Fleiri fréttir

Gagnrýnin er aukinn vindur í seglin

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn, segir gagnrýni minnihlutans á vinnu meirihlutans við þriggja ára fjárhagsáætlun borgarinnar blása auknum vindi í seglin í þeirri vinnu. Hann bendir á að frágangur áætlunarinnar hafi tafist vegna flutnings á málefnum fatlaðra frá ríki til borgar, og þar af leiðandi óvissu um fjármögnun málaflokksins. Þetta hafi öllum verið kunnugt um svo mánuðum skiptir. Tæplega hálft ár er síðan borgin átti að skila áætluninni og hefur innanríkisráðuneytið hótar viðurlögum ef henni verður ekki skilað fyrir 18. ágúst. Nú stendur yfir aukafundur í borgarstjórn þar sem borgarfulltrúar voru kallaðir úr sumarleyfi til að ganga frá áætluninni.

Hanna Birna: Óafsakanlegt að skila of seint

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir það grafalvarlegt og algjörlega óafsakanlegt að svo stórt sveitarfélag sem Reykjavíkurborg er, sinni því ekki að lögum og reglum með þeim afleiðingum að borgaryfirvöldum er hótað því að viðurlögum verði beitt ef ekki verði bætt úr hið fyrsta. Aukafundur í borgarstjórn, sem minnihlutinn boðaði til, hófst klukkan tvö og voru borgarfulltrúar kallaðir úr sumarleyfi til að mæta á fundinn. Ástæðan er sú að tæplega hálft ár er liðið síðan Reykjavíkurborg átti að skila inn þriggja ára fjárhagsáætlun og hefur borgarstjórn borist bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem gefinn er frestur til 18. ágúst til að skila áætluninni, ella verði gripið til aðgerða.

Segir ekkert lagt í þriggja ára áætlun meirihlutans

Aukafundur hefst í Borgarstjórn Reykjavíkur klukkan tvö í dag en minnihlutinn óskaði eftir því að fundurinn færi fram. Á fundinum mun meirihlutinn leggja fram þriggja ára fjárhagsáætlun eins og skylt er að gera, en það hefur dregist frá því í febrúar.

Nýtt vikurit hefur göngu sína á Akureyri

Nýtt vikurit kemur út á Akureyri á morgun, fimmtudaginn 10. ágúst. Blaðið nefnist einfaldlega Akureyri en það er félagið Fótspor ehf. sem stendur að baki útgáfunni.

Geðlæknar ekki alltaf fyrsta úrræðið

Breyta þarf heilbrigðiskerfinu þannig að geðlæknar séu ekki alltaf fyrsta úrræðið segir talsmaður sjúklinga á geðsviði Landspítalans. Greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrir helgi að geðlæknar anni ekki eftirspurn og veikir einstaklingar þurfi stundum að bíða í allt að þrjá mánuði eftir tíma. Bergþór Grétar Böðvarsson talsmaður sjúklinga á geðsviði Landspítalans segir vanta upp á að kynna þeim sem leiti eftir slíkri þjónustu önnur úrræði, en sjúklingar geti til að mynda leitað til sálfræðinga, iðjuþjálfa og félagsráðgjafa „Þarna eru aðilar sem geta veitt fólkinu viðtal og stuðning jafnvel," segir Bergþór. Hann segir sjúklinga eiga rétt á að fá upplýsingar hjá heilsugæslustöðvum um öll þau úrræði sem eru í boði en þar sé potturinn brotinn. „Fólk fer til heimilislæknis og ef að sá læknir er ekki nógu duglegur að upplýsa fólk um möguleg úrræði, og vísa fólki á önnur úrræði, þá er viðkomandi vísað hingað niður eftir, vísað á geðlækni, sem er löng bið eftir," segir hann. Bergþór telur marga sjúklinga vissulega þurfa á hjálp geðlækna að halda, en að önnur úrræði geti gagnast þeim á meðan þeir bíði eftir að komast að.

Ökumaður handtekinn fyrir lygi

Karl á þrítugsaldri var handtekinn eftir að hafa verið staðinn að hraðakstri á Vesturlandsvegi í Reykjavík síðdegis í gær. Tilefni handtökunnar var ekki hraðaksturinn, enda ekki um ofsaakstur að ræða, heldur var það lygi ökumannsins sem leiddi til handtökunnar.

Styrkleikastuðull sólarinnar fór yfir fjóra um helgina

Á heiðskírum sumardögum er mikilvægt að muna eftir sólarvörn því styrkleiki sólar getur verið hættulegur ef nýta á hvern einasta sólargeisla. Veðrið hefur leikið við landsmenn undanfarna daga og hafa útistaðir kaffihúsa, garðar og Nauthólsvíkin verið þéttsetin af sólarþyrstum Íslendingum sem vilja nýta þessa fáu sumardaga til hins ítrasta. Húðlæknastöðin setti nýlega upp mælingu á útfjólubláum stuðli sem segir til um styrkleika sólarinnar, þeim mun hærri stuðull þeim mun hættulegri er sólin. Samkvæmt þeirra mælingum hefur sólin verið mjög sterk undanfarna daga. Til að mynda fór stuðullinn yfir fjóra um helgina sem þýðir að einstaklingur með venjulega húð megi einungis vera í um klukkutíma og korter utandyra án þess að byrja að roðna. Þá getur einstaklingur með viðkvæma húð einungis verið í um hálftíma úti án sólarvarnar ef hann vill ekki roðna. Sextíu prósent úfjólublárra geisla fáum við milli hálf tólf og hálf fjögur á daginn og því nauðsynlegt að vera með sólarvörn, sólgleraugu og hatt ef dvelja á lengi úti í sólinni. Hægt er að fræðast um útfjólubláan stuðul og fylgjast með styrkleika sólarinnar á heimasíðu húðlæknastöðvarinnar. i: http://www.hls.is/page68/index.html

Ágreiningur um atvinnuuppbyggingu veldur töfum

Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ segir ágreining ráðherra um atvinnuuppbyggingu á Reykjanesi tefja fjárfestingu á svæðinu. Hann óttast að einkasjúkrahús á Reykjanesi verið aldrei að veruleika.

Fundu fálkaungann ósjálfbjarga við þjóðveginn

Fálkafjölskylda hafði komið sér vel fyrir garði einum við Skessugil á Akureyri og fengu ungarnir reglulega kennslustundir í flugi. Hjónin Áslaug ÓLöf Stefánsdóttir og Oddgeir Sigurjónsson nutu þess að geta fylgst með tignarlegum fuglunum út um gluggann hjá sér. Það var síðan í gær sem þau fundu einn fálkaungann ósjálfbjarna og afræktan niðri við þjóðveg, og hvorki hinir ungarnir né foreldrarnir sjáanlegir. Áslaug tók meðfylgjandi myndir af fálkaunganum, en eftir að hafa gist fangagleymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt er fálkinn nú kominn til Reykjavíkur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.

Hjón unnu 26 milljónir: Stórt brúðkaupsafmæli á næstunni

Það voru lukkuleg hjón sem komu til Getspár í morgun með vinningsmiðann góða frá síðustu helgi. Hjónin sem eiga 6 uppkomin börn keyptu miðann í Happahúsinu Kringlunni og höfðu svo sannarlega heppnina með sér í það skiptið þar sem þau voru þau einu sem voru með allar 5 tölurnar réttar. Þau áttu nokkra miða og fengu útprentun á réttum vinningstölum og fóru sjálf yfir miðana. Það var síðasta röðin á síðasta miðanum sem gaf þeim rúmlega 26 milljónir í vinning. Miðinn var 10 raða sjálfvalsmiði með Jóker og er þetta í fyrsta sinn sem þau vinna þann stóra í Lottóinu en þau spila alltaf með bæði í Lottó og Víkingalottó. Hjónin, sem eiga stórt brúðkaupsafmæli á næstunni, ætla að gera vel við sig í í tilefni afmælisins en sögðu annars að Lottóvinningurinn væri frábær varasjóður við eftirlaunin þegar þar að kæmi

FÍB: Enn svigrúm til bensínlækkana

FÍB telur að íslensku olíufélögin hafi svigrúm til að lækka lítraverðið hér um nokkrar krónur, þrátt fyrir að olíuverð á heimsmarkaði fari nú heldur hækkandi á ný.

Hveragerði blómstrar um helgina

Bæjarhátíð Hveragerðisbæjar, sem ber nafnið Blómstrandi dagar, verður haldin nú um helgina, og munu bæjarbúar sameinast um að skreyta hverfi sín og garða í öllum regnbogans litum.

Búist við töfum á Sæbraut vegna malbikunar

Búast má við töfum á umferð um Sæbraut vegna malbikunar milli Laugarnesvegar og Langholtsvegar fram eftir degi í dag. Í framhaldi af því verður Reykjanesbraut malbikuð frá Sprengisandi við Bústaðaveg að Breiðholtsbraut. Lögreglan beinir því til ökumanna að virða vegmerkinga og fara að öllu með gát. Þessu til viðbótar þá var í morgun byrjað að fræsa og malbika Bæjarháls milli Hraunbæjar og Stuðlaháls. Þar má búast við töfum á umferð og því er skynsamlegt fyrir ökumenn að finna sér hjáleið í gegnum iðnaðarhverfið norðan megin við Bæjarhálsinn í stað íbúðahverfisins að sunnanverðu. Þá er vakin athygli á því að malbikun er lokið á Miklubraut, en búist var við að þar yrði malbikað fram á fimmtudag.

Mikið af fölsuðum varningi í umferð

Mikið magn af fölsuðum varningi er flutt til Íslands en stór hluti er gerður upptækur af tollayfirvöldum. Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofu, segir það koma mörgum á óvart hversu mikið af fölsuðum varningi er flutt til landsins. Þar á meðal eru snyrtivörur, úr, farsímar, fótboltatreyjur og jafnvel lyf. Borghildur var gestur þáttarins Í bítið á Bylgjunni í morgun þar sem hún vakti athygli á ráðstefnu sem Einkaleyfastofa stendur fyrir fimmtudaginn 18. ágúst í tilefni af 20 ára afmæli stofunnar.

Fálkaungi í vörslu lögreglunnar

Fálkaungi er nú í vörslu lögreglunnar á Akureyri og verður afhentur Nátttúrufræðistofnun í dag. Fólk á gönguför ofan við bæinn, sá til ungans í gærkvöldi og náði að handsama hann, enda virðist hann vannærður og afræktur af foreldri sínu.

Jarðskjálftar vestur af Grímsey

Jarðskjálftahrina varð um það bil 40 kílómetra vestur af Grímsey upp úr miðnætti og mældist snarpasti skjálftinn þrír á Richter. Nokkrir snarpir skjálftar fylgdu í kjölfarið en síðan hefur þeim farið fækkandi og styrkurinn í þeim farið dvínandi.

Grunur um kannabisræktun í íbúð sem brann

Grunur leikur á að kannabisræktun hafi verið í risíbúðinni í parhúsinu við Nesveg í Reykjavík, þar sem magnaður eldur kviknaði í gærkvöldi og eyðilagði íbúðina. Þar munu hafa verið hitalampar, sem hugsanlega hafa valdið íkveikjunni, en lögrelga verst allra fregna þar til starfsmenn rannsóknardeildar mæta á vakt.

Hinn grunaði áður dæmdur fyrir nauðgun

Hálfþrítugur karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa nauðgað ungri konu á Þjóðhátíðarsvæðinu í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina síðustu, hefur hlotið dóm fyrir að nauðga ungri stúlku á tjaldsvæði.

Lítill háskóli með ódýran kafbát vann stóran sigur

Lið frá Háskólanum í Reykjavík náði fjórða sæti í kafbátamótinu RoboSub sem háð var í San Diego í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Styrmir Hauksson, nemandi í hátækniverkfræði og liðsmaður HR-manna, segir sigurinn sérstaklega sætan í ljósi þess að aðrir keppendur komu frá stórum og mikilsvirtum skólum sem hafa margoft tekið þátt í þessari keppni og leggja mikið upp úr því að ná þar góðum árangri. Þetta er hins vegar í annað sinn sem HR tekur þátt.

Skoruðu á Jóhönnu að semja

Nemendur í Kvikmyndaskóla Íslands gengu á fund Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í stjórnarráðshúsinu í gær. Þeir afhentu henni áskorun þess efnis að tafarlaust yrði gerður samningur við skólann sem tryggi rekstrarhæfi hans.

Veggjakrotarar nást í fimmta hvert sinn

Tilkynningum um veggjakrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað á undanförnum árum. Árið 2007 var tilkynnt um 399 brot en árið 2010 voru tilkynningarnar 102. Það sem af er þessu ári hefur verið tilkynnt um 58 brot.

Stefnt að rammasamningi

Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, vonast til þess að hægt verði að landa samningi við tannlækna fyrir lok vikunnar. „Við stillum þessu upp sem rammasamningi þannig að hver og einn geti gerst aðili að honum. Við vonumst til að ná tannlæknum inn á samning í byrjun september,“ segir forstjórinn en Sjúkratryggingar héldu kynningar- og umræðufund fyrir tannlækna í gær.

Enginn óhreinn reiðfatnaður inn í landið

„Ég tel þessa nýjung hafa þá þýðingu, að það sé óafsakanlegt, komi menn með óhreinan reiðfatnað til landsins, að setja hann ekki í hreinsun.“ Þetta segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, um samning sem gerður hefur verið við Fönn um móttöku og hreinsun slíks fatnaðar í Leifsstöð. Það eru landssambandið, Félag hrossabænda og Félag tamningamanna sem standa að þessu framtaki.

Eldur í ruslagámi

Slökkviliðið var kallað til þegar eldur kviknaði í gámi við Fossvogsdal í Reykjavík nú á tíunda tímanum í kvöld. Eldurinn reyndist ekki vera mikill.

Bíræfinna byssumanna leitað við Borgarfjörð

Skotið var með haglabyssu á gröfu í malargryfju skammt frá bænum Þverholtum á Mýrum á þriðjudag fyrir viku. Nokkrar rúður brotnuðu í gröfinni og einnig urðu fleiri skemmdir á tækinu, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. Skothvellirnir heyrðust til næstu bæja og sást til tveggja ungra manna á hlaupum og síðan í akstri á gömlum rauðum Volkswagen Golf sem líklegast var með númerið OG og þrjá tölustafi þar á eftir.

Lauk þríþraut með hjálp gervilims

Fyrsta konan til að ljúka heilum járnkarli með hjálp gervilims er nú hér á landi við tökur á alþjóðlegri auglýsingu fyrir stoðtækjaframleiðandann Össur. Hún segir samstarfið við fyrirtækið vera ómetanlegt og gera henni kleift að ná markmiðum sínum.

Þóra ætlar að breyta áherslum á Nýju lífi

"Ég er mjög spennt fyrir því að taka við þessu, segir Þóra Tómasdóttir fjölmiðlamaður. Hún var í dag ráðin ritstjóri Nýs lifs. Þóra segir að aðdragandinn að ráðningu hennar hafi verið skammur. Hún býst við að einhverjar breytingar verði gerðar á ritstjórnarstefnunni. En ekki liggi fyrir hverjar þær verða.

Búið að slökkva eldinn á Nesvegi

Búið er að slökkva eldinn sem kom upp á Nesvegi í kvöld. Sex manns voru í húsinu þegar eldurinn kom upp, en íbúðin þar sem eldurinn kviknaði í var hins vegar mannlaus. Allar rúður brotnuðu á hæðinni þar sem eldurinn kom upp og virðist mikill hiti hafa verið inn í húsinu. Núna er verið að reykræsta íbúðina.

Eldur á Nesvegi

Töluverður eldur er á Nesvegi í Reykjavík og hefur allt tiltækt lið slökkviliðsins verið sent á staðinn. Við segjum nánari fréttir þegar þær berast.

Þráinn styður ekki fjárlög að óbreyttu

Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, vill að fundin verði sanngjörn lausn á fjármögnun Kvikmyndaskóla Íslands og segist að óbreyttu ekki styðja fjárlög nema það verði gert. Hann segir æskilegt að fjármögnun skólans verði tryggð.

Þóra Tómasdóttir tekur við Nýju lífi

Þóra Tómasdóttir, fyrrverandi dagskrárgerðarmaður í Kastljósi og blaðamaður á Fréttatímanum, var ráðin ritstjóri tímaritsins Nýs lífs í dag. Hún tekur við af Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur. Kolbrúnu var sagt upp störfum. Fleiri breytingar hafa orðið hjá útgáfufélaginu Birtingi, því Ragnheiður Kristjónsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt sagði upp störfum í dag, samkvæmt heimildum Vísis.

Rútan komin upp á þurrt land

Vel gekk að ná tékknesku rútunni upp úr Blautulónum í dag og komst hún loks á þurrt land um hálf þrjúleytið að sögn varðstjóra lögreglunnar á Hvolsvelli, sem fylgdist með aðgerðunum.

Deilt um hvalveiðar Íslendinga: "James Bond skýtur þarna yfir markið"

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ætlar ekki að bregðast við opinberri fordæmingu leikarans Pierce Brosnan á hvalveiðum Íslendinga. Brosnan, sem er hvað best þekktur fyrir hlutverk sitt sem njósnarinn James Bond, er harðorður í garð Íslendinga í opnu bréfi þar sem hann hvetur Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, til aðgerða "Það er kominn tími til að senda Íslandi skilaboð sem ekki er hægt að hunsa: Viðskiptaþvinganir," skrifar Brosnan í bréfinu sem birtist í bandarískum fjölmiðlum á dögunum. Bjarni Harðarson, upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, segir Brosnan ekki fara með rétt mál að öllu leyti í bréfinu þar sem hann sakar Íslendinga um ómannúðlegar slátranir á hvölum og vill að þeir gjaldi fyrir það í eitt skipti fyrir öll. "Þarna skýtir James Bond yfir markið sem er nú heldur ólíkt honum," segir Bjarni í samtali við fréttastofu. Hann bendir raunar á að nokkuð sé síðan Brosnan hætti að leika njósnara hennar hátignar og kannski sé það ástæða þess að honum er farið að förlast. Stutt er síðan Barack Obama ítrekaði stuðning Bandaríkjastjórnar við hvalveiðibann og hafnar hann alfarið veiðum í vísindaskyni. Í yfirlýsingu sem Hvíta húsið sendi frá sér nýverið segir að Bandaríkjastjórn hafi verulegur áhyggjur vegna aðgerða íslenskra og norskra fyrirtækja til að endurræsa alþjóðlega verslun með hvalaafurðir. Bréf Brosnan má lesa hér í heild sinni á Huffington Post.

Ber við minnisleysi en telur sig sekan

Sakborningurinn í heiðmerkurmálinu ber enn við minnileysi en telur þó að ekki komi til greina að annar aðili gæti átt sök í málinu en hann sjálfur.

Nemar við Kvikmyndaskólann ánægðir með viðbrögð Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók í morgun á móti áskorun þess að efnis að gera tafarlaust samning við Kvikmyndaskóla Íslands og tryggja þannig rekstrarhæfi skólans. Á aðeins þremur sólarhringum hafa hátt í 3.300 manns undirritað áskorunina.

Skólavörðustígurinn verður göngugata enn um sinn

Ákveðið hefur verið að Skólavörðustígur neðan Bergstaðastrætis verði göngugata til mánudagsins 15. ágúst. Í tilkynningu frá borginni segir að með þessu séu yfirvöld að koma til móts við rekstraraðila við götuna sem óskuðu sérstaklega eftir því að áfram yrði lokað fyrir bílaumferð til þess að greiða fyrir aðgengi gangandi og hjólandi og til að efla mannlíf.

Tuggið í takt á Hrafnistu í Kópavogi

Heimilisfólkið á Hrafnistu í Kópavogi efndi til grillveislu í hádeginu í dag. Þar var boðið upp á grillkjöt og ís í góða veðrinu, og liprir harmonikuleikarar sáu til þess að allir gátu tuggið í takt í veislunni.

Lokað þinghald í Heiðmerkurmáli

Þinghald verður lokað í máli manns sem varð barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk fyrr á þessu ári. Saksóknari fór fram á lokað þinghald og var samið um að það yrði raunin. Þingfesting málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjaness klukkan tvö. Maðurinn, sem er tuttugu og fimm ára gamall, er ósakhæfur að mati geðlækna. Hann var handtekinn við Landspítalann í Fossvogi í maí. Þangað hafði hann keyrt með lík barnsmóður sinnar í farangursgeymlu bílsins og gaf sig fram. Móðir mannsins segir kerfið hafa brugðist syni sínum, en hann var útskrifaður af geðdeild skömmu áður.

Gengur vel að ná rútunni upp úr Blautulónum

Vel gengur að ná rútunni upp úr Blautulónum að sögn varðstjóra lögreglunnar á Hvolsvelli, en unnið hefur verið að því að koma rútunni á þurrt land frá því í gærkvöldi.

Strandveiðar stöðvaðar á vestursvæði á miðnætti

Strandveiðar verða stöðvaðar á svonefndu vestursvæði, eða frá Snæfellsnesi að Súðavík við Ísafjarðardjúp, frá og með miðnætti í kvöld, þar sem bátarnir eru umþaðbil að klára ágústkvótann.

Krabbameinssjúk móðir: "Fékk djöfullegt bréf frá Tryggingastofnun"

"Ég hef svo miklar áhyggjur af fjármálum að ég er byrjuð að taka róandi. Af og til á milli kvíðakasta yfir þessu man ég eftir þessum lífshættulegu veikindum mínum, áhyggjur fyrir þeim komast ekki með tærnar þar sem fjármálaáhyggjurnar hafa hælana," segir Rakel Sara Magnúsdóttir, 28 ára tveggja barna móðir sem greindist með eitlakrabbamein árið 2004. Hún fékk beinmerg frá litla bróður sínum á síðasta ári en það dugði ekki til. Krabbameinið er komið aftur og Rakel Sara er í enn einni krabbameinsmeðferðinni. Hún hefur þegið bætur frá Tryggingastofnun þar sem hún hefur verið óvinnufær vegna veikinda. Nú þarf hún hins vegar að endurgreiða hluta bótanna og fjárhagsstaðan verri en nokkru sinni fyrr. "Fyrir nokkrum dögum fékk ég djöfullegt bréf frá Tryggingastofnun sem er að rukka mig um nokkur hundruð þúsund vegna ofgreiddra bóta. Þessar svokölluðu ofgreiddu bætur voru nógu ömurlegar og hvað þá eftir að búið er að lækka þær um 70 þúsund," segir Rakel Sara á bloggsíðu sem hún heldur úti og segir frá baráttu sinni við krabbameinið. "Dagurinn sem bréfið kom, byrjaði ég á því að kasta upp og leggjast upp í rúm og hágráta. Ég hef ekki grátið síðan ég bugaðist þarna einu sinni í mergskiptunum, ég er greinilega að bugast núna og get ekkert gert í því," segir hún. Rakel Sara hafnaði viðtali þegar blaðamaður hafði samband við hana, hún sagðist búin andlega en velkomið væri að vitna í bloggið hennar. Hún er nýlegar byrjuð aftur í rabbameinsmeðferð og fékk stóran frumuskamt fyrir rúmri viku. "Ég er ekki orðin alvöru veik en það er að skella á núna. Ég er búin að vera svo lengi í þessu veikindum að mér finnst ég oft ekki fá skilning á því að ég er lífshættulega veik. Það er eins og sumt fólk sé bara búið að gleyma því að ég er veik af því að ég lít vel út og er með hár á hausnum," segir hún. Í samtali við fréttastofu tekur Rakel Sara fram að hún skilji ekki af hverju Tryggingastofnun rukki hana um endurgreiðslu, en dettur helst í hug að dagpeningar sem hún hafi fengið þegar hún var í beinmergsskiptunum hafi orðið til þess að stofnunina telur hana hafa fengið of mikið greitt. Þeir dagpeningar hafi þó komið frá Tryggingastofnun sjálfri. Rakel Sara segir erfitt að þiggja fjárhagsaðstoð og líði hreinlega eins og "aumingja" en eftir hvatningu frá lesendum bloggsíðunnar sem sögðust vilja leggja henni lið fjárhagslega hefur Rakel Sara birt þar reiknisnúmerið sitt sem er 0117-26-7989 og kennitalan 080583-4949. Bloggsíða Rakelar Söru er hér. http://rakelprinsessa.blog.is/blog/rakelprinsessa/

Íslenskir listamenn taka nýtt merki í notkun

BÍL - Bandalag íslenskra listamanna hefur tekið í notkun nýtt merki, hannað af Kristjáni E. Karlssyni. Þá hefur heimasíða BÍL verið uppfærð og endurnýjuð í stíl við nýja merkið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að höfundir merkisins segi um það: „Ef vel er að gáð má finna vott af íslenskri formgerð í notkun mynsturs, þó er form merkisins að hluta byggt upp eins og MANDALA (sem þýðir hringur), með föstum kjarna, miðpunkti (Bandalagið). Í heild sinni rúmar það hugmyndir eins og t.d.: listir, upphrópun (Sjáðu mig!), hljóðbylgjur, útgeislun, sköpunarkraft, hringleikhús, örveru, guðlega veru - sjálfa listagyðjuna ef vel er að gáð... Hringformið hefur jú sterka tilvísun í form sólarinnar með allri sinni útgeislun enda oft látin tákna sjón og skynjun. (sbr. Sólin sem augu Seifs í grískri goðafræði). En með einfaldri litabreytingu er hægt að gefa merkinu mismunandi dýpt og skírskotun eftir þörfum. " Nýja vefsíðu BÍL má sjá hér.

Sjá næstu 50 fréttir