Fleiri fréttir

Metfjöldi var á Landsmóti æskulýðsfélaga

Landsmót æskulýðsfélaga fór fram á Akureyri um helgina og tóku rúmlega sjö hundruð ungmenni þátt í mótinu í ár. Þrælabörn á Indlandi voru í brennidepli á mótinu sem var hið fjölmennasta sem haldið hefur verið.

Öryggisdagar hjá Strætó bs.

Öryggisdagar, átak sem Strætó bs. og VÍS standa fyrir næstu sex vikur, miða að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda. Átakið er liður í forvarnaverkefni sem Strætó bs. og VÍS hafa unnið saman að frá ársbyrjun 2008.

Munnmök ástæða aukningar krabbameins í munni

Munnmök eru talin orsök þess að tíðni krabbameins í munni og hálsi er orðið helmingi algengara en fyrir um 20 árum. Faraldsfræðingur segir veiru sem getur orsakað krabbameinið hafa smitast mjög víða hér á landi enda eigi Íslendingar yfirleitt fleiri rekkjunauta en gengur og gerist í öðrum löndum.

Kennir opinberum álögum um minni umferð

Miklu minni umferð mældist á vegum landsins í septembermánuði en í sama mánuði í fyrra, og hefur umferðin ekki verið minni síðan árið 2005. Formaður Félags íslenskra bifreiðareigenda kennir opinberum álögum um.

Fréttir vikunnar: Gekk berserksgang og sögulegur sigur

Fundarhöld um skuldavanda heimilanna héldu áfram í vikunni og á mánudagsmorgun voru forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna boðaðir til fundar með fimm ráðherrum í forsætisráðuneytinu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist aftur á móti ekki hafa fengið neitt fundarboð. Hann kvaðst vera tilbúinn í samstarf við ríkisstjórnina en um leið væri hann ekki tilbúinn að taka þátt í einhverju sýndarsamráði. Síðar um daginn kom í ljós að Bjarni var í raun boðaður á fundinn þegar Vísir birti tölvupóst sem sendur var til forystumanna stjórnarandstöðuflokkanna.

Útvíkka forvarnarverkefni

Strætó bs. og VÍS munu næstu sex vikur standa fyrir Öryggisdögum, átaki sem miðar að því að fækka slysum í umferðinni og auka öryggi vegfarenda. Átakið er liður í forvarnarverkefni sem fyrirtækin hafa unnið saman að frá ársbyrjun 2008 og hefur leitt til fækkunar umferðaróhappa hjá Strætó, að því er fram kemur í tilkynningu. Með Öryggisdögum er verkefnið útvíkkað þannig að allir þátttakendur í umferðinni eru hvattir til að sýna aðgát, tillitssemi og ábyrga hegðun á götum úti.

Undrast stefnubreytingu Jóhönnu

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, undrast það sem hann kallar 180 gráðu stefnubreytingu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, kemur kemur að skuldamálum heimilanna og hugmyndunum um niðurfærslu lána.

Björn Valur tekur gagnrýni ungliðanna alvarlega

Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, tekur gagnrýni ungliðahreyfingar flokksins alvarlega. Hann hefði kosið að ungliðarnir kynntu sér betur forsendur málsins. Björn Valur hefur óskað eftir fundi með forystumönnum hreyfingarinnar.

„Á meðal lætur Jóhanna reikna“

„Innan ríkisstjórnarinnar er augljós ágreiningur um leiðir,“ segir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, í pistli á heimasíðu sinni. Hann segir ágreiningin innan VG þar sem Steingrímur J. og Ögmundur Jónasson séu á öndverðum meiði. „Þeir tala hvor gegn öðrum, á meðan Jóhanna lætur reikna. Innganga Ögmundar í ríkisstjórnina hefur gert hana óstarfhæfari en áður og er þá mikið sagt.“

Borgarstjóri spenntur fyrir Kópavogstattúi - vill sameiningu

Jón Gnarr, borgarstjóri, segir að með því að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu myndu milljarðar sparast á ári hverju. Hann vill að Reykjavík og Kópavogur fari að huga að sameiningu. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu Jóns á samskiptavefnum Facebook.

ASÍ: Ekki við okkur að sakast

„Það er stjórnmálamannanna að svara því hvort vilji er til þess að fara þessa leið eða ekki og ef stjórnvöld vilja fara hana væri nær að fjármagna hana með almennum sköttum frekar en að láta þá sem lökust hafa lífeyrisréttindin taka skellinn með lækkun réttinda,“ segir í tilkynningu um greiðslu- og skuldavanda heimilanna á vefsíðu ASÍ. Þar segir að ýmsir aðilar hafi undanfarna daga leyft sér að rangtúlka og afvegaflytja afstöðu sambandins í málinu. Nú síðast Hagsmunasamtök heimilianna.

Hefur verulegar áhyggjur af stöðu Íbúðalánasjóðs

Lántakendur hjá Íbúðalánasjóði sem eru í greiðsluerfiðleikum geta breytt láni sínu í kaupleigusamning samkvæmt frumvarpi sem ríkisstjórnin afgreiddi á föstudag. Forsætisráðherra hefur verulegar áhyggjur af stöðu sjóðsins.

Fyrrverandi ráðherra íhugaði framboð til stjórnlagaþings

Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Alþýðubandalagsins, íhugaði að gefa kost sér til stjórnlagaþings. Framboðsfrestur rennur út á mánudag og hefur framboðum rignt inn síðustu daga og hafa yfir 130 skráð sig til leiks.

Funda um leiðir

Sérfræðingahópur ríkisstjórnarinnar kemur saman í dag með fulltrúum Hagsmunasamtaka heimilanna og fleirum seinnipartinn í dag til að fara yfir útreikninga sem unnið hefur verið að um helgina. Sigurður Snævarr efnahagsráðgjafi forsætisráðherra fer fyrir hópnum.

Marinó gefur fullyrðingum Þórólfs falleinkunn

Marinó G. Njálsson, ráðgjafi og stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna, segir Þórólf Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, bregðast frumskyldu sinni sem fræðimanns. Ennfremur gefur Marinó fullyrðinum Þórólfs falleinkunn í pistli á heimasíðu sinni og heldur því áfram að gagnrýni fræðimenn sem hafa tjáð sig undanfarna daga um Hagsmunasamtök heimilanna og almenna niðurfærslu lána.

UVG kalla Össur hervaldssleikju og segja Björn Val vanhæfan

Ákvörðun utanríkisráðráðherra að undirrita samning um samstarf við Kanada í varnarmálum er pungspark í Vinstri græna og brýtur gróflega í bága við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að mati Ungra vinstri grænna. Félagið telur að Björn Valur Gíslason, þingmaður flokksins, hafi verið vanhæfur til að taka þátt í starfi starfshóps um endurskoðun á fiskveiðistjórnarkerfinu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktunum sem samþykktar voru á landsfundi UVG um helgina. Á fundinum var Guðrún Axfjörð Elínardóttir kjörin nýr formaður félagsins.

Brutu rúður og gistu fangageymslur

Tveir karlmenn voru handteknir fyrir að vinna eignaspjöll á skemmtistöðum í miðborg Reykjavíkur í nótt. Mennirnir brutu meðal annars rúður og voru ófærir um að vera á almannafæri sökum ölvunar, líkt og varðstjóri orðaði það í samtali við fréttastofu. Um tvö mál var að ræða því mennirnir svöluðu skemmdarfýsn sitt í hvoru lagi. Þeir voru fluttir á lögreglustöðina við Hverfisgötu og gistu fangageymslur í nótt.

Vann 57 milljónir

Einn heppinn lottóspilari var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og er hann rúmum 56,8 milljónum ríkari fyrir vikið. Vinningurinn kom á miða með tölunum 29, 30, 31, 33 og 34. Miðinn var seldur í Snælandi við Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði. Sjö voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar 6. Þeir fá 111 þúsund krónur í sinn hlut. Þá var einn spilari með fimm réttar tölur í réttri röð í Jokernum og er hann tveimur milljónum ríkari.

Þorbjörg Helga vill auglýsa stöðuna

Tillaga um að breyta starfi skrifstofustjóra Reykjavíkurborgar og auka völd hans verður tekin til umfjöllunar eftir helgi. Starfið verður ekki auglýst, þrátt fyrir að um eitt valdamesta embætti í borginni sé að ræða. Það er yfirlýst markmið Besta flokksins og Samfylkingarinnar að auglýsa öll störf.

Hyggst verja friðarverðlaununum til uppbyggingar skóla í Afríku

Baráttukonan og rithöfundurinn Alice Walker ætlar að verja Lennon/Ono friðarverðlaununum til uppbyggingar skóla fyrir stúlkur í Kenya. Hún segir kynþáttamismunun enn eiga sér stað í Bandaríkjunum, enda séu fleiri svartir Bandaríkjamenn í fangelsum en í háskólum landsins.

Lýst eftir 16 ára stúlku

Lögreglan höfuðborgarsvæðisins leitar að Ísold Önnu Árnadóttur. Ísold Anna er 16 ára, 165 sm á hæð með ljósskolhært millisítt hár. Hún er íklædd blárri flíspeysu og hvítri úlpu, ljósgrænum buxum og bleikum strigaskóm.

HH: Umboðsmaður skuldara mús í mannheimum

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna segist hafa verið dregin á asnaeyrunum í tvær vikur af getulausu stjórnkerfi. Stjórnin vandar stjórnmálamönnum, Samtökum atvinnulífsins, ASÍ og umboðsmanni skuldara ekki kveðjurnar á vefsíðu samtakanna. Þau segja umboðsmanna skuldra mús í mannheimum og að ASÍ hafi tekið sér stöðu með forkólfum spillingar.

Vilja fangelsi á gamla varnarsvæðinu

Vinstri grænir á Suðurnesjum fagna nýtilkomnum samningi þar sem ríkið leggur fram fé til að efla samvinnu fyrirtækja á Suðurnesjum um að þróa ný atvinnutækifæri. Félagsfundur Vinstri grænna á svæðinu hvetur atvinnurekendur á Suðurnesjum til að taka höndum saman um að efla atvinnulífið, eins og það er orðað.

Áhugasamir um gerð ísganga í Langjökli

Sérfræðingar komu nýverið á fund byggðarráðs Borgarbyggðar og kynntu hugmyndir um gerð ísganga í Langjökli. Óskuðu þeir eftir aðkomu sveitarfélagsins að undirbúningsfélagi um verkefnið. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorn.is

Ekki fávitar

Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, segir að það hafi alltaf legið fyrir að verði farið í almennar niðurfærslur lána verði hún bótaskyld. Þess vegna hafi samtökin talað fyrir þjóðarsátt. Hann gefur lítið fyrir yfirlýsingar lögfræðinga undanfarna daga og segir stjórnarmenn hjá samtökunum ekki vera fávita.

Sérhæfðaþjónustu á að veita í Reykjavík og á Akureyri

Læknaráð Landspítala telur skynsamlegt að veita sérhæfða sjúkrahúsaþjónustu á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ráðið fagnar þeirri framtíðarstefnu sem heilbrigðisyfirvöld hafa markað og snýst um að draga úr sérhæfðri sjúkrahúsaþjónustu á landsbyggðinni en efla í stað þess heilsugæslu og aðra grunnþjónustu.

Vatn sprautaðist yfir rannsóknartæki

„Það fór rör í loftinu í sundur þannig að vatn sprautaðist yfir rannsóknartæki," segir Bergur Gunnarsson, einn af umsjónarmönnum bygginga Háskóla Íslands. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út laust eftir klukkan níu í morgun vegna vatnsleka í VR-III, húsnæði verkfræðideildar skólans við Hjarðarhaga.

Góðkunningi Íslendinga slær í gegn í Ölpunum

Gamall „góðkunningi“ Íslendinga gegnir stóru hlutverki við gerð Gotthard-jarðganganna í svissnesku Ölpunum. Þetta er risaborinn TBM-1, en hann var einn þriggja risabora sem boruðu aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar, milli Hálslóns og Fljótsdals.

Formaður menntaráðs: Skólinn verður að vera hlutlaus í trúmálum

Formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar vill draga skýra línu þegar kemur að ásælni trúfélaga inn í leik- og grunnskóla. Hún fagnar drögum að ályktun sem meirihluti mannréttindaráðs borgarinnar lagði fram í vikunni sem fjallar um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir að fermingarfræðsla skuli fara fram utan skólatíma. Auk þess verða heimsóknir starfsmanna trúar- og lífsskoðunarfélag á frístundaheimili, í leik- og grunnskóla óheimilar ef ályktunin verður samþykkt.

Reikna út kostnað við aðgerðir til handa skuldugum heimilum

Sérfræðingar á vegum stjórnvalda munu um helgina reikna út hvað aðgerðir til handa skuldugum heimilum muni kosta ríkissjóð og aðra. Forsætisráðherra vonar að fyrstu skrefin liggi fyrir á næstu dögum en segir að nokkar vikur geti liðið áður en endanleg niðurstaða náist.

Pétur Blöndal: Yfirdráttur er bannorð fyrir heimili

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist vilja horfa framtíðar og að hver einasti maður einsetji sér að eftir tíu til fimmtán ár skuldi hann einungis náms- og íbúðarlán. „Menn eiga ekki að taka lán fyrir öðru.“

Segir almenna niðurfærslu vera eignarnám

Almenn niðurfærsla lána telst eignarnám, að mati Karls Axelssonar, hæstaréttarlögmanns og dósents við lagadeild HÍ. Hann segir að niðurfærslan verði að eiga sér stað með lagasetningu frá Alþingi og eigendur skuldabréfanna, þ.e kröfuhafar, verði að fá mismuninn greiddan sem bætur frá ríkinu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Slitastjórn Glitnis verði vikið frá

Fyrrverandi starfsmaður Glitnis hefur sent formlega kvörtun til dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur yfir vinnubrögðum slitastjórnar Glitnis við skýrslutöku á hennar vegum. Hefur maðurinn, sem var viðskiptastjóri hjá Glitni, krafist þess að slitastjórnarmönnuum verði vikið frá og aðrir skipaðir í þeirra stað, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

Flatskjá og verkfærum stolið

Lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um tvö innbrot í gærkvöldi þar sem brotist hafði verið í vinnuskúr og sumarbústað í Bláskógabyggð. Í Miðfellslandi var verkfærum stolið úr vinnuskúr og Skógarnesi var flatskjá og öðrum raftækjum stolið úr sumarbústað. Ekki liggur fyrir hvenær innbrotin áttu sér stað.

Ölvaðir í kappakstri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði tvo ökumenn sem voru í kappakstri á Suðurlandsbraut í Reykjavík á þriðja tímanum nótt. Mennirnir voru færðir á lögreglustöðina við Hverfisgötu eftir að í ljós kom að þeir óku báðir undir áhrifum áfengis og auk þess án réttinda. Mennirnir eru báðir 22 ára.

Ók undir áhrifum á ljósastaur

Ungur ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að bifreiðin hafnaði á ljósastaur í Reykjanesbæ skömmu eftir miðnætti. Hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn gisti fangageymslu í nótt og verður yfirheyrður síðar í dag. Bifreiðin er töluvert skemmd, að sögn varðstjóra.

Upplifðu reynsluheim blindra

Dagur hvíta stafsins, alþjóðlegur baráttudagur blindra og sjónskertra, var í gær og stóð Blindrafélagið fyrir margvíslegri dagskrá í tilefni dagsins.

Uppgreiðsla lána rædd

Marel á í formlegum viðræðum við takmarkaðan fjölda alþjóðlegra banka um hagkvæmari fjármögnun fyrirtækisins til lengri tíma litið. Í tengslum við fyrirhugaða fjármögnun mun Marel hefja viðræður við eigendur skuldabréfa um hugsanlega uppgreiðslu lána, að því er fram kemur í tilkynningu.

Sjá næstu 50 fréttir