Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Engin samstaða náðist á fundinum - þjóðstjórn ekki tímabær Engin samstaða náðist á fyrsta fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar um aðgerðir handa skuldsettum heimilum. Forsætisráðherra segir að finna verði lausn á vandanum sem fyrst en telur ekki tímabært að mynda þjóðstjórn. 5.10.2010 19:11
Verktakar börðust grimmt um Suðurstrandarveg Fimmtán verktakar börðust grimmt um að fá að leggja síðustu fimmtán kílómetra Suðurstrandarvegar en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Lægsta boð, frá Háfelli, hljóðaði upp á 179 milljónir króna og reyndist aðeins 41 prósent af kostnaðaráætlun. Næstlægsta boð átti Suðurverk, upp á 56 prósent af áætlun. 5.10.2010 19:11
Bjartsýnn um Búðarhálsvirkjun Lægsta boð í vélbúnað Búðarhálsvirkjunar reyndist 85 prósent af kostnaðaráætlun og kveðst forstjóri Landsvirkjunar nú bjartsýnn á að fjármögnun ljúki á næstu vikum og að framkvæmdir hefjist um áramót. 5.10.2010 19:02
Prjónaði yfir sig Ökumaður mótóhjóls prjónaði yfir sig á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar nú á sjötta á tímanum. 5.10.2010 18:54
Vilja ekki skoða hugmyndir frá stjórnarandstöðu Fundi leiðtoga stjórnarflokkanna, með forystumönnum stjórnarandstöðunnar, lauk nú rétt fyrir klukkan fimm. Fréttmaður Stöðvar 2 og Vísis ræddi við leiðtoga stjórnarandstöðunnar að fundi loknum og segir að ekki sé að skilja að neinar heildstæðar hugmyndir séu um lausnir á skuldavanda heimila. 5.10.2010 17:24
Birgitta ber í tunnur Þingmenn ræða enn fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár en 1. umræða um það hófst klukkan tvö í dag. Það aftrar þó ekki þingkonunni Birgittu Jónsdóttur frá því að taka þátt í mótmælunum en hún hefur staðið á Austurvelli í dag á meðal annarra mótmælenda og barið í tunnur. 5.10.2010 16:59
Niðurskurði á Austurlandi harðlega mótmælt Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) mótmælir harðlega niðurskurðaráformum stjórnvalda, er varða Heilbrigðisstofnun Austurlands eins og þau koma fram í framlögðu frumvarpi til fjárlaga 2011. 5.10.2010 16:53
Einlæg skilaboð ráðamanna til AGS: „Very truly yours" Venjan er að stjórnvöld sendi Alþjóðagjaldeyrissjóðnum viljayfirlýsingu samhliða hverri endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. 5.10.2010 15:06
Austurvöllur í gærkvöldi: „Allir á sama máli“ - myndband Sjaldan eða aldrei hafa jafn margir mætt á Austurvöll til þess að mótmæla ástandinu í þjóðfélaginu en í gærkvöldi. Talið er að um átta þúsund manns hafi verið á svæðinu þegar mest var og Andri Ólafsson, fréttamaður Stöðvar 2 tók nokkra þeirra tali. 5.10.2010 14:09
Fámenn en hávær mótmæli Mótmælin á Austurvelli sem boðað var til klukkan tvö í dag eru fámenn en hávær, segir fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem staddur er í þinghúsinu. Hún segir að um það bil tíu manns séu á Austurvellli og berji í tunnur. Hávaðinn frá þeim heyrist greinilega inn í Alþingishúsið. 5.10.2010 16:06
Forsætisráðherra telur að landsdómsmálið spilli ekki samstarfi Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fundar með leiðtogum stjórnarandstöðunnar núna klukkan fjögur um mögulegt samstarf milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Jóhanna var spurð að því í dag hvort að hún óttaðist að að landsdómsmálið yrði til þess að spilla samstarfi 5.10.2010 15:47
Mótmæli ekki ætluð börnum Það er almennt ekki rétt að börn séu höfð með í mótmælum eins og þau fóru fram í gær. Þó að það sé brýnt að þjálfa börn í lýðræðislegri þátttöku voru aðstæður þetta kvöld ekki við hæfi barna, segir Umboðsmaður barna í pistli á vefsíðu sinni. 5.10.2010 14:34
Greiðslur til feðra dragast saman Sparnaðaraðgerðir Fæðingarorlofssjóðs hafa bitnað einna mest á meðalútgjöldum til feðra. Munur á greiðslum Fæðingarorlofssjóðs til mæðra og feðra hefur farið minnkandi frá því feðrum var fyrst veitt feðraorlof árið 2001. Meðalútgjöld til feðra voru 82,5 prósentum hærri til feðra en mæðra þetta fyrsta ár sem báðir foreldrar gátu tekið orlof vegna fæðingar. Bráðabirgðatölur ársins 2010 gefa til kynna að bilið milli feðra og mæðra sé enn að minnka og eru meðalútgjöld til feðra samkvæmt þessum tölum 29,1% hærri en útgjöld til mæðra. 5.10.2010 14:21
Skuldavandi heimila verði strax settur á dagskrá Aldrei hef ég orðið vitni að slíkum mótmælum og fóru fram í gærkvöldi, sagði Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, við upphaf þingfundar í dag. Hún sagði að þúsundir manna sem væru að missa lífsviðurværi sitt hefðu mótmælt á Austurvelli í gær. Við þessu yrði að bregðast strax og taka tafarlaust á dagskrá Alþingis umræður um skuldavanda heimilanna. 5.10.2010 14:12
Vill kjósa til Alþingis í vor Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill kjósa til Alþingis í vor. Að hans mati er núverandi ríkisstjórn ekki vaxin þeim vanda sem samfélagið stendur frammi fyrir. 5.10.2010 13:37
Jóhanna segir þjóðstjórn ekki í myndinni Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að þjóðstjórn sé ekki lausn á þeim vanda sem nú er glímt við. Fyrsta markmiðið er að mati hennar að ná einhverskonar sátt og samstöðu um leiðir til þess að ná utan um skuldavanda heimilanna. 5.10.2010 13:15
Saksóknari Alþingis kjörinn á morgun Það ræðst væntanlega ekki fyrr en á morgun hvort að Sigríður Friðjónsdóttir mun taka að sér embætti sérstaks saksóknara í máli Alþingis gegn Geir H. 5.10.2010 13:13
Jóhanna: Einkavæðing félagslega íbúðakerfisins mistök Forsætisráðherra viðurkenndi í gær að einkavæðing félagslega íbúðakerfisins hafi verið mistök. Hún upplýsti jafnframt að þegar hefði verið lagður grunnur að kaupleigukerfi hjá Íbúðalánasjóði. 5.10.2010 12:33
Hrina mótmæla vegna niðurskurðar á landsbyggðinni Hávær hrina mótmæla er hafin í þeim byggðum á landsbyggðinni sem þurfa að taka sig stórfelldan niðurskurð í heilbrigðisþjónustu. Á Húsavík er búið að boða til borgarafundar á fimmtudag. 5.10.2010 12:23
Aftur boðað til mótmæla Hópurinn sem boðaði til mótmæla gærkvöldsins hvetur fólk til þess að mæta á Austurvöll á ný í dag. Þingfundur hefst klukkan tvö í dag og á Facebook síðu hópsins er bent á að umræðuefni dagsins á þingi sé fjárlagafrumvarpið. „Samkvæmt því er boðaður gífurlegur niðurskurður í heilgbrigðis- og menntamálum. Engar kjarabætur fyrir bótaþega og engar úrbætur fyrir húsnæðislánagreiðendur. Þetta þýðir að við fáum eingöngu meira af því sama þrátt fyrir það að mörg okkar erum þegar komin í þrot," segir á Facebook síðunni. 5.10.2010 12:12
Nokkrir ófriðarseggir skáru sig úr hópi friðsamra mótmælenda Stefán Eiríksson lögreglustjóri segist vera afar sáttur við framgöngu lögreglumanna í gærkvöldi. „Aðgerðirnar gengu afar vel upp. Við höfðum góða stjórn á þessu verkefni alveg frá fyrstu mínútu til hinar síðustu,“ segir Stefán í samtali við Vísi. 5.10.2010 12:00
Stefnuræða Jóhönnu í heild sinni Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hélt stefnuræðu sína á Alþingi í gærkvöldi. Hún birtist hér í heild sinni. 5.10.2010 11:26
VÍS er stærsti eigandi Pressunnar Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) er stærsti eigandi Vefpressunar ehf. með um 33% eignarhlut. Vefpressan rekur vefmiðilinn pressan.is . Aðrir eigendur eru Björn Ingi Hrafnsson (26,37%), Salt Investment (23,08%) og Arnar Ægisson (17,58%). 5.10.2010 10:53
Bíll Steingríms beyglaður og framrúðan brotin - myndir Ráðherrabíll Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra er töluvert skemmdur eftir mótmæli gærkvöldsins. Hópur mótmælenda umkringdi ráðherrann þegar hann ók frá Alþingishúsinu að þingfundi loknum. 5.10.2010 10:42
Fasískir fánar og jarðvegur fyrir lýðskrumara Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir upplausnarástand ríkja í íslenskum stjórnmálum og bendir á að ríkisstjórnin hefur ekki haft meirihluta fyrir stefnumálum sínum á Alþingi. „Það er líklega það sem mun sprengja þessa ríkisstjórn og enda þessa fyrstu vinstri stjórn landsins. Það er auðvitað svolítið kaldhæðnislegt ef það á að vera vinstri armur Vinstri grænna sem á endanum sprengir fyrstu stjórn landsins," segir hann. 5.10.2010 10:28
Segja Heilbrigðisstofnun Blönduóss ekki þola meiri niðurskurð Ef fer sem horfir verður heildarniðurskurður á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi á árunum 2009-2011 um 35%. Þetta segir í samþykkt starfshóps á vegum Starfsmannafélags 5.10.2010 10:05
Lifandi Tarantúlur og sporðdrekar fundust í Leifsstöð Í síðasta mánuði lagði tollgæslan í Leifsstöð hald á þrjár lifandi kóngulær af Tarantúluætt en auk þess fundust tveir Emperial sporðdrekar í farangri hjá farþega sem átti leið um flugvöllinn. 5.10.2010 09:40
Hreinsunarstarf fór fram í nótt - myndir Hreinsunarstarfsmenn eru langt komnir með að hreinsa Alþingishúsið og Austurvöll en þeir hafa verið að í níu klukkustundir. Einn þeirra sagði í samtali við ljósmyndara Fréttablaðsins að hann hefði aldrei séð annað eins. 5.10.2010 09:37
Allar innkaupakerrur í notkun í Nettó Langar biðraðir voru við alla innganga verslunar Nettó í Mjóddinni þegar hún opnaði í gærmorgun og fljótlega varð að grípa til þess ráðs að hleypa fólki inn í hópum. Það var bæði vegna þess að verslunin var að fyllast af fólki og eins vegna þess að allar innkaupakerrurnar voru komnar í notkun. 5.10.2010 08:46
BHM mótmælir skerðingu fæðingarorlofs BHM mun ekki taka þátt í framlengingu stöðugleikasáttmála á grundvelli boðaðrar láglaunastefnu eins og hún birtist í fjárlagafrumvarpi ársins 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem afstaða þess til mála er varða kjör háskólamanna á vinnumarkaði er ítrekuð. 5.10.2010 08:31
Ljósastaur fauk á mannlausan bíl Bál hvasst hefur verið í vindhviðum á höfuðborgarsvæðinu undir morgun og fauk ljósastaur um koll á Bergstaðastræti í Reykjavík. Hann lenti ofan á mannlausum bíl og skemmdi hann nokkuð. 5.10.2010 07:41
Þyrla sótti sjúkling á Snæfellsnes Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi til að koma til móts við sjúkrabíl, sem sendur hafði verið af stað frá Stykkishólmi með sjúkling, sem hafði fengið alvarlega kransæðastíflu. 5.10.2010 07:23
Bílvelta á Þrengslaveginum Bíll valt á Þrengslaveginum til Þorlákshafnar á sjötta tímanum í morgun og var ökumaðurinn fastur í bílnum eftir slysið. 5.10.2010 07:21
Sundlaugarvörður bjargaði lífi gests í Sundhöllinni Sundlaugarvörður í Sundhöllinni við Barónsstíg er talinn hafa bjargað lífi sundlaugargests, sem missti meðvitund í lauginni í gærkvöldi og sökk 5.10.2010 07:16
Þrír lögreglumenn meiddust og yfir 30 rúður brotnar Yfir þrjátíu rúður voru brotnar í Alþingishúsinu og það atað matarslettum og málningu, þegar um átta þúsund manns mótmæltu aðgerðarleysi Alþingis í málefnum almennings á Ausutrvelli í gærkvöldi. Þá var rúða brotin í Dómkirkjunni. 5.10.2010 07:09
Bankastjóri vísar gagnrýni á bug Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir það mikla einföldun hjá forsætisráðherra að benda bara á bankana þegar kemur að meintu aðgerðarleysi í skuldavanda heimilanna. 5.10.2010 06:00
Úrskurðar um varðhald í dag Dómari í Héraðsdómi Suðurlands tók sér frest í gær til að taka afstöðu til kröfu lögreglustjórans á Selfossi um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem réðst á unga konu í Hveragerði fyrir um það bil viku. Búist er við ákvörðun dómara fyrir hádegi í dag. 5.10.2010 05:15
Enn alllangt í land í Icesave-deilunni Sendinefnd AGS býst enn við að Icesave-deilunni verði lokið með samningum. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands. 5.10.2010 05:00
Tekur við Íslandi Mark Flanagan hefur gegnt starfi yfirmanns sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tæp tvö ár, en viðtekin venja er hjá sjóðnum að skipta um fólk í slíkum stöðum á tveggja til þriggja ára fresti. Við starfi hans tekur nú Julie Kozack, með aðsetur í Washington í Bandaríkjunum. Hún er væntanleg hingað til lands í tengslum við fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands. 5.10.2010 04:45
Sameiginleg nefnd stofnuð Sameiginleg þingmannanefnd Íslands og ESB verður formlega stofnuð í dag í Þjóðmenningarhúsinu. Við það tækifæri verður rætt um samskipti Íslands og ESB, um stöðu efnahagsmála á Íslandi og sjávarútvegsstefnur Íslands og ESB. Einnig um Norðurslóðir og orkumál. Ályktað verður um aðildarviðræður Íslands og ESB í lok fundar. 5.10.2010 04:30
Lífeyrisþegar hjá TR axli sjálfir ábyrgð Vonast er til að draga muni úr röngum greiðslum til lífeyrisþega Tryggingastofnunar ríkisins á næstu árum að sögn Þorgerðar Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu- og kynningarsviðs stofnunarinnar. 5.10.2010 04:00
Alnæmisleikþættir til fræðslu í Malaví Hjálparstarf Alnæmissmituðum í Malaví hefur fækkað úr 14,4 prósentum landsmanna í tólf prósent frá árinu 2007. „Það er stórkostlegt fyrir okkur að vera partur af því sem er að gerast,“ segir Þórir Ólafsson, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða kross Íslands. 5.10.2010 04:00
Þýfis enn leitað Lögreglan á Selfossi leitar enn fatnaðar sem stolið var úr verslun á Geysissvæðinu aðfaranótt laugardags 25. september. Þá nótt brutust þrír menn með hulin andlit inn í verslunina. Þeir létu greipar sópa og höfðu á brott með sér talsvert magn af verðmætum útivistarfatnaði. Þjófarnir létu ekki þar við sitja heldur komu aftur tæpri klukkustund síðar og tóku meira af fatnaði sem að megninu til er frá 66° norður. Söluvirði þess sem stolið var er á fimmtu milljón króna. Lögregla biður alla sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480 1010. - jss 5.10.2010 03:45
Óli Björn þakkar lögreglunni fyrir björgunina „Ég var staddur fyrir utan girðinguna. Það var gripið í mig og mér hent inn fyrir girðinguna. Lögreglan bjargaði mér og ég er afar þakklátur henni fyrir það" segir Óli Björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir sagði frá því í morgun að Óli Björn hafi verið fjarlægður af lögreglunni. Óli Björn segir þá fullyrðingu vera misskilning. 5.10.2010 10:38
Lögregla reynir að rýma Austurvöll Lögreglumenn reyna nú að rýma Austurvöll til þess að hægt verði að slökkva bál sem kveikt var þar fyrr í kvöld. Lögregla nýtur aðstoðar slökkviliðs höfuðborgarsvæðsins. 4.10.2010 23:25