Innlent

Íslensk hönnun á pokum til styrktar UN Women

Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína
Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína
Hönnunarteymið Marandros; Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson ásamt fatahönnuðinum Unu Hlín Kristjánsdóttur sem hannar undir merkinu Royal Extreme hönnuðu poka til styrktar UN Women á Íslandi. Pokarnir eru þegar komnir í sölu.

Það er hlutverk UN Women á Íslandi að vekja landsmenn til umhugsunar um stöðu kvenna í fátækustu ríkjum heims og pokarnir eru ein leið til að ná til fólks.

Það er ósk listamannanna að með hverjum poka sem selst aukist meðvitund landsmanna um samtökin  og stöðu kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum, en allur ágóði af pokunum rennur beint til UN Women.

Una hefur vakið mikla athygli frá því að hún frumsýndi fyrstu línu sína á RFF fyrir tveimur árum og Katla Rós og Ragnar voru meðal annars tilnefnd til forsetaverðlauna nýsköpunarsjóðs á dögunum.

Í tilkynningu frá UN Women segir að pokarnir séu sumarlegir og henta bæði konum og körlum.

Það er ósk UN Women á Íslandi að gefa efnilegum íslenskum listamönnum tækifæri árlega til að hanna nýja poka og koma þannig list sinni á framfæri.

Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína og hvetur landsnefndin alla til þess að leggja málefninu lið og kaupa sér poka.

Pokarnir fást í Aurum, GK , Kiosk, Mýrinni, Kisunni og Minju. Einnig er hægt að fjárfesta í eintaki á skrifstofu UN Women á Laugavegi 42

RFF


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×