Fleiri fréttir

Öngþveiti við Litlu Kaffistofuna

Búið er að loka Þrengslunum og Hellisheiðinni var jafnframt lokað í morgun. Ófært er um Suðurlandsveg við Litlu Kaffistofuna. Samkvæmt upplýsingum Vísis situr fjöldi fólks fastur í bílum á Hellisheiði, en um er að ræða fólk sem reyndi að fara yfir Heiðina í morgun og hafa sumir þeirra setið fastir frá því klukkan níu í morgun. Í ráði er að fara með snjóruðningstæki sem getur fylgt bíl til að selflytja fólkið sem situr fast á Hellisheiðinni og við Kaffistofuna.

Frelsi fjölmiðla minnkar á Íslandi

Frelsi fjölmiðla á Íslandi minnkaði nokkuð í fyrra miðað við árið á undan. Þetta kemur fram á listanum World Press Freedom Index sem gefinn er út árlega yfir frelsi fjölmiðla í tæplega 180 löndum um allan heiminn.

Hellisheiðin aftur lokuð um óákveðinn tíma

Búið er að loka Hellisheiðinni um óákveðinn tíma. Á Hellisheiði og í Þrengslum er nú fyrir hádegi búist við vaxandi hríðarkófi með lélegu skyggni og talsverður skafrenningur verður á Reykjanesbraut fram undir hádegi.

Nemendum fjölgar

Skráðum nemendum á framhalds- og viðbótarstigi fjölgaði um tæp 5% síðasta haust miðað við sama tímabil árið á undan og eru 29.389. Þá fjölgaði skráðum nemendum á háskóla- og doktorssttigi um 1% frá fyrra ári. Þeir voru 19.334 í haust. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Konur eru 55,9% nemenda á öllum skólastigum ofan grunnskóla en hlutur karla er 44,1%.

Jafnt hjá barnameistaranum

Skákdagur Íslands var haldinn í fyrsta sinn í gær. Stórmeistarinn Friðrik Ólafsson var heiðraður í tilefni dagsins, en Friðrik átti einmitt 77 ára afmæli. Margs konar uppákomur tengdar skák voru um allt land í tilefni dagsins, en meðal annars var athöfn á Bessastöðum þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fór í ávarpi yfir afrek Friðriks og áhrif hans á skákíþróttina og þjóðina alla. Að lokinni ræðu forseta tefldi Friðrik við Nancy Davíðsdóttur Íslandsmeistara barna. Skákinni lyktaði með jafntefli.

Alþjóðleg samvinna lykill að árangri Íslands

Ísland verður að taka aukinn þátt í alþjóðlegri samvinnu um framtíð norðurslóða ætli íslensk stjórnvöld sér að hafa áhrif á öryggismál í þessum heimshluta í framtíðinni. Um þetta voru fyrirlesarar á fundi um borgaralegt öryggi og norðurslóðir sem haldinn var í gær sammála. Þó að friðsamlegt sé um að litast á norðurslóðum og stöðugleiki hafi ríkt þar lengi hafa þau ríki sem þar hafa ítök hug á að tryggja eigin hagsmuni vegna nýtingar á auðlindum og siglingarleiðum sem kunna að opnast, sagði Margrét Cela, doktorsnemi við Háskólann í Lapplandi í gær.

Leggja áherslu á jákvæðar fréttir

Lífið, nýtt fylgirit Fréttablaðsins um lífsstíl og dægurmál, kemur út í fyrsta sinn í dag í ritstjórn Ellýjar Ármannsdóttur og Kolbrúnar Pálínu Helgadóttur.

Engin efnisleg rök fyrir afturköllun

Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, segir engar forsendur hafa breyst í málinu gegn Geir H. Haarde sem styðji afturköllun ákæru á hendur honum. Það sé hins vegar Alþingis að taka þá ákvörðun og ef það, sem ákæruaðili, hafi skipt um skoðun í málinu, hafi vissulega orðið veigamikil breyting.

Útlit fyrir stærstu loðnuvertíð í áratug

Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyfilegur hámarksafli á loðnuvertíðinni verði 765 þúsund tonn, að meðtöldum þeim afla sem búið var að veiða þegar mælingar fóru fram. Um 590 þúsund tonn af loðnu munu falla til íslenskra útgerða. Útflutningsverðmætið er um 30 milljarðar króna, segir á heimasíðu LÍÚ.

Þingmenn gistu í flugrútu

„Ísland stóð svo sannarlega undir nafni þegar það tók á móti okkur,“ segir Siv Friðleifsdóttir alþingismaður sem lenti í hrakningum ásamt fleiri þingmönnum við komuna til landsins í fyrrakvöld.

Þvinga á fram gögn um brjóstastækkanir

Velferðarráðherra mun beita sér fyrir lagabreytingum til að krefja lýtalækna um að afhenda landlæknisembættinu upplýsingar, leysist málin ekki á næstunni. Hópur lýtalækna neitar landlækni enn um upplýsingar varðandi brjóstastækkanir sem þeir hafa gert á sjúklingum sínum frá árinu 2000. Þeir hafa leitað með málið til Persónuverndar. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir afstöðu sína í málinu afar skýra.

Fyrirtæki upplýsi hvert þeirra notaði iðnaðarsalt

Upplýsingar um það hvaða fyrirtæki notuðu iðnaðarsalt og í hvaða vörum verða aðgengilegar á vef talsmanns neytenda á næstu dögum. Þegar hafa einhver fyrirtæki sett sig í samband við embættið.

Segir sig úr stýrihópi borgarinnar

Elín Hjálmsdóttir fulltrúi foreldra í stýrihópi Reykjavíkurborgar um breytingu á þremur skólum í Grafarvogi hefur sagt sig úr nefndinni. Ástæðan er sú að óskir foreldra og jafnvel fyrirspurnir eru algerlega virtar að vettugi að hennar mati. Málið snýst um breytingu á Foldaskóla í heildstæðan safnskóla á unglingastigi og flutning nemenda í 8.-10.bekk úr Hamraskóla og Húsaskóla.

Hellisheiðin enn lokuð

Hellisheiðin er enn lokuð. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er unnið að mokstri. Verkið mun sækjast seint því að sumir virðast hafa hunsað lokunina og lagt í ferð yfir Heiðina þrátt fyrir að það væri bannað. Lögreglan á Selfossi hafði ekki upplýsingar um það hvernig gengi að losa þá bíla sem fastir voru.

Þurftu að hlaupa með hjartastuðtæki í snjónum

Ófærðin á Vestfjörðum í nótt og í morgun var svo mikil að þegar maður þar fékk hjartaáfall var ekki hægt að aka til hans með hjartastuðtæki. Lögreglumennirnir þurftu því að grípa til þess ráðs að hlaupa til hans í snjónum með hjartastuðtæki á sér. Þessu komst Hafþór Gunnarsson fréttaritari að þegar hann ræddi við Önund Jónsson yfirlögregluþjón á Ísafirði í dag. Sjá má myndir frá Vestfjörðum og viðtalið við Önund með því að smella á þennan hlekk.

Bænastundir vegna sjóslyssins á morgun

Bænastundir verða haldnar á morgun í Ytri Njarðvíkurkirkju og Grafarvogskirkju vegna sjóslyssins í gær þegar togarinn Hallgrímur SI-77 fórst. Þær hefjast báðar klukkan 18. Nöfn mannanna þriggja sem taldir eru af voru gerð opinber í dag. Sá fjórði dvelur á sjúkrahúsi í Álasundi. Ólíklegt þykir að hann verði útskrifaður í dag vegna andlegs ástands en honum hefur nú verið veitt áfallahjálp til að takast á við afleiðingar slyssins.

Ögmundur bíður með að tjá sig um ívilnun til Nubos

Tilraun Kínverjans Nubos til að fá Grímsstaði á langtímaleigu með ívilnun frá iðnaðarráðherra gæti leitt af sér ný átök milli stjórnarflokkanna. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ætlar ekki að tjá sig um málið að sinni. Eftir að Ögmundur hafnaði því að veita fyrirtæki Nubos undanþágu til að kaupa jörðina Grímsstaði lýsti Katrín Julíusdóttir því yfir að leitað yrði annara leiða til að greiða fyrir tugmilljarða fjárfestingum Nubos á Íslandi.

Fjórir fengið ívilnanir - Nubo vill líka

Iðnaðarráðherra hefur á grundvelli nýlegra laga um ívilnanir þegar veitt fjórum aðilum undanþágur frá lögum vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Kínverjinn Huang Nubo hefur nú sótt um að fá að njóta samskonar ívilnunar til að leigja Grímsstaði og byggja upp lúxushótel.

Tíkin Perla týnd

Tíkin Perla hvarf frá Holtunum í Hafnarfirði í dag um hálffimmleytið. Hún er ekki merkt um hálsinn, en með örmerki. Hún er með rauða ól og taum. Ef einhver hefur orðið hennar var eða veit hvar hún er þá hringið í Hrefnu í síma 698 3132.

Rannsókn á tildrögum sjóslyssins hafin

Rannsókn á tildrögum slyssins sem varð þegar Hallgrímur SI-77 sökk út frá ströndum Noregs er hafin, hún fer fram á Íslandi og verður í höndum rannsóknarnefndar sjóslysa. Lögregla og björgunaraðilar í Noregi vinna nú við að safna gögnum og verða þau send hingað til lands. Þar er til dæmis um að ræða veðurspár undanfarna daga, skýrslur frá björgunaraðilum og lögreglu.

Margt óunnið áður en þjóðin tekur afstöðu til grundvallarmála

Lagastofnun Háskóla Íslands telur nokkuð óunnið og óútfært í sambandi við frumvarp stjórnlagaráðs og til þess að taka að sér að framkvæma álagspróf á frumvarpinu þurfi stofnunin langan tíma og talsvert frelsi við að útfæra verkefnið. Stefnt er að því að leggja frumvarpið, lítillega breytt, í ráðgefandi atkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningum.

Nauðgunardómur þyngdur um eitt ár

Liðlega þrítugur karlmaður, Grétar Torfi Gunnarsson, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu á dvalarstað sínum og beitt hana ofbeldi eftir að þau, ásamt fleira fólki, hittust á veitingastað en fóru svo á dvalastað Grétars. Hann var einnig dæmdur til að greiða konunni 1,2 milljónir í miskabætur með vöxtum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Grétar í þriggja ára fangelsi og þyngdi Hæstiréttur því dóminn um eitt ár. Ákvörðun um refsingu var tekin með tilliti til þess að brotavilji Grétars var sagður vera einbeittur, brotið alvarlegt og það hafi valdið konunni líkamlegum áverkum og vanlíðan.

Hæstiréttur vítir lögreglu, ákæruvald og héraðsdóm

Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann sem hafði verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tveggja ára fangelsi fyrir innflutning á tveimur kílóum á kókaíni. Hæstiréttur taldi ekki að sekt mannsins hafi verið sönnuð og að meðferð málsins hafi farið úr skorðum. Taldi Hæstiréttur meðal annars að brotið hefði verið gegn ákvæðum laga um meðferð sakamála um trúnað sakbornings og verjanda og um bann við framlagningu gagna sem hafa að geyma upplýsingar um það þeim hefur farið á milli.

Nöfn þeirra sem er saknað

Nöfn mannanna sem eru taldir af eftir sjóslys í Noregshafi í gærdag þegar togarinn Hallgrímur SI-77 fórst, hafa verið gerð opinber.

Keyptu úr fyrir 2 milljónir með fölsuðum kortum

Tveir karlmenn frá Malasíu voru dæmdir í fangelsi 9 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir. Mennirnir keyptu rólex úr í verslun í Reykjavík að verðmæti rúmlega tveggja milljóna króna með tveimur fölsuðum greiðslukortum en bæði kortin voru með stolnum upplýsingum um greiðslukortanúmer annarra korthafa á kortinu og í segulrönd. Mennirnir fóru þó aldrei út úr búðinni, með úrin, þar sem starfsmenn búðarinnar hringdu á lögreglu eftir að greiðsluposinn gaf til kynna að kortin væru vákort. Þá sviku mennirnir einnig út gistingu á hóteli með sömu aðferð. Þegar mennirnir voru handteknir voru þeir með 25 slík kort í fórum sínum. Þeir neituðu sök fyrir dómara og sögðust ekki vita að kortin væru fölsuð.

Zia Mahmood spilar á Bridge-hátíðinni í Reykjavík

Einn kunnasti briddsspilari heims, Pakistaninn Zia Mahmood, er meðal þátttakenda á Reykjavíkur Bridge-hátíðinni, sem nú er hafin á Hótel Loftleiðum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setur mótið formlega klukkan 19 í kvöld. Briddshátíðin, sem að þessu sinni heitir Iceland Express Reykjavík Bridgefestival, hefur verið haldin ár hvert síðan 1982.

Björg Eva Erlendsdóttir kjörin í stjórn RÚV

Björg Eva Erlendsdóttir var kjörin í stjórn Ríkisúvarpsins ohf. í stað Svanhildar Kaaber. Kosið var í stjórn RÚV á Alþingi í morgun. Björg Eva hefur sjálf unnið sem fréttamaður í áraraðir auk þess sem hún á lítinn hlut í fréttavefnum Smugunni.is sem Vinstri grænir eiga stærstan hlut í.

Útskrifaður af sjúkrahúsinu í Álasundi

Sjómaðurinn, sem bjargað var í gær eftir að togarinn Hallgrímur fórst í Noregshafi, var útskrifaður af sjúkrahúsinu í Álasundi eftir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Arndt Sommerlund, upplýsingafulltrúa sjúkrahússins, reyndust áverkar hans ekki þess eðlis að ástæða væri til að hann dveldi lengur á sjúkrahúsinu en hann hyggst leita sér aðstoðar og áfallahjálpar þegar hann kemur heim til Íslands. Maðurinn er 36 ára gamall.

Ótrúlega erfiðar aðstæður við björgun sjómannsins

Norski þyrluflugmaðurinn Olver Arnes segir í viðtali við NRK að björgunaraðgerðir á Norðurhafi í gærdag hafi verið einstaklega erfiðar. Hann var á annarri björgunarþyrlunni af tveimur, sem var við leit, þegar Hallgrímur SI-77 sökk í gærdag.

Hélt að bílnum hefði verið stolið - fann hann svo í snjóskafli

Snjórinn sem liggur nú yfir allri borginni hefur ruglað suma í ríminu. Þannig hafði bíleigandi einn samband við lögreglu og tilkynntu að bílnum hefði verið stolið. Boðaði hann komu sína á lögreglustöð til þess að leggja fram formlega kæru í málinu.

Yfirvofandi uppsagnir hjá Vinnumálastofnun

Á félagsfundi SFR stéttarfélags sem haldinn var í gær að frumkvæði starfsmanna Vinnumálastofnunar kom fram mikil óánægja meðal fundarmanna vegna fyrirhugaðs tilraunaverkefnis sem felur í sér að hluti starfsemi stofnunar muni færist yfir á skrifstofur stéttarfélaga.

Gætið ykkar á asahlákunni; svona forðast þú tjón

Sjóvá vekur athygli á að spáð er rigningu og hita næstu daga og því er von á hláku og vatnsveðri. Reynslan undanfarnar vikur sýnir að flest tjón við þessar aðstæður hafa orðið þar sem ekki var nægilega vel hreinsað frá niðurföllum, snjór hreinsaður af svölum eða þökum. Þetta eru tjón sem í mörgum tilfellum hefði verið hægt að koma í veg fyrir.

Margir á sumardekkjum í snjónum

Mikil snjókoma hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga, eins og ætti að vera öllum ljóst. Í gær aðstoðaði lögreglan fjölmarga ökumenn sem sátu fastir víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að það hafi vakið athygli að í allnokkrum tilvikum var um að ræða bíla sem voru búnir sumardekkjum. "Það verður að teljast heldur mikil bjartsýni að ætla sér að komast leiðar sinnar með slíkan búnað undir bílnum við þær aðstæður sem nú eru í umdæminu. Vegna þessa ítrekar lögreglan það við ökumenn að þeir leggi ekki af stað á vanbúnum bílum,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Hamagangur á Reykjanesbrautinni - myndband

Mikið gekk á við Reykjanesbrautina í morgun en henni var lokað á miðnætti í gær og opnuð um klukkan hálf ellefu í morgun. Fjölmargir bílar sitja fastir og aðstoðuðu björgunarsveitarmenn ökumenn að komast til síns heima í nótt. Þó að búið sé að opna brautina eru ökumenn hvattir til þess að aka rólega og af yfirvegun.

Ógnaði björgunarsveitarmanni sem þurfti að flýja inn í bíl

Ófærðin fer illa í suma sem sannaðist í Reykjanesbæ í morgun þegar ökumaður veittist að björgunarsveitarmanni og ógnaði honum. Björgunarsveitarmaðurinn sá þann kost vænstan að flýja inn í bíl og læsa að sér og þá barði maðurinn í rúðuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Að lokum var lögregla kölluð til og skakkaði hún leikinn.

Tveir mannanna frá Suðurnesjum

Tveir af sjómönnunum þremur sem eru taldir af eftir að togarinn Hallgrímur SI-77 fórst í Noregshafi í gærdag, eru frá Suðurnesjum. Ekki er hægt að greina frá nöfnum þeirra að svo stöddu. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.

Tafir á dreifingu Fréttablaðsins

Dreifing Fréttablaðsins hefur farið úr skorðum í dag enda ófærðin með eindæmum mikil í höfuðborginni og í nágrannasveitarfélögum. Hannes Hannesson framkvæmdastjóri Póstdreifingar sem sér um að dreifa blaðinu segir að ástandið sé mjög slæmt á öllum göngustígum á höfuðborgarsvæðinu. „Borgar og bæjaryfirvöld eru einfaldega ekki að sinna mokstri nægilega vel," segir Hannes og bendir á að þegar fari að blása í skaflana sem safnast hefur í, eins og gerði í nótt, þá verði einfaldlega allt ófært.

Sjómaðurinn var í þrjár og hálfa klukkustund í sjónum

Íslenski sjómaðurinn, sem var bjargað úr Noregshafi í gærdag, var búinn að vera í þrjár og hálfa klukkustund í sjónum þegar þyrlu norsku gæslunnar fann hann. Maðurinn var vel búinn enda komst hann í flotbúning áður en togarinn Hallgrímur SI-77 sökk í gærdag.

Stúdentar kvarta til umboðsmanns Alþingis vegna einkunnaskila

Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur kvartað til umboðsmanns Alþingis ástand einkunnaskila við Háskóla Íslands. Í yfirlýsingu frá ráðinu er bent á að samkvæmt reglum skólans skuli skila einkunnum innan tveggja vikna, en auka vika er veitt yfir jólin.

Sjá næstu 50 fréttir