Fleiri fréttir

Framboðslisti sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ samþykktur

Listi Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ fyrir bæjarstjórnakosningarnar í vor var samþykktur í gærkvöldi á fundi fulltrúaráðs þar sem tillaga kjörnefndar var borin upp. Tillaga kjörnefndar var samþykkt samhljóða með lófataki, að fram kemur í tilkynningu. Árni Sigfússon, bæjarstjóri, leiðir listann og Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, skipar heiðurssætið.

Krafðist þess að verða stungið í steininn

Heldur sjaldgæft er að menn krefjist þess að vera vistaðir í fangageymslu lögreglunnar. Sú var þó raunin þegar lögreglan var kölluð til í fjársvikamáli á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn lögreglu hafði karl um fimmtugt neitað að greiða fyrir þjónustu sem hann hafði sannarlega notið.

Enn haldið sofandi

Karlmanni um sextugt, sem bjargað var meðvitundarlausum út úr íbúð í Grafarvogi um helgina eftir að eldur kom upp, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Reykkafara þurfti til að sækja manninn inn íbúðina.

Þröstur leiðir VG á Akranesi

Þröstur Þór Ólafsson, vélfræðingur, fékk flesti atkvæði í póstkosningu sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð á Akranesi stóð fyrir. Bæjarfulltrúinn Rún Halldórsdóttir gaf ekki kost á sér í forvalinu.

Dregur úr bókunum með Icelandair vegna verkfallsins

Verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra eru þegar farnar að draga úr bókunum með Icelandair frá landinu, og erlendir ferðamenn, sem eiga bókað til landsins eru sumir orðnir tvístígandi, að sögn Birkis Hólm Guðnasonar, forstjóra Icelandair. Hann segir að verkfallinu sé beint gegn flugfélaginu.

Vilja fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fagnar því fordæmi sem gefið hefur verið fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um hin ýmis mál. Stjórnin skorar á ríkisstjórnina að láta kjósa samhliðasveitastjórnarkosningum í vor, um kvótakerfið og aflaheimildir þess, um veru Íslands í árásarbandalaginu NATÓ og hvort aðskilja beri ríki og kirkju.

Hafa áhyggjur af háskólanemum

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna lýsir yfir miklum áhyggjum af framfærslumöguleikum háskólanema í sumar. Óvíst sé hvort háskólanemum við Háskóla Íslands, fjölmennasta háskóla landsins standi til boða lánshæf námskeið í sumar auk þess sem réttur námsmanna til atvinnuleysisbóta hafi verið afnuminn. Þá sé óljóst hvort öll sveitarfélög komi til með að veita námsmönnum fjárhagsaðstoð yfir sumartímann þrátt fyrir framfærsluskyldu. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn SUF.

Virti ekki stöðvunarmerki og valt

Sautján ára stúlka slapp lítið meidd, þegar hún reyndi á ofsahraða að stinga lögregluna af á Gaulverjabæjarvegi, rétt austan við Selfoss, um níu leitið í gærkvöldi, en bíll hennar valt. Þá hafði hún mælst á tæplega 140 kílómetra hraða en þegar hún sinnti ekki stöðvunarmerki lögreglu, hóf hún eftirför.

Töluverð skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli í nótt

Töluverð skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli í nótt og stóð í hálfa aðra klukkustund. Nokkrir skjálftanna mældust um og yfir tvo á Richter og sá sterkasti var 2,6. Á sömu slóðum varð um það bil klukkustundar skjálftahrina snemma í gærmorgun og mældist snarpasti kippurinn 2,4 á Richter.

Verkfall flugumferðarstjóra hefst

Fjögurra klukkustunda verkfall flugumferðarstjóra hefst klukkan sjö, þar sem ekki náðist samkomulag í launadeilu þeirra við Flugstoðir á löngum samningafundi í gær.

Ögmundur aftur ráðherra

Ríkisstjórnin stendur veikari eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag og þarf að eflast eigi hún að geta tekist á við mörg brýn og aðkallandi verkefni. Augljósasta og jafnframt besta leiðin til að styrkja stjórnina er að Ögmundur Jónasson verði ráðherra á ný. Líklegast verður það samhliða öðrum breytingum.

Þolinmæðin borgaði sig

Verðmæti eigna Kaupþings nam 743 milljörðum króna í lok síðasta árs, að því er fram kemur í skýrslu skilanefndar og var birt í gærmorgun. Upphæðin er 214 milljörðum hærri en í árslok 2008. Þar af nam handbært fé Kaupþings 176 milljörðum króna, sem er 98 milljarða hækkun á síðasta ári.

Þrjú útibú verði eitt á Bíldshöfða

Arion banki kynnti starfsmönnum þriggja útibúa sinna í gær ákvörðun um að útibúin yrðu sameinuð í eitt útibú í Húsgagnahöllinni við Bíldshöfða. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins verður þó ekki af sameiningu útibúanna á Suðurlandsbraut, í Árbæ og í Grafarvogi fyrr en næsta haust.

Aðgangur að lánsfé hangir á Icesave

Það þarf að meta kostnaðinn sem hlýst af töfum á því að samið sé um Icesave. Hann getur verið mikill, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hvetur hann þá er að málinu koma til að nálgast verkefnið af ábyrgð og með alla hagsmuni í huga.

Rannsóknarhraði skiptir miklu máli

Sakfellt var í 31 kynferðis-brotamáli á síðasta ári af þeim 57 málum sem ríkissaksóknari ákærði í. Embættinu bárust 147 kærur en felldi 66 niður, níu mál eru ódæmd í hæstarétti. Lágt hlutfall nauðgunarmála sem enda með sakfellingu var gagnrýnt mjög á ráðstefnu Stígamóta, Nauðganir og viðbrögð samfélagsins við þeim sem haldin var í gær í tilefni af 20 ára afmæli Stígamóta.

Krefjast meiri samhljóms í stjórninni

Það hrikti í stoðum stjórnarsamstarfsins í aðdraganda og eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Stjórnarliðar eru þó sammála um að stjórnin hafi staðið hvellinn af sér. Samstaða gagnvart Icesave sé meiri og klárist það verði nýju lífi hleypt í ríkisstjórnina með nýju fólki og málum.

Brá þegar ferlíkið birtist úr djúpinu

Línubáturinn Lukka ÍS 357 frá Suðureyri kom með heldur óvenjulegan afla að landi á mánudag, 680 kílóa þungan hákarl sem var tæpir fimm metrar á lengd og rúmir tveir metrar að ummáli. Stærstir verða hákarlar sjö metra langir og um tonn að þyngd. Báturinn er 60 tonna, ellefu metrar að lengd. Hákarlinn slagaði því vel upp í hálfa bátslengdina.

Fleiri sækja í menningu en íþróttaleiki

Fleiri sækja menningar-viðburði en íþróttaviðburði og fleiri sækjast eftir umfjöllun um menningu og listir en íþróttir í fjölmiðlum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á menningarneyslu Íslendinga. Niðurstöður hennar voru kynntar í Þjóðminjasafni Íslands í gær.

Flestir vilja sameinast Garðabæ

Þrír fjórðu Álftnesinga vilja sameinast öðru sveitarfélagi og flestir þeirra vilja helst sameinast Garðabæ. Reykjavík er næstvinsælasti kosturinn. Þetta er niðurstaða könnunar sem bæjaryfirvöld stóðu fyrir meðal bæjarbúa samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag.

Ætla að upplýsa um raforkuverð á næsta aðalfundi

Landsvirkjun ætlar að upplýsa um orkuverð á aðalfundi sínum sem fram fer í næsta mánuði. Þetta kom fram í tíufréttum RÚV í kvöld. Hörður Arnarson forstjóri fyrirtækisins segir það nauðsynlegt til að ná sátt um fyrirtækið.

Reyndi að lokka litla stelpu upp í bíl í Langholtshverfi

Ókunnur eldri maður reyndi að lokka 8 ára gamla stúlku upp í bíl til sín í Langholtshverfi seinni partinn í dag. Stúlkan hljóp í burtu og lét vita heima hjá sér. Þetta kemur fram í bréfi sem Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri í Langholtsskóla, sendi forráðamönnum barna í skólanum og birt er á fréttavefnum Pressunni.

Eyrnabítur gat ekki útskýrt framferðið

Níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fimm þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags og voru þær flestar minniháttar.

Undirbýr friðlýsingu Gjástykkis

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra tilkynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun að hún hefði ákveðið að hefja undirbúning að friðlýsingu Gjástykkis, norðan Mývatns. Vísar hún meðal annars til þess álits Umhverfisstofnunar að svæðið hafi hátt verndargildi og sé einstakt þegar kemur að náttúruupplifun og tækifærum til fræðslu um landrek og eldgos. Friðlýsing gæti raskað áformum Landsvirkjunar, sem hefur fengið rannsóknarleyfi í Gjástykki til að undirbúa þar jarðvarmavirkjun.

Flestir Álftnesingar vilja sameinast öðru sveitarfélagi

Samhliða Icesave-kosningunni voru Álftnesingar spurður út í afstöðu sína til þess hvort sameina eigi Álftanes öðru sveitarfélagi. Tæp 64 prósent íbúa tóku þátt og voru 75,7 prósent þeirra hlynntir því að Álftanes sameinist öðru sveitarfélagi. 17,7 prósent voru á móti og fimm prósent sögðust hlutlausir.

Vilja funda um Icesave hér á landi

Á fundi leiðtoga stjórnmálaflokkanna um stöðuna í Icesave-málinu sem fram fór í Alþingishúsinu í hádeginu var lagt til að frekari fundarhöld í málinu fari fram hér á landi. Hingað til hafa samninganefndirnar fundað í London.

Íslendingar hafa vel efni á að borga Icesave

Hollenski fjármálaráðherrann Jan Kees de Jager segir enga spurningu um að Íslendingar muni borga Icesave-skuldina. Þetta kemur fram í viðtali sem tekið var við de Jager á hollenskri sjónvarpsstöð. Ráðherrann segir ekki í umræðunni að Íslendingar borgi ekki, enda hafi þeir vel efni á því að standa skil á skuldinni.

Ræddu við Buchheit

Leiðtogar stjórnar og stjórnarandstöðu funduðu í dag Stjórnarráðshúsinu þar sem farið var yfir stöðu mála með Lee Buchheit formanni samninganefndarinnar í Icesave málinu. Stefnt er að því að halda fundum við Breta og Hollendinga áfram en engin dagsetning mun vera komin á hvenær hægt verði að halda áfram.

Dældu eldsneyti frá varðskipi yfir í þyrlu - myndir

Nýverið var þyrlueldsneyti í fyrsta sinn dælt á Líf, þyrlu Landhelgisgæslunnar meðan hún var á lofti yfir íslensku varðskipi. Í tilkynningu frá Gæslunni segir að slíkt sé afar mikilvægt að geta gert þegar verið er í aðgerðum á hafi úti og langt fyrir þyrlu að fara til eldsneytistöku.

Verðlækkun á kókaíni og kannabisefnum

Nokkur verðlækkun hefur orðið á kókaíni og kannabisefnum síðustu mánuði ef marka má lista sem SÁÁ birtir mánaðarlega. Í febrúar kostaði gramm af kókaíni 12.420 krónur en í janúar var gangverðið 14.270.

Blessuð blíðan

„Það er blessuð blíðan,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, aðspurður hvaða líkur séu á því að nýtt samkomulag náist milli stjórnar og stjórnarandstöðunnar um næstu skref í Icesave málinu rétt áður en fundur flokksleiðtoganna hófst í hádeginu.

Höfuðpaurarnir í mansalsmálinu ganga lausir

Upplýsingar og gögn sem lögreglan á Suðurnesjum aflaði sér við rannsókn mansalsmálsins svokallaða gætu nýst til að hafa hendur í hári þeirra sem skipulögðu mansalið og sendur fórnarlambið til Íslands en þeir ganga enn lausir.

Fyrsta stóra útboð í vegagerð í heilt ár

Vegagerðin hefur boðið út tvöföldun Suðurlandsvegar við Sandskeið. Þetta er fyrsta stóra útboðið í vegagerð hérlendis í nærri heilt ár. Boðinn er út 6,5 kílómetra kafli milli Lögbergsbrekku og Litlu Kaffistofunnar og verða tilboð opnuð þann 20. apríl.

Funda með samninganefndinni

Forystumenn ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðu setjast á fund nú í hádeginu, ásamt íslensku Icesave samninganefndinni. Þar á að fara yfir stöðu mála eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um helgina. Enn fremur á að reyna að ná nýju samkomulagi um samningsmarkmið og nýjar viðræður við Breta og Hollendinga.

Starfsmenn borgarinnar segja margar stofnanir undirmannaðar

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar krefst þess að viðsemjendur umgangist gerða launasamninga af virðingu og að unnið verði í nánu samráði við starfsmenn og stéttarfélög að finna aðrar leiðir en launaskerðingu og uppsagnir til að hagræða í rekstri. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar félagsins um kjaramál sem haldinn var í gær.

Yfirgefinn gúmbátur í höfninni í Bolungarvík

Lögreglan á Ísafirði lýsir eftir eiganda að Zodiac gúmbát sem verið hefur í höfninni í Bolungarvík frá því í sumar. Að sögn lögreglunnar dúkkaði báturinn upp í sumar og bjuggust menn við því að eigandinn kæmi að vitja hans. Þetta var á svartfuglsveiðitímabilinu og gengu menn út frá því að um veiðimenn hefði verið að ræða enda voru skot um borð í bátnum.

Sjá næstu 50 fréttir