Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kreppan bjargaði bátasmið í Brákarey Kreppan og samkomulag Borgarbyggðar við Orkuveitu Reykjavíkur hafa bjargað Þorsteini Mána Árnasyni frá hrakhólum með 30 tonna bát sinn sem hann er að smíða í húsnæði Borgarbyggðar. Eftir margra ára deilur fær hann nú að hafast þarna við áfram í sátt við guð og menn. 5.8.2011 08:00
Kona stal snyrtivörum í Lyfju Kona var handtekinn í Lyfju við Smáratorg í gærkvöldi eftir að starfsfólk þar hringdi á lögreglu, en það grunaði hana um þjófnað. 5.8.2011 07:57
Varðskipið Týr kemur til landsins í dag Varðskipið Týr er væntanlegt til landsins fyrir hádegi, en það hefur verið í leiguverkefni fyrir Evrópsku landamærastofnunina í allt sumar. 5.8.2011 07:55
Unglingsstúlka barin í höfuðið með hamri Sextán ára stúlka barði jafnöldru sína í höfuðið með hamri fyrir utan íbúðarhús í Kópavogi í gærkvöldi og stakk svo af ásamt kærasta sínum. 5.8.2011 07:37
Sextán spor eftir bit Rottweiler-hunds Sauma þurfti sextán spor í handlegg tólf ára stúlku eftir að Rottweiler-hundur réðst á hana í Innri-Njarðvík í fyrrakvöld. Faðir stúlkunnar, Ingi Þór Þórisson, segir hana felmtri slegna eftir árásina. 5.8.2011 07:30
Rétturinn til ástarinnar Við byrjuðum smátt, með útihátíð á Ingólfstorgi árið 1999. Áður höfðum við tvívegis reynt að fara í göngur til að vekja athygli á málstað okkar, 1993 og 1994. Annað árið komu 72 og hitt árið 71 ef ég man rétt. Tími okkar var ekki kominn,“ segir Þorvaldur Kristinsson, forseti Hinsegin daga, um upphaf hátíðarinnar. Hátíðin er haldin þessa dagana í þrettánda skipti. „Á þeim þrjátíu árum sem ég hef starfað með hreyfingu hinsegin fólks hefur gríðarlega margt gerst, bæði hvað varðar viðhorf samkynhneigðra til sjálfra sín og viðhorf þjóðarinnar til okkar. Nefnd til að kanna stöðu samkynhneigðra var skipuð 1993 og skilaði skýrslu árið 1994 sem varð til þess að lög um staðfesta samvist voru samþykkt 1996. Þetta varð til þess að samfélagið opnaðist á hátt sem engan óraði fyrir. Samkynhneigðir eignuðust sjálfstraust sem þeir höfðu ekki átt áður,“ segir hann og minnist þess síðan þegar Heimir Már Pétursson hvatti til þess að stofnað yrði sérstakt félag, eftir fyrstu hátíðina á Ingólfstorgi, og efnt yrði til gleðigöngu að erlendri fyrirmynd. „Fyrir þetta verð ég honum ævinlega þakklátur, og aðra helgina í ágúst árið 2000 lögðum við af stað í göngu. Við vissum eiginlega ekki hvaðan á okkur stóð veðrið þegar við komum fyrir hornið á Hlemmi því allt í einu var mikill fjöldi saman kominn í miðbænum.“ Þorvaldur segir að þá hafi um fimm þúsund manns mætt á svæðið en síðan hefur hátíðin vaxið og nú er talið að um 70 til 90 þúsund mæti í gönguna. 5.8.2011 07:15
Hætt hjá Bankasýslu ríkisins Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins, hefur sagt upp störfum og verður staða hennar auglýst til umsóknar í næstu viku. Hún hafði gegnt stöðu forstjóra allt frá því að stofnunin tók til starfa í upphafi árs 2010. 5.8.2011 07:00
Vilja endurskilgreina hlutverk ríkisins Tveir ráðherrar hafa nú stigið fram og lagt til að hlutverk ríkisvaldsins verði endurmetið. Meta þurfi öll verkefni og skilgreina grunnþjónustu upp á nýtt. Sveitarfélögin munu gegna meira hlutverki í framtíðinni. Fjármálaráðherra segir grundvallarbreytinga á hlutverki ríkisins ekki að vænta. 5.8.2011 06:30
Öryggismálin sögð veigamest Flugmenn hjá Flugfélagi Íslands skrifuðu undir kjarasamning við Flugfélag Íslands um tvöleytið í gær. Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að veigamesti þátturinn í nýju samningunum lúti að starfsöryggismálum. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um samningana. Atkvæði verða greidd um nýju samningana á næstu dögum. 5.8.2011 06:15
Kostar sama að breyta og byggja Kostnaður við að breyta hjúkrunarheimilinu að Víðinesi þannig að það uppfylli kröfur sem öryggis- og gæsluvarðhaldsfangelsi, er 1,9 milljarðar króna. Nýbygging kostar, samkvæmt áætlunum, rétt rúma 2 milljarða króna. 5.8.2011 06:00
VÍS verður einn bakhjarla Hofs Vátryggingamiðstöð Íslands og Menningarhúsið Hof á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um að VÍS verði einn af bakhjörlum Hofs næstu þrjú starfsárin. 5.8.2011 05:30
200 íslenskir titlar gefnir út - langt fram úr björtustu vonum Um tvö hundruð íslenskir titlar og bækur um Ísland verða gefin út á þýska málsvæðinu í haust í tilefni af Bókamessunni í Frankfurt þar sem Ísland verður heiðursgestur. Aðstandendur Sögueyjunnar Íslands, verkefnisins um þátttökuna, segja fjöldann fara langt fram úr björtustu vonum. 5.8.2011 05:00
Sveitarfélögin munu fá aukið hlutverk Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir viðbúið að frekari verkefni muni færast frá ríki til sveitarfélaga. Þegar rætt er um að endurskoða rekstur hins opinbera verði einnig að horfa til sveitarfélaganna; þau séu fjármögnuð með skattfé líkt og ríkissjóður. Út frá þjónustuþætti og þeirri nánd sem sveitarfélögin búi yfir sé jákvætt að flytja fleiri verkefni þangað. Hann segir að skoða verði hvort í einhverjum tilvikum sé verið að bjóða meiri þjónustu en þörf sé á. 5.8.2011 04:00
Vilji til að stofna nýtt stjórnmálaafl stjórnlagaráðsfulltrúa Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri og stjórnlagaráðsfulltrúi útilokar ekki að vilji sé meðal stjórnlagaráðsfulltrúa að stofna nýtt stjórnmálaafl. Breyta þurfi vinnubrögðum í íslenskum stjórnmálum og sú umræðupólitík og sátt sem einkenndi stjórnlagaráðið sé góður grunnur til að byggja á. 4.8.2011 18:39
Hinsegin dagar hefjast í kvöld Í kvöld fer fram opnunarhátíð Hinsegin daga og hefur fjöldi sjálfboðaliða unnið hörðum höndum að undirbúningi hátíðarinnar sem haldin verður í tólfta sinn á Íslandi nú um helgina. 4.8.2011 18:15
Lést af slysförum við Hellu Litla stúlkan sem lést af slysförum norðan við Hellu á miðvikudagskvöld hét Eva Lynn Fogg. Stúlkan var flutt með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi en var úrskurðuð látin þegar þangað kom. 4.8.2011 22:23
Lýsa eftir stolinni bifreið Lögreglan á Akureyri lýsir nú eftir bifreið, sem tilkynnt var að hefði verið stolið þann 31. júlí síðastliðinn. Bifreiðin er af gerðinni Hyundai Sonata, árgerð 1995, blágræn að lit og með bílnúmerið SY152. 4.8.2011 22:15
Rúmlega 1.200 nöfn á undirskriftalista Kvikmyndaskólans Kvikmyndaskóli Íslands hefur nú hrint af stað undirskriftasöfnun með það fyrir augum að þrýsta á stjórnvöld að gera slíkan samning við skólann að honum verði kleift að starfa áfram. Nú þegar hafa rúmlega þúsund manns ritað nafn sitt á listann. 4.8.2011 21:30
Stóraukin framleiðsla á kjúklinga- og svínakjöti Á meðan framleiðsla á lamba- og nautakjöti hefur staðið í stað hefur framleiðsla á svínakjöti tvöfaldast og á kjúklingakjöti fimmfaldast á aðeins fimmtán árum. Þetta kemur fram í riti Hagstofunnar, Ísland í tölum, sem gefið var út í dag. 4.8.2011 20:00
Blásandi borhola er Hveragerðingum hvimleið Blásandi borhola heldur vöku fyrir íbúum í Hveragerði. Magnús Þór Sigmundsson, tónlistarmaður í bænum, segir ástandið óviðunandi. Hann þurfi að ímynda sér að hávaðinn sé sjávarniður til að festa nótur á blað. 4.8.2011 19:30
Ísland heiðursgestur bókamessunnar í Frankfurt - 200 bækur þýddar Um tvö hundruð íslenskar bækur hafa verið þýddar á þýsku í tilefni af bókamessunni í Frankfurt en Ísland er heiðursgestur messunnar í ár. 4.8.2011 19:15
Forstöðumenn ríkisstofnana íhuga að stefna ríkinu Forstöðumenn ríkisstofnana íhuga að stefna ríkinu vegna tafa sem orðið hafa á, að launalækkun sem þeir tóku á sig 2008 gangi til baka. Þeir segja nýlega hækkun á launum þeirra málinu óviðkomandi, en hún kostar hið opinbera 300 milljónir á ári. 4.8.2011 18:27
Harður árekstur á Akureyri Ökumaður fólksbifreiðar var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur á gatnamótum Gránufélagsgötu og Glerárgötu á Akureyri um klukkan tvö í dag. 4.8.2011 16:43
Óska eftir vitnum að nauðgun í Herjólfsdal Í morgun kærði kona á þrítugsaldri kynferðisbrot sem mun hafa átt sér stað aðfaranótt mánudags á tímabilinu frá hálf tvö til tvö við hljóðskúr í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. 4.8.2011 16:22
Flugmenn skrifuðu undir samning við Flugfélag Íslands Flugmenn hjá Flugfélagi Íslands skrifuðu undir kjarasamning við Flugfélag Íslands um tvöleytið í dag. Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að veigamest þátturinn í nýju samningarnir lúti að starfsöryggismálum. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um samningana. Atkvæði verða væntanlega greidd um nýju samningana á næstu dögum. 4.8.2011 15:57
Sækja slasaða konu Björgunarsveitamenn af Héraði eru nú á leið á Eyjabakkajökul í norðaustanverðum Vatnajökli að sækja konu sem slösuð er á ökkla. 4.8.2011 15:41
Konan fundin Búið er að finna bílinn RS-M06 og Magneu Guðnýju Stefánsdóttur, konuna sem auglýst var eftir fyrr í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. 4.8.2011 14:55
Bíll brann við Veiðileysu Eldur kviknaði í bíl sunnan við Veiðileysu, skammt frá Djúpavík eftir hádegi í dag. Lögreglumaður, slökkviliðsbíll og tveir sjúkrabílar eru á staðnum og var veginum lokað vegna slyssins. 4.8.2011 13:33
Íslensk hönnun á pokum til styrktar UN Women Hönnunarteymið Marandros; Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson ásamt fatahönnuðinum Unu Hlín Kristjánsdóttur sem hannar undir merkinu Royal Extreme hönnuðu poka til styrktar UN Women á Íslandi. Pokarnir eru þegar komnir í sölu. Það er hlutverk UN Women á Íslandi að vekja landsmenn til umhugsunar um stöðu kvenna í fátækustu ríkjum heims og pokarnir eru ein leið til að ná til fólks. Það er ósk listamannanna að með hverjum poka sem selst aukist meðvitund landsmanna um samtökin og stöðu kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum, en allur ágóði af pokunum rennur beint til UN Women. Una hefur vakið mikla athygli frá því að hún frumsýndi fyrstu línu sína á RFF fyrir tveimur árum og Katla Rós og Ragnar voru meðal annars tilnefnd til forsetaverðlauna nýsköpunarsjóðs á dögunum. Í tilkynningu frá UN Women segir að pokarnir séu sumarlegir og henta bæði konum og körlum. Það er ósk UN Women á Íslandi að gefa efnilegum íslenskum listamönnum tækifæri árlega til að hanna nýja poka og koma þannig list sinni á framfæri. Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína og hvetur landsnefndin alla til þess að leggja málefninu lið og kaupa sér poka. Pokarnir fást í Aurum, GK , Kiosk, Mýrinni, Kisunni og Minju. Einnig er hægt að fjárfesta í eintaki á skrifstofu UN Women á Laugavegi 42 4.8.2011 13:27
Einn fullorðinn og tvö börn í sjálfheldu í Úlfarsfelli Undanfarar björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu eru nú í Úlfarsfelli þar sem þrjár manneskjur eru í sjálfheldu í Hamrahlíð. Um er að ræða einn fullorðinn og tvö börn. 4.8.2011 13:10
Forstöðumenn leita til umboðsmanns Alþingis Forstöðumenn ríkisstofnana hafa leitað til umboðsmanns Alþingis vegna launaágreinings við Kjararáð, og íhuga að fara með málið fyrir dómstóla. Þeir telja hugsanlegt að ríkið sé skaðabótaskylt vegna tafa á launahækkunum. 4.8.2011 12:24
Önnur nauðgun á Þjóðhátíð kærð Tæknideild lögreglunnar á Selfossi, sem er rannsóknadeild fyrir allt Suðurland, fékk í gær aðra formlega kæru um nauðgun á þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum og þriðja kæran er að líkindum í burðarliðnum. 4.8.2011 12:00
Lýst eftir konu á Suðurnesjum Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Magneu Guðnýju Stefánsdóttur, til heimilis að Bragavöllum 4 í Reykjanesbæ. Magnea fór frá heimili sínu um klukkan fimm í morgun á bifreið sinni, sem er lítill svatur jeppi með skráningarnúmerið RS-M06. 4.8.2011 11:51
Ríkið greiddi fyrir flutning Sævars Ciesielski til Íslands „Okkur þótti þetta vera eðlileg ákvörðun," segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, um þá ákvörðun Innanríkisráðuneytisins að bera allan kostnað af því að flytja Sævar Marinó Ciesielski frá Danmörku, þar sem hann lést, til Íslands. 4.8.2011 11:34
Jón Stóri reyndi að svindla sér heim með Herjólfi Óvænt uppákoma varð við Básaskersbryggju í Vestmannaeyjum þegar Jón Stóri, sem þekktur er úr undirheimum Reykjavíkur, reyndi að svindla sér um borð í Herjólf. Jón keyrði bifreið sína framhjá röðinni og inn í Herjólf en þó hann væri sjálfur með farmiða fyrir leiðinni heim var hann ekki með miða fyrir bílinn sinn. 4.8.2011 11:01
Helmingi færri vildu í forsætisráðuneytið: Engin vonbrigði Ríflega tvöfalt fleiri sóttu um stöðu upplýsingafulltrúa í umhverfisráðuneytinu en í forsætisráðuneytinu þegar störfin voru auglýst. 93 sóttu um starf upplýsingafulltrúa hjá umhverfisráðuneytinu en 37 sóttu hjá forsætisráðuneytinu. Umsóknarfrestur vegna starfanna rann út sama dag hjá báðum ráðuneytum, þann 13. mars. 4.8.2011 09:56
Fatlaðir ætla yfir Vatnajökul Hópur erlendra ofurhuga ætlar að freista þess að fara í snjódrekaflug þvert yfir Vatnajökul í apríl á næsta ári. Þetta væri ekki í frásögur færandi ef þrír í hópnum væru ekki bundnir við hjólastól. 4.8.2011 09:00
Umferð hleypt á nýja akbraut á Vesturlandsvegi Umferð til suðurs hefur verið hleypt á nýja akbraut á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ, frá Þingvallavegi að Álafossvegi. Umferð til norðurs verður óbreytt á einni akrein um sinn. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að vinna hefjist aftur á svæðinu þann 8. ágúst og er áætlað að umferð verði komin á endanlegt mannvirki þann 20. ágúst. 4.8.2011 08:47
Styrkja soltin börn í Sómalíu Efnilegustu ungu skákmenn landsins munu tefla við gesti og gangandi á skákmaraþoni í Ráðhúsi Reykjavíkur um næstu helgi. Mótherjar ungmennanna munu geta borgað upphæð að eigin vali sem rennur beint í söfnun Rauða kross Íslands vegna hungursneyðarinnar í Sómalíu og öðrum löndum Austur-Afríku. 4.8.2011 08:30
Verulega grunsamlegur ökumaður stöðvaður Það var meira en lítið misjafnt við ökumanninn, sem lögreglan í Borgarfirði stöðvaði í fyrrakvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur. 4.8.2011 08:02
Óbreytt rennsli í Skaftá Rennslii jókst ekki í Skaftá í nótt, en búist er við hlaupi úr Eystri-Skaftárkatli í jöklinum, en hlaupið í síðustu viku var úr vestari katlinum. 4.8.2011 08:00
Endurheimti bíl úr óskilum frá Eyjum Sigurgeir Snævar Árnason varð hæstánægður í gær þegar Anna Louise Ásgeirsdóttir, frá munavörslunni í Vestmannaeyjum, kom akandi á bílnum hans upp á hlað. Hann hafði nefnilega týnt lyklinum að bílnum þegar hann var á Þjóðhátíð í Eyjum og gat því ekki komið á honum heim með Herjólfi að hátíð lokinni. 4.8.2011 08:00
Fjölmennur útifundur við Oddskarðsgöng Hátt á annað hundrað manns mættu á útifund norðfjarðarmegin við Oddskarðsgöng í gærkvöldi til að þrýsta á að ráðist verði í gerð Norðfjarðarganga, sem leysi Oddskarðsgöngin af hólmi. 4.8.2011 07:48
Stígamót koma ekki í staðinn Sálgæsluteymi Þjóðhátíðar í Eyjum segir að gæsla á hátíðinni í ár hafi verið til fyrirmyndar. Í yfirlýsingu sem send var út í gær vegna þeirrar umræðu sem hefur skapast eftir að tilkynnt var um fimm nauðganir á hátíðinni í ár, segir enn fremur að samtök á borð við Stígamót og Nei-hreyfinguna geti aldrei komið í stað þess fagteymis sem venjulega er á vakt yfir hátíðina. 4.8.2011 07:30
Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og díselolíu Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og dísilolíu um tvær krónur á lítrann í gær, vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði, að sögn félaganna. Það lækkaði meðal annars vegna fregna af birgðastöðu í Bandaríkjunum. 4.8.2011 07:29