Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bjóða múslimum til kvöldverðar Luis Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, býður leiðtogum og fólki úr söfnuði múslima á Íslandi til kvöldverðar þann 16. ágúst næstkomandi. Að sögn Lauru J. Gritz, talsmanns sendiráðsins, verður þetta svokallaður iftar-kvöldverður en þá rjúfa múslimar föstuna semstendur yfir svo lengi sem sól er á himni. Í fyrra bauð Sam Watson, sem þá fór með forstöðu í sendiráðinu, til slíks kvöldverðar. 12.8.2011 03:15
Fullyrðir að tekjuskatturinn sé næstlægstur á Íslandi „Tekjuskattur á fyrirtæki í Evrópu er næstlægstur á Íslandi," segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann segir að frekar hafi verið tekist á við fjárlagahallann frá hruni með niðurskurði heldur en skattahækkunum. Magnús Orri og Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tókust á um efnahagsmál í Reykjavík síðdegis í dag. 11.8.2011 20:14
Álag að fara með hjartveik börn til útlanda Það er álag fyrir alla fjölskylduna að þurfa að fara með barn til útlanda í hjartaaðgerð og því er mikilvægt að viðeigandi tækjabúnaður sé til á Íslandi. Þetta segir móðir hjartveiks barns sem hefur þurft að leita læknishjálpar út fyrir landsteinana. 11.8.2011 19:30
Landsvirkjun gæti útvegað orku í fyrstu tvo áfanga Helguvíkur Formaður Iðnaðarnefndar Alþingis segir að Landsvirkjun gæti útvegað orku í fyrstu tvo áfanga framkvæmdana í Helguvík ef samningar nást um verð. Ríkið eigi að leiða deiluna til lykta. 11.8.2011 19:09
Framleiðir lífrænar snyrtivörur úr íslensku regnvatni Breskur grasalæknir framleiðir lífrænar snyrtivörur meðal annars úr regnvatni og bráðnuðum snjó. Hann segir íslenskt vatn alveg einstakt og því kjörið að vinna snyrtivörurnar hér á landi. 11.8.2011 18:40
Sveik út stóra skammta af verkjalyfi Karlmanni tókst að svindla út hundruð taflna af morfínskyldu lyfi af heimilislækni á sex mánaða tímabili. Um er að ræða lyfið Tramól, sem er sterkt verkjalyf og virkar á svipaðan hátt og morfín. Geir Gunnlaugsson landlæknir staðfesti í samtali við Vísi að málið væri til skoðunar hjá embætti sínu. Fréttastofa RÚV segir að um sé að ræða 1500 töflur. Málið hafi verið kært til lögreglu sem rannsaki það nú. 11.8.2011 18:26
Stefnir Mosfellsbæ vegna akstursþjónustu Blindur maður hefur stefnt Mosfellsbæ fyrir að veita ekki fötluðum íbúum sveitarfélagsins fullnægjandi akstursþjónustu. Hann segir það vera eins og í stofufangelsi að hafa ekki aðgang að sömu þjónustu og Reykvíkingar. Jóhanna Margrét Gísladóttir. 11.8.2011 18:21
Eistar halda sérstakan Íslandsdag Sérstakur Íslandsdagur verður haldinn í Tallinn í Eistlandi sunnudaginn 21. ágúst, í tilefni þess að tuttugu ár eru liðin frá því að Íslendingar urðu fyrstir þjóða til að viðurkenna sjálfstæði Eistlands. Forseti Íslands, utanríkisráðherra og fyrrum utanríkisráðherra taka þátt í deginum auk íslenskra tónlistarmanna, ljósmyndara, hönnuða og matreiðslumanna. Eistnesk stjórnvöld standa að deginum með stuðningi íslenska utanríkisráðuneytisins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. 11.8.2011 17:48
Kostnaður vegna blóðþrýstingslyfja lækkaði um 60% Heildarkostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna blóðþrýstingslækkandi lyfja lækkaði um 60% frá árinu 2009 - 2010, eftir því sem fram kemur í fréttablaði lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands. Upphæðin fór úr 685 milljónum króna í 277 milljónir. 11.8.2011 17:41
Leita að meiddum ferðamanni á Vestfjörðum Björgunarsveitamenn á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar leita nú að spænskum ferðamanni sem er í vanda á Vestfjöðrum. Landsbjörg barst í dag frá ættingjum á Spáni vegna mannsins. 11.8.2011 17:27
Ofsaakstur í Kópavogi Karl á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri á Nýbýlavegi í Kópavogi í gærkvöld samkvæmt fréttatilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 11.8.2011 17:01
Gaskútum stolið í Reykjavík Gaskútum var stolið á tveimur stöðum í borginni í gær og fer slíkum tilfellum fjölgandi að sögn lögreglu. Slík mál séu tilkynnt á hverju sumri, og undanfarin ár hafi gaskútum verið stolið á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. 11.8.2011 16:52
Lögðu hald á 80 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Ártúnsholti í gær. Við húsleit var lagt hald á um 80 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Þrír aðilar voru yfirheyrðir vegna málsins. 11.8.2011 16:47
Fjögurra manna fölskylda í sjálfheldu Björgunarsveitin Hérað á Egilsstöðum var kölluð út í dag þegar fjögurra manna fjölskylda komst í sjálfheldu í klettum fyrir ofan sumarbústaðahverfi á Úlfsstöðum. 11.8.2011 15:54
Ungir skákunnendur heiðraðir fyrir söfnunarstarf Rauði kross Íslands heiðraði í morgun ungmennin sem stóðu fyrir skákhátíðinni "Við erum ein fjölskylda“ um síðustu helgi, en þau söfnuðu alls einni milljón króna í tveggja daga skákmaraþoni sem þau héldu til styrktar Sómalíu. 11.8.2011 15:38
Eldri kona ók yfir á biðskyldu og í veg fyrir annan bíl Mildi þykir að ekki fór verr þegar að eldri kona ók yfir á biðskyldu og í veg fyrir annan bíl á Eyrarbakkavegi til móts við flugvöllinn í bænum um klukkan tvö í dag. 11.8.2011 15:15
Nýr ritstjóri tekur við Stúdentablaðinu Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur ráðið til starfa nýjan ritstjóra Stúdentablaðsins, 24 ára gamlan hagfræðinema, og mun hún stýra útgáfu blaðsins veturinn 2011 til 2012. 11.8.2011 14:57
Iceland Express hefur vikuleg flug til Flórída í vetur Iceland Express mun fljúga til Flórída í Bandaríkjunum allan næsta vetur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag. 11.8.2011 14:43
Mæður og ömmur hjartveikra barna fengu fyrstu glossin Góðgerðafélagið „Á allra vörum" afhenti í dag fyrstu Dior-glossin nokkrum mæðrum og ömmum sem allar hafa kynnst því á eigin skinni að eiga hjartveik börn. Átakið hefst formlega á morgun en um er að ræða fjórðu landssöfnun samtakanna. Í ár beinir „Á allra vörum" kastljósinu að Neistanum og málefnum hjartveikra barna, en um 70 börn greinast með hjartagalla árlega. Sérstakt hjartatæki fyrir börn á Barnaspítala Hringsins er nú komið til ára sinna og er veruleg vöntun á endurnýjun. Mikið álag er á tækið þar sem það er eitt sinnar tegundar á landinu og notað oft á dag til að greina tilfelli í fóstrum svo og nývoðungum. „Það er með gleði og bjartsýni í hjarta sem við leggjum af stað í þessa fjórðu ferð okkar því málefnið er bæði þarft og viðráðanlegt. Tilhugsunin um að svona tæki bjargi litlum mannslífum og hjörtum barnanna okkar, gerir það einnig auðveldara og vonumst við stöllur til þess að þjóðin taki okkur jafn vel og undanfarin ár", segir Gróa Ásgeirsdóttir ein forsvarskvenna félagsins. Átakið hefst 12. ágúst og þá með sölu á hinum landsþekktu „Á allra vörum" varaglossum frá Dior. Tveir nýir litir verða í boði og fást þeir hjá viðurkenndum Dior snyrtivöruverslunum um land allt. Einnig verður hægt að panta gloss hjá Neistanum, Síðumúla 6 11.8.2011 14:25
Kráareigendum varla treystandi fyrir afslætti Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna segir að mikil hugarfarsbreyting þurfi að hafa orðið hjá veitingamönnum til þess að hann treysti þeim til þess að skila lækkun á verði á bjór og léttvíni til viðskiptavina sinna. 11.8.2011 14:00
Vatnslaust á Akureyri Bilun er í stofnlögn hitaveitu sem fæðir efra Gerðahverfið á Akureyri. Verið er að garfa niður á lögnina og undirbúa viðgerð, en taka þarf vatn af hverfinu á meðan á viðgerðinni stendur. 11.8.2011 13:58
Lýst eftir 15 ára pilti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhanni Lúðvík Þorgrímssyni sem hvarf frá heimili sínu í Reykjavík fimmtudaginn fjórða ágúst. Jóhann Lúðvík er um 170 cm á hæð, dökkhærður og stuttklipptur, um 60 kg á þyngd. Þegar hann hvarf var hann klæddur í hvítan og gráan vindjakka, og rauðar joggingbuxur, líklega í hvítum skóm. Þeir sem hafa orðið varir við eða vita um ferðir Jóhanns Lúðvíks eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1000. 11.8.2011 13:38
Íslandsdagur í Eistlandi - Retro Stefson og Hjaltalín koma fram Sérstakur Íslandsdagur verður haldinn í Tallinn, höfuðborgar Eistlands, 21. ágúst næstkomandi. Það er gert í tilefni þess að tuttugu ár eru liðin frá því að Íslendingar urðu fyrstir þjóða til að viðurkenna sjálfstæði Eistlands. 11.8.2011 13:28
Stálu gróðurhúsalömpum Brotist var inn í verslun við Akralind í Kópavogi í nótt og þaðan stolið gróðurhúsalömpum. Þjófurinn er ófundinn, en grunur leikur á að hann ætli að nota þá til kannabisræktunar. 11.8.2011 12:07
Bjarni Ben: Ekki minni fjárfestingar síðan 1944 - hækkun skatta glapræði Formaður Sjálfstæðisflokksins segir fjárfestingar hér á landi ekki hafa verið minni í sextíu og sjö ár eða frá lýðveldisstofnun. Því telur hann brýnt að ráðist verði í augljósar fjárfestingar sem allra fyrst. Hann segir algjört glapræði að ætla að hækka skatta ennfrekar. 11.8.2011 12:01
Íslendingar bjarga 21 þúsund börnum Um 9.800 manns hafa gefið í söfnun Rauða krossins vegna hungarsneyðar í Sómalíu með því að hringja í söfnunarsímann 904-1500. Þannig hafa safnast tæpar 15 milljónir króna en söfnunarfé Rauða krossins er nú komið upp í 31 milljón. 11.8.2011 12:00
Arion banki styrkir Hörpu Arion banki verður fyrsti og einn helsti bakjarl tónlistarviðburða í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu. Samningur þess efnis verður undirritaður í dag. 11.8.2011 11:42
Hjólar syngjandi hringinn kringum Ísland Enski hjólagarpurinn og söngvarinn Daniel Hutton mun hjóla hringinn kringum Ísland í ágúst og september til þess að safna fé til góðgerðarmála. Ekki nóg með það, heldur mun Hutton syngja alla leiðina. 11.8.2011 11:23
Í farbanni til 1. september - rannsókn gengur vel Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað konu, sem skildi nýfætt sveinbarn eftir í ruslageymslu við Hótel Frón í síðasta mánuði, í farbann til 1. september næstkomandi. 11.8.2011 11:17
Gæsluvarðhald yfir nauðgara staðfest - rannsókn að ljúka Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tuttugu og fimm ára gömlum karlmanni sem grunaður er um að hafa nauðgað ungri konu í Herjólfsdal um verslunarmannahelgina. Hann mun sitja í gæsluvarðhaldi til 2. september næstkomandi. 11.8.2011 10:49
Hætta getur stafað af fölsuðum snyrtivörum Slá má því föstu að falsaðar snyrtivörur séu í umferð hér á landi. Um er að ræða eftirlíkingar af þekktum merkjum sem ekki hafa gengist undir nauðsynlegar prófanir á efnainnihaldi og er því hætta á ofnæmi og ýmsum húðkvillum af notkun þeirra. 11.8.2011 10:15
Útgerðarmenn taka illa í hækkun veiðigjalds Hugmyndir stjórnvalda um að hækka en veiðigjald til að afla tekna upp í fjárlagagatið, mæta andstöðu útgerðarmanna. Gjaldið er nú sex krónur og 44 aurar á hvert þorskígildiskíló, en þegar er búið að boða hækkun upp í níu krónur og 46 aura á nýju fiskveiðiári, sem hefst um mánaðamótin. 11.8.2011 08:10
Brennuvargar á ferð í nótt Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu þurfti að bregðast við tveimur íkveikjum í gærkvöldi og í nótt. Fyrst var kveikt í ruslagámi við verslanamiðstöð við Fjallkonuveg í Grafarvogi laust fyrir miðnætti. 11.8.2011 08:08
Makríll í miklu magni suður af Látrabjargi Skipverjar á þremur smábátum sigldu í gegnum vaðandi makríltorfur nokkrar sjómílur suður af Látrabjargi í gær og kraumaði yfirborð sjávarins eins og sjóðandi vatn í potti, eins og einn sjómaðurinn lýsti því. 11.8.2011 08:04
Vilja lægra bjórverð svo gestir komi fyrr Félag kráareigenda leggur til að veitingastaðir fái bjór og léttvín á sérkjörum svo að hægt verði að bjóða upp á slíkar veigar á hagstæðu verði. Arnar Þór Gíslason, sem rekur Enska barinn, Dönsku krána og Oliver, segir að með þessu móti mætti bæta vínmenningu landans og minnka álag hjá lögreglunni. 11.8.2011 08:00
Dómsmál ef álögur lækka ekki Verði reglum ekki breytt til samræmis við álit umboðsmanns Alþingis, sem segir fyrirkomulag tollaálagningar á innfluttar landbúnaðarvörur ólöglegar, verður málið kært til dómstóla. Þetta segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ). 11.8.2011 07:00
Efnahagsbrotamál undir einn hatt Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og embætti sérstaks saksóknara verða sameinuð um næstu mánaðamót samkvæmt lögum sem þá taka gildi. Við gildistöku laganna flyst rannsókn mála, er undir efnahagsbrotadeild heyra, ákæruvald og sókn þeirra mála sem þegar sæta ákærumeðferð fyrir dómstólum af hálfu ríkislögreglustjóra, frá embætti RLS til embættis sérstaks saksóknara. 11.8.2011 07:00
Skoða aðgerðir vegna ofsaaksturs á hálendi „Það er umhugsunarefni hvort eðlileg viðbrögð séu að fylgja fordæmi ýmissa nágrannaþjóða okkar þar sem gert er ráð fyrir að innlendur aðili sé með í öllum ferðum um viðkvæm svæði.“ 11.8.2011 07:00
Athygli kynnir ESB á Íslandi Evrópusambandið hefur valið fyrirtæki til að sjá um kynningar- og upplýsingaskrifstofu sambandsins á Íslandi. 11.8.2011 06:00
Kútvelta yfir Kollafirði Nokkrir ungir ofurhugar héldu í flugferð á dögunum þar sem þrjár vélar af Yak-gerð flugu yfir Kollafjörð og nærsveitir. Til tíðinda dró í fjögur þúsund fetum þegar Skúli Þórarinsson stóð upp úr sæti sínu, gekk fram á væng með fallhlíf á bakinu og kvaddi flugmanninn, Snorra Bjarnvin Jónsson. Þá lagðist hann niður á vænginn og hélt fast á meðan Snorri kútvelti flugvélinni í heilan hring. 11.8.2011 03:00
Fjöldi hugmynda kominn fram Þátttaka í hugmyndaleit um framtíðarskipulag á Þingvöllum hefur verið góð. Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður er ánægður með þátttökuna, en segist þó búast við að íslenska aðferðin verði í hávegum höfð; að flestar tillögur komi síðustu vikuna. 11.8.2011 00:00
Heppinn Norðmaður fær 120 milljónir Það var heppinn Norðmaður sem var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu í kvöld og fær hann um 120 milljónir króna í sínar hendar. 10.8.2011 21:58
Frakki féll í hver þegar hann tók ljósmynd Franskur ferðamaður féll í hver í Reykjadal upp af Hveragerði um klukkan eitt í dag. 10.8.2011 20:26
Jazzhátíð sett á menningarnótt Jazzhátíð Reykjavíkur verður sett á menningarnótt, tuttugasta ágúst næstkomandi og stendur í tvær vikur. 10.8.2011 20:00
Guðlaugur Þór: Stjórnvöld brutu lög Stjórnvöld brutu lög þegar þau höndluðu sjálf eignarhlut sinn í SpKef og Byr í stað þess að láta Bankasýslu ríkisins hafa umsjón með málunum, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Bankasýslan hafi sjálf búist við að halda utan um hlut ríkisins í fyrirtækjunum. 10.8.2011 18:59