Fleiri fréttir

Vatnsleki kom upp um kannabisræktun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í fyrradag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að við húsleit á áðurnefndum stað hafi fundist um 60 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 23 kg.

Bréf Jóns Baldvins ollu reiði, sorg og biturð

Guðrún Harðardóttir segir að bréfin sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi henni á sínum tíma hafi gert hana hrædda og ástæða þess að hún hefur kosið að greina frá þeim nú sé sú að hún hafi fengið nóg. Guðrún segir í viðtali í nýjasta tölublaði Nýs lífs, þar sem bréf Jóns Baldvins eru birt, að hún hafi reglulega fundið fyrir reiði, sorg og biturð, og því hafi hún kosið að koma þessu frá sér.

Bílar fóru út af veginum í Hveradalabrekku

Að minnsta kosti tveir bílar hafa runnið út af veginum í Hveradalabrekku í morgun vegna hálku og éljagangs. Hálka er víða á Suðurlandi, en auk Hellisheiði eru hálkublettir í Þrengslum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er einnig hálka á Lyngdalsheiði og á efri hluta Biskupstungnabrautar en annars víða hálkublettir í uppsveitum Suðurlands. Snjóþekja er á Sólheimasandi og austur að Vík í Mýrdal.

Kærir Snorra í Betel til lögreglu

Pétur Maack, sálfræðingur á Akureyri, ætlar að kæra Snorra Óskarsson, kennara í Brekkuskóla á Akureyri, til lögreglu. Ástæðan er ummæla Snorri viðhafði um samkynhneigða á vefsíðu sinni. Í aðsendri grein sem Pétur skrifar í vikublaðið Akureyri segir hann að óvissa virðist vera fyrir hendi hvar mörk tjáningarfrelsis liggi og þess vegna kæri hann. Málsmetandi menn hafi sakað skólayfirvöld á Akureyri um að brjóta gegn tjáningarfrelsi Snorra. Pétur segir jafnframt í greininni að á Íslandi sé skólaskylda og þess vegna verði að ríkja fullkomið traust á milli heimils og skóla. Skólinn verði að gera ráð fyrir að í nemendahópnum sé fólk af öllu tagi og nemendurnir, skjólstæðingar skólans, komi frá alls konar heimilum og úr alls konar fjölskyldum. Þegar Vísir hafði samband við Pétur í morgun sagðist hann ekki vera búinn að fara með kæruna til lögreglu en hann hygðist gera það í dag.

Þóra: Umfjöllunin krafðist ekki skýringa Jóns Baldvins

Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins Nýs Lífs segir að umfjöllun nýjasta tölublaðsins er varðar Jón Baldvin Hannibalsson og bréfaskriftir hans til unglingsstúlku, byggi á gögnum úr lögreglumáli, meðal annars bréfum sem hann hefur gengist við að hafa ritað. Umfjöllunin hafi því að hennar mati ekki krafist viðbragða af hans hálfu.

Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra , biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent 16 ára frænku eiginkonu sinnar bréf, sem á köflum voru erótísk. Jafnframt erótíska bók eftir Vargas Llosa.

Ráðherrar kannast ekki við tafir vegna lögreglurannsóknar

Í tímaritinu Nýju Lífi eru birt kynferðisleg bréf sem Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum ráðherra og sendiherra sendi systurdóttur eiginkonu sinnar. Stúlkan kærði Jón en málið var fellt niður. Tveir fyrrverandi ráðherrar hafna því í samtali við fréttastofu að hafa tafið rannsókn málsins.

Segir útlitið á eldsneytismarkaði svart

"Þetta sligar svo marga," sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdarstjóri FÍB, í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi um hækkanir á eldsneytisverði.

Upplýsingar um leiguverð verða birtar mánaðarlega

Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu og hyggst hér eftir birta mánaðarlega leiguverð og vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Í sameiginlegri tilkynningu frá stofnununum segir að á síðustu mánuðum hafi verið haft samstarf um skráningu upplýsinga um leiguverð úr þinglýstum leigusamningum. Hingað til hafi Þjóðskrá aðeins birt upplýsingar um fjölda leigusamninga sem þinglýst er í hverjum mánuði en samkomulag við Íbúðalánasjóð um kostun skráningar gerir kleift að skrá líka fjárhæð húsaleigu, staðsetningu og eiginleika fasteignar.

Ógnaði starfsmanni með úðabrúsa

Ræninginn sem réðst inn í húsnæði Happadrættis Háskóla Íslands á Akureyri í hádeginu í dag ógnaði starfsmanni í afgreiðslu með úðabrúsa. Hann tók svo peninga úr afgreiðslukassanum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er maðurinn grannur, lágvaxinn, klæddur dökkleitum buxum, í úlpu, með mótórhjólahjálm á höfði og með bakpoka. Þeir sem geta gefið upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir á þessum slóðum um þetta leiti eru vinsamlegast beðnir um að láta lögregluna á Akureyri vita í síma 464-7705.

Rannsókn á nauðgunarmálum lokið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á tveimur nauðgunarkærum á hendur Agli "Gillz" Einarssyni. Málið hefur nú verið sent til ákærusviðs lögreglunnar sem mun taka ákvörðun um það hvenær það verði sent til ríkissaksóknara.

Ummerki um olíu frá Júratímabili á Drekasvæðinu

Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu, þar sem Íslendingar gera sér vonir um að olíu sé að finna, gætu rennt stoðum undir þær vonir. Á heimasíðu Orkustofnunar er greint frá rannsóknum tveggja olíuleitarfélaga, TGS og Volcanic Basin Petroleum Research.

Biðst afsökunar á "erótísku“ bréfi

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent sextán ára frænku eiginkonu sinnar bréf sem á köflum voru erótísk. Tímaritið Nýtt líf fjallar um málið í dag.

Ákærður fyrir henda flösku í lögreglubíl

„Sé ég eftir þessu? Já, ætli það ekki. Veskið mitt sér líka eftir þessu,“ segir rapparinn Emmsjé Gauti, sem hefur verið ákærður fyrir að henda glerflösku í lögreglubíl.

Innbrot í Húsaskóla

Brotist var inn í Húsaskóla í Grafarvogi í nótt og var þjófurinn handtekinn á staðnum. Frekari málsatvik liggja ekki fyrir. Það var líka gerð tilraun til innborts í hús við Antmannsstíg en þjófurinn forðaði sér áður en lögregla kom á vettvang.

Svarti dauði fer ekki í sölu í vínbúðunum

Bjór kenndur við svarta dauða verður ekki seldur í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) vegna þess að á bjórflöskunum stendur „Drekkið í friði“. Eigandi vörumerkisins hefur kært ákvörðun ÁTVR um að taka bjórinn ekki í sölu til fjármálaráðuneytisins.

Þvottavél á hreyfingu olli vatnsleka

Þvottavél á baðherbergi í fjölbýlishúsi í Breiðholti tók upp á því um eitt leitið í nótt, að labba af stað og fyrir hurðina inn á baðið. Um leið slitnaði vatnsslangan inn á vélina þannig að vatn fór að leka og hringdi húsráðandi þá á slökkviliðið.

Gera má betur í baráttu við misrétti og fordóma

Kynþáttafordómanefnd Evrópuráðsins gerir ýmsar athugasemdir við stöðu mála á Íslandi í nýrri skýrslu sinni, þó margt hafi lagast á undanförnum árum. Skýrsla nefndarinnar var gerð opinber á þriðjudag.

Framsókn hissa á fjárnámsfrétt

Viðræður hafa staðið yfir milli Framsóknar í Reykjavík og forsvarsmanna fyrirtækisins JCDecaux, sem á og rekur strætóskýli borgarinnar, um uppgjör skuldamáls þeirra. Þess vegna segir lögmaður flokksfélagsins frétt Fréttablaðsins í gær af árangurslausu fjárnámi hjá flokknum koma „verulega á óvart“.

Forvarnir spara umtalsvert fé

Forvarnarstarf í kynferðisbrotum gegn börnum er samfélaginu nauðsynlegt og sparar til lengri tíma mikið fjármagn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrirlestri Sigríðar Björnsdóttir, verkefnastjóra Blátt áfram, á málþinginu Framtíð barna sem haldið verður í Öskju í Háskóla Íslands í dag.

Þjónustumiðstöð á nýjum gatnamótum

Sveitarfélagið Árborg hefur veitt vilyrði fyrir sex hektara lóð undir nýja verslunar- og þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn á Suðurlandi. Miðstöðin kallast Miðja Suðurlands og á að rísa við fyrirhuguð gatnamót Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar þegar hringvegurinn verður fluttur norðaustur fyrir Selfoss.

Árásarmaður leystur úr haldi

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir manni sem hefur játað alvarlega líkamsárás á eldri mann á Þórshöfn fyrr í mánuðinum.

Saga ASÍ kemur út í október

Skrifað hefur verið undir útgáfusamning vegna sögu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) sem koma á út í tveimur bindum næsta haust.

Baldur fer á Litla-Hraun - en hann byrjar í Hegningarhúsinu

Afplánun Baldurs Guðlaugssonar hefst í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg samkvæmt frétt sem birtist á vef Viðskiptablaðsins fyrr í kvöld. Þar segir að Baldur fari á Litla-Hraun eftir að hafa dvalið í Hegningarhúsinu en fer síðan mögulega þaðan á Kvíabryggju eða Sogn.

Líf og fjör á Öskudegi - myndir

Það var líf og fjör á Öskudeginum í dag eins og við mátti búast. Fjöldi barna klæddu sig upp í furðulega búninga og slógu köttinn úr tunnunni auk þess sem farið var í viðamikla sælgætisleiðangra í tilefni dagsins. Þá var fjölmennt í Kringlunni í dag eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Nýjar Þjórsárvirkjanir gætu skilað yfir 20 milljörðum á ári

Virkjanir í Þjórsá, sem stjórnarflokkarnir ræða nú um að falla frá eða setja á bið, gætu skilað Landsvirkjun yfir tuttugu milljarða króna tekjum á hverju ári í framtíðinni. Búrfellsvirkjun er sennilega gott dæmi um gullkvörn en það orð notaði Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, um Landsvirkjun fyrir rúmu ári.

Ýtti við yfirmanni Dróma og ruddist inn á heimilið

Ráðist var á yfirmann hjá Dróma á heimili hans í gær. Lögregla var strax kölluð til. Árásarmaðurinn er ósáttur viðskiptavinur sem taldi sig eiga harma að hefna. Hann sér eftir því að hafa farið heim til mannsins.

Jón Baldvin krefst þess að sjá umfjöllun Nýs Lífs - íhugar ella lögbann

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra krefst þess að fá að sjá umfjöllun Nýs Lífs um hann sem birtist í nýjasta tölublaðinu sem kemur út á morgun. Hann segir ennfremur skýlausa kröfu að hann fái að svara fyrir sig í sama blaði. Ella íhugi hann að sækjast eftir lögbanni á dreifingu þess. Þetta staðfestir Þóra Tómasdóttir ritstjóri tímaritsins í samtali við fréttastofu en hún hefur ekki svarað kröfu Jóns Baldvins.

Fíkniefni fundust í skrifstofuhúsnæði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 120 grömm af marijúana við húsleit í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi í fyrradag en hluti þess var í söluumbúðum. Á sama stað var ennfremur lagt hald á 10 e-töflur. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar en þess má geta að rýmið hafði verið innréttað sem íbúðarhúsnæði.

Reyndi að smygla stinningarlyfinu Kamagra til landsins

Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir tollalagabrot þegar hann kom hingað til lands með skipinu Arnarfelli, þar sem hann er bátsmaður, aðfaranótt miðvikudagsins 9. febrúar 2011.

Sýslumenn svara HH fullum hálsi

Stjórn Sýslumannafélags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fullyrðingum Hagsmunasamtaka heimilanna frá því í gær er svarað. Samtökin sögðu í gær að í ljósi nýgengins Hæstaréttardóms um ólögmæti vaxtaútreikninga gengistryggðra lána, hefðu sýslumenn sem framkvæmt hafa fjárnám, nauðungarsölur og gjaldþrotaúrskurði "á grundvelli slíkra ólögmætra útreikninga“ tekið sér dómsvald á meðan réttaróvissa ríkti. "þar með hafi þeir brotið stjórnsýslulög og jafnvel stjórnarskrá.“

Ákærðir fyrir tilraun til manndráps en neita sök

Allir mennirnir þrír sem ákærðir hafa verið fyrir tilraun til manndráps eftir skotárás í Bryggjuhverfinu í Reykjavík í nóvember í fyrra, neituðu sök í þeim ákærulið við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir stundu.

Steingrímur Sævarr sýknaður í meiðyrðamáli

Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri vefmiðilsins Pressunnar, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sýknaður af ásökun um meiðyrði í garð Ægis Geirdal listamanns. Ægir fór fram á eina milljón í miskabætur frá ritstjóranum en dómarinn ákvað að hann skyldi í staðinn greiða Steingrími 180 þúsund krónur í málskostnað.

Grútaður fálki í Húsdýragarðinum

Starfsmenn Húsdýragarðsins í Reykjavík eru nú að undirbúa komu fálka, sem fannst ataður í grút skammt frá Grundarfirði í gær. Finnendur náðu að handsama hann og verður hann vistaður í hundabúri þar til hann kemur í Húsdýragarðinn. Að sögn Jóns Gíslasonar yfir dýrahirðis þar, verður reynt að gefa honum að éta áður en hann verður settur í bað með tilheyarndi sápu og ef allt gengur að óskum verður hann svo vistaður í nokkra daga í garðinum áður en honum verður sleppt. Ekki er vitað í hverskonar grút fálkinn lenti, en frengir hafa borist af grútarflekkjum við strendur Breiðafjarðar, sem raktir eru til dauðrar síldar.

Forrit finnur barnaníð í tölvum

Íslenskt fyrirtæki sem hannað hefur tölvuforrit sem nýtist lögreglu við rannsókn á ólöglegu myndefni hóf í gær samstarf við breskt fyrirtæki til að koma forritinu í notkun erlendis.

Sjá næstu 50 fréttir