Fleiri fréttir

Mesta verðstríð í sjö ár

„Það hafa komið tímabundnar verðsamkeppnir áður,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB um verðstríðið sem hefur geisað á eldsneytismarkaðnum undanfarnar vikur en verð á eldsneyti hefur snarlækkað síðan Orkan reið á vaðið og lækkaði bensíni og dísil olíu langt niður fyrir 190 krónur.

Slökkviliðsmenn greiða atkvæði um verkfallsboðun

Kjararáð Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur ákveðið að halda atkvæðagreiðslu á meðal slökkviliðsmanna um hvort boða skuli til verkfalls. Þá verður skorið úr um það hvort slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fari í verkfall en þeir hafa verið samningslausir síðan 31. ágúst á síðasta ári.

Mannabein fundust á Kili

Guðmundur A. Guðmundsson dýravistfræðingur fann á dögunum bein á Kili sem hann ályktar að sé úr höfuðkúpu manns. Fjallað er um málið á skagfirska fréttamiðlinum Feyki en Guðmundur mun hafa tilkynnt fundinn til lögreglu. Að sögn Guðmundar sagðist hann hafa grunað strax að um mannabein sé að ræða og síðan hafi hann fengið það staðfest hjá læknanema að svo sé að öllum líkindum. Endanlegrar staðfestingar er þó enn beðið.

Skeljungur hækkar líka

Skelungur hefur fylgt í fótspor Olís og hækkað eldsneytisverð hjá sér um tólf krónur. Algengasta verð fyrir 95 oktana bensín á stöðvum félagsins er nú um 201 króna og dísellítrin kostar tæpar 200 krónur. Olís reið á vaðið eins og áður sagði og hækkaði í morgun verð á bensíni og dísel um 20 krónur á lítra.

Braut glerflösku á höfði og skerti heyrn

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann á að hafa slegið annan mann með glerflösku í maí á síðasta ári.

Lilja: Gylfi hefur staðið í vegi fyrir aðgerðum

Viðskiptaráðherra hefur staðið í vegi fyrir aðgerðum í þágu skuldsettra heimila segir formaður viðskiptanefndar sem harmar aðgerðarleysi stjórnvalda. Hún segir að samfélagið muni loga í lögsóknum ef einstaklingar verði látnir um að greiða úr ágreiningi. Það muni seinka endurreisninni.

Sjö hvolpar hjálpa lögreglunni

Sjö hvolpum hefur nú verið komið fyrir á heimilum þar sem þeir fá hefðbundið uppeldi og verða undirbúnir undir að starfa með lögreglunni í fíkniefnaleit. Á síðustu árum hafa embættin flutt inn sérvalda hunda frá viðurkenndum vinnuhundaræktendum á Englandi og í Noregi. Þjálfun, búnaður og færni hundaþjálfara og hunda er í hæsta gæðaflokki og stenst samanburð við nágrannalöndin.

Dómur þyngdur yfir Barðastrandaræningjunum

Hæstiréttur Íslands þyngdi dóma yfir Barðastrandaræningjunum um eitt ár í morgun. Mennirnir, sem heita Axel Karl Gíslason og Viktor Már Axelsson, voru dæmdir fyrir að svipta aldraðan úrsmið á Barðaströnd á Seltjarnarnesinu frelsinu á síðasta ári auk þess sem þeir rændu hann.

Olís hækkar lítrann um 20 krónur

Olís hækkaði í morgun verð á bensíni og dísel um 20 krónur á lítra. Á vef fyrirtækisins segir að verð á bensíni og dísel sé langt undir því verði sem þarf til að standa undir eðlilegum rekstrarkostnaði. Þar segir einnig að verðið sé nú undir verði í flestum af nágrannaríkjunum. Ekkert annað félag hefur fylgt hækkuninni eftir í dag fyrir utan ÓB sem er í eigu Olís.

Barðastrandaræningjarnir fyrir Hæstarétt

Hæstiréttur Íslands dæmir í dag í máli Axels Karls Gíslasonar og Viktors Más Axelssonar sem voru dæmdir í fangelsi fyrir að ryðjast inn á heimili aldraðs úrsmiðs á Barðaströnd á síðasta ári.

Pissuðu á Stjórnarráðið á 17. júní

Þrír piltar pissuðu á dyr Stjórnarráðsins aðfaranótt 17.júní síðastliðinn. Þegar piltarnir voru að klára að kasta af sér vatninu varð lögreglan var við brotið og ætlaði að sekta piltana. Við það reyndu þeir að hlaupa í burtu upp Hverfisgötuna en þeir komust þó ekki langt þar sem lögreglan var á bíl og náði þeim fljótt. Hún náði þó aðeins tveimur piltum, sá þriðji komst undan.

Annað þjóðaratkvæði um Icesave gæti fellt stjórnina

Reuters segir að íslenska ríkisstjórnin gæti fallið eftir aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave samning. Þetta hafi komið fram í máli Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra í viðtali sem austurríska dagblaðið Der Standard birtir við ráðherrann í dag.

Mikil óvissa ríkir um framtíð hvalveiða

Mikil óvissa ríkir um afdrif málamiðlunartillögu um hvalveiðar í atvinnuskyni sem fjallað verður um á ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins sem hefst í Agadír í Marokkó í dag.

Laxá í Aðaldal opnaði í gær

Tveir stórir laxar, 22 hængur og 20 punda hrygna, veiddust í Laxá í Aðaldal í morgun, á fyrsta veiðidegi árinnar. Veiðimaðurinn var Viðar Tómasson og veiddi hann á rauða Francis-flugu. Báðum löxum var sleppt aftur.

Miðla þekkingu á milli kynslóða

„Eftir kreppuna er mikið af fjölskyldufólki sem hefur ekki efni á því að senda börnin sín á leikjanámskeið,“ segir Lovísa Arnardóttir verkefnastjóri um ókeypis leikjanámskeið Rauða krossins. Námskeiðin heita Gleðidagar – hvað ungur nemur, gamall temur. Nafnið

Hafa greitt of mikið í laun og rekstur

Fjárhaldsstjórn Álftaness hefur gert nýja fjárhagsáætlun fyrir sveitarfélagið þar sem gengið er út frá verulega auknum sparnaði á næstu árum frá því sem sveitarfélagið sjálft og endurskoðunarskrifstofan KPMG gerðu ráð fyrir í janúar.

Gæti þurft að stefna viðskiptavinunum

„Ef fjármálafyrirtækin bera fyrir sig þessar röksemdir munu þau mögulega láta reyna á þær fyrir dómstólum og fá úr því skorið hvernig samningurinn eigi að vera,“ segir Ólafur Rúnar Ólafsson, héraðsdómslögmaður hjá Pacta lögmönnum. Lögfræðingar eru ekki sammála um túlkun dóms

Fyrsta skref sameiningar

Sumarið verður nýtt í að stofna net sem verður nokkurs konar yfirhattur yfir alla fjóra opinberu háskólana. Hugmyndir um sameiningu Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík náðu ekki fram að ganga. Þess í stað verður samstarf allra skólanna stóraukið.

Íbúi Flateyjar kærði kosningarnar

Endurtaka þarf sveitarstjórnarkosningar í Reykhólahreppi þar sem nefnd, skipuð af sýslumanninum á Patreksfirði, hefur úrskurðað kosningarnar ógildar. Samkvæmt niðurstöðu nefndarinnar lét kjörstjórn hjá líða að kynna komandi sveitarstjórnarkosningar og fyrirkomulag þeirra fyrir íbúum eyja á Breiðafirði. Íbúi í Flatey kærði framkvæmd kosninganna en þar eru sjö

Erfitt fyrir Ísland að semja

Forysta Evrópusambandsins gerir sér grein fyrir að erftitt verði að ná samningum við Íslendinga um sjávarútvegsmál í aðildarviðræðunum sem eru framundan. Efnahagsmál Evrópu áttu hug ráðamanna og fréttamanna á leiðtogafundi sambandsins.

Útilokar flata leiðréttingu

Talsmaður neytenda kallar eftir kynslóðasáttmála til að leiðrétta íbúðalán almennings. Hann segir lífeyrissjóðina eins og hverja aðra kröfuhafa, sem þurfi að deila tjóninu af fjármálakreppunni með skuldurum. Verðtryggð lán hafa hækkað um eða yfir fimmtíu prósent - síðan bankarnir fóru að veita húsnæðislán fyrir sex árum.

Dýrafjarðargöng aftur á blað

Dýrafjarðargöng hafa á ný verið sett inn á samgönguáætlun Alþingis. Fjárveiting dugar þó ekki til framkvæmda heldur er litið á hana sem táknræna yfirlýsingu þingsins um að þessi göng séu enn á dagskrá.

Skaftárhlaup: Varað við brennisteinsmengun

Í tilkynningu frá Almannavörnum er varað við brennisteinsmengun sem helst gætir nálægt upptökum hlaupvatnsins. Fólk er varað við að vera á ferð þar sem brennisteinslyktar gætir.

Hvalveiðar ógna ESB aðildarviðræðum

Hvalveiðar Íslendinga gætu orðið þröskuldur á vegi þjóðarinnar að inngöngu í ESB samkvæmt frétt AFP fréttastofunnar í dag. Erlendir fjölmiðlar fjalla margir um hvalveiðar Íslendinga í dag en fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins hefst á mánudaginn.

Ferðamenn varaðir við hlaupi

Í tilkynningu frá Almannavörnum kemur fram að ferðamenn við Hólaskjól á Nyrða-Fjallabaki eru beðnir um að hafa vara á sér. Búast má við að flóðsins verði vart við veginn í Skaftárdal um klukkan hálf sjö.

Öryggismálum ábótavant við Silfru

Ekkert upplýsingaskilti eða varasúrefni er við vinsælasta köfunarstað Íslands, Silfru, þar sem erlendur ferðamaður lést í gær. Eftirlit með fyrirtækjum sem bjóða upp á sportköfun er ábótavant og reglugerðir úreldar. Þetta kemur fram í lokaritgerð Jónínar Ólafsdóttur landfræðings sem segir ástandið í sportköfun hér á landi afar slæmt.

Skaftárhlaup hafið

Skaftárhlaup hófst nú rétt upp úr eitt í dag. Ekki liggja fyrir upplýsingar um stærð hlaupsins eða umfang. "Það er rétt að hefjast," segir Óðinn Þórarinsson framkvæmdastjóri hjá Veðurstofu Íslands.

Ók inn í geðdeild Landspítalans

Ökumaður í annarlegu ástandi keyrði gegnum glervegg á geðdeild Landspítalans á Hringbraut í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi Sævarssyni hjúkrunarfræðingi slasaðist enginn - bíllinn fór inn um glervegg við hlið biðstofunnar og endaði inn á gólfi. Lögreglan í Reykjavík handtók ökumanninn sem gisti fangageymslur í nótt. Hann var víst illa á sig kominn og undir áhrifum. Varðstjóri hjá lögreglunni sagði ekki liggja fyrir skýringu á þessari undarlegu ökuferð.

Lést í árekstri við jeppa

59 ára gömul erlend kona, en búsett hérlendis, lést í umferðarslysi í Saurbæ í Dölum síðdegis í gær. Konan ók vélhjóli, sem lenti í árekstri við jeppa á gatnamótum á þjóðveginum á móts við bæinn Litlaholt, skammt sunnan Gilsfjarðarbrúar. Jeppanum var ekið þvert yfir gatnamótin og skall vélhjólið á jeppanum við afturhjól hans. Við höggið valt jeppinn á veginum og snerist. Ökumann og farþega í jeppanum sakaði ekki.

Kosningar í Póllandi

Pólverjar ganga að kjörborðinu í forsetakosningum í dag til að kjósa nýjan forseta í stað Lech Kacynski sem fórst ásamt 96 öðrum þegar flugvél hans hrapaði í Rússlandi hinn 10. apríl síðast liðinn. Baráttann um eftirmann hans er talin standa milli tvíburabróður hans, Jaroslaw Kaczynski og núverandi forseta pólska þingsins og starfandi forseta, Bronislaw Komorowski.

Ráðist á banka í Bagdad

Að minnsta kosti 26 manns hafa látið lífið í sjálfsmorðssprengjuárásum á banka í ríkiseigu í Bagdad. Á vef BBC kemur fram að meira en 50 manns séu særðir eftir árásirnar en tveir bílar sprungu samtímis fyrir utan bankann.

Bachelorette á Íslandi - viss um að verða ástfangin

Myndbrot úr bandaríska raunveruleikaþættinum The Bachelorette sem tekinn var upp hér á Íslandi eru komin á heimasíðu ABC sjónvarpsstöðvarinnar. Hin eftirsótta Ali sem keppendur ganga með grasið í skónum á eftir lýsir því yfir að á Íslandi muni hún verða ástfangin.

Lítil viðbrögð vegna aðildarviðræðna

Fæst ráðuneyti hafa bætt við starfsmannahald sitt vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið, og ekkert þeirra hefur keypt utanaðkomandi ráðgjöf. Þau gera ekki ráð fyrir miklum skipulagsbreytingum vegna viðræðnanna.

Banaslysið í Silfru: öndunargríman losnaði

Kafarar eru ósáttir við yfirlýsingar lögreglunnar í Árnessýslu í gær vegna banaslyssins í Silfru. Lögreglan sagði í gær að svo liti út fyrir að bilun hefði orðið í köfunarbúnaði. Vísir hefur rædd við kafara sem voru á slysstað í gær. Franski kafarinn lést þegar hann reyndi að bjarga unnustu sinni sem sat föst í helli á níu metra dýpi í gjánni.

Fimm mínútur að landa Maríulaxinum - Myndir

Laxveiði í Elliðaánum hófst klukkan sjö í morgun, og venju samkvæmt renndi borgarstjóri fyrir fyrsta laxinn. Nýi borgarstjórinn Jón Gnarr sagðist vera seinheppinn veiðimaður í opinberri dagbók sinni í gær, en það var svo sannarlega ekki að sjá í morgun. Um fimm mínútur yfir sjö hófst hann handa við veiðina, og innan við fimm mínútum síðar beit á fallegur sex punda hængur.

Maður kýldi bíl í Vestmannaeyjum

Ölvaður maður kýldi bíl í Vestmannaeyjum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var maðurinn svo ölvaður að hann vissi hvorki í þennan heim né annan. Í Reykjavík gistu fjölmargir fangageymslur lögreglunnar.

Lést í vélhjólaslysi

Erlend kona á miðjum aldri lést í vélhjólaslysi í Saurbæ í Dölum síðdegis í gær. Samkvæmt upplýsingum lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 17.30 en það varð á þjóðveginum skammt sunnan Gilsfjarðarbrúar, á móts við bæinn Litlaholt. Lögreglumenn bæði úr Búðardal og frá Hólmavík fóru á slysstað. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til. Upplýsingar um aðdraganda slyssins hafa ekki fengist en það er í rannsókn.

Risaskúta á Akureyri

Þessi fallega svarta skúta vakti athygli Björns Grétars Baldurssonar sem tók þessa mynd af skútunni. Sex manns eru í áhöfn skútunnar sem setur svo sannarlega svip sinn á bæinn. Samkvæmt Birni er skútan alltaf á ferðinni, allan ársins hring, og er blaðamaður ekki frá því að hafa séð skútuna eitt sinn sigla inn í hafnarminnið í Tassillaq á Grænlandi. Vísir þakkar Birni fallegar myndir af skútunni sem naut sín svo sannarlega vel við höfnina á Akureyri í blíðviðrinu í gær.

Sjá næstu 50 fréttir