Fleiri fréttir

Kannast ekki við nýjan meirihluta í Kópavogi

"Þú ert að segja mér fréttir,“ segir Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Lista Kópavogsbúa, í samtali við Vísi nú fyrir stundu. Á vef Morgunblaðsins er fullyrt að búið sé að mynda nýja meirihluta í bænum með fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Lista Kópavogsbúa.

Sérstakur saksóknari með aðgerðir hjá KPMG

Fulltrúar á vegum embættis Sérstaks saksóknara fóru inni í endurskoðandafyrirtækið KPMG nú fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Jónssyni, framkvæmdastjóri KPMG komu fulltrúar sérstaks saksóknara inni í fyrirtækið og óskuðu eftir upplýsingum tengdum Milestone.

Seldist upp á Jethro Tull á sjö mínútum

Miðar á tónleika Jethro Tull í Hörpu þann 21. júní næstkomandi seldust upp á aðeins sjö mínútum en miðasala hófst á hádegi í dag. Í kjölfar þessara kröftugu viðbragða hefur verið ákveðið að halda aukatónleika daginn eftir, 22. júní, og hefst sala á þá nú klukkan 14 í dag í Hörpu og á midi.is.

Bensínsveiflur öllum til óþurftar

Full ástæða er til að hafa áhyggjur af hækkandi bensínverði að mati Helga Hjörvars formanns efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Hann telur mörk fyrir því hversu langt hægt er að ganga langt í sköttum á eldsneyti en nefnd hans ætlar að skoða málið á næstunni.

Friðjón ekki beðinn afsökunar

"Þeir sáu ekki sóma sinn í að biðjast afsökunar,“ segir Heiðar Ásberg Atlason, verjandi Friðjóns Þórðarsonar, sem hefur stefnt ríkinu vegna ásakana um peningaþvætti.

Fundu kyrkislöngu við húsleit

Enn koma skriðdýr við sögu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en kyrkjuslanga fannst við húsleit í Reykjavík um síðustu helgi.

Nýjar meirihlutaviðræður í Kópavogi í dag

Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Farmsóknarflokks og Lista kópavogs ætla í dag að ræðast við um hugsanlega myndun nýs meiirhluta í bæjarstjórn Kópavogs, eftir að viðræður Sjálfstæðismanna annarsvegar og Samfylkingar og Vinstri grænna hinsvegar fóru út um þúfur í gærkvöldi.

Mjólkurbíl ekið á fjósvegg

Sá óvenjulegi árekstur varð í síðasta mánuði að glænýjum mjólkurbíl var ekið á fjósvegg að bænum Akri í Eyjafjarðarsveit.

Margar ábendingar í sprengjumálinu en enginn handtekinn

Engin hefur enn verið handtekinn vegna sprengjutilræðisins við Hverfisgötu fyrir tveimur sólarhringum, en lögreglu bárust margar ábendingar eftir að hún birti myndir úr eftirlitsmyndavélum af hinum grunaða og bíl hans í gær.

Mikil óánægja hjá foreldrum barna í Hamraskóla

Mikil óánægja kom fram á fjölmennum fundi foreldra barna í Hamraskóla í Grafarvogi í gærkvöldi, með formanni menntasviðs borgarinnar, vegna þeirrar ákvörðunar borgaryfirvalda að sameina Hamraskóla, Húsaskóla og Foldaskóla á unglingastigi.

Rannsaka grun um barnavændi

Lögregla rannsakar nú hvort karlmaður á sextugsaldri, sem á sunnudagskvöld var rændur af pilti og stúlku undir tvítugu, hafi falast eftir því að kaupa vændi af stúlkunni. Hún er einungis sextán ára. Maðurinn tilkynnti um ránið til lögreglu á sunnudagskvöld. Hann hafði boðið stúlkunni í heimsókn en þegar hann hleypti henni inn ruddist inn með henni piltur vopnaður hnífi.

Bílnúmerið ógreinilegt á upptökunni

Lögreglu hafði í gærkvöldi enn ekki tekist að hafa hendur í hári þess sem talinn er hafa sprengt heimatilbúna sprengju á Hverfisgötu snemma á miðvikudagsmorgun. Vitni hefur greint frá því að skömmu eftir að sprengjan sprakk hafi það séð lágvaxinn, feitlaginn mann á miðjum aldri hlaupa af vettvangi og aka brott á litlum, hvítum sendiferðabíl.

Hægt að hylja mynd af Agli

Já hefur látið hanna og framleiða límmiða til að líma á forsíðu símaskrár síðasta árs. Á forsíðunni er mynd af Agli Einarssyni og fimleikastúlkum í Gerplu. Tilgangur límmiðanna er að gera fólki kleift að líma yfir Egil Einarsson. "Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska,“ staðfestir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já.Egill hefur verið kærður í tvígang fyrir kynferðisbrot á síðustu mánuðum en niðurstaða í málunum liggur ekki fyrir.

Fjórir af sex liðum standa enn þá eftir

Mál á hendur Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, hefur verið mikið í umræðunni. Tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að draga ákæruna á hendur honum til baka hefur valdið titringi innan þingsins og skipt stjórnarliðum í tvo hópa. Mikið hefur verið rætt um að tillagan sé ekki pólitísk en engum blöðum er um það að fletta að hún hefur haft pólitískar afleiðingar. Fréttablaðið beinir nú sjónum að ákærunni sjálfri og rifjar upp fyrir hvað Geir er ákærður. Líkt og áður segir standa fjórir liðir ákærunnar eftir.

Fer líklega utan til viðgerðar

Ekki hefur gengið að laga óeðlilegan titring í vél varðskipsins Þórs þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir sérfræðinga frá Rolls Royce verksmiðjunum. Líklegt er að skipið þurfi að fara til Noregs til viðgerðar, að því er segir á vef Landhelgisgæslu Íslands.

Starfa í Eyjum

Hjallastefnan átti lægsta tilboð í rekstur leikskólans Sóla í Vestmannaeyjum. Stýrihópur á vegum bæjarins leggur til að gengið verði til samninga við Hjallastefnuna. Þrjú tilboð bárust og uppfylltu tvö sett skilyrði sem sett voru. Hjallastefnan bauð dvalargildi á 11.905 krónur, en önnur tilboð hljóðuðu upp á 12.449 krónur og 14.440

Barnabækur rannsakaðar

Barnabókasetur, rannsóknarsetur um barnabókmenntir og lestur barna, verður opnað við Háskólann á Akureyri á laugardag. Markmiðið með setrinu er að stunda rannsóknir og fræðslu um barnabókmenntir og lestur á Íslandi og að vinna að framgangi

Ekki hægt að fylgjast með sprengjusmiðum

Lögregla hefur ekki heimildir til að fylgjast með því hvort menn séu að sanka að sér efnivið í sprengju, svo sem áburði eða eldsneyti. Til þess að unnt sé að kanna slíkt þarf ábending að berast um grunsamlegt athæfi.

Segist munu slökkva ljós á Vatnsendavegi

"Okkur er algerlega misboðið," segir Guðríður Arnardóttir, formaður framkvæmdaráðs Kópavogs, sem í gær mótmælti ákvörðun Vegagerðinnar um að hætta að kosta rekstur og viðhald á Vatnsendavegi. Orkuveitan hyggst slökkva á götulýsingunni því enginn vill borga rafmagnsreikninginn.

Allt í hnút í Kópavogi

Það er allt í hnút í bæjarstjórn Kópavogs eftir að meirihlutaviðræður Samfylkingarinnar við Sjálfstæðismenn slitnuðu í dag. Stjórnarkreppa ríkir þar og hefur bærinn verið án starfandi meirihluta í tvær vikur. Samfylkingin mun nú reyna að mynda meirihluta með Kópavogslistanum og Framsóknarflokknum.

Hélt alltaf í vonina

„Þegar maður getur ekki einu sinni brosað þá reynir maður það samt," segir Eiríkur Ingi Jóhannsson sem komst einn lífs af þegar togarinn Hallgrímur sökk við Noregsstrendur í síðustu viku. Þrír menn fórust í slysinu. Eiríkur var í ítarlegu viðtali við Kastljósið á RÚV um lífsreynslu sína í kvöld. Þar sagði hann að börnin hefðu verið honum ofarlega í huga þegar hann áttaði sig á því að hann væri í lífshættu.

Vill lyftu á Fríkirkjuvegi 11 til að auðvelda aðgengi fatlaðra

Ásgeir Ásgeirsson, arkitektinn sem teiknaði breytingarnar á Fríkirkjuvegi 11 sem Húsfriðunarnefnd hefur nú lagst gegn, segir að gert sé ráð fyrir lyftu í nýjum teikningum, m.a til að auðvelda aðgengi fatlaðra. Hann segir að húsið sé með B-friðun sem þýðir að núverandi eigandi getur ráðist í breytingar án afskipta nefndarinnar.

Tilraun til ráns í miðbæ Reykjavíkur

Ránstilraun átti sér stað í versluninni Yggdrasill í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í dag. Einn maður var að verki og ógnaði hann afgreiðslustúlku með oddhvössum hlut.

Þurfa að farga 500 kindum

Riðuveiki fannst í kind sem slátrað var í haust frá bænum Merki í Jökuldal. Þetta sýna niðurstöður tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði.

Auglýst eftir manni og bíl í tengslum við sprengjuna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni og hvítri sendibifreið í tengslum við sprengju sem fannst skammt frá Stjórnarráðshúsinu í gærmorgun. Maðurinn er talinn hafa komið með sprengjuna í umræddum bíl, sem er af gerðinni Renault Kangó. Lögregla hefur í dag farið yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum en fjölmargar ábendingar hafa borist vegna málsins. Maður sem var á strætisvagnabiðstöð skammt frá vettvangi í gær, og lýst var eftir, hefur gefið sig fram við lögreglu. Allir þeir sem veitt geta upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögreglu.

Stöðvuðu ökumenn með fíkniefni

Lögreglan stöðvaði ökumann bíls á gatnamótum Kringlumýrabrautar og Laugavegar í dag vegna gruns um að ökumaður væri með fíkniefni meðferðis. Lítilræði af fíknefnum fundust á manninum.

Kaldara á Bretlandi en Íslandi

Það hefur væntanlega farið hrollur um lesendur breska blaðsins Daily Express þegar þeir sáu forsíðu blaðsins í gær. Þar var því slegið upp að kaldara yrði á Bretlandi en á Íslandi í þessari viku. Hitastigið gæti farið niður í allt að -11 gráður. Í greininni segir að rekja megi kuldann til lægðar sem leggur yfir Bretlandseyjarnar en hún kemur frá Síberíu. Búist er við því að hitinn geti náð upp í allt að 2 gráður en fer langt niður fyrir frostmark.

Steingrímur setti Framadaga í HR

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, setti Framadaga háskólanna í Háskólanum í Reykjavík í dag en þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru haldnir í HR. Í tilkynningu segir að ár taki 35 fyrirtæki þátt og hafa þau aldrei verið fleiri. Framadögum er ætlað að gefa ungum háskólaborgurum tækifæri á að finna draumastarfið, hvort heldur í sumar eða sem framtíðarstarf.

Deilt um hleranir í Háskóla Reykjavíkur

Málfundafélag Lögréttu í Háskóla Reykjavíkur býður til málfundar á morgun, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 16:00, í húsnæði Háskólans í Reykjavík, stofu V101.

Tugir látnir í frosthörkum í Evrópu

Mikil snjókoma og frosthörkur hafa sett allt úr skorðum í Evrópu í dag. Nú er svo komið að snjór liggur yfir stórum hluta álfunnar frá Ítalíu í suðri og til Tyrklands í austri. Veðrið hefur orsakað að minnsta kosti áttatíu dauðsföll, aðallega í Úkraínu og í Póllandi.

18 króna hækkun á árinu

Frá áramótum hefur verð á bensíni hækkað um sem nemur 18 krónum. Hækkun undanfarinna tveggja daga er nálægt fjórum krónum. N1 reið á vaðið í fyrradag með hækkun úr 242,7 krónum á lítrann í 246,7 krónur. Í gær fylgdu svo hækkanir á öllum öðrum bensínstöðvum.

Bjargsigið í útrýmingarhættu, ekki svartfuglarnir

Það eru bjargsigsmennirnir og ævagamlar menningarhefðir sem eru í mestri útrýmingarhættu, en ekki svartfuglarnir, segir helsti sigmaður Vestmannaeyja, sem óttast að fimm ára veiðibann verði til þess að kunnátta og hefðir við eggjatöku glatist.

Fundu vopnabúr

Heilt vopnabúr virðist hafa komið í ljós þegar lögreglan fór í húsleitir á dögunum í tengslum við rannsóknir á innbrotum. Á Vísi fyrr í dag var greint frá því að þrír hafi verið handteknir vegna málsins en verulegt magn þýfis fannst, auk vopnanna sem sjá má á myndinni. Alls var leitað á fimm stöðum og hefur þýfið þegar verið tengt við muni sem stolið var í sjö til átta innbrotum í umdæminu. Lögregla segir einnig viðbúið að munir úr fleiri innbrotum eigi eftir að koma við sögu.

Flúði land þrátt fyrir farbann - farið fram á alþjóðlega handtökuskipun

Einn þriggja Litháa sem á dögunum voru dæmdir fyrir að koma að fíkniefnaframleiðslu í sumarbústað í Ölfusborgum í október hefur flúið land, þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í farbann. Hann mun hafa farið með flugi frá Íslandi til Parísar og þaðan áfram til Ríga í Lettlandi.

Risaslöngur ógna lífríkinu í Flórída

Risastórar kyrkislöngur og snákar ógna nú lífríkinu á fenjasvæðum Flórída í Bandaríkjunum. Um er að ræða snáka og kyrkislöngur sem fólk hefur haldið sem gæludýr en að lokum sleppt lausum út í náttúruna þar sem þau hafa náð að aðlagast.

Sjá næstu 50 fréttir