Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viltu vinna HM áskrift? Í kvöld verður dreginn út einn heppinn Facebook vinur Íslands í dag en viðkomandi fær mánaðaráskrift að Stöð 2 sport og getur því fylgst með strákunum okkar á HM í Svíþjóð. 13.1.2011 10:10
Keppir við þær bestu á Norðurlandamóti í súlufimi í Stokkhólmi „Ég var samþykkt inn í keppnina í lok nóvember og er búin að æfa fimm sinnum í viku ásamt því að teygja á hverjum degi. Ég þarf helst að komast í splitt, sem er eitthvað sem ég hef aldrei gert áður,“ segir Eva Rut Hjaltadóttir, bassaleikari hljómsveitarinnar Elektru og keppandi í súlufimi. Eva er á leiðinni á Norðurlandamótið Battle of the Pole í Stokkhólmi í næstu viku. Hún hefur stundað íþróttina í rúmt ár og keppir því í svokölluðum „kittens“-flokki ásamt átta öðrum konum og körlum frá Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Reynslumeiri keppendur keppa í „lionesses“-flokki. 13.1.2011 09:15
Vegtollum mótmælt: Ögmundur fær 41 þúsund undirskriftir Forsvarsmenn FÍB, félags íslenskra bifreiðaeigenda, munu hitta Ögmund Jónasson innanríkisráðherra klukkan eitt í dag til að afhenda honum mótmæli 41.000 kosningabærra Íslendinga gegn fyrirhuguðum vegatollum. 13.1.2011 09:08
Kafarar þéttu rifur á færeyska flutningaskipinu Kafarar frá Akureyri náðu í gær að þétta rifur á botni færeysks flutningaskips, sem laskaðist á leiðinni út frá Þórshöfn á Langanesi í fyrrinótt þegar það tók þrisvar niðri á boða, úti fyrir höfninni. 13.1.2011 08:02
Leitað að ökumanni sem ók á mann og stakk svo af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn ökumanns, sem ók á gangandi vegfaranda í Borgartúni á sjöunda tímanum í gærkvöldi, og stakk af. 13.1.2011 08:01
Aðgengilegt um allan heim Fréttablaðið hefur frá í gærmorgun verið aðgengilegt þeim sem nota nettengd tæki og tól á borð við iPhone-farsíma, iPad-spjaldtölvur og iPod Touch og hafa keypt áskrift að hugbúnaðinum PressReader. Forritið sníður dagblöð til fyrir nettengd tæki og líta þau eins út á skjá tækjanna og á pappírsformi. 13.1.2011 08:00
Varað við stormi og sandfoki Veðurstofan varar við stormi víða á landinu, eða 18 til 23 metrum á sekúndu í dag, og að víða verði snjókoma eða él. Hvassast verður við Surðuströndina og þar er nú sandstormur á Mýrdalssandi og öskufok undir Eyjafjöllum.Skólahald fellur niður í Vík í Mýrdal vegna veðursins. 13.1.2011 07:56
Vaxandi líkur á verkfalli í fiskimjölsverksmiðjum Félagsfundur í verkalýðsfélaginu Drífandi í Vestmannaeyjum samþykkti í gærkvöldi að atkvæðagreiðsla skuli fara fram í félaginu um verkfallsboðun félagsmanna, sem starfa í fikimjölsverksmiðjum. Í fyrrakvöld hafði Afl- starfsgreinafélag á Austfjörðum samþykkt hið sama. 13.1.2011 07:28
Fimm handteknir fyrir fíkniefnaneyslu Tvö útköll vegna hávaða í heimahúsum í Þingholtunum seint í nótt, snérust upp í það að tveir voru handteknir í öðru húsinu, vegna fíkniefnaneyslu, og þrír í hinu, vegna þess sama. 13.1.2011 07:25
Nýdæmdur grunaður um lífshættulega árás Andri Vilhelm Guðmundsson, 24 ára Keflvíkingur, situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um alvarlega líkamsárás á nýársnótt. Andri var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi 26. nóvember síðastliðinn fyrir tvær hrottafengnar líkamsárásir, rán og frelsissviptingu en gekk laus þar sem hann tók sér frest til að áfrýja dómnum. 13.1.2011 06:15
Opinberir starfsmenn vilja styttri vinnuviku Stytting vinnuvikunnar úr 40 klukkustundum í 36 er meðal þess sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) leggur áherslu á í viðræðum við viðsemjendur sína – ríki og sveitarfélög. Aðildarfélög bandalagsins fara með kjarasamningsumboðið hvert fyrir sig en hafa falið forystu bandalagsins að fjalla um nokkur tiltekin mál. 13.1.2011 06:00
Nær 300 sóttu um tólf stöður Nærri 300 sóttu um tólf störf sem auglýst voru við stjórnlagaþingið sem hefst 15. febrúar, að sögn Þorsteins Fr. Sigurðssonar, framkvæmdastjóra undirbúningsnefndarinnar. Umsóknarfrestur rann út nú í byrjun janúar. 13.1.2011 06:00
Ráðist í skammtímaaðgerðir meðan frekari skoðun fer fram Fela á sveitarfélögum í auknum mæli framkvæmd almenningssamgangna samkvæmt hugmyndum í nýrri úttekt innanríkisráðuneytisins. Framtíðarstefnumótun almenningssamgangna í tengslum við samgönguáætlun til tólf ára verður lögð fram í mars. Í nýbirtri skýrslu kemur fram að skortur á skipulagi og hátt verð fæli fólk frá almenningssamgöngum í einkabíla. 13.1.2011 05:45
Kristinn Örn enn undir feldi Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann muni gefa kost á sér til endurkjörs í komandi kosningum félagsins. 13.1.2011 05:45
Bryggjuhverfisbúar sviknir um brotthvarf sandvinnslu Formaður íbúasamtaka Bryggjuhverfis í Grafarvogi segir íbúana arga því ekki sé staðið við að fyrirtækið Björgun flytji burt svo fullbyggja megi svæðið. Smábátahöfnin sé að fyllast af sandi í umsjá borgarinnar. 13.1.2011 05:45
Afskipt hrogn voru flutt í búr Steinbítshrognin sem gotið var í Sæheimum í Vestmannaeyjum á mánudagskvöld voru í gær flutt í þar til gerð búr á safninu. Vonast er til þess að þau klekist þar út að nokkrum vikum liðnum og hægt verði að ala seyðin á safninu. 13.1.2011 05:45
Umræðu um rafbíla vantar jarðtengingu Rafbílavæðing Íslands tekur áratugi, segir Sverrir Viðar Hauksson, formaður Bílgreinasambandsins. Hann segir umræðu um framtíðartækni í samgöngum óraunhæfa á stundum. 13.1.2011 05:30
Sinubruninn í Vatnsmýri í rannsókn Lögregla hóf í gær rannsókn á upptökum mikils sinuelds sem braust út í Vatnsmýri í fyrrakvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu þykir næsta víst að annaðhvort hafi eldurinn verið kveiktur vísvitandi eða að kviknað hafi í út frá flugeldum. 13.1.2011 05:00
Krefjast svara frá ráðuneytinu Stjórn Félags sjálfstætt starfandi arkitekta og stjórn Arkitektafélags Íslands, rituðu innanríkisráðherra bréf 6. nóvember síðastliðinn vegna ákvörðunar ráðuneytisins um að ráða danska arkitekta til að vinna frumhönnun á fangelsinu á Hólmsheiði. 13.1.2011 05:00
Höfðu sannarlega samráð Umhverfisráðuneytið vísar á bug fullyrðingum um að ekkert samráð hafi verið haft við Skógræktarfélag Íslands við undirbúning frumvarps til breytinga á lögum um náttúruvernd. 13.1.2011 05:00
Þrjár missa dvalarleyfið Útlendingastofnun hefur afturkallað dvalarleyfi þriggja kvenna á þeim grundvelli að þær hafi stofnað til málamyndahjónabanda við íslenskra karla. Konurnar þrjár stefndu Útlendingastofnun og íslenska ríkinu vegna ákvörðunarinnar og vilja að hún verði ógild. Málin voru tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 13.1.2011 05:00
Lára hlýtur Rósina í ár Lára Björnsdóttir, fyrrverandi félagsmálastjóri Reykjavíkur og framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, hlaut á dögunum Rósina. Um er að ræða árleg verðlaun sem eru veitt í minningu Ástu B. Þorsteinsdóttur fyrir störf í þágu fatlaðra. 13.1.2011 04:30
290 myndavélar vakta almenning í miðborg Öryggismyndavélar í miðborg Reykjavíkur eru 290 talsins. Hvergi eru til opinberar tölur um fjölda og upplýsingar um staðsetningu eftirlits- og öryggismyndavéla sem beinast að öllu eða einhverju leyti að almenningsrými á Íslandi. 13.1.2011 04:30
Ætla að vekja athygli á skógunum Forystumenn í skógrækt á Íslandi afhentu í gær Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, fána með merki alþjóðlegs árs skóga, sem nú er ný hafið. 13.1.2011 04:15
Ekki snjóflóðahætta í þéttbýli Snjóflóð Veðurstofa Íslands fylgist grannt með aðstæðum á snjóflóðahættusvæðum eftir nokkur snjóflóð sem fallið hafa á Norðurlandi í vikunni. 13.1.2011 04:00
Margt óunnið á Haítí Ár er nú liðið frá hinum mannskæðu jarðskjálftum sem kostuðu um 250.000 íbúa Haítí lífið, en þó að margt gott hafi unnist er enn löng leið fyrir höndum 13.1.2011 03:45
Yfirvöld brjóta gegn réttindum Jóels „Ég skil ekki hvers vegna innanríkisráðuneyti Ögmundar Jónassonar er ekki búið að gefa út vegabréf fyrir drenginn svo hann geti snúið heim til Íslands," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um mál Jóels Færseth Einarssonar, sem hefur verið fastur ásamt foreldrum sínum á Indlandi síðan í nóvember. Þingmaðurinn segir alla sjá hversu fráleitt það sé af íslenskum stjórnvöldum að þverskallast við að gefa út vegabréf fyrir Jóel í ljósi þeirra réttinda sem stjórnarskráin eigi að tryggja honum eftir að hann varð íslenskur ríkisborgari. 12.1.2011 22:20
Líst vel á sameiningu Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla „Ég hef ekki orðið vör við óánægju meðal foreldra,“ segir Lilja Rós Óskarsdóttir, varaformaður Foreldrafélags Öskjuhlíðarskóla, um þá fyrirætlun borgaryfirvalda að sameina starfsemi Safamýrarskóla og Öskjuhlíðarskóla. Tillaga þess efnis var samþykkt í menntaráði í dag og verður henni beint til borgarráðs. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir því að nýr sameinaður sérskóli starfi í húsnæði Öskjuhlíðarskóla og taki til starfa næsta haust. 12.1.2011 21:01
Enn snjóflóðahætta á Norðurlandi Veðurstofa Íslands ítrekar ábendingu sem send var í gær um ótrygg snjóalög á Norðurlandi. Áfram er snjóflóðahætta í landshlutanum. 12.1.2011 20:01
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar Herjólfur siglir alfarið frá Þorlákshöfn á morgun. Þetta er gert í ljósi þess að veðurspá fyrir morgundaginn er afar slæm og ölduspá einnig, að því er fram kemur á vef Eimskips. 12.1.2011 19:52
„Við sluppum vel í þetta sinn“ „Við sluppum vel í þetta sinn“ segir móðir fjórtán mánaða stúlku sem hlaut annars stigs bruna á líkamanum þegar hún hellti yfir sig sjóðandi vatni um síðustu helgi. Stúlkan dvelur enn á barnaspítala Hringsins. 12.1.2011 19:44
Indefence getur sætt sig við nýju Icesave samningana Indefence hópurinn getur sætt sig við nýju Icesave samningana ef hið svo kallaða Ragnars Hall ákvæði verður fellt inn í samningana. Það þýddi að taka þyrfti upp viðræður við Breta og Hollendinga á nýjan leik. 12.1.2011 19:37
Ræðst á næstu dögum Forseti Alþýðusambandsins segir það verða að ráðast á næstu einni til tveimur vikum hvort samstaða næst um kjarasamninga á breiðum grundvelli með aðkomu stjórnvalda. Hugmyndir vinnuveitenda um kauphækkanir séu langt frá því sem hægt sé að sætta sig við. 12.1.2011 19:14
Nafnlausir fræðimenn fá tugi milljóna Ríkisendurskoðun kannar nú kostnað ráðuneyta við aðkeypta þjónustu starfsmanna félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Í svörum forsætisráðherra við fyrirspurn um málið kemur fram að 30 milljónir hafa verið greiddar til Háskólans en ekki er upplýst hvaða fræðamenn fengu greiðslurnar. 12.1.2011 18:56
Krafa 50 þúsund Íslendinga gæti kostað yfir 30 milljarða Tæplega 50 þúsund manns skora á stjórnvöld að tryggja ríkinu eignarhald á orkuauðlindum landsins. Ef ríkið tekur HS Orku eignarnámi má telja að greiða þurfi Magma 33 milljarða í bætur. 12.1.2011 18:52
Neitar því að hafa skipt um skoðun um Gjástykki Umhverfisstofnun taldi fyrir sex árum að fyrirhugaðar rannsóknir Landsvirkjunar í Gjástykki væru ekki líklegar til að valda miklum umhverfisáhrifum. Nú segir stofnunin hins vegar verulegar líkur á að þær hafi í för með sér talsverð neikvæð áhrif og hvetur til friðlýsingar. 12.1.2011 18:45
Skólameistari íhugar málaferli vegna auglýsinga Office 1 Formaður bæjarráðs Akureyrar og tveir skólameistarar í bæjarfélaginu voru notaðir í heimildarleysi í auglýsingar Office 1 á Akureyri fyrir jól. Skólameistari MA skoðar nú lagalega stöðu sína. Markaðsstjóri Office 1 segir að um húmor hafi verið að ræða. 12.1.2011 17:45
Jóhanna: Ríkisstjórnin einhuga um friðlýsingu Gjástykkis „Ríkisstjórnin er einhuga í því að vinna að friðlýsingu Gjástykkis í samræmi við samþykkt hennar þar um, snemma á síðasta ári,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. 12.1.2011 17:16
Friður á vinnumarkaði afar mikilvægur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hvatti í dag forsvarsmenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins til að gæta hófs í kröfugerð á hendur ríkinu svo aðhalds- og stöðugleikamarkmiðum ríkisstjórnarinnar verði ekki stefnt í hættu. 12.1.2011 17:05
Hálfu tonni af kæstum hákarli stolið - fagmenn að verki Rúmlega hálfu tonni af kæstum hákarli var stolið úr hjalli skammt fyrir utan Reykjanesbæ í vikunni. Þjófurinn, eða þjófarnir, voru greinilega vel að sér í hákarlaverkun samkvæmt heimasíðunni Freisting.is sem greindi fyrst frá málinu. 12.1.2011 16:34
Öskjuhlíðaskóli og Safamýraskóli sameinaðir Menntaráð samþykkti á fundi sínum í dag að sameina starfsemi Safamýrarskóla og Öskjuhlíðarskóla. Tillögu þess efnis verður beint til borgarráðs. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir því að nýr sameinaður sérskóli starfi í húsnæði Öskjuhlíðarskóla og taki til starfa næsta haust. Fram að þeim tíma undirbúi starfshópur starfsemi nýja skólans með stefnumótun og verkáætlun sem taki til breytinga á húsnæði, starfsmannahaldi og upplýsingamiðlun til allra hagsmunaaðila. 12.1.2011 15:58
Óljóst um afdrif limsins - safnstjóri þögull sem gröfin „Ég get hvorki játað né neitað þessu,“ svaraði Sigurður Hjartarson, safnstjóri Hins íslenska reðursafns, spurður hvort limur Páls Arasonar, hefði verið afhentur. Viðskiptablaðið greinir frá því á vef sínum að limurinn sé kominn í hendur Sigurðar. 12.1.2011 15:58
Flogaveikum dæmdar bætur: Viðurkenningin mikilvægust „Það mikilvægasta er að það hafi loksins verið viðurkennt að það hafi verið brotið á mér," segir Ágúst Hilmar Dearborn, sem sigraði skaðabótamál gegn ríkinu í dag, þar sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkið til þess að greiða Ágústi sex og hálfa milljón fyrir ólögmæta frelsissviptingu. 12.1.2011 15:43
Fjórir í varðhaldi vegna skotárásar - lögreglurannsókn lokið Hæstiréttur sneri í dag við gæsluvarðhaldsúrskurði yfir tveimur mönnum sem eru grunaðir um aðild að skotárás í Bústaðahverfi á aðfangadag. 12.1.2011 15:30
Útlenskar konur sakaðar um málamyndahjónabönd Útlendingastofnun hefur afturkallað dvalarleyfi þriggja kvenna á þeim grundvelli að þær hafi stofnað til málamyndahjónabanda við íslenskra karla. Konurnar þrjár stefndu útlendingastofnun og íslenska ríkinu vegna ákvörðunarinnar og vilja að hún verði ógild. Fyrirtaka var í málinu í dag. 12.1.2011 15:18