Upp­gjörið: FHL - Tinda­stóll | Stólarnir koma sér úr fallsæti

Gunnar Gunnarsson skrifar
Mikilvægur sigur fyrir Tindastól í kvöld
Mikilvægur sigur fyrir Tindastól í kvöld Guðmundur Þólaugsson/Vísir

Tindastóll lyfti sér, að minnsta kosti tímabundið, upp úr fallsæti í Bestu deild kvenna með 1-4 sigri á FHL í Fjarðabyggðarhöllinni í kvöld. Gestirnir voru heppnir því FHL stundaði stórskotahríð að marki en fengu ódýr mörk í lokin þegar heimaliðið freistaði þess að jafna.

Tindastóll fer í 10 stig og upp fyrir Víking, sem á leik til góða auk þess að laga markatöluna. FHL er enn án stiga og skoraði í dag sitt fyrsta mark síðan í fimmtu umferð.

Tindastóll byrjaði með boltann og Makala Woods, framherji þeirra, fékk skotfæri úr teignum en það var beint á markvörðinn. Eftir það komst Tindastóll varla fram yfir miðju næsta hálftímann meðan FHL hélt boltanum vel og skapaði sér skotfæri en þó ekki dauðafæri.

Fyrr en á 29. mínútu. Alexia Czerwien skallaði þá yfir af markteig eftir hornspyrnu. En strax í næstu sókn komst Tindastóll yfir. Birgitta Rún Finnbogadóttir fór auðveldlega fram hjá varnarmanni FHL og sendi boltann fyrir á fjær þar sem Lara Margrét Jónsdóttir stakk sér fram fyrir sinn varnarmann og skallaði boltann inn.

Eftir þetta róaðist leikurinn nokkuð. Glæsilegasta atvik leiksins var þó á 38. mínútu þegar Geneieve Crenshaw skutlaði sér og teygði úr sér til að verja skot Bjargar Gunnlaugsdóttur sem stefndi upp í fjærhornið en fór í staðinn í stöngina og út.

Stórskotahríð í byrjun seinni hálfleiks

FHL hóf seinni hálfleikinn á stórskotahríð og eftir marktilraun á hverri mínútu jafnaði Christa Björg Andrésdóttir þegar hún stýrði inn fyrirgjöf Calliste Brookshire á 50. mínútu.

Eftir það komu tafir í leikinn. Fyrst meiddist markvörður FHL eftir samstuð en gat haldið áfram. Það sama verður ekki sagt um fyrirliðann, Róseyju Björgvinsdóttur, sem fékk hné Makölu í höfuðið þegar hún skallaði frá fyrirgjöf. Rósey fékk skurð á ennið og þurfti að fara af velli.

Leikurinn var nýhafinn aftur þegar FHL fékk víti þegar fyrirgjöf Bjargar Gunnlaugsdóttur fór í hendi Bryndísar Rutar Haraldsdóttur. Calliste tók vítið en Genieve las hana og varði í horn.

Tindastóll refsar

Þótt leikurinn hefði jafnast var það heldur gegn gangi hans þegar Tindastóll komst yfir aftur á 77. mínútu með marki Birgittu Rúnar. Hún fékk boltann í teignum hægra megin, tók eina snertingu inn að markinu og lét vaða niður í hornið fjær.

FHL gerði skiptingar og reyndi að jafna leikinn en opnaði sig fyrir skyndisóknum og það nýttu gestirnir. Birgitta Rún skoraði sitt annað mark á 87. mínútu þegar hún komst í gegn eftir eina slíka, Keelan varði fyrra skot hennar en Birgitta náði frákastinu og sendi í markið. Elísa Bríet Björnsdóttir bætti síðan við fjórða marki Tindastóls tveimur mínútum síðar þegar hún lagði boltann fyrir sig eftir að FHL tókst ekki að hreinsa frá og sendi boltann inn.

Af hverju vann Tindastóll?

Sennilega skipti reynslan máli. Þær spiluðu ekki vel í dag. Leikplan þeirra var ekki augljóst, ólíkt FHL sem lagði leikinn vel upp og fylgdi honum eftir. En FHL nýtti ekki færin heldur refsaði Tindastóll grimmt í lokin.

Stjörnur og skúrkar

Geneieve, markvörður Tindastóls, átti stórleik. Hún varði vítið og átti glæsilega vörslu. Þess utan staðsetti hún sig vel til að þrengja skotvinkla FHL og varði önnur skot sem á hana komu – sem voru þó nokkur.

Það verður líka að minnast á Birgittu Rún, sem skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

Hjá FHL er Calliste í báðum hlutverkum. Hún skapaði bestu færi liðsins, var ákveðin í að taka varnarmenn Tindastóls á og skjóta. En hún klúðraði vítinu.

Atvik leiksins

Vítið. Ef það fer inn er FHL verðskuldað yfir og fær sjálfstraust til þess að klára mögulega leikinn, í það minnsta ná stigi. Í staðinn brotnar liðið án fyrirliða síns.

Dómararnir

Leikurinn var tiltölulega auðdæmdur. Einkum framan af voru brotin fá. Vítið var rétt. Í fyrri hálfleik fell leikmaður FHL eftir að togað var í peysu hans en það var erfitt að sjá. Annað mark Tindastóls kom eftir að Guðmundur Páll Friðbertsson dæmdi ekki á brot á miðjunni heldur lét leikinn halda áfram þegar boltinn fór fram á við. Það brot hefði mögulega verðskuldað gult spjald. Spjöldin í lokin urðu hins vegar 1-2 of mörg.

Björgvin Karl: Já – þetta stingur

Björgvin Karl leitar enn að fyrstu stigum sinna kvennaVísir/Guðmundur

Það mátti sjá mikil vonbrigði á leikmönnum FHL eftir 1-4 tap gegn Tindastóli í Bestu deild kvenna í kvöld. FHL sótti og sótti í gegnum leikinn en Tindastóll uppskar stóran sigur með skyndisóknum í lokin. Þjálfari liðsins segir að liðið muni styrkja sig með fleiri en einum nýjum leikmanni fyrir seinni helming mótsins.

„Já, þetta stingur. Gríðarlega svekkjandi enn og aftur. Við áttum að mörgu leyti fínan leik en okkur er refsað alveg gríðarlega fyrir lítil mistök.

Við lögðum upp með að sækja eftir ákveðnum leiðum og mér fannst við gera nóg þar en við verðum líka að vera betri í boxinu. Við fáum á okkur mörk sem við eigum að stoppa og gerum síðan mistök í kjölfarið sem við eigum ekki að vera að gera – og það kostar okkur stig í dag,“ sagði Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari FHL eftir leikinn.

FHL eru nýliðar í deildinni meðan Tindastóll á að baki nokkur tímabil. Reynslumeiri lið refsa gjarnan grimmar. „Klárlega er reynslu í þessu en við erum í þessu til að læra. Ungir leikmenn gera mistök og læra af þeim en það er dýrt í þessari deild. Að vera ekki komin með fleiri stig á þessum tímapunkti er mjög sárt.“

Fyrirliðinn af velli eftir höfuðhögg

Rósey Björgvinsdóttir, fyrirliði FHL, fór af velli eftir um klukkustundar leik vegna höfuðmeiðsla. Sauma þurfti þrjú spor í augabrún hennar eftir að hné sóknarmanns Tindastóls fór í höfuð hennar þegar Rósey skallaði frá fyrirgjöf.

„Það þarf væntanlega að sauma þetta. Við getum ekki metið stöðuna að örðu leyti strax, hvort hún hafi fengið heilahristing. En ég myndi vilja sjá atvikið sjálft betur, mér fannst það vera meira en bara aukaspyrna.“

Ætlar að styrkja vörn, miðju og sókn

Framundan er mánaðarhlé vegna Evrópukeppninnar í knattspyrnu. FHL ætlar að æfa næstu vikuna en taka síðan stutt frí. Félagaskiptaglugginn opnar áður en deildin hefst á ný og FHL þarf styrkingar, bæði í ljósi stöðunnar en líka vegna meiðsla eins hjá leikstjórnandanum Aidu Kardovic sem sleit krossband.

„Við þurfum að styrkja allar þrjár línurnar okkar. Hlutirnir eru komnir á skrið en enn langt eftir. Við getum ekkert sagt fyrr en allt er klárt.“

Björgvin mun eins og fleiri fylgjast með íslenska landsliðinu á EM. „Það er áfram Ísland. Ég ætla að horfa og vera stuðningsmaður númer 1 þótt ég fari ekki til Sviss.“

Christa Björg: Mér fannst við miklu sterkari

Christa Björg Andrésdóttir skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild kvenna þegar FHL tapaði 1-4 fyrir Tindastóli á heimavelli í kvöld. Hún var skiljanlega súr með úrslitin enda átti FHL mun fleiri marktilraunir í leiknum.

„Mér fannst við miklu sterkari og bæta betur í leikinn. En Tindastóll er með gott lið og refsaði okkur fyrir mistökin sem við gerðum. Það gerðu þær mjög vel og áttu þetta skilið inn á milli – en mér fannst við alltaf eiga að vinna.

Það var ótrúlega gaman að skora en ég er líka mjög stolt af liðinu mínu. Við erum búnar að ganga í gegnum ýmsa hluti. Mér sé að við erum bæði að reyna að bæta okkur og ná framförum.

Nú þurfum við bara að ná hópnum enn betur saman og koma sterkari (eftir hléið vegna EM). Ég veit við getum það alveg.“

Í hönd fer mánaðarlangt hlé á deildinni vegna Evrópumóts kvenna þar sem Ísland tekur þátt. „Ég hlakka til að horfa á og læra af stelpunum sem spila fyrir hönd Íslands. Ég er spenntust fyrir að sjá liðið okkar gera góða hluti.“

Donni: Varða vítið sveiflaði stemmingunni í okkar hátt

Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari TindastólsVísir/HAG

Halldór Jón Sigurðsson (Donni), þjálfari Tindastóls, lagði áhersla á að vinnusemi og þrautseigja hefði skilað Tindastóli 1-4 sigri gegn FHL í kvöld. Hurð skall þó oft nærri hælum Tindastóls en markvörður þeirra varði víti um miðjan seinni hálfleik í stöðunni 1-1.

„Ég held að dugnaður og vilji hafi snúið þessu okkur í vil og svo markvarsla Genevieve í vítinu. FHL kom með mikla orku inn í seinni hálfleikinn, uppskar flott mark og svo vítið. Stemmingin var með þeim en sveiflaðist eftir vítið aftur til okkar. Við komumst svo fljótlega yfir og eftir það fannst mér þetta okkar megin. Við kláruðum leikinn vel.

Í mjög grófum dráttum var munurinn á liðunum sá að Tindastóll nýtti nánast hvert færi sem liðið fékk meðan skot FHL, sem voru að minnsta kosti helmingi fleiri, strönduðu á Geneieve eða sigldu framhjá.

„Við erum með flott gæði fram á við og nýttum þessi færi sem við fengum vel, þótt þau væru kannski ekki mörg. En ég er ánægður með liðsframmistöðuna og að fara inn í hléið með tíu stig. Við ætlum að reyna að byggja ofan á það.

Það er ekki bara stigin þrjú sem skipta máli heldur að fara inn í fríð með bros á vör. Við ætluðum okkur að gera betur fyrr á tímabilinu en úr því sem komið er þá tökum við þessi stig hér.“

Þörf á að styrkja liðið en óvíst hvort peningur fáist til þess

Donni hefur í viðtölum í sumar kvartað yfir því að Tindastólsliðið fái ekki nægan fjárhagslegan stuðning úr heimabyggð, sem aftur myndi gera því kleift að sækja betri leikmenn. Félagaskiptaglugginn opnar skömmu áður en mótið hefst aftur og Donni vonast til að styrkja liðið, einkum í því ljósi að hann hafði aðeins fimmtán leikmenn tiltæka á skýrslu í kvöld. Þá mun Snæfríður Eva Eiríksdóttir fara til náms áður en tímabilinu lýkur.

„Satt best að segja veit ég það ekki enn þá (hvort fjármunir séu til í leikmenn). Ég bíð svara. Vonandi verður það því við erum bara með fjóra á bekknum í dag og missum byrjunarliðsmann í júlí. Það er klárlega þörf á þessu og vonandi gengur það eftir – en það verður að koma í ljós því þetta er ekki í mínum höndum.“

ÓB-mótið og EM

Mánuður er í næsta leik en og leikmenn Tindastóls fá frí hluta af þeim tíma. „Við dæmum á ÓB-mótinu á Sauðárkróki á morgun. Það eru allir spenntir fyrir því – það verður gaman að fá fullt af efnilegum stelpum í bæinn. Síðan gefum við frí í rúmar tvær vikur og þá fara allir út um allt. Síðan æfum við og komum fílefldar í næsta leik.“

Hluta af fríinu verður væntanlega varið í að fylgjast með íslenska landsliðinu á EM. „Ég er mjög spenntur fyrir að sjá liðið okkar takast á við verkefni. Við erum í flottum riðli þar sem manni sýnist við eiga möguleika á að ná sigri, sem væri stórt. Þannig ég er mjög spenntur fyrir hvernig mótið þróast heilt yfir.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira