Fleiri fréttir

Flokksstjórn í startholunum

Búist er við að flokksstjórn Samfylkingarinnar verði kölluð saman með skömmu fyrirvara í tengslum við fyrirhugaða uppstokkun á ríkisstjórninni. Til stendur að fækka ráðherrum um tvo.

Oddný: Veit ekki hvort ég verð ráðherra

„Það hef ég ekki hugmynd um,“ segir Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, aðspurð hvort hún taki senn sæti í ríkisstjórn. „Ég heyrði þetta bara í féttunum.“

Samningaviðræðunum verið slitið

Stjórn Ungra vinstri grænna skorar á ríkisstjórnina að slíta nú þegar öllum samningaviðræðum við hollenska hernaðarfyrirtækið ECA um að það fái leyfi til að halda uppi starfsemi á Íslandi.

Hélt að Össur væri að tala um tollhliðið á Seltjarnarnesi

„Fékk nett sjokk, hélt hann væri að tala um mig og tollahlið á Seltjarnarnes. Fjúkkitt,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri, í dagbókarfærslu á samskiptasíðunni Facebook í kvöld. Þar vísar Jón til fréttar á Vísir.is þar sem Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, gagnrýnir harðlega Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, vegna tollmúrs á innfluttar landbúnaðarvörur. „Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði,“ er fyrirsögn umræddrar fréttar.

Lögregla skoðar myndasafn í tengslum við morðið

Fáeinum dögum eftir morðið á Hannesi Þór Helgasyni fékk lögregla afrit af myndasafni Víkurfrétta frá fjölskylduhátíð í Vogum sem fór fram kvöldið fyrir morðið. Á einni myndanna sést Hannes Þór standa einn fyrir aftan unnustu sína. Víkurfréttir greina frá þessu í dag. Þar segir ennfremur að lögregla hafi fengið aðgang að myndunum „með það fyrir augum að finna hugsanlegan morðingja á myndunum."

„Ætli við þurfum ekki að drepast til að hætta“

Þjóðin getur tekið gleði sína á ný því í dag var gengið frá því að gömlu, góðu heimilisvinirnir Ragnar Reykás, Kristján „heiti ég" Ólafsson og Geir og Grani verði áfram í sjónvarpi, en nú á Stöð 2.

Össur þögull

„Þú hefur alltaf haft betri heimildir en ég. Ég rengi það ekki,“ sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, við fréttamann þegar hann kom út af fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur í forsætisráðuneytinu í kvöld.

Beinagrind steypireyðarinnar á Skaga bjargað

Umhverfis- og menntamálaráðherra fengu samþykkta tveggja milljóna króna fjárveitingu á ríkisstjórnarfundi í morgun til að bjarga beinagrind steypireyðarinnar sem rak á land á Skaga fyrir norðan á dögunum.

Össur: Tollmúrar Jóns algert brjálæði

Tollmúrar Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra á innfluttar landbúnaðarvörur eru algert brjálæði, segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, og hvetur hann til að endurskoða ákvörðun sína.

Katrín Júlíusdóttir: Ekki með von í brjósti

„Það hefur blasað við að breytingar yrðu gerðar á kjörtímabilinu í tengslum við hugsanlegar breytingar á Stjórnarráðinu. Vonandi erum við að sjá í land með þær og það felur auðvitað í sér breytingar,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, áður en hún gekk í Stjórnarráðshúsið á sjöunda tímanum í kvöld.

Afli Samherja hjá ESB

Dótturfélög Samherja eru með þúsundir eða tugi þúsunda tonna veiðiheimilda innan Evrópusambandsins. Aflaheimildir dótturfélaganna í útlöndum eru margfalt meiri en móðurfélagið hefur á Íslandi.

Ragna og Gylfi hætta

Stokkað verður upp í ríkisstjórninni á næstu dögum, jafnvel strax á morgun eða þegar þing kemur saman á fimmtudag. Ráðherrum verður fækkað um tvo.

Segir tímann vinna með Íslendingum í Icesave-deilunni

Tíminn vinnur með Íslendingum í Icesave-málinu, segir fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá EFTA. Málsmeðferð fyrir EFTA-dómstólnum er sjaldan meiri en 6 til 7 mánuðir, samkvæmt athugun á vef dómstólsins, eða minna en helmingurinn af þeim tíma sem liðinn er síðan fyrst var samið um Icesave.

Umfangsmikil leit að neyðarsendi sem fannst í ruslinu

Landhelgisgæslan og samstarfsaðilar stóðu fyrir mikilli leit að neyðarsendi frá sunnudegi og fram á mánudag eftir eftir að neyðarskeyti hófu að berast frá sendi sem ekki var lengur í notkun. Við eftirgrennslan kom í ljós að honum hafði verið skilað inn til þjónustuaðila sem ekki fór með hann strax til förgunar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Gæslunni.

Barnaspítalasjóður Hringsins fær ekki arfinn

Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í júlí í deilu um arf til Barnaspítalans. Landspítalinn fær arfinn samkvæmt erfðaskrá.

„Ríkisendurskoðun fór óvarlega í fyrirsagnirnar“

„Við urðum strax vör við það að nemendur og starfsfólk höfðu samband og óttuðust að hér væri allt á hausnum. Að sjálfsögðu er ekki svo og mér finnst Ríkisendurskoðun hafa farið óvarlega í fyrirsagnirnar sem höfðu ekki alltaf innistæðu,“ segir Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri Keilis og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, en honum finnst framsetning skýrslu Ríkisendurskoðunar heldur hörð og ekki lýsa starfi skólans rétt.

Fiskverð hagstætt - mjölverð enn hagstæðara

Verð á íslenskum sjávarafurðum, meðaltal allra afurðaflokka, mælt í erlendri mynt, hækkaði um 1,5 prósent í júlí síðastliðnum. Þetta byggir á útreikningi IFS miðað við tölur um framleiðsluverð í júlí sem Hagstofan birti fyrir helgi.

Spaugstofan á Stöð 2

Spaugstofan mun verða á Stöð 2 í vetur en fyrsti þátturinn verður sýndur laugardaginn 8. október. Spaugstofan var í tuttugu ár í Ríkissjónvarpinu en sýningum var hætt vegna niðurskurðar.

Óvíst að það sé rekstrargrundvöllur fyrir Keili

Ríkisendurskoðun telur alls óvíst hvort það sé rekstrargrundvöllur fyrir starfsemi Keilis ehf., sem er í Reykjanesbæ. Í úttekt Ríkisendurskoðunar á skólanum kemur fram að í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 milljónir og skuldir 463 milljónir.

Bakktjón algengasta umferðartjónið

Bakktjón (ekið afturábak) er algengarsta orsök umferðartjóna hér á landi eða 31 prósent allra tjóna samkvæmt nýrri skýrslu frá Sjóvá fyrir árið 2009.

Slökkviliðsmenn samþykktu nýjan kjarasamning

Kjarasamningur slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við launanefnd sveitarfélaga var samþykktur naumlega í atkvæðagreiðslu sem lauk um hádegi í gær. Samningurinn var því samþykktur naumlega og boðuðum verkfallsaðgerðum hefur verið aflýst.

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir Gunnar Rúnari

Hæstiréttur hefur staðfest fjögurra vikna gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir Gunnari Rúnari Sigurþórssyni, 23 ára, sem grunaður er um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana á heimili hans aðfaranótt 15.ágúst síðastliðinn.

Bandaríski herinn snýr aftur

Flugsveit frá bandaríska flughernum sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 6. - 24. september. Sveitin er hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Síbrotamaður tekinn úr umferð

Ungur ökumaður var nýverið stöðvaður eftir að hafa mælst á 117 kílómetra hraða innanbæjar á Selfossi, þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund.

BHM: Miðstjórn leggst alfarið gegn frekari framlögum til Framtaks

Miðstjórn Bandalags háskólamanna leggst alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna sinna til Framtakssjóðs Íslands. Í ályktun miðstjórnar segir að af gefnu tilefni geri hún þá kröfu til Framtakssjóðs Íslands, að hann sýni með óyggjandi hætti fram á að fjárfestingar hans fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins.

Fundu spænskan ferðamann

Björgunarsveitarmenn frá Hellu fundu í gærkvöldi spænskan ferðamann á bílaleigubíl, sem hafði orðið bensínlaus inni á hálendinu i fyrrinótt.

Síðbúin hitabylgja á leiðinni

Hiti fer nú vaxandi um norðan- og austanvert landið en þar um slóðir stefnir í síðbúna hitabylgju með allt að 20 stiga hita næstu sólarhringana.

Nýtt kvótaár á miðnætti

Einskonar gamlársdagur er í íslenskum sjáavrútvegi í dag, því nú er síðasti dagur kvótaársins og nýtt kvótaár gengur í garð á miðnætti með nýjum aflaheimildum, eða kvótum.

LÍÚ telur nýtt ákvæði í stjórnarskrá óþarft

Starfshópur um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins, að fulltrúum Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) undanskildum, telur aðkallandi að skýrt ákvæði verði sett inn í stjórnarskrá um að auðlindir sjávar séu eign þjóðarinnar. Mælt er með því að sjávarútvegsráðherra komi erindi þessa efnis til nýskipaðrar nefndar sem nú undirbýr stjórnlagaþing. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kemur þetta fram í drögum að niðurstöðum starfshópsins en hún skilar ráðherra skýrslu í lok vikunnar.

Uppsagnir eru eina leiðin til að hagræða

Fjöldauppsagnir eru fyrirsjáanlegar hjá Orkuveitunni, að mati fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins. Laun eru eini hagræðingarkosturinn. Hundrað starfsmenn kosta 650 milljónir en boðaður er niðurskurður upp á tvo milljarða.

Endurgreiði ferð sem aflýst var í eldgosinu

Ferðalangur sem keypti pakkaferð til Berlínar í apríl í vor á að fá alla ferðina endurgreidda en ekki aðeins flugið eins og Expressferðir vildu. Þetta er niðurstaða Neytendastofu.

Fréttaskýring: Skattar á bíla taka mið af umhverfinu

Fjármálaráðuneytið er að leggja lokahönd á breytingar á skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Grundvallarbreyting er í vændum. Hugmyndir Bílgreinasambandsins um afskriftir eldri bíla og afslátt af nýjum koma ekki til greina.

Funda aftur eftir mánuð

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fundaði í gær um stöðu álversuppbyggingarinnar í Helguvík með fulltrúum Norðuráls, orkufyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Þar krafðist ráðherra útskýringa á því hvað það væri sem tefði verkefnið. Óvissan um málið væri óþolandi fyrir þá sem byggja svæðið.

Grunaður morðingi verður brátt yfirheyrður

Sakborningur í morðmálinu í Hafnarfirði verður tekinn til yfirheyrslu síðar í þessari viku, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu. Hinn grunaði situr í gæsluvarðhaldi og einangrun á Litla-Hrauni.

Biðja ökumenn að sýna aðgát

Umferðarljós á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar verða óvirk frá klukkan tíu í dag og í um klukkustund meðan á endurbótum stendur. Á meðan verður umferðarstjórn í höndum lögreglu.

Styttist í samkomulag

Hollenska fyrirtækið ECA Programs bíður enn ákvarðana íslenskra stjórnvalda um hvort fyrirtækinu verði leyft að skrá herþotur hér á landi. Fram kemur á vef Financial Times í kvöld að ekki sé langt í að stjórnvöld veiti fyrirtækinu leyfi til að starfa á Keflavíkurflugvelli. Til stendur þó að setja fyrirvara við samkomulagið og þá er fullyrt í fréttinni að málið verði fyrst borið undir bandaþjóðir Íslands í Atlantshafsbandalaginu.

Prestar grétu og báðust fyrirgefningar

„Þetta var dýrmæt reynsla og ég þakka þessum konum af alhug fyrir yfir höfuð nenna að tala við okkur eftir allan þennan tíma og eftir alla þessa þögn. Þær sögðu okkur frá sársauka okkar og reiði og í þetta skipti stóðu prestarnir ekki uppi og héldu langar ræður heldur lærðu. Ég held að við höfum öll lært eitthvað og ég er gríðarlega þakklát fyrir það,“ segir Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholti.

Var með unnustu Hannesar um nóttina

Gunnar Rúnar Sigþórsson sem nú situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana, var með unnustu Hannesar nóttina örlagaríku. Hann var ekkert yfirheyrður um helgina

Ók undir áhrifum fíkniefna

Brotist var inn í bifreið í Miðtúni í Reykjavík í kvöld og smámunum stolið. Þá barst lögreglu tilkynning að skemmdir höfðu verið unnar á bifreið við Skúlagötu sem erlendir ferðamenn höfðu á leigu.

Sjá næstu 50 fréttir