Innlent

Morðrannsókn: Farið fram á gæsluvarðhald yfir grunuðum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manni á þrítugsaldri sem er grunaður um morðið á Hannesi Þór Helgasyni sem var ráðinn bani 15 ágúst.

Maðurinn hefur áður verið handtekinn og yfirheyrður vegna málsins og haft réttarstöðu grunaðs.

Ný gögn í málinu gerðu það að verkum að rökstuddur grunur er talinn vera fyrir hendi um að hann eigi aðild að andláti Hannesar. Í kjölfar handtökunnar nú var gerð ítarleg húsleit á heimili mannsins og hald lagt á muni sem þar var að finna og tengjast hugsanlega rannsókninni.

Ekki er unnt að greina nánar frá þessum nýju gögnum að öðru leyti en því að þau eru árangur vettvangsvinnu tæknideildar lögreglunnar.

Niðurstöður úr lífsýnum sem send voru til Svíþjóðar liggja ekki fyrir en hugsanlegt er að einhverjar bráðabirgðaniðurstöður liggi fyrir jafnvel í næstu viku.

Krafist verður gæsluvarðhalds yfir manninum síðar í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×