Fleiri fréttir

Vél Icelandair snúið við vegna brotinnar rúðu

Snúa þurfti vél Icelandair sem var á leið frá Keflavík til Oslóar við í morgun vegna þess að sprunga kom í ytra byrði glers í einum glugga vélarinnar skömmu eftir flugtak. Samkvæmt upplýsingum frá Guðjóni Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, lenti vélin heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli skömmu seinna. Farþegar vélarinnar fengu svo far með annarri vél til Oslóar skömmu síðar. Guðjón segir að ekki hafi borið á neinni skelfingu á meðal farþega vélarinnar.

Bruggarar handteknir á Selfossi

Lögreglan á Selfossi haldlagði 30 lítra af landabruggi á föstudaginn síðasta. Lögreglan fór í tvær húsleitir að undangegnum úrskurði dómara Héraðsdóms Suðurlands.

Heitavatnslaust á Álftanesi á morgun

Vegna tenginga og breytinga verður heitt vatn tekið af Álftanesi á morgun frá átta að morgni til sjö að kvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá OR.

Hinn handtekni í annarlegu ástandi

Ekki hefur verið unnt að yfirheyra karl um tvítugt sem handtekinn var fyrr í dag í tengslum við sprengjuhótunina í Borgarholtsskóla vegna ástands hans. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Hann er ekki nemandi við skólann.

Varar við vindhviðum

Nú er mjög hvasst víðast hvar á landinu og víða eru vindhviður meira en 20 metrar á sekúntu, segir Sigurður Þ. Ragnarsson. Hann segir það vera varasamt að vera á ferðinni, sérstaklega með aftanívagna, aftan við fjöll. Sigurður segir að hviður á Kjalarnesi nái upp í 31 m/sekúnda, 35 m/ sekúndu á Snæfellsnesi og 22 m/ sekúndu á Hellisheiði.

Maður handtekinn í tengslum við sprengjuhótunina

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla handtekið ungan karlmann í tengslum við sprengjuhótunina í Borgarholtsskóla í hádeginu í dag. Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, vildi ekki staðfesta það í samtali við fréttastofu að svo stöddu en staðfesti að verið væri að leita aðila í tengslum við málið. Sprengjuhótunin barst skólanum símleiðis laust eftir hádegið.

Siv bindur vonir við Írann

„Mér líst ágætlega á þetta. Hann er duglegur og öflugur maður,“ segir Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, aðspurð hvernig henni lítist á að Pat Gallagher, rúmlega sextugur Íri og þingmanns á Evrópuþinginu, hafi verið valinn til að fara fyrir nefnd Evrópuþingsins sem kemur að samningaviðræðum Evrópusambandsins við Ísland.

Mikið hvassviðri á Snæfellsnesi

Mikið hvassviðri er á sunnanverðu Snæfellsnesi. Að minnsta kosti eitt óhapp sem orðið hefur á svæðinu í morgun, má rekja til veðursins. Lögrega biður þá sem eiga leið um svæðið að fara gætilega.

Sprengjuleitarmenn komnir í Borgarholtsskóla

Sprengjubíll frá ríkislögreglustjóra er kominn upp í Borgarholtsskóla og verður gerð leit að sprengjunni á næstu mínútum. Samkvæmt upplýsingum frá fréttamanni Stöðvar 2 og Vísis sem er er á staðnum er töluverður viðbúnaður þar. Fjölmargir lögreglubílar og -hjól hafa verið send á staðinn. Þá var dælubíll frá slökkviliðinu og tveir sjúkrabílar sendir á staðinn. Sprengjuhótunin barst símleiðis laust eftir hádegið í dag.

Nemendur þurftu að skilja eftir allar eigur og hlaupa út

Varaformaður nemendafélags Borgarholtsskóla segir nemendur hafa þurft að rýma skólann á augabragði. Sumir þurftu að skilja bíl- og húslykla og önnur verðmæti eftir inni í skólanum svo rýmingin gengi hratt fyrir sig.

Borgarholtsskóli rýmdur vegna sprengjuhótunar

Borgarholtsskóli í Grafarvogi var rýmdur fyrir stundu og er fjölmennt lögreglulið statt við skólann núna. Að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er um sprengjuhótun að ræða.

Fékk áfall yfir dýrum ritföngum

Kona sem keypti sér ritföng í Eymundsson á dögunum fékk áfall þegar hún kom að kassanum og heyrði hvað vörurnar kostuðu.Konan missti nýlega vinnuna og í staðinn fyrir að fara á bætur, ákvað hún að fara í nám.

Nýr fyrirvari til að tryggja samþykki Breta og Hollendinga

Tryggja á að Hollendingar og Bretar fallist á fyrirvara við ríkisábyrgð á Icesave reikiningum Landsbankans, með nýjum fyrirvara við Icesave frumvarpið. Fjárlaganefnd vinnur að þessu á fundi sem nú stendur. Nefndarmenn reikna með því að málið verði afgreitt frá nefndinni í dag.

Mótmælendum sleppt úr haldi

Lögregla hefur sleppt úr haldi mótmælendum í samtökunum Saving Iceland sem hlekkjuðu sig við vinnuvélar á framkvæmdasvæði álversins í Helguvík.

Kate Winslet í mynd Friðriks Þórs

Breska stórleikkonan Kate Winslet mun taka að sér hlutverk móður Kela í heimildarmyndinni Sólskinsdrengnum sem kemur út með ensku tali í september næstkomandi.

Tólf flugvélar á vegum franska hersins lentar í Keflavík

Tólf flugvélar á vegum franska hersins lentu á Keflavíkurflugvelli fyrir stundu. Um er að ræða tvær flutningavélar og tíu orustuþotur. Vélarnar eru að ferja hermenn frá Evrópu til Brasilíu en ekki liggur fyrir af hvaða tilefni.

Úthluta 50 milljónum fyrir íslenskukennslu

Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað 50 milljónum króna vegna námskeiða í íslensku fyrir útendinga síðari hluta árs 2009. Styrkirnir eru fyrir námskeið sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.

Hannes Hólmsteinn: Steingrímur á að biðjast afsökunar

„Ef einhverjir eiga að biðjast afsökunar eru það þeir sem gerðu Icesave samningana,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, spurður hvort að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsbankans, eigi að biðja íslensku þjóðina afsökunar vegna þeirra byrðar sem á hana fellur vegna Icesave reikninga bankans. Að hans mati klúðraði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Icesave málinu.

Skólastjórar meðvitaðir um erfitt ástand

Eflaust verður skólafólk vart við það að það eru erfiðleikar hjá sumum fjölskyldum, segir Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson, formaður Skólastjórafélags Íslands og skólastjóri Foldaskóla.

Utanferðum fækkar mikið

Aðeins tuttugu og þrjú Þúsund Íslendingar flugu til útlanda í júlímánuði síðastliðnum samanborið við 44 þúsund í fyrra. Þetta er því næstum helmings fækkun frá þvi í fyrra.

Fellibylurinn Bill: Sjö ára stúlka drukknaði

Sjö ára gömul stúlka lét lífið í Maine í Bandaríkjunum í gær þegar hópur fólks hafði komið saman á ströndinni til þess að fylgjast með ölduganginum sem fellibylurinn Bill framkallar á leið sinni upp með austurströnd Bandaríkjanna.

Konan sem stakk aðra var á reynslulausn

Konan, sem stakk aðra konu með eggvopni við Njálsgötu í Reykjavík á laugardagsmorgun, var á reynslulausn úr fangelsi, vegna fyrri afbrota, og er nú aftur komin í fangelsi til afplánunar síðasta dóms.

Slapp við að vera hýdd fyrir bjórdrykkju

Yfirvöld í Malasíu hafa óvænt ákveðið að láta lausa úr haldi fyrirsætuna Kartiku Shukarno sem á dögunum var dæmd til að hljóta sex vandarhögg fyrir að fá sér bjórglas á almannafæri.

Hraðakstur í Hörgárdal

Átta ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í Hörgárdal við Akureyri í gærkvöldi. Sá sem hraðast ók var á tæplega 130 kílómetra hraða og fær drjúga sekt.

Fjárlaganefnd fundar um Icesave

Fjárlaganefnd Alþingis kemur saman klukkan tíu til að ræða ríkisábyrgð vegna Icesave samninganna. Nefndin er með málið til umfjöllunar eftir að breytingartillögur við frumvarpið, eða fyrirvarar, voru samþykktar eftir aðra umræðu í þinginu á fimmtudag í síðustu viku.

Bíræfinn þjófur í Hveragerði

Töluverðum verðmætum var stolið úr íbúðarhúsi í Hveragerði í nótt og er þjófurinn ófundinn. Fyrst braust hann inn í gærkvöldi og fór þjófavarnakerfi í gang, með tilheyrandi viðbrögðum öryggisfyrirtækisins.

Hlekkjuðu sig aftur við grindverk og vinnuvélar - sex handteknir

12 manna hópur úr samtökunum Saving Iceland hlekkjaði sig við grindverk og vinnuvélar á athafnasvæði fyrirhugaðs álvers við Helguvík í Reykjanesbæ og reyndi að hefta för starfsmanna inn á svæðið. Sex voru handteknir af lögreglu í morgun.

Bankar mótmæla réttarbót

Bankarnir hafa eindregið lagst gegn frumvarpi um bætta stöðu skuldara, að sögn Lilju Móses­dóttir, formanns félagsmálanefndar. Hún er fyrsti flutnings­maður frumvarps sem hún segir hafa þann tilgang að leysa fólk úr skuldafangelsi.

Hringdi barnið inn veikt vegna fátæktar

Foreldri sautján ára drengs, sem hefja átti nám í menntaskóla, hringdi hann inn veikan fyrsta daginn. Ekki voru til peningar til að kaupa námsbækur og skólavörur handa honum.

Leyfisveiting tekin fyrir á miðvikudag

Menntaráð Reykjavíkur tekur umsókn Menntaskólans um starfsleyfi til umsagnar á miðvikudaginn, að sögn Kjartans Magnússonar, formanns menntaráðs. Eftir að ráðið hefur gefið umsögn fer umsóknin til menntamálaráðuneytisins, sem hefur endanlegt úrskurðarvald um hvort skólinn fái starfsleyfi eða ekki. Flestir grunnskólar Reykjavíkur hefja kennslu í dag.

Leituðu til ráðherra til að sækja bráðkvaddan mann

Björgunarsveitarmenn á Húsavík fullyrða að Landhelgisgæslan hafi hafnað beiðni þeirra um að þyrla sækti lík manns sem lést í fjallgöngu á fjallið Herðubreið. Svæðisstjóri björgunarsveitarinnar leitaði til dómsmálaráðherra og var þyrla frá Norðurflugi leigð til að ná í lík mannsins. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að aldrei hafi annað staðið til en að sækja líkið en ódýrari kostur hafi verið valinn en að senda stóra björgunarþyrlu.

Stefnan sett á að kljúfa hljóðmúrinn

Hátt í hundrað manns fylgdust með þegar öflugustu eldflaug sem smíðuð hefur verið af Íslendingum var skotið á loft frá Höskuldarvöllum, nálægt fjallinu Keili, um klukkan hálfþrjú í gær. Eldflaugin, sem vó átta kíló, náði þúsund kílómetra hraða og 2.700 metra hæð á 25 sekúndum. Fallhlíf var í flauginni svo hún gæti svifið til jarðar.

Ernir farnir að verpa á Suðurlandi

Arnarungar sem komust á legg í sumar voru 36 og hafa þeir ekki verið fleiri í manna minnum. Íslenski hafarnarstofninn telur nú um 65 pör og urpu 45 þeirra í vor. Varp misfórst hjá 19, þar á meðal hjá parinu sem fylgst var með á vefmyndavél Arnarsetursins.

Kröfuhafar beita málshöfðun sem tæki í samningaviðræðum

Kröfuhafar bankanna beita málshöfðun sem tæki í viðræðum um endurskipulagningu bankanna, segir prófessor í hagfræði. Haldi þeir málunum til streitu, eftir að þeir eru orðnir hluthafar að bönkunum, gætu þeir skaðað sína eigin hagsmuni.

Fall krónunnar: Flugeldasýningin styttri en í fyrra

Um eitt hundrað þúsund manns fylgdust með flugeldasýningunni í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Sýningin var þó styttri en í fyrra og kenna forsvarsmenn hátíðarinnar falli krónunnar um, því sömu krónutölu hafi verið varið til flugeldakaupa.

Hafa flutt út 80 tonn af sælgæti frá áramótum

Útflutningur á íslensku sælgæti hefur tekið kipp í efnahagskreppunni og er sælgætisgerðin Freyja komin í útrás. Fyrirtækið hefur sent út um 80 tonn af súkkulaði og öðru góðgæti frá áramótum.

Fólk greiði ekki meira af lánum en upphaflega greiðsluáætlun

Hæstaréttarlögmaður hvetur fólk til þess að greiða eingöngu af lánum í samræmi við upphaflega greiðsluáætlun og ekki krónu meira. Hann segir efnhagshrunið og óðaverðbólgu hafa breytt öllum forsendum lána og ákvæði í lögum verndi fólk fyrir því.

Sjá næstu 50 fréttir