Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Náðu þjófi á hlaupum með kannabisplöntu í fanginu Lögreglan fékk ábendingu um að brotist hafi verið inn í hús við Hverfisgötu í Reykjavík rétt fyrir miðnætti, og náði innbrotsþjófnum á hlaupum skömmu síðar. Hann reyndist vera með kannabisplöntu á sér, sem hann hafði stolið í húsinu. 26.1.2012 09:43
Illfært í húsagötum - 35 tæki vinna við ruðning Vegna snjóþyngsla er víða illfært í Reykjavík, einkum í húsagötum og á bílastæðum. Klukkan fjögur í nótt voru um 35 tæki Reykjavíkurborgar og verktaka á hennar vegum farin af stað til snjóhreinsunar samkvæmt tilkynningu frá borginni. 26.1.2012 09:38
Norska varðskipið Bergen sent til leitar á Noregshafi Norska varðskipið Bergen er á leið á hafsvæðið þar sem togarinn Hallgrímur SI-77 sökk í gærdag. 26.1.2012 08:44
Reykjanesbraut aftur lokuð í báðar áttir Reykjanesbrautin er aftur lokuð í báðar áttir. Lögreglan á Suðurnesjum segir að hinsvegar sé nú opið frá Sandgerði og Garði upp á Keflavíkurflugvöll og til Keflavíkur. 26.1.2012 08:09
Telja tölvupóst frá Steingrími setja málið í sérkennilegt ljós Óútskýrð atburðarás fór af stað vorið 2009, eftir að Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, var tilkynnt um niðurfellingu máls hans af hálfu Fjármálaeftirlitsins og hann hugðist snúa aftur til starfa í fjármálaráðuneytinu. Þetta sagði verjandinn Karl Axelsson þegar hann flutti málsvörn Baldurs fyrir Hæstarétti í gær. Í greinargerð Baldurs til réttarins segir að atburðarásin setji málið í besta falli í sérkennilegt samhengi. 26.1.2012 08:00
Fyrri ferð Herjólfs frestast til kl. 10 Fyrri ferð Herjólfs í dag hefur verið frestað til kl. 10 vegna ófærðar til og frá Þorlákshöfn, að því segir í tilkynningu. 26.1.2012 07:46
Búið að opna Reykjanesbrautina í suðurátt Búið er að opna Reykjanesbraut í aðra áttina eða frá Hafnafirði til Keflavíkur en ekki búið að hleypa umferð á frá Keflavík til Hafnafjarðar. Þetta kemur fram í uppfærðri tilkynningu frá Vegagerðinni. 26.1.2012 07:41
Reykjanesbrautin lokuð um óákveðinn tíma Vegna veðurs verður Reykjanesbrautin, Hellisheiði og Þrengslin lokuð um óákveðin tíma. Hættustigi hefur varið lýst yfir á Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð og eru þessar leiðir því lokaðar. 26.1.2012 07:19
Kostnaður við snjómokstur sprengir kostnaðaráætlun Kostnaður við snjómokstur í höfuðborginni er löngu búinn að sprengja allar áætlanir, segir Sighvatur Arnarsson, skrifstofustjóri á framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar. Kostnaður borgarinnar við snjómokstur á öllu síðasta ári var um 385 milljónir króna, þar af nærri 150 milljónir króna vegna moksturs í desember. Árið áður var kostnaðurinn um 200 milljónir króna. 26.1.2012 07:00
Kolófært víða, snjóflóðahætta og rafmagnsleysi Hellisheiði, Þrengslavegi og Reykjanesbraut var lokað í gærkvöldi vegna ófærðar og óveðurs og eru Hellisheiði og Þrengsli enn ófær, en Reykjanesbraut var opnuð til suðurs fyrir hálftíma. 26.1.2012 06:39
Lyfjaefna ekki getið á umbúðum Mörg fæðubótarefni sem markaðssett eru sem kynörvandi eða sem lausn við risvanda karla eru bönnuð hér á landi vegna þess að þau innihalda lyfjaefni sem ekki er getið á umbúðum. 26.1.2012 06:30
Flotgalli bjargaði lífi fjórða skipverjans á Hallgrími Flotgalli bjargaði lífi skipverjans sem komst af þegar togarinn Hallgrímur fórst í ofsaveðri á Noregshafi í gærdag. Skipverjinn segir að hann hafi horft á eftir tveimur félaga sinna hverfa í hafið. 26.1.2012 06:24
Birgjar mismuna verslunum Minni verslanir á dagvörumarkaði greiða að meðaltali um 15% hærra verð fyrir vörur frá birgjum en Hagar, stærsta dagvörukeðja á Íslandi. Í nokkrum vöruflokkum er lægsta smásöluverð Haga lægra en það innkaupsverð sem minni verslunum býðst hjá birgjum. 26.1.2012 06:00
Gætu þurft að borga yfirvöldum Fyrirtæki á Leifsstöð og íslensk flugfélög gætu þurft að greiða gjald til lögregluyfirvalda fyrir afgreiðslu á starfsmannaumsóknum. Starfsfólk þarf viðurkenndan aðgangspassa frá yfirvöldum til að komast leiðar sinnar á flugvellinum. 26.1.2012 05:30
Enn má tilnefna til Samfélagsverðlauna Frestur lesenda til að tilnefna til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins rennur út í næstu viku, miðvikudaginn 1. febrúar. 26.1.2012 05:00
Skákdagurinn haldinn í dag Skákdagur Íslands er haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í dag, á 77 ára afmælisdegi stórmeistarans Friðriks Ólafssonar. 26.1.2012 03:30
Eyjamenn fá nýja ferju eftir þrjú ár Ný ferja mun hefja siglingar milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja ekki síðar en árið 2015. Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að láta smíða skipið í ljósi þeirra vandamála sem komið hafa upp með siglingar Herjólfs til hafnarinnar síðan hún var tekin í notkun um mitt ár 2010. Talið er að ferjan kosti um fjóra milljarða króna. 26.1.2012 03:00
Segja skýrsluna meingallaða Skýrsla Hagfræðideildar Háskóla Íslands um kostnað við niðurfærslu íbúðarlána er meingölluð að mati Hagsmunasamtaka heimilanna. 26.1.2012 02:00
Sleðaflokkar frá Húsavík kallaðir út vegna rafmagnsleysis Sleðaflokkar björgunarsveita frá Húsavík, Aðaldal og Kópaskeri eru nú að kanna rafmagnslínuna sem liggur frá Laxárvirkjun til Kópaskers en taldar eru líkur á að hún sé slitin samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg. 25.1.2012 22:50
Fárviðri á leitarstað - þriggja manna enn leitað Veðurskilyrði hafa versnað á svæðinu þar sem þriggja manna er nú leitað eftir að togarinn Hallgrímur SI-77 sökk í dag. Samkvæmt norska ríkisútvarpinu eru 30 metrar á sekúndu á svæðinu sem er fárviðri. Ölduhæð fer upp í fimmtán metra. 25.1.2012 21:24
Ólafsfjarðarmúli og Siglufjarðarvegur lokaðir vegna snjóflóða Hættustigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð og eru þessar leiðir því lokaðar. Ólafsfjarðarmúli og Siglufjarðarvegur er lokaðir vegna snjóflóða. 25.1.2012 21:37
Fundu mannlausan björgunarbát Aftenposten í Noregi greinir frá því að leitarmenn hafi fundið mannlausan björgunarbát í kvöld. Þriggja manna er saknað eftir að skipið Hallgrímur SI-77 sökk um 270 kílómetrum frá Stad, nærri Álasundi, um klukkan hálf tvö í dag. 25.1.2012 20:08
Guðrún Eva fékk verðlaun í flokki fagurbókmennta Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í dag, miðvikudaginn 25. janúar 2012, Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. 25.1.2012 19:30
Togarinn sem sökk heitir Hallgrímur SI-77 Búið er að greina frá nafni skipsins sem sökk í Noregi í fjölmiðlum þar í landi. Togarinn heitir Hallgrímur SI-77 og er frá Siglufirði. Búið er að ná í alla aðstandendur mannanna sem voru um borð í togaranum. Eins og greint hefur verið frá þá hefur einum manni verið bjargað. Hann var fluttur til Álasunds og er ástand hans gott. 25.1.2012 19:26
84 prósent af 4000 Ipod-spilurum voru keyptir erlendis 84 prósent iPod Nano-spilara, sem voru afturkallaðir hér á landi í nóvember á síðasta ári, voru keyptir í útlöndum. Þetta kemur fram í viðtali við Bjarna Ákason, framkvæmdastjóri hjá Epli.is, sem selur Apple vörur. Við hann var rætt í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem þetta kom fram. 25.1.2012 20:58
Sjómaðurinn vel á sig kominn - þriggja enn leitað Maðurinn, sem var bjargað úr sjónum síðdegis, er kominn í land, og er vel á sig kominn. Þriggja er enn saknað eftir að íslenskur togari sökk um 270 kílómetrum norðvestur af Stad sem er nærri Álasundi. 25.1.2012 19:13
Vill ívilnun frá iðnaðarráðherra til að leigja Grímsstaði Kínverjinn Huang Nubo hefur á grundvelli nýlegra laga um ívilnanir sótt um undanþágu til iðnaðarráðherra til langtímaleigu á Grímsstöðum á Fjöllum í því skyni að reisa þar lúxushótel en einnig til að reisa fimm stjörnu hótel á Reykjavíkursvæðinu. Ósk Nubos í fyrrasumar um að kaupa Grímsstaði olli uppámi innan ríkisstjórnarinnar en svo fór á endanum að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra synjaði fyrirtæki Nubos um undanþágu til að kaupa jörðina. 25.1.2012 19:00
Átti að selja skipið í brotajárn - fárviðri á svæðinu Skipið, sem sökk nærri Noregi, var á leiðinni þangað þar sem selja átti það í brotajárn. Ekki er gefið upp hvað togarinn heitir en þriggja manna er saknað eins og Vísir hefur greint frá eftir að skipið sökk fyrr í dag. Norskir fjölmiðlar telja að þeir séu allir Íslendingar. 25.1.2012 18:12
Íslenskt skip sökk nærri Noregi - þriggja saknað Landhelgisgæslunni barst kl. 13:14 neyðarkall frá íslensku togskipi með fjóra menn um borð sem var staðsett innan norskrar lögsögu eða 150 sjómílur Norðvestur af Álasundi í Noregi. 25.1.2012 17:42
Gagnrýna greinargerð hagfræðideildar harðlega Hagsmunasamtök Heimilanna vísa greinargerð Hagfræðideildar Háskóla Íslands um kostnað við niðurfellingu íbúðalána til föðurhúsanna eins og það er orðað og segja samtökin greinargerðina meingallaða. Í tilkynningu frá þeim segir að farið sé rangt með tölur og að margar meinlegar villur sé þar að finna. Birting á greinargerðinni er því að mati samtakanna hvorki til þess fallin að styrkja orðspor Hagfræðistofnunar né auka traust til stjórnvalda. 25.1.2012 17:09
200 þúsund sáu flugeldasýningu Íslendinga Yfir 200.000 nýttu sér vefmyndavélar Mílu til að fylgjast með flugeldasýningu Íslendinga á gamlárskvöld. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Míla hafi sett upp vefmyndavélar fyrir áramótin til þess að streyma beint frá áramótunum en vélar voru settar upp í Reykjavík og á Akureyri. Heimsóknir voru víðs vegar að úr heiminum, flestar frá Evrópu og Bandaríkjunum. 25.1.2012 16:54
Rýming á Ísafirði vegna snjóflóðahættu Lögreglustjórinn á Ísafirði, í samráði við Veðurstofu Íslands, hefur ákveðið að láta rýma iðnaðarsvæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Það hefur snjóað mikið í dag á svæðinu en rýmingu á að vera lokið klukkan 17, samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum. Ákvörðun um frekari rýmingu verður tekin í kvöld. Vegirnir um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð eru lokaðir vegna snjóflóðahættu og nokkur snjóflóð hafa fallið í dag á Siglufjarðarvegi. 25.1.2012 16:34
Tafir á Reykjanesbraut við Mjódd vegna áreksturs Árekstur varð á Reykjanesbraut nú fyrir stundu til móts við Mjóddina í Breiðholti. Samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is eru miklar tafir í suðurátt vegna óhappsins og eru ökumenn beðnir um að sýna þolinmæði. 25.1.2012 16:12
Landsbjörg varar ferðalanga við Slysavarnafélagið Landsbjörg varar fólk eindregið við því að halda á fjöll á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi nú þegar snjóflóðahætta er víða á svæðinu. Í tilkynningu segir að snjóflóð gætu einnig fallið víðar, sérstaklega þar sem fólk er á ferðinni, t.d. á vélsleðum og því ætti enginn að vera á ferð í fjalllendi nema kunna að meta snjóflóðahættu og vera með snjóflóðaýli, stöng og skóflu. 25.1.2012 15:45
Yfirlýsing: Egill vill formlega rannsókn á röngum sakargiftum Egill Einarsson, sem á síðasta ári var kærður ásamt unnustu sinni fyrir nauðgun segir að kæran eigi ekki við rök að styðjast og vísar í rannsóknargögn lögreglu. Hann hyggst fara fram á að lögregla rannsaki nú hvort um vísvitandi rangar sakargiftir á hendur sér hafi verið að ræða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendir frá sér í dag. Ríkissaksóknari hefur kæruna á hendur Agli nú til umfjöllunar en á dögunum barst önnur kæra til lögreglu. 25.1.2012 15:27
Vegum víða lokað vegna snjóflóðahættu Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag á Siglufjarðarvegi og hefur honum nú verið lokað að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Búast má við snjóflóðahættu víða á vegum á Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá. Eins er búist við snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla og á norðanverðum Tröllaskaga í dag. 25.1.2012 15:11
Með 53 kannabisplöntur Karlmaður fæddur árið 1983 var dæmdur í sextíu daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir fíkniefnalagabrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn játaði að hafa tæplega hálft gramm af marijúana og fimmtíu og þrjá kannabisplöntur í fórum sínum. Maðurinn þarf að greiða rúmlega 70 þúsund krónur í málskostnað og þá voru ýmis tól og tæki sem notuð eru við kannabisræktun gerð upptæk. 25.1.2012 13:46
Víða hætta á snjóflóðum - óvissustigi lýst yfir á Norðurlandi Veðurstofan hefur í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum og Akureyri ákveðið að lýsa yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og mið-Norðurlandi. 25.1.2012 13:44
Volvo V50 saknað Dökkgrænum Volvo V50 station var stolið þaðan sem hann stóð fyrir utan húsnæði KFUM-K á Holtavegi í Reykjavík í gærkvöld, þriðjudagskvöldið 24. janúar. Númerið á bílnum er RD-526. Þeir sem hafa orðið varir við bílinn eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. 25.1.2012 13:40
Snjókoman heldur áfram í dag - strætó seinkar Snjó hefur kyngt niður í allan dag á höfuðborgarsvæðinu og segir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands að búast megi við meiri snjókomu á köflum fram eftir degi. 25.1.2012 13:32
Lýtalæknar neita enn að afhenda landlækni upplýsingar Lýtalæknar neita enn að afhenda landlækni upplýsingar um sílíkonaðgerðir á brjóstum. Málið er nú á borði Persónuverndar. Landlæknisembættið ítrekaði í ársbyrjun beiðni sína um gögn frá lýtalæknum og er fresturinn útrunninn. 25.1.2012 12:28
Austfirðingar segja Reykjavík afsala sér hlutverki höfuðborgar Samband sveitarfélaga á Austurlandi segir í bréfi til forsætisráðherra ljóst að Reykjavíkurborg muni afsala sér hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna, verði af áformum borgarstjórnar að leggja af Reykjavíkurflugvöll og nauðsynlegt sé að hefjast þegar handa um breytingar á opinberri stjórnsýslu. 25.1.2012 12:15
Hættustigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð - veginum lokað Varúðarstiginu á Súðavíkurhlíð hefur nú verið breytt í hættustig og hefur veginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar verið lokað. Nokkur lítil snjóflóð hafa þegar fallið á veginn. Víðar á Vestfjörðum er hætta talin á snjóflóðum og er ófært frá Ísafirði til Flateyrar og Suðureyrar. 25.1.2012 12:09
Yrsu sárnaði gagnrýni Kolbrúnar og Páls Baldvins "Allt sem þau sögðu um mig var svo hrikalega neikvætt að ég varð orðlaus. Þau efuðust meira að segja um söluna á bókinni og að sölulistarnir væru réttir. Hvað með öll hin árin sem þessir listar hafa verið birtir? Mér fannst þau ekki sanngjörn," segir Yrsa Sigurðardóttir en henni sárnaði gagnrýni Kolbrúnar Bergþórsdóttur og Páls Baldvins Baldvinssonar á nýjustu bók hennar Brakinu í Kiljunni fyrir jól. 25.1.2012 12:00
Ólæsir drengir stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar "Í þessum fjórðungi stráka sem ekki geta lesið sér til gagns liggur stærsta vannýtta auðlind þjóðarinnar - tækifærin eru svo mörg að þau fylla heilu bókasöfnin. Ef ekki er brugðist við af krafti blasir við að strákarnir okkar og þjóðin öll - falli niður í þriðju deild," segir Andri Snær Magnason, rithöfundur, í grein í Fréttablaðinu í dag. 25.1.2012 11:53