Fleiri fréttir

Raunveruleikinn var allur annar en bankarnir sögðu

„Upplýsingar sem FME sendi til Hollands komu frá bönkunum og voru einnig þær upplýsingar sem FME hafði aðgang að. Síðar kom í ljós að þær voru ekki réttar." Þetta segir Gunnar Andersen, forstjóri FME um ummæli fyrrverandi yfirmanns hollenska fjármálaeftirlitsins og seðlabanka, Arnolds Schilder.

Sakar nefndarmenn um vanhæfi vegna tengsla við Garðabæ

Oddviti Á-listans á Álftanesi, Sigurður Magnússon auk Kristínar Fjólu Bergþórsdóttur bæjarfulltrúi Á-listans, hafa lagt fram stjórnsýslukæru til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins vegna eftirlitsnefndar um fjármál sveitarstjórnarmála sem setja á yfir bæjarfélagið.

Færri leita sér að vinnu í útlöndum

Þeim sem hafa misst vinnuna og eru að leita fyrir sér með vinnu í útlöndum hefur fækkað um 5 prósentustig síðan síðastliðið sumar. Þeim fækkar einnig í hópi atvinnulausra sem stefna að því að fara í nám.

Niðurstaðan fagnaðarefni

Upplýsingafulltrúi Icelandair, Guðjón Arngrímsson, segir það fagnaðarefni að stjórnvaldssekt upp á 130 milljónir króna hafi verið felld niður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sektina hlaut fyrirtækið upprunalega fyrir að brjóta gegn samkeppnislögum með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína gagnvart flugfélaginu Icelandexpress.

Hjó drukkinn félaga sinn í höfuðið með sverði

Karlmaður á þrítugsaldri lagði til annars manns á svipuðum aldri vopnaður sverði um helgina samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fórnalambið, sem er á svipuðum aldri og árásarmaðurinn, var fluttur á slysadeild en sauma þurfti allnokkur spor í höfuð hans.

Ráðherra þrengir að útgerðinni með nýju frumvarpi

Nýtt frumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem nú er til umræðu á Alþingi þrengir töluvert að útgerð landsins hvað varðar allar hreyfingar með kvóta. Þannig er hlutfall óveidds kvóta sem útgerð er leyfilegt að flytja milli fiskveiðiára skorið niður úr 33% og í 15%. Þeir sem ekki veiða 50% eða meir af kvóta sínum á fiskveiðaárinu verða sviptir kvótanum.

Stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust nokkrir tugir kannabisplantna á ýmsum stigum ræktunar auk lítilræðis af öðrum fíkniefnum.

Ragnheiður í stað Ásbjörns

Sjálfstæðiskonan Ragnheiður Ríkharðsdóttir mun taka sæti Ásbjörns Óttarssonar í þingmannanefnd sem semur tillögur um viðbrögð vegna hrunskýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Aldrei fleiri Bretar til Íslands

Tæplega 19 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í janúarmánuði síðastliðnum samkvæmt Ferðamálastofu. Það eru 1200 færri en í janúar árið 2009.

Jóhanna hittir Barroso

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun eiga fund með José Manuel Barroso forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á fimmtudag.

F-listinn skilar ekki ársuppgjöri vegna Ólafs F

Frjálslyndi flokkurinn segist ekki geta skilað ársreikningi til Ríkisendurskoðunar meðal annars af því að dráttur hefur orðið á greiðslu á styrk til Frjálslynda flokksins sem Reykjavíkurborg greiðir til starfsemi flokkanna í borginni en styr hefur staðið um þann styrk á milli flokksins og Ólafs F. Magnússonar, fyrrum borgarfulltrúar F-listans.

Ýmsum trúnaðarupplýsingum um Icesave verður aflétt

„Ég trúi því að innan skamms muni koma fram nýjar upplýsingar sem muni skýra það í hversu erfiðri stöðu íslensk stjórnvöld hafa verið í þessu máli," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, aðspurður út í ummæli fyrrverandi stjórnarformanns hollenska fjármálaeftirlitsins.

Samorka hraunar yfir umhverfisráðherra

„Ráðherrann hefur áður tafið þetta ferli með vísan í formsatriði er varðar auglýsingar á breyttu skipulagi. Getur hugsast að ráðherrann sé einfaldlega á móti því að farið verði í þessar framkvæmdir? Er ráðherrann þá e.t.v. vanhæfur þegar kemur að endurteknum úrskurðum um formsatriði í þessu máli?"

Framsókn rekin með tapi - Íslandshreyfingin skuldar 23 milljónir

Framsóknarflokkurinn var rekinn með 60 milljón króna tapi árið 2007 samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðanda frá árinu 2007-2008. Mestur kostnaðurinn er tilkominn vegna Alþingiskosninganna árið 2007. Þá hlaut flokkurinn framlög frá ríkinu upp á 79 milljónir en alls voru framlög lögaðila 28 og hálf milljón. Sveitarfélögin styrktu flokkinn um rétt tæpar fimm milljónir.

Ríkisstjórnarflokkarnir högnuðust um 69 milljónir 2008

Ríkisstjórnarflokkarnir tveir, Samfylkingin og Vinstri grænir, högnuðust um 69 milljónir kr. á rekstri sínum árið 2008. Þar af nam hagnaður Samfylkingarinnar rúmlega 58,5 miljónum kr. og hagnaður Vinstri grænna nam rúmlega 10,4 milljónum kr.

Bílamótmæli í hádeginu

Bílamótmæli verða fyrir framan Íslandsbanka Kirkjusandi kl 12:15 í dag. En það eru samtökin Nýtt Íslands sem standa fyrir gjörningnum og hafa gert undanfarnar vikur.

Meintur árásarmaður slapp vegna galla á málsmeðferð

Héraðsdómur Reykjaness vísaði í gær frá dómi máli gegn manni sem ákærður var fyrir brot á valdstjórninni með því að hafa slegið lögreglukonu með krepptum hnefa í húsasundi á Akureyri í júní síðastliðnum, en lögreglukonan tognaði á kjálka í árásinni.

Dóttir Sophiu Hansen bar vitni á tyrknesku

Dóttir Sophiu Hansen, Rúna Hansen, bar vitni símleiðis í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en móðir hennar, Sophia, hefur verið ákærð fyrir að bera Sigurð Pétur Harðarson röngum sökum.

Náttfari gripinn á Selfossi

Lögreglan á Selfossi greip í nótt svonefndan náttfara, sem hún hefur verið á höttunum eftir í rúma tvo mánuði, fyrir fjöldan allan af afbrotum.

Borgarfulltrúar þurfa að greiða fyrir borgarráðsbústaðinn

Skrifstofustjóri borgarstjórnar, Ólafur Kr. Hjörleifsson, lagði fram bréf að beiðni Þorleifs Gunnlaugssonar, borgarfulltrúa VG, hjá forsætisnefnd þar sem lagt er til að gjald verði tekið af svokölluðum borgarráðsbústaði við Úlfljótsvatn í lok janúar.

F-listinn afneitar Ólafi F

Frjálslyndi flokkurinn hefur sent frá sér tilkynningu þar sem áréttað er að Ólafur F. Magnússon, er ekki borgarfulltrúi flokksins en hann birti í dag auglýsingu í Fréttablaðinu þar sem var merkt Borgarmálafélagi F-listans.

Ísbjarnasamtök harma birnudráp

Samtökin Polar International harma ísbjarndrápið á Íslandi í lok janúar en tónlistarkonan Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir vakti athygli samtakanna á málinu. Í pósti sem þeir senda á Sigurlaugu segjast samtökin búast við því að fleiri birni leiti til samfélaga á Norðurlöndunum eftir því sem ísinn bráðnar.

Frostlaust samfellt í 21 dag

Frostlaust var í Reykjavík í samfellt 21 dag í janúar síðastliðnum og hefur það ekki gerst síðan samfelldar lágmarksmælingar hófust i borginni árið 1920, eða í 90 ár.

Tveir milljarðar greiddir í atvinnuleysisbætur

Vinnumálatofnun greiddi tæpa tvo milljarða króna í atvinnuleysisbætur í gær, fyrir tímabilið frá 20. desember til 19. janúar. Tæplega 15.700 einstaklingar fengu bætur. Það er hátt í tvö hundruð færri en fengu bætur um næst síðustu mánaðamót, en bótaupphæðin er álíka

Norsk loðnuskip streyma á Íslandsmið

Norsk loðnuskip streyma nú á loðnumiðin austur af landinu, en þau mega veiða rösklega 28 þúsund tonn af loðnukvótanum, sem gefinn var út nýverið.

Vildi heimildarmann gegn kröfu um fésekt

Ríkissaksóknari vill að Héraðsdómur Reykjaness leggi réttarfarssekt á tvo fréttamenn Stöðvar 2 vegna upplýsinga sem birtar voru úr lokuðu þinghaldi um meint mansal á litháískri stúlku til Íslands.

Grunaður um að hafa stolið gögnum frá vinnuveitanda

Piltur á átjánda aldursári hefur verið yfirheyrður hjá lögreglu grunaður um að hafa stolið trúnaðargögnum frá Gunnari Gunnarssyni lögfræðingi. Gögnin varða fyrirtæki og einstaklinga sem lögfræðingurinn hefur starfað fyrir, þar á meðal Milestone og eigendur þess fyrirtækis, Karl og Steingrím Wernerssyni, auk tengdra félaga. Þá var meðal gagnanna að finna upplýsingar um fótboltamanninn Eið Smára Guðjohnsen.

Ráðuneytið úrskurðaði ekki í samræmi við lög

Félagsmálaráðuneytið úrskurðaði ekki í samræmi við lög þegar það synjaði eiganda heilsulindar um atvinnuleyfi fyrir sérhæfðan nuddara sem hann hafði auglýst eftir á taílenska heilsulind, samkvæmt úrskurði umboðsmanns Alþingis.

Níu af átján nýir á forvalslista VG

Níu nýir frambjóðendur eru á átján manna forvalslista VG fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Með nýjum frambjóðendum er átt við þá sem ekki hafa verið í framboði eða tekið sæti á lista fyrir flokkinn áður.

Rannsóknin verði fyrir opnum tjöldum

Í væntanlegri tillögu um rannsókn á því hvers vegna Ísland var á lista viljugra þjóða, þegar ráðist var inn í Írak 2003, verður kveðið á um að yfirheyrslur fari fram fyrir opnum tjöldum.

Framtíðarsýn spítala og háskóla samofin

Nýtt klínískt rannsóknasetur Landspítalans og Háskóla Íslands var opnað á dögunum. Setrið er áfangi í að auka samstarf stofnananna tveggja en framtíðarsýn forstjóra LSH er að heilbrigðismenntun færist meira og minna til spítalans.

Skólaráð mun láta í sér heyra

„Skólaráði Seljaskóla finnst að því komi sá niðurskurður við, sem skólinn verður fyrir, og boðar að það muni láta í sér heyra.“ Þetta segir Þórður Kristjánsson, skólastjóri Seljaskóla, spurður um nýlega ályktun skólaráðs skólans.

Flugmannaverkfalli hjá Icelandair frestað

Samningar hafa náðst í kjaradeilu FÍA, félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair en aðilar hafa fundað með ríkissáttasemjara síðustu daga. Verkfalli sem hefjast átti fimmtudaginn 4. febrúar hefur því verið frestað og verður samningurinn kynntur félagsmönnum og borinn undir atkvæði.

Íslenskir menntaskólanemar sigra í alþjóðlegri olíuleitarkeppni

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu sigraði á dögunum í alþjóðlegu olíuleitarkepninni 2009 og er þetta annað árið í röð sem skólinn fer með sigur af hólmi í þessari keppni. Þegar keppninni lauk á laugardag stóð lið FAS uppi sem sigurvegari og þá höfðu strákarnir sem tóku þátt bæði fundið arðbærar olíulindir sem gáfu ágætlega af sér og eins náðu þeir að gera hagstæða viðskiptasamninga við önnur lið. Sigurliðið sem heitir Puulsa er skipað þeim Jóhannesi Óðinssyni, Ottó Marvin Gunnarssyni og Sigfinni Björnssyni.

Alþingi opnar upplýsingasíðu um ríkisábyrgð á Icesave

Síða með lögum, þingsályktun og efni sem tengist ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi hefur verið opnuð á vef Alþingis. Þar gefst væntanlegum þáttakendum í þjóðaratkvæðagreiðslu um ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans kostur á að kynna sér málið til hlítar áður en ákvörðun er tekin um að samþykkja lög um ríkisábyrgð eða synja þeim.

VG vinnur á og helmingur styður ríkisstjórnina

VG vinnur á hjá kjósendum ef marka má nýjan Þjóðarpúls Gallup sem RÚV sagði frá í kvöldfréttum. Stjórnarflokkarnir eru nú jafnstórir með 25 prósenta fylgi. Helmingur aðspurðra styður því ríkisstjórnina en stærsti stjórnmálaflokkurinn er Sjálfstæðisflokkurinn sem fengi um þriðjung atkvæða færu úrslit kosninga á sama veg og könnun Gallup.

Segir Íslendinga hafa logið að Hollendingum

Fyrrverandi stjórnarformaður hollenska fjármálaeftirlitsins segir að Íslendingar hafi logið að hollendingum trekk í trekk þegar þeir síðarnefndu óskuðu eftir upplýsingum um ástand íslenska fjármálakerfisins, misserin fyrir hrun. Þetta kom fram máli Arnolds Schilder sem í dag bar vitni fyrir rannsóknarnefnd á hollenska þinginu sem rannsakar fjármálakreppuna sem gengið hefur yfir heiminn.

Strákarnir okkar fengu höfðinglegar móttökur

Strákarnir okkar voru hrærðir og þreyttir þegar þeir lentu síðdegis í dag með bronsmedalíuna um hálsinn. Þeirra beið móttökuathöfn í Laugardalshöll þar sem tekið var vel á móti þeim.

Sjá næstu 50 fréttir