Gæti þurft að stefna viðskiptavinunum 21. júní 2010 05:00 Aðalsteinn Egill Jónasson „
Ef fjármálafyrirtækin bera fyrir sig þessar röksemdir munu þau mögulega láta reyna á þær fyrir dómstólum og fá úr því skorið hvernig samningurinn eigi að vera," segir Ólafur Rúnar Ólafsson, héraðsdómslögmaður hjá Pacta lögmönnum. Lögfræðingar eru ekki sammála um túlkun dóms Hæstaréttar varðandi ákvörðun vaxtakjara á þeim lánum sem voru gengistryggð og dæmd ólögmæt um miðja síðustu viku. Tvö sjónarmið hafa komið fram varðandi vaxtaákvörðunina, annars vegar að miðað verði við vextina sem þegar eru skilgreindir í samningnum og er það skoðun Ólafs Rúnars og hins vegar að lánin verði leiðrétt eftir lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu þannig að vextirnir verði ákveðnir samkvæmt 4. grein laganna og miða beri við vaxtatöflu Seðlabankans um lægstu óverðtryggðu vexti. „Ég sé þetta þannig að í 18. gr. vaxtalaga er ákvæði um hvernig þetta virkar afturvirkt," segir Aðalsteinn Egill Jónasson, hæstaréttarlögmaður og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. „Að mínu mati eru brostnar forsendur fyrir samningsvöxtunum við ógildingu gengistryggingarinnar. Ef samningur um vexti og annað endurgjald, og verðtrygging er til dæmis annað endurgjald, er ógildur þá eigi uppgjör milli skuldara og kröfuhafa varðandi endurgreiðslu að miða við 4. gr. laganna. Þar er vísað í þessa Seðlabankavexti sem eru birtir samkvæmt 10. gr. vaxtalaga." Aðalsteinn segir að löggjöfin sé skýr á þessu sviði og að ákvæði 18. gr. vaxtalaga sé ætlað að koma í veg fyrir að skuldarinn hagnist. „Skuldarinn á bara að greiða þá lágmarksvexti sem miðað er við samkvæmt vaxtalögunum." Þessu er Ólafur Rúnar ekki sammála. „Flestar reglur sem heimila breytingar á samningum miða að því að verja fólk gegn ósanngjörnum einhliða samningsskilmálum," segir Ólafur Rúnar og bætir við að samningurinn sé ekki ógildur í heild. „Það er ákvæðið um gengistrygginguna sem er ógilt. Ég tel að samningurinn sé í gildi að öðru leyti. Dómurinn kveður ekki á um neitt annað. Dómurinn hljóðar ekki upp á að það eigi að breyta samningnum," segir Ólafur Rúnar en engin varakrafa var gerð þar að lútandi í málinu. martaf@frettabladid.is
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira