Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þriggja mánaða skilorð fyrir að stela 15 tonnum af áburði Hæstiréttur staðfesti í dag þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir starfsmanni Fóðurblöndunnar sem var sakfelldur fyrir að hafa tekið 15 tonn af gölluðum áburði hjá fyrirtækinu og nýtt í eigin þágu án þess að greiða fyrir hann. 11.3.2010 16:34
Sýknudómi yfir blaðamönnum snúið í Hæstarétti Hæstiréttur Íslands snéri sýknudómi meiðyrðamáls sem Rúnar Þór Róbertsson höfðaði á hendur Erlu Hlynsdóttur, blaðakonu DV og Sigurjóns M. Egilssonar, fyrrverandi ritstjóra sama blaðs. 11.3.2010 16:29
Iceland Express snýr á flugumferðarstjóra Vegna yfirvofandi verkfalls flugumferðarstjóra í fyrramálið, munu vélar Iceland Express til Kaupmannahafnar og London fara klukkan 06:15 í loftið í staðinn fyrir 07:00. Í fréttatilkynningu frá Iceland Express kemur fram að allir farþegar hafi þegar verið látnir vita. 11.3.2010 16:01
Íslenskt þjófagengi handtekið á Laugaveginum Tvær stúlkur um tvítugt og talsvert eldri karlmaður voru handtekin á Laugaveginum á þriðja tímanum í dag grunuð um stórfelldan búðarþjófnað. 11.3.2010 15:32
Tanorexíufélagið: Brúnkufíkn ótrúlega víðtækt vandamál „Það hefur orðið algjör sprenging, sennilega um 400 prósent aukning í félagið,“ segir Ómar Raiss, formaður Tanorexíufélags Íslands, en fjöldi manns hafa sótt í félagasamtökin eftir að fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá víðtæku vandmáli brúnkufíkla og hætturnar sem steðja þeim. 11.3.2010 14:52
Notaði lögguna sem sýningardæmi - var svo ákærður fyrir ofbeldi Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður á ný fyrir brot gegn valdstjórninni en máli hans var vísað frá Héraðsdómi Austurlands haustið 2009 þar sem í ljós kom að lögreglan á Eskifirði reyndist óheimilt að rannsaka málið þar sem meint ofbeldið snéri að lögreglumanni embættisins. 11.3.2010 14:03
Íslendingar jákvæðir í garð íslenskra fyrirtækja Þrátt fyrir áföll í efnahagslífi landsins undanfarin misseri eru Íslendingar mjög jákvæðir í garð íslenskra fyrirtækja og traust þeirra til eigin vinnuveitanda skorar einna hæst í árlegum mælingum Capacent Gallup á trausti til stofnana og embætta. 11.3.2010 13:36
Klemmdi löppina undir vörulyftu Karl á þrítugsaldri slasaðist á fæti þegar verið var að ferma sendibifreið í austurborginni í gærmorgun. Á bílnum er vörulyfta og klemmdist fótur mannsins undir henni. Meiðsli mannsins voru ekki talin alvarleg, að sögn lögreglu. 11.3.2010 12:38
Piltur reyndi að svíkja út tölvu Tæplega tvítugur piltur var handtekinn af lögreglunni í verslun á höfuðborgarsvæðinu í gær en þar hafði hann reynt að svíkja út tölvu. 11.3.2010 12:25
Kannabisræktun stöðvuð á tveimur stöðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í Reykjavík og Kópavogi í gær. Við húsleit í bílskúr í austurborginni í hádeginu var lagt hald á tæplega 100 kannabisplöntur, 30 grömm af marijúana og lítilræði af hassi. Á sama stað tók lögreglan í sína vörslu tölvu, flatskjá og skjávarpa en grunur leikur á að um þýfi sé að ræða. 11.3.2010 12:21
Eldsneytishækkun þrátt fyrir styrkari krónu og lækkanir á heimsmarkaði Olíufélögin hækkuðu bensínlítrann um fjórar krónur í gær, þrátt fyrir fregnir af því að krónan væri heldur að styrkjast í sessi gagnvart dollar og olía væri heldur að lækka á heimsmarkaði. Bensínverðið hefur hækkað um níu krónur á fáum vikum, en skammt er frá því að verðið hækkaði um fimmkall. 11.3.2010 12:16
Atli Gísla: AGS ræður alltof miklu Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna segir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ráða allt of miklu um efnahagsmál Íslendinga. Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir sjóðinn taka í taumana þegar ríkisstjórn eins og sú sem nú situr sé ráðalaus. 11.3.2010 12:14
Netframtöl einstaklinga frestast um dag Til stóð að opna netframtöl einstaklinga 2010 á þjónustuvef skattsins í dag. Vegna bilunar verða framtölin hins vegar ekki opnuð fyrr en á morgun. Síðasti dagur fyrir einstaklinga til að skila framtölum er 26. mars. 11.3.2010 11:54
Forseti Maldíveyja heimsækir Ísland Forseti Maldíveyja Mohamed Nasheed heimsækir Ísland á föstudag og laugardag til að kynna sér nýtingu hreinnar orku og sjávarútveg ásamt því að halda opinberan fyrirlestur um loftslagsbreytingar en hækkun sjávarborðs ógnar efnahagslífi landsins og sjálfri tilveru þjóðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu. 11.3.2010 11:02
Dæmdir fyrir að ræna Búálf Tveir ungir menn voru dæmdir fyrir fjölmörg afbrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Annar mannanna hlaut tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir brot sín, hinn hlaut átta mánaða fangelsi skilorðsbundið til fimm mánaða. 11.3.2010 10:33
Fíkniefnatík þefaði uppi amfetamín Fíkniefnatíkin Luna þefaði uppi um 200 grömm af ætluðu amfetamíni í Vestmannaeyjum í gær. Efnin fundust í bifreið manns sem var að koma með Herjólfi frá Þorlákshöfn. Þegar maðurinn kom til Vestmannaeyja var hann færður á lögreglustöðina vegna gruns um fíkniefnamisferli. Fíkniefnatíkin Luna var þá kölluð til og þefaði hún uppi efnin. 11.3.2010 10:11
Pétur Blöndal: Nóg komið af álverum Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur nóg komið af álverum á Íslandi. Hann vill heldur beina orkunni í önnur verkefni. Pétur fagnar því að Landsvirkjun ætli innan skamms að upplýsa um orkuverð. Rætt var við þingmanninn í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 11.3.2010 10:10
Fjársvikamál gegn Guðmundi í Byrginu heldur áfram Framhald aðalmeðferðar fer fram í fjárdráttarmáli gegn Guðmundi Jónssyni, sem oftast er kenndur við meðferðarheimilið Byrgið, í Héraðsdómi Suðurlands. 11.3.2010 10:01
Forsetinn afhendir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun í dag afhenda Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 17. Þetta er fimmta árið í röð sem þessi verðlaun eru afhent en yfir fjögur hundruð tilnefningar til Samfélagsverðlaunanna bárust í ár og hafa þær aldrei verið fleiri. 11.3.2010 09:54
Stúlkan og drengurinn fundin 18 ára gömul stúlka sem fór frá Landspítalanum við Hringbraut síðastliðinn mánudag og lögreglan lýsti eftir er fundin. Það sama á við um 13 ára gamlan dreng sem lýst var eftir en ekki hafði spurst til hans frá því seint á mánudagskvöld. 11.3.2010 08:26
Bensín hækkaði um fjórar krónur Olíufélögin hækkuðu bensínlítrann um fjórar krónur í gær þrátt fyrir fregnir af því að krónan væri heldur að styrkjast í sessi gagnvart dollar og olía væri heldur að lækka á heimsmarkaði, en olíuviðskiptin eru gerð í Bandaríkjadollurum. 11.3.2010 07:52
Enn skelfur undir Eyjafjallajökli Enn urðu nokkrir jarðskjálftar undir Eyjafjallajökli í nótt en þeir mældust allir undir þremur á Richter. Upptökin voru sem fyrr á miklu dýpi þannig að ekki verður vart breytinga til hins verra á því sviði. Hrinan í nótt var mun kraftminni en hrinurnar í fyrrinótt og nóttina þar á undan. 11.3.2010 07:45
Enn ósamið Samningafundur flugumferðarstjóra og Flugstoða stóð í aðeins tvær klukkustundir hjá Ríkissáttasemjara í gær, án þess að viðræður þokuðust í samkomulagsátt, en aftur hefur verið boðað til fundar klukkan ellefu fyrir hádegi. Flugumferðarstjórar hafa boðað annað fjögurra klukkustunda verkfall í fyrramálið og svo annan hvern dag í heila viku. 11.3.2010 06:56
Vill áhrif í ríkisstjórninni Ögmundur Jónasson vill að áhrifa hans gæti í stjórnarráðinu við ríkisstjórnarborðið og getur hugsað sér að taka sæti í stjórninni. Ekkert sé ákveðið hvort það gerist eða hvaða sæti hann taki, en hann hafi verið sáttur í heilbrigðisráðuneytinu. Hann segir mikið hafa áunnist varðandi Icesave og hann bíði ekki endalaust eftir samstöðu á þingi um málið. 11.3.2010 06:45
Telur Catalinu þegar refsað Verjandi Catalinu Mikue Ncogo vill að ákæru á hendur henni fyrir að hagnast á vændisstarfsemi fimm kvenna verði vísað frá. Hann telur að Catalina hafi í raun þegar hlotið fyrir það dóm. Þetta kemur fram í greinargerð lögmannsins Jóns Egilssonar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 11.3.2010 06:30
Æ fleiri börn á geðdeild Bráðamálum á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL, hefur fjölgað undanfarna mánuði. Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir barna- og geðlækninga, segir að það sem af er ári hafi yfir sextíu mál k 11.3.2010 06:00
Ók í öfuga átt á Skólavörðustíg Vegfarendur í miðborginni ráku upp stór augu um tvöleytið í gær þegar bíl var ekið frá Laugavegi upp Skólavörðustíg gegn einstefnuumferð sem þar er. Ungur ökumaður bílsins þurfti öðru hvoru að víkja fyrir þeim sem k 11.3.2010 06:00
Segir aukna hörku í íslensku nefndinni „Við erum ekki að reyna að hagnast á þessu,“ sagði Jann Kees de Jager, fjármálaráðherra í bráðabirgðastjórn Hollands, um samningaviðræður við Íslendinga um Icesave-deiluna. „Við erum núna aðeins að skoða fjármögnunarkostnaðinn.“ Fjármálanefnd hollenska þingsins yfirheyrði hann í tvo og hálfan tíma um málið í gær. 11.3.2010 06:00
Tíundi hver borgaði fasteignagjöld of seint Ellefu prósent af álögðum fasteignagjöldum Reykjavíkurborgar á síðasta ári voru send til milliinnheimtufyrirtækis í innheimtu. Alls voru vanskilin 1.982 milljónir króna og greiðendurnir 5.472 talsins. Meðalskuld hvers gjaldanda var um 362.000 krónur sem er meira en þreföld fasteignagjöld meðal-íbúðar. 11.3.2010 06:00
Áætlanir í flugi út um þúfur Fjögurra tíma verkfall flugumferðarstjóra olli mörgum óþægindum í gærmorgun. 11.3.2010 06:00
Loðna hrygndi í fiskasafninu Skipverjar á Sighvati Bjarnasyni VE komu á mánudag með lifandi loðnu til Fiskasafnsins í Vestmannaeyjum. Það má undrum sæta að loðnan svaraði kalli náttúrunnar, þrátt fyrir vistaskiftin, og hrygndi morguninn eftir. 11.3.2010 06:00
Telja nægu fé vera varið í menningarmál Rúm 62 prósent þátttakenda í könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um menningarneyslu telja hið opinbera verja nægu fé til menningarmála í þeirra byggðarlagi. Könnunin var gerð fyrir menntamálaráðuneytið nú í haust. 11.3.2010 06:00
Gæðaráð háskólanna stofnað Unnið er að stofnun gæðaráðs fyrir háskólana sem hafi gæðaeftirlit með kennslu og rannsóknum við skólana. Með því færist matið út fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið og verður sjálfstætt. 11.3.2010 05:00
Bílalánskröfu vísað frá dómi Krafa SP Fjármögnunar á hendur manni sem leigt hafði bíl með samnningi við fyrirtækið var svo illa reifuð og ruglingsleg að sögn Héraðsdóms Reykjavíkur að ekki var um annað að ræða en vísa henni frá. Maðurinn tók 11.3.2010 04:00
Ákvörðunin gæti tafist Ný ákvæði í þýskum lögum gætu orðið til þess að þýska þjóðþingið fái ekki nægan tíma til að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður Evrópusambandsins við Ísland áður en málið verður tekið fyrir á næsta fundi Leiðtogaráðs Evrópusambandsins dagana 25. og 26. mars, eða eftir aðeins hálfan mánuð. 11.3.2010 03:15
Dæmdar 3 milljónir í bætur vegna læknamistaka sem leiddu til andláts Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða eiginmanni og tveimur börnum konu sem lést fyrir níu árum samtals þrjár milljónir króna í miskabætur. Konan lést á miðri meðgöngu eftir að fósturvísi var komið fyrir í legi hennar þegar hún var 47 ára gömul. Fjölskylda konunnar krafðist bóta og byggði kröfuna á því að saknæm háttsemi hefði átt sér stað þegar fórstuvísi var komið fyrir í konunni og meðferð við meðgöngueitrun sem konan fékk hafi verið verulega ábótavant. Bótaskylda af hálfu ríkisins var viðurkennd en deilt var um fjárhæð bótanna fyrir rétti. 10.3.2010 18:02
Menningarverðlaun DV afhent Fyrr í kvöld fór fram afhending Menningarverðlauna DV fyrir árið 2009. Menningarverðlaun DV eru árlegur viðburður þar sem veitt eru verðlaun fyrir einstakt framlag einstaklinga til menningarinnar, að mati dómnefndar í hverjum flokki. Að auki voru veitt netverðlaun og sérstök heiðursverðlaun sem forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti. 10.3.2010 20:05
Jón Bjarnason víki fyrir Ögmundi Allar líkur eru á að Ögmundur Jónasson sé aftur á leið í ráðherrastól og að Jón Bjarnason víki úr ríkisstjórn. Frekari uppstokkun á stjórnarliðinu er ekki útilokuð. 10.3.2010 18:39
Haförninn í tveggja tíma aðgerð Haförninn í Húsdýragarðinum var fluttur á Dýraspítalann í Víðidal í Reykjavík í dag og lagður á skurðarborð. Örninn hefur lítil batamerki sýnt frá því hann fannst illa haldinn við Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi í haust og hefur enn ekki náð að blaka vængjunum eðlilega. 10.3.2010 17:03
Vilhjálmur vermir heiðurssætið Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, skipar heiðurslista sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri leiðir listann. Listinn var samþykktur á fundi Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í kvöld. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum segir að kynjahlutfall sé jafnt á listanum, fimmtán konur og fimmtán karlar. 10.3.2010 20:13
Stúlkan þarf hjálp Bandarískur læknir sem annast hefur íslenska telpu sem glímir við alvarleg veikindi undrast að íslenskir læknar hafi ákveðið að kæra foreldra stúlkunnar til barnaverndaryfirvalda fyrir að vilja fara með hana í uppskurð á heila. Aðgerðin sé nauðsynleg. 10.3.2010 18:53
Lýst eftir 18 ára gamalli stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Regínu Sif Marinósdóttur. Hún fór frá Landspítalanum við Hringbraut sl. mánudag og hefur ekki sést síðan. 10.3.2010 17:38
Verkfall flugumferðarstjóra skaðar ímynd landsins Samtök ferðaþjónustunnar segja það mjög alvarlegt mál að fámennir hópar geti truflað flug til og frá landinu og þar með valdið skaða fyrir flugfélögin og ferðaþjónustuna í heild. 10.3.2010 16:50
Lýst eftir þrettán ára dreng Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóhanni Inga Margeirssyni, 13 ára. Talið er að hann sé klæddur í svarta úlpu eða mittisjakka, hvítan bol, svartar joggingbuxur og sé í hvítum strigaskóm. Jóhann Ingi, sem er grannvaxinn og 176 sm á hæð, er með blá augu og stutt, dökkt hár. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að síðast sé vitað um ferðir hans í Hafnarfirði seint á mánudagskvöld. 10.3.2010 16:41
Farþegarnir til Oslóar en farangurinn til Köben Mistök urðu þess valdandi að farangurinn víxlaðist þegar verið var að ferma tvær vélar frá Icelandair í dag sem fóru í loftið klukkan ellefu eftir að flugumferðarstjórar höfðu hætt í verkfalli. Vélarnar fóru til Kaupmannahafnar og Oslóar en farangurinn sem fara átti til Oslóar endaði í Kaupmannahöfn og öfugt. 10.3.2010 15:03