með tengivagn valt á hliðina á Fjarðarheiði ofan við Seyðisfjörð, í vonsku veðri og hálku í gærkvöldi.

Bensínlítrinn hjá Shell í tæpar 253 krónur

Bensínlítrinn hjá Shell er kominn upp í tæpar 253 krónur, sem er rúmlega tveimur krónum hærra verð en hjá öðrum félögum. Dísiloían er hinsvegar á svipuðu róli og hjá öðrum, eða liðlega 258 krónur lítrinn.

Enginn handtekinn vegna ránsins á Akureyri

Lögreglan á Akureyri var fram eftir öllu kvöldi í gær að vinna úr vísbendingum um ránið, sem framið var í Fjölumboðinu við Geirsgötu á Akureyri um hádegisbil í gær.

Mikil aukning á fjölda þeirra sem fá húsaleigubætur

Mikil aukning hefur orðið á fjölda þeirra einstaklinga sem fá húsaleigubætur á undanförnum fimm árum. Rúmlega 9.500 manns fengu slíkar bætur árið 2007 en fjöldinn var kominn í rúmlega 14.000 manns í fyrra.

Geir Jón í pólitík

Geir Jón Þórisson, lögreglumaður og fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn, gefur kost á sér sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Geir Jóni. Kosið verður á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins þann 17. mars.

Með ólíkindum að engin slasaðist alvarlega í rútuslysi

Það þykir með ólíkindum að engin skuli hafa slasast alvarlega þegar lítill rútubíll, með átta farþega auk ökumanns, valt út af veginum i Oddsskarði í gærkvöldi og fór þrjár veltur áður en hún nam staðar á hliðinni.

Bréf Jóns mögulega refsivert á Íslandi

Jón Baldvin Hannibalsson var kærður fyrir kynferðisbrot gagnvart Guðrúnu Harðardóttur, ungri frænku eiginkonu sinnar, árið 2005. Ríkissaksóknari taldi bréf frá Jóni Baldvini til hennar geta fallið undir brot á lögum um blygðunarsemi, en málið var látið niður falla vegna þess að verknaðurinn þótti ekki refsiverður í Venesúela. Sagt er frá málinu í Nýju lífi, sem kom út í gær.

EFTA mun skera úr um heimildir ÁTVR

EFTA-dómstóllinn mun gefa ráðgefandi álit á heimildum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) til að hafna því að taka áfengistegundir í sölu. Áfengisheildsalar hafa deilt hart á stofnunina fyrir að neita að selja áfengistegundir vegna umbúðanna.

Vert að skoða Perluna undir safn

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, telur það áhugaverðan kost að Perlan í Öskjuhlíðinni verði nýtt sem húsnæði fyrir Náttúruminjasafn Íslands. Hún hefur óformlega rætt þennan kost við stjórnarmann Orkuveitu Reykjavíkur. Orkuveitan, sem er eigandi Perlunnar, hefur í hyggju að selja húsnæðið, eins og komið hefur fram í fréttum.

Kannabisefni og græðlingar

Allnokkurt magn af fíkniefnum fannst í húsleit lögreglu í Mosfellsbæ á þriðjudag. Um var að ræða 900 grömm af marijúana og um 1,4 kíló af öðru kannabisefni. Fíkniefnin fundust í þurrkunaraðstöðu í risi hússins.

Enginn slasaðist illa í rútuslysi í Oddskarði

Enginn slasaðist illa þegar rúta með átta farþegum fór út af veginum í Oddskarði rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirði og Gerpir á Norðfirði voru kallaðar út og fluttu björgunarsveitarmenn farþegana á heilsugæsluna á Eskifirði.

Rútuslys í Oddskarði

Björgunarsveitirnar Brimrún á Eskifirði og Gerpir á Norðfirði voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í kvöld þegar lítil rúta fór útaf veginum í Oddskarði með átta manns innanborðs.

Talsverður áhugi á listaverkum eftir Sævar Cieselski

Málverk eftir Sævar Cieselski er nú á vefuppboði hjá Gallerí Fold. Verkið er selt ásamt verkum nokkura þekktustu listamanna landsins en vefuppboðin hafa gefið nýjum og óþekktum listamönnum tækifæri. Gallerí Fold byrjaði fyrir tæpu ári síðan að halda uppboð á netinu, þar geta áhugasamir kaupendur skoðað málverk og listmuni og boðið í rafrænt. Uppboðin standa í tíu daga og hafa viðtökurnar verið góðar.

Nýtt líf uppselt hjá útgefanda

"Það hefur ekki gerst áður að blað seljist upp daginn sem það kemur út. Það er alveg einsdæmi," segir Karl Steinar Óskarsson, útgáfustjóri hjá Birtíngi, sem gefur meðal annars út tímaritið Nýtt líf. Fyrirtækið hefur fengið gríðarlega mikil og sterk viðbrögð við nýjustu útgáfu af blaðinu, en eflaust á umfjöllun blaðsins um erótísk ástarbréf Jóns Baldvins Hannibalssonar til frænku eiginkonu sinnar, stóran þátt í sölunni.

Sjá næstu 50 fréttir