Fleiri fréttir

Krefjast skýringa á ummælum lögreglu

Ummæli Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, sem hann lét falla í samtali við DV í gær, hafa sætt mikilli gagnrýni. Segir Björgvin um fjölda nauðgana í landinu að „fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér“.

Brugg og smygl eykst með hærri sköttum

neytendur Helmingur fólks á aldrinum 18 til 29 ára verður var við meira heimabrugg og smygl á áfengi nú heldur en áður. Meira en helmingur fólks kaupir annaðhvort minna áfengi eða ódýrari tegundir.

Sjálfstæðisflokkur fylgir væntingum

Væntingavísitalan, sem Capacent Gallup mælir reglulega, virðist samkvæmt samanburði sem sjá má á vef Datamarket haldast þétt í hendur við fylgi Sjálfstæðisflokksins, að minnsta kosti síðustu árin. Stjórnmálafræðingur segir erfitt að svara því hvort um tilviljun sé að ræða eða raunverulega fylgni.

Niðurstaða um mánaðamót

Nefnd sem fjallar um lögmæti kaupa sænsks dóttur­félags kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy á HS Orku hefur fengið frest til að skila niðurstöðum til mánaðamóta.

BSRB fagnar frumvarpi

BSRB fagnar því að samkvæmt mjólkurfrumvarpi Jóns Bjarnasonar, landbúnaðarráðherra, fá bændur aukið svigrúm til heimavinnslu. BSRB vill þó að heimildirnar verði auknar enn frekar.

Ríkið gæti komið út í plús af siglingunum

Þrátt fyrir að áætlaður árlegur kostnaður Vegagerðarinnar við siglingar milli lands og Vestmannaeyja aukist með nýrri Landeyjahöfn er ekki loku fyrir það skotið að heildarkostnaður lækki, því ríkisstyrkir vegna áætlanaflugs til Eyja hafa verið aflagðir.

Porsche traktor bætist í safnið

Appelsínugulur, þýskur Porsche traktor, árgerð 1956, er nýjasti sýningargripur Búvélasafnsins á Grund í Reykhólahreppi. Þetta kemur fram á vefsíðu hreppsins.

Dugleg börn fá hærri laun

Börn sem eru dugleg að læra á leikskólum eru að jafnaði með hærri laun við 27 ára aldur en börn sem ekki sýna sömu framþróun á leikskólanum. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar vísindamanna við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.

Vill skoða niðurskurðarlistann

Frekar en að fara í skattahækkanir á að skoða hugmyndir ríkisstjórnarinnar um mögulegan niðurskurð í ríkiskerfinu, segir þingmaður Samfylkingar, Magnús Orri Schram.

Fjórir árekstrar á 70 mínútum

Þriggja bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi við Lyngholt í Hvalfjarðarsveit á sunnudagseftirmiðdag. Áreksturinn var eitt fjögurra umferðar­óhappa sem voru tilkynnt til lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum á sjötíu mínútna tímabili á sunnudag.

Finnst mikil hætta skapast

„Mér finnst mikil hætta skapast með því að hefja rannsóknir á einstaklingum án þess að rökstuddur grunur liggi fyrir og færa okkur óþægilega nálægt aðferðum lögregluríkja svokallaðra."

Ökumaður slasaðist alvarlega

Ökumaður jepplings hálsbrotnaði þegar hann missti stjórn á bílnum og valt ofan í gil við Skaftatunguveg skammt frá bænum Gröf í gær.

Gefa stofnfrumur til útlanda

„Nú þegar hafa þrír íslenskir blóðgjafar gefið stofnfrumur til óskyldra einstaklinga úti í heimi,“ segir Sveinn Guðmundsson yfirlæknir Blóðbankans. Hann tekur fram að skráðir stofnfrumugjafar um heiminn séu að minnsta kosti tólf milljónir og Íslendingar séu um þúsund þeirra.

Útlit fyrir að botninum sé náð í smásöluverslun

Velta í dagvöruverslun dróst saman um 2,4 prósent í júlí borið saman við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Þetta kemur fram í nýjum tölum um smásölu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar við Háskólann á Bifröst. Tölurnar benda til þess að botninum sé náð í smávöruverslun.

Vilja ráðherra á fund vegna Norðlingaölduveitu

Þrír þingmenn úr stjórn og stjórnarandstöðu vilja að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra komi á fund iðnaðarnefndar til að ræða áform um stækkun friðlands í Þjórsárverum.

Morðið í Hafnarfirði: Æskuvinur unnustunnar í haldi lögreglu

Maðurinn sem er í haldi lögreglu grunaður um aðild að morðinu á Hannesi Helgasyni aðfararnótt sunnudags tengist unnustu Hannesar, að því er heimildir fréttastofu herma. Þau hafa þekkst frá því í æsku. Lögregla ákveður í dag hvort krafist verði gæsluvarðhalds manninum.

Vildi ekki hleypa slökkviliðsmönnum að eldsvoða

Slökkviliðið í Hafnarfirði var kallað út vegna eldsvoða á geymslusvæði í Hafnarfirði um klukkan sjö í kvöld. Það var vegfarandi sem tilkynnti um þykkan svartan reyk sem lagði frá svæðinu, sem er nálægt Álverinu í Straumsvík.

Var stunginn margsinnis í rúminu

Áverkar á líki mannsins, sem fannst látinn á heimili sínu í hafnarfirði í gær, benda til þess að hann hafi verið stunginn oftar en einu sinni með eggvopni.

Gefa þyrstum íbúum Akurholts Latabæjarvatn

Hafnfirska vatnsfyrirtækið, Nordic Water, hefur gefið Hönnu Björk Kristinsdóttur og fjölskyldu LazyTown Go Water í ljósi vatnsskorts sem fjölskyldan hefur þurft að búa við í Úlfarsfellinu.

Hefðu hugsanlega átt að upplýsa fleiri

Seðlabanki Íslands telur að hann hefði hugsanlega átt að upplýsa forsætisráðuneytið, fjármálaráðuneytið og Fjármálaeftirlitið um lögfræðiálit sem lögmannsstofan Lex vann fyrir bankann í fyrrasumar og laut að gengistryggingu lána. Þetta kemur fram í svari Seðlabankans til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.

Réttað yfir níumenningum snemma í fyrramálið

Fyrirtaka fer fram í máli svokallaðra níumenninganna í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Sakborningarnir hafa meðal annars verið ákærðir fyrir árás á Alþingi í desember 2008 sem og að slasað þingvörð.

Dældu saur út í vatnsverndarsvæðið á Þingvöllum

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands ætlar að áminna fyrirtækið sem dældi saur út í vatnsverndarsvæðið á Þingvöllum. Formaður Þingvallanefndar segir afhæfi starfsmanna fyrirtækisins óafsakanlegt.

Morð í Hafnarfirði: Unnustan kom að hinum látna

Rannsókn lögreglu á manndrápi sem átti sér stað í heimahúsi við Háaberg í Hafnarfirði í gær heldur áfram og er mjög umfangsmikil. Hinn látni hét Hannes Þór Helgason, fæddur árið 1973.

Erfitt að fá magnýl

Verkjalyfinu magnýl er ekki dreift hérlendis þessa dagana, samkvæmt upplýsingum frá Hjördísi Árnadóttur, upplýsingafulltrúa Actavis, sem hefur framleitt lyfið fyrir íslenska markaðinn.

Deila enn um Eyjafjallajökul

Flugfélög víða um heim deila enn við þúsundir farþega sem strönduðu á flugvöllum þegar askan úr Eyjafjallajökli dreifðist um himinhvolfin í apríl.

Gylfi nýtur áfram stuðnings

Þingflokksfundi Samfylkingarinnar lauk nú á fjórða tímanum en á fundinum var staða Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra meðal annars rædd.

Hátt i 900 manns starfa hjá þekkingarsetrum

Efnahags- og menningarleg áhrif þekkingarsetra hér á landi eru umtalsverð. Hátt í 900 manns starfa í setrunum og heildartekjur þeirra í fyrra námu um fimm milljörðum króna. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í

Veita Pakistönum neyðaraðstoð

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda 1.2 milljónir króna úr neyðarsjóði samtakanna til hjálparstarfsins á flóðasvæðunum í Pakistan. Upphæðin dugar til að sjá 500 fjölskyldum fyrir nauðþurftum í tíu daga, eftir því sem fram kemur i fréttatilkynningu.

Steingrímur ætlar að halda áfram

Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, ætlar að halda áfram starfi sínu sem forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Hann lítur ekki svo á að með því að skipa nýja stjórn yfir Sjúkratryggingum sé heilbrigðisráðherra að reyna að bola sér úr starfi.

Reyndu að sturta grasinu niður

Par var handtekið í fjölbýlishúsi á Selfossi í síðustu viku grunað um dreifingu fíkniefna. Um sextíu grömm af marijúana fannst í íbúðinni og hafði því verið pakkað í sölueiningar. Þegar að lögreglan fór inn í íbúðina var eigandinn í óðaönn að týna það ofan í klósettið en tókst ekki að koma því undan. Parið var flutt á lögreglustöð og dvaldi þar yfir nótt á meðan rannsókn fór fram.

Kennarar styðja slökkviliðsmenn

Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það sé ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.

Búið að slökkva í Hörpu

Greiðlega gekk að slökkva eldinn sem kom upp suðurhlið tónlistarhússins Hörpu í morgun og er slökkvistarfi lokið, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Eldurinn kom upp í plasti og barst svo í timbur en tjón var minniháttar.

Eldur í Hörpu

Tilkynnt var um eld í Hörpu fyrir fáeinum mínútum. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið sent á staðinn. Mikinn reyk leggur frá húsinu og er töluverður eldur í suðurhlið hússins, samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur frá slökkviliðinu.

Atlaga gerð að forstjóra Sjúkratrygginga

Það á augljóslega að gera fleiri atlögur að forstjóra Sjúkratrygginga, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem nú á sæti í heilbrigðisnefnd Alþingis. Fréttablaðið greindi frá því í dag að Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefði sett af stjórn Sjúkratrygginga. Stutt er síðan að Álfheiður hugðist áminna Steingrím Ara Arason, forstjóra stofnunarinnar, en hætti við eftir umfjöllun fjölmiðla.

Nafn mannsins sem var myrtur

Maðurinn sem fannst látinn á heimili sínu í Hafnarfirði í gærdag hét Hannes Helgason. Honum var ráðinn bani með eggvopni og er morðingjans nú leitað. Hannes var framkvæmdastjóri sælgætisgerðarinnar Góu, hann var fæddur árið 1973 og bjó hann einn.

Rugluðust á milljarði og milljón

Icelandair Group birti í gærkvöldi leiðréttingu á ensku útgáfu uppgjöri annars ársfjórðungs en félagið birti uppgjörið á föstudaginn síðastliðinn. Á heimasíðunni í gær var sagt frá því að tap félagsins eftir skatta hafi numið 161 milljónum króna en ekki 161 milljarði eins og var sagt á föstudaginn.

Minnast látinna fóstra

Árleg minningarathöfn vegna fósturmissis verður haldin í Bænhúsi við Fossvogskirkju á miðvikudaginn klukkan fjögur. Þessi minningarathöfn var fyrst haldin árið 1995. Sjúkrahúsprestar og djákni Landspítalans sjá um athöfnina í samvinnu við starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma.

Morð í Hafnarfirði: Margir yfirheyrðir en óljóst um málsatvik

Rannsókn á manndrápi í Hafnarfirði hefur verið í fullum gangi frá því tilkynnt var um atburðinn laust fyrir hádegi í gær en maður á fertugsaldri fannst látinn á heimili sínu og hafði honum verið ráðinn bani með eggvopni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér tilkynningu vegna málsins um miðnætti í gær. Þá höfðu fjölmargir verið yfirheyrðir auk þess sem unnið hefur verið úr gögnum sem aflað var með tæknirannsókn á vettvangi. Þegar tilkynningin var send höfðu yfirheyrslurnar ekki enn leitt til þess að ljóst sé orðið um málsatvik. Rannsókn málsins heldur því áfram.

Ráðherra vill innra eftirlit og rýmri heimildir lögreglu

Lögreglumál Lögreglan mun fá heimildir til að rannsaka einstaklinga án þess að grunur leiki á að þeir hafi framið eða ætli að fremja ákveðið brot nái fyrirætlanir Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra, fram að ganga.

Allt að 2 vikna bið eftir heimilislækni

Allt að tveggja vikna bið er eftir tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir, samkvæmt óformlegri könnun Fréttablaðsins. Íbúar í sumum hverfum komast strax að en aðrir geta þurft að bíða lengi.

Heilbrigðisráðherra setur stjórn Sjúkratrygginga af

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur sett af stjórn Sjúkratrygginga Íslands og skipað stofnuninni nýja stjórn sem alfarið er skipuð nýju fólki. Fráfarandi stjórnarformaður segir ráðherra tortrygginn í garð stofnunarinnar, en ráðherra segist vilja færa hana nær ráðuneytinu. „Ég held að meginástæðan sé almenn óánægja [heilbrigðisráðherra] með þessa stofnun, og tortryggni í garð stofnunarinnar, eins og fram kom í vor þegar hún ætlaði að veita forstjóranum áminningu,“ segir Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi stjórnarformaður stofnunarinnar.

Krefja Gylfa frekari svara um lánamálin

„Frá mínum bæjardyrum séð skiptir mestu að fá svör við því hvaða upplýsingar lágu fyrir þegar gengið var frá uppskiptingu gömlu ríkisbankanna. Hvernig menn voru undirbúnir þar,“ segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingar og varaformaður viðskiptanefndar Alþingis.

Hátíðargestur bitinn til blóðs

Maður var bitinn til blóðs á veitingastaðnum í Kántrý­bæ um helgina og var fluttur á sjúkrahúsið á Blönduósi til aðhlynningar. Þetta var eitt af þeim málum sem komu upp á Kántrýhátíð á Skagaströnd um helgina, þar sem nokkuð var um pústra manna á milli, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi.

Góði hirðirinn gaf sjö og hálfa milljón

„Við erum komin langleiðina að takmarkinu með þessari peningagjöf og erum alveg gríðarlega þakklát,“ segir Vilmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Reykjadals, um peningagjöf Góða hirðisins, styrktarsjóðs Sorpu, upp á sjö og hálfa milljón króna. Gjöfin var afhent á sumarlokahátíð sumarbúðanna í Reykjadal í gær.

Sjá næstu 50 fréttir