Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lélegur skíðavetur að baki Samtök skíðasvæða á Íslandi hafa nú að loknum vetri gert hann upp og kemur í ljós að færri skelltu sér á skíði þetta árið en árið á undan. Veturinn var misjafn eftir landshlutum en allt í allt fóru 178,548 á skíði í vetur. 5.5.2010 14:45
Facebook hópur vill Black til starfa á Íslandi Rúmlega tvö þúsund manns hafa skráð sig á Facebook síðu þar sem þess er krafist að stjórnvöld ráði Bandaríkjamanninn William K. Black til þess að veita ráðgjöf þegar kemur að því að sækja menn til saka fyrir afbrot í aðdraganda bankahrunsins. Black hefur dvalist hér á landi undanfarna daga og haldið fyrirlestra í Háskóla Íslands. 5.5.2010 14:23
Eyjafjallajökull: Nýtt kvikuskot í jöklinum Eyjafjallajökull heldur áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga að því er sérfræðingar segja en ný kvika virðist vera að þrýsta sér upp neðst í kvikurásinni. Á heimasíðu Veðurstofunnar er bent á að aukin jarðskálftavirkni hafi verið undir jöklinum frá því á mánudag. Nákvæm staðsetning skjálftanna sýnir að þeir fyrstu verða djúpt í jörðu, á um 23 km dýpi, en færast síðan upp. 5.5.2010 13:02
Vikulangt gæsluvarðhald vegna árásarinnar í Reykjanesbæ Héraðsdómur Reykjaness hefur úrskurðað tvo pilta um tvítugt í vikulangt gæsluvarðhald vegna líkamsárásar í Reykjanesbæ í fyrrakvöld. Annar pilturinn unir úrskurðinum en hinn ákvað að nýta sér frest til að lýsa afstöðu til úrskurðarins. 5.5.2010 13:01
Umferð dróst verulega saman á fyrstu mánuðum ársins Umferðin fyrstu fjóra mánuði ársins dróst verulega saman á 16 stöðum á Hringveginum þar sem talið er. Þetta jafngildir um 3,2% minnkun. Þetta er mesti samdráttur í langan tíma. Athygli vekur að fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 stóð umferðin í stað eftir að hafa aukist mjög mikið árin á undan eða um 8-14%. Örlítil aukning varð fyrstu fjóra mánuðina í fyrra. 5.5.2010 12:32
Kosningar 2010: Utankjörfundur í Laugardalshöll frá og með mánudegi Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga þann 29. maí 2010, hófst við embætti sýslumannsins í Reykjavík, Skógarhlíð 6, þann 6. apríl næstkomandi og er opin á skrifstofutíma á milli kl. 9:00 - 15:30 virka daga. Um helgar er opið frá kl. 12:00 - 14:00. 5.5.2010 11:48
Flatkökurnar skornar niður í Seðlabankanum Það er samdráttur í hagkerfi Íslendinga um þessar mundir og ljóst að allar ríkisstofnanir þurfa að bregðast við því. Þetta fengu blaðamenn að reyna þegar þeir voru viðstaddir fund með seðlabankastjóra í dag. 5.5.2010 11:45
Eyjafjallajökull: Drunurnar heyrast víða um land Veðurskyrðin sem verið hafa á landinu undanfarna daga og rakinn í loftinu virðast hafa gert það að verkum að drunurnar úr Eyjafjallajökli hafa borist mun víðar en áður. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að fólk hafi haft samband frá Vesturlandi, Suðurlandi og frá Mýrum og sagt frá drununum. 5.5.2010 11:26
FÍB gerir athugasemd við fullyrðingar um vátryggingasvik Félag íslenskra bifreiðaeigenda gerir alvarlegar athugasemdir við þá fullyrðingu samtaka fjármálafyrirtækja að gera megi ráð fyrir að 10-15% af bótagreiðslum frá tryggingafélögunum séu vegna vátryggingasvika. 5.5.2010 11:08
Úthlutað úr sjóði Bjarna Benediktssonar Úthlutað verður úr sjóðnum Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar, til rannsókna á sviði lögfræði og sagnfræði í Norræna húsinu í dag klukkan fjögur. Björn Bjarnason setur samkomuna og fulltrúar dómnefnda kynna niðurstöður og afhenda styrkina. Þá munu styrkþegar sjóðsins í fyrra, þeir Helgi Áss Grétarsson og Gunnar Þór Bjarnason, flytja ræður. Kaffiveitingar að úthlutun lokinni. 5.5.2010 10:29
„Þurfum líka að geta fætt og klætt börnin okkar“ - myndskeið „Við fáum mikið þakklæti fyrir störf okkar en við þurfum líka krónur og aura til þess að geta fætt og klætt börnin okkar," segir Guðmundur Guðjónsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá slökkviliðnu á höfuðborgarsvæðinu. 5.5.2010 10:27
Kjaramálin brenna á slökkviliðsmönnum Tugir slökkviliðsmanna hafa safnast saman fyrir utan Borgartún 30 þar sem samninganefnd þeirra fundar með viðsemjendum sínum. Þar hafa þeir meðal annars kveikt eld til þess að vekja athygli á málstað sínum. Slökkviliðsmaður sem fréttastofa ræddi segir að mönnum í stétt sinni þyki hægt ganga að semja um kaup og kjör en slökkviliðsmenn hafa verið samningslausir síðan í ágúst 2009. 5.5.2010 09:41
Eyjafjallajökull: Enn sprengivirkni í gosinu Litlar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli frá því í gær, samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Veðurstofu Íslands í morgun. Gosmökkurinn sást vel í gær en hann var töluvert dekkri en áður. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var greint frá því að ástæðuna mætti rekja til aukinnar sprengivirkni í gosinu. Búast mætti við töluverðu öskufalli næstu daga. 5.5.2010 08:50
Fundu tæki til að brugga landa Lögreglan á Selfossi fann tæki til að brugga landa í heimahúsi í Hveragerði í gærkvöld. Einungis var um búnað til bruggunar að ræða en engin landi fannst þar. Tveir menn eru taldir bera ábyrgð á tækjunum og tóku lögreglumenn skýrslu af þeim á vettvangi. Eftir það voru þeir svo frjálsir ferða sinna. 5.5.2010 07:08
Bótasvikarar gripnir í bólinu á Facebook „Það er aldrei viðunandi að fólk misnoti velferðarkerfið og sérstaklega ekki á tímum sem þessum,“ segir Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, þar sem herör var skorin upp gegn bótasvindli. 5.5.2010 06:30
Ekkert persónukjör í kosningunum í vor Ekkert persónukjör er í boði í kosningum til sveitarstjórna í maí. Frumvarp um slíkt var lagt fram í haust en er inni í allsherjarnefnd. Meðal þeirra sem lögðust gegn afgreiðslu frumvarpsins var stjórn Vinstri grænna, sem vildi vísa málinu til stjórnlagaþings. Þá töldu sveitarfélögin of skamman tíma til stefnu fyrir vorið. 5.5.2010 06:15
Kettir hverfa einn af öðrum í Mosfellsbæ „Ég hef ekki aðra kenningu en þá að það hljóti að vera einhver sem er hreinlega að drepa þessa ketti,“ segir Frímann Lúðvíksson Buch, sem missti fjóra ketti af heimili sínu á aðeins einni viku. 5.5.2010 06:00
Samkynhneigð pör fái að giftast Ekkert er því til fyrirstöðu að prestum þjóðkirkjunnar verði heimilað að gefa saman samkynhneigð pör í hjónaband, að mati 82 presta, djákna og guðfræðinga sem skrifa undir grein um ein hjúskaparlög í blaðinu í dag. 5.5.2010 06:00
Ólíklegt að laun Más hækki Allt bendir til að tillaga um að Má Guðmundssyni seðlabankastjóra verði bætt upp kjararýrnun í kjölfar ákvörðunar kjararáðs verði dregin til baka. 5.5.2010 05:45
Búðarhálsvirkjun gefi af sér arð strax frá upphafi „Þetta er puð,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, um stöðu og horfur í fjármögnunarmálum fyrirtækisins. 5.5.2010 05:30
Skoðað verði hvort viðskipti voru óeðlileg Forseti Alþýðusambandsins (ASÍ) og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) hafa rætt sín á milli um að komið verði á fót sérstakri rannsóknarnefnd um samskipti lífeyrissjóða og banka. 5.5.2010 05:30
Sveitarfélögum hefur fækkað um þrjú Kosið var til 79 sveitarstjórna fyrir fjórum árum en á yfirstandandi kjörtímabili hefur sveitarfélögum fækkað um þrjú. Sameiningar urðu milli Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar, Akureyrarbæjar og Grímseyjarhrepps og Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar. 5.5.2010 04:30
Meta áhrifin á menntaverkefni Ráðherrar iðnaðar, mennta- og fjármála ætla að meta hvaða áhrif afnám iðnaðarmálagjalds hefur á tiltekin menntaverkefni þriggja skóla og hvernig megi standa straum af kostnaði við þau í framtíðinni. 5.5.2010 04:30
Landgræðslustjóri ræðir við heimamenn Sérfræðingar miðla upplýsingum til íbúa á áhrifasvæði Eyjafjallajökuls þessa dagana. Fundirnir með sérfræðingum fara fram í hádeginu í þjónustumiðstöðinni í Heimalandi. 5.5.2010 04:30
Endurskoðun AGS veitti stjórnvöldum skjól „Þráðurinn á milli er óslitinn, en það eru engin tíðindi,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um viðræður um Icesave. Enn er allt á huldu um hvort og hvenær samningaviðræður verða teknar upp að nýju. 5.5.2010 04:15
Alls tæp 21 milljón til Haítí 12,3 milljónir króna hafa safnast í páskasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir Haítí en stofnunin hefur þá samanlagt safnað tæplega 21 milljón króna til uppbyggingar á Haítí. 5.5.2010 04:00
Vigta gesti og gangandi „Við erum öll mismunandi vaxin frá náttúrunnar hendi og því er ekki farsælt ef ein tegund líkamsvaxtar þykir fín og önnur ekki. Það leiðir til félagslegrar flokkunar og mismununar sem skapar togstreitu og vanlíðan,“ Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur sem er í forsvari fyrir Megrunarlausa daginn sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag. Þá gefst gestum og gangandi í Kringlunni og Smáralind kost á að stíga á vigt sem er þó ekki hefðbundin. 4.5.2010 21:30
Guðlaugur ætlar að upplýsa hverjir létu hann fá 25 milljónir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, ætlar að upplýsa hverjir styrktu hann í prófkjöri þegar hann þáði 24,8 milljónir króna í styrki fyrir kosningarnar 2007. Enginn þáði hærri styrki samkvæmt upplýsingum Ríkisendurskoðunar. Guðlaugur hefur hingað til ekki viljað gefa upp hverjir veittu þessa styrki. Undanfarnar vikur hefur verið eftir afsögn Guðlaugs og mótmælt við heimili hans. 4.5.2010 20:12
Gæsluvarðhalds krafist vegna árásarinnar í Reykjanesbæ Lögreglan á Suðurnesjum hefur farið fram á að tveir karlmenn sem gengu í skrokk á hjónum á sjötugsaldri og dóttur þeirra í gærkvöldi verði úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Dómari tekur afstöðu til kröfunnar á morgun, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu. Málið er litið mjög alvarlegum augum 4.5.2010 20:30
Dómarar verði hugrakkir og dæmi framámenn í fangelsi Dómarar verða að hafa hugrekki til að dæma framámenn í íslensku samfélagi í fangelsi fyrir lögbrot, segir William Black, lögfræðingur og fyrrverandi fjármálaeftirlitsmaður í Bandaríkjunum. Dómstólar þurfi að geta horft fram hjá fínu jakkafötunum og átta sig á því að bankamenn geta líka framið glæpi. 4.5.2010 19:33
Svarti listinn býður fram í Borgarbyggð Nýtt framboð, Svarti listinn, býður fram í Borgarbyggð í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram 29. maí næstkomandi. Svarti listinn hyggur á umbætur á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Ástandið sé slæmt og ekki sé hægt að kenna efnahagsgruni eingöngu um. 4.5.2010 21:14
Ólafur F: Bókhaldsbrellur og fjármálasukk fjórflokksins Borgarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon segir að fulltrúar fjórflokksins hafi reynt að halda á lofti bókhaldsbrellum í umræðum um ársreikning Reykjavíkurborgar í borgarstjórn í dag. Hann gagnrýnir það sem kann kallar fjármálasukk fjórflokksins. Í samtali við fréttastofu segir Ólafur að flokkarnir hafi skuldsett borgina nánast í þrot vegna glórulítilla framkvæmda og fjárfestinga Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrir vikið skuldi hver borgarbúi 2,5 milljón króna. 4.5.2010 20:39
Hætta á gusthlaupum niður Gígjökul Almannavarnir vöruðu í dag við hættu á lífshættulegum gusthlaupum sem gætu farið hratt niður með Gígjökli og náð niður á Markarfljótsaura. Slík eiturský geta orðið 300 stiga heit og drepa allt kvikt sem í vegi þeirra verða. 4.5.2010 19:05
Eldgosið ógnar heilli atvinnugrein Eldgosið í Eyjafjallajökli ógnar heilli atvinnugrein. Þetta kom fram í ræðu iðnaðar- og ferðamálaráðherra, á Ferðamálaþingi í dag en þar var kynnt stærsta kynningarátak fyrir ferðaþjónustuna sem ráðist hefur verið í sögu þjóðarinnar. 4.5.2010 18:57
Bjartari horfur framundan í atvinnumálum Forstjóri Vinnumálastofnunar telur að bjartari horfur séu framundan í atvinnumálum og að atvinnuleysis hafi náð hámarki í vetur. Atvinnuleysið hefur bitnað verst á ungu fólki. 4.5.2010 18:52
Engar viðræður í sjónmáli Icesave málið gæti tafist um marga mánuði til viðbótar vegna versnandi efnahagsástands í Evrópu og ríkjandi óvissu í breskum og hollenskum stjórnmálum. Fjármálaráðherra segir að engar viðræður séu í sjónmáli. 4.5.2010 18:41
Vilja auka tíðni strætóferða „Þau tíðindi urðu á fundi borgarstjórnar að fulltrúar allra flokka lýstu sig fylgjandi tillögu Samfylkingarinnar um að 10 mínútna tíðni á stofnleiðum yrði endurvakin. Þessi aukna og örugga tíðni í almenningssamgöngum var aflögð í upphafi kjörtímabilsins," segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, í tilkynningu. 4.5.2010 18:20
Breyta lögum um húsnæðismál Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp Árna Páls Árnasonar, félags- og tryggingamálaráðherra um breytingar á lögum um húsnæðismál. 4.5.2010 18:12
Sóley: Gengið of nærri grunnþjónustunni „Niðurstaða ársreiknings Reykjavíkurborgar er árangur af niðurskurði, þar sem gengið hefur verið allt of nærri grunnþjónustu sveitarfélagsins gagnvart íbúum. Athyglisverðast er þó að skoða stöðu B-hlutafyrirtækja borgarinnar, en þau sinna grunnþjónustu sem skiptir sköpum fyrir alla borgarbúa. Hæst bera þar Orkuveita Reykjavíkur, Félagsbústaðir, Strætó, Sorpa og Slökkviliðið – en staða þeirra grafalvarleg,“ segir Sóley Tómasdóttir, oddviti VG í Reykjavík, í tilkynningu. Ársreikningur Reykjavíkurborgar var lagður fram í borgarstjórn í dag. 4.5.2010 17:37
Eyjafjallajökull: Lokun hættusvæða enn í fullu gildi Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra minnir á að lokanir séu enn í fullu gildi á svæðinu umhverfis eldgosið í Eyjafjallajökli. Í tilkynningu segir að undanfarið hafi verið töluverð ásókn í að komast inn á lokuð hættusvæði í grennd við gosstöðvarnar. 4.5.2010 16:40
Dagur: Slæm staða OR varpar skugga á ársreikninginn Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn segir að slæm staða Orkuveitunnar og aðgerðarleysi í fjármálum fyrirtækisins varpi skugga á annars vel viðundandi stöðu borgarsjóðs en ársreikningur Reykjavíkurborgar var lagður fram í borgarstjórn í dag. 4.5.2010 16:30
Lokað fyrir heitt vatn í nokkrum götum á morgun Vegna bilunar þarf að loka fyrir heitt vatn í nokkrum götum borgarinnar á morgun. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að lokað verði fyrir vatnið í Furugerði 3-23, við Hæðargarð, Hólmgarð og Bústaðaveg 49 -107. Lokunin verður frá klukkan 13:00 - 19:00. 4.5.2010 16:14
Tíu afreksnemar fá styrki Tíu styrkir verða veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands 16. júní næstkomandi. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Styrkirnir í ár eru veittir með stuðningi Happdrættis Háskóla Íslans. Hver styrkur nemur 300 þúsund krónum auk niðurfellingar skráningargjalds í Háskólann, sem er 45 þúsund krónur. 4.5.2010 16:03
Risasamningur um Íslandskynningu undirritaður Samningur um eitt mesta markaðsátak sem ráðist hefur verið í til kynningar á Íslandi erlendis var undirritaður á Ferðamálaþingi 2010 í dag. Alls verður varið um 700 milljónum króna til átaksins. Ríkið leggur til 350 milljónir og Reykjavíkurborg, Icelandair, Iceland Express, Útflutningsráð og Samtök ferðaþjónustunnar leggja fram annað eins til átaksins. 4.5.2010 15:45
Neytendastofa sektar Krónuna og Hagkaup Neytendastofa hefur sektað matvöruverslanakeðjurnar Krónuna og Hagkaup fyrir að fara ekki að tilmælum stofnunarinnar um að bæta verðmerkingar. Í tilkynningu segir að í nóvembermánuði 2009 hafi starfsmenn Neytendastofu gert skoðun á verðmerkingum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. 4.5.2010 15:34