Fleiri fréttir

Komu göngukonu til aðstoðar

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í gærkvöldi til að aðstoða fjallgöngukonu, sem hafði snúið sig illa á fæti í hlíðum Helgafells, sunnan við Hafnarfjörð. Leiðangurinn gekk vel, enda veður gott, og var konunni komið undir læknis hendur. Óvenju mikið hefur verið um það að undanförnu, að göngufólki hlekkist eitthvað á, en kunnugir segja að það megi eflaust rekja til þess að sjaldan eða aldrei hafi jafn margt göngufólk verið á ferðinni og í sumar, bæði Íslendingar og útlendingar

Brotist inn hjá Póstinum

Brotist var inn í aðalskrifstofur Íslandspósts í Stórhöfða i Reykjavík í nótt og komst þjófurinn undan. Hann rótaði víða í skúffum og skápum í leit að verðmætum , en ekki er enn vitað hvort, eða hvað hann hafði upp úr krafsinu. Þá er líka óljóst hvort hann hefur gramsað eitthvað í póstsendingum.

Icesave enn fast í fjárlaganefnd

Fjárlaganefnd Alþingis frestaði fundi sínum um Icesave málð um klukkan hálf tvö í nótt og kemur aftur saman í hádeginu. Þingflokkum voru kynnt drög að nefndaráliti í gærkvöldi og reyndust mjög skiptar skoðanir um þau.

Ógnuðu manni með riffli í Höfðahverfi

Fjórir ungir menn voru handteknir seint í gærkvöldi, eftir að þeir höfðu beint riffli að manni, sem var við vinnu sína í Höfðahverfi í Reykjavík. Manninum var að vonum brugðið.

Níu ára drengur rekinn úr fótboltaliði

Níu ára gamall drengur hefur verið rekinn úr 6. flokki ÍR í fótbolta vegna hegðunarvandamála. Hann má því ekki mæta á æfingar hjá félaginu. Foreldrar hans voru látnir vita af brottrekstrinum í bréfi. Móðir hans gagnrýnir þetta harðlega. Að sögn Halldórs Þ. Halldórssonar, yfirþjálfara yngri flokka ÍR, var þetta síðasta úrræði félagsins.

Talsmenn neytenda fordæma verðmerkingar

„Ég vil fá þetta burt. Það hefur lengi verið skoðun Neytendasamtakanna að það eigi að banna forverðmerktar vörur. Stærsti ágallinn er sá að þær halda uppi verði. Því fyrr sem þær verða bannaðar, því betra," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir löngu tímabært að stöðva forverðmerkingar á matvöru.

Hækkun álverðs mikið ánægjuefni fyrir orkufyrirtækin í landinu

Verðið á áli hefur hækkað um 59 prósent frá því í mars og kostaði tonnið 1.997 dali í gær. „Þetta er mikið ánægjuefni fyrir orkufyrirtækin og hefur jákvæð áhrif á tekjurnar,“ segir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar.

Kvótaúthlutun á makríl: Samningsstaða Íslands er óljós

„Ekki er enn ljóst hvort Íslandi verður meinuð þátttaka í fundum hinna strandríkjanna um stjórnun veiða úr makrílstofninum fyrir árið 2010. Þar til þau viður­kenna Ísland sem fullgildan aðila að stjórn veiðanna og réttmæta hlutdeild okkar munum við stunda lögmætar makrílveiðar á okkar forsendum," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í niðurlagi greinar sem birtist í Fiskifréttum í gær.

Stöð 2 Sport: Leikdögum fjölgar í Meistaradeildinni

„Þetta er auðvitað mikið fagnaðarefni fyrir knattspyrnu­áhugamenn hér landi, en ekki síður viðurkenning fyrir fyrirtækið. Það hefur komið skýrt fram hjá sölu­aðilum þessa efnis að þeir telja að við höfum verið að þjóna markaðnum mjög vel og séum besti samstarfsaðilinn á markaðnum. Þeir líta á það sem sína hagsmuni að við komumst í gegnum þetta," segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla.

Eftirlit á miðunum: Um borð í 23 báta

Fiskistofa og Landhelgisgæslan fóru í júlí í sameiginlegan leiðangur í eftirliti á grunnslóð við landið. Leiðangurinn stóð í átta daga, en á þeim fimm dögum sem nýttust til verksins var farið um borð í alls 23 báta; tuttugu handfærabáta, einn togbát, einn línubát og einn netabát.

Með riffil út um bílgluggann

Lögregla fékk tilkynningu um að verið væri að ógna vegfarendum með skotvopni út úr bíl í grennd við Bíldshöfða um klukkan hálftíu í kvöld.

Lögreglukona gagnrýnir Stefán Eiríksson í opnu bréfi

Lögreglukonan Bylgja Hrönn Baldursdóttir sendir Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, tóninn í opnu bréfi sem hún sendi honum í dag. Hún segir lögreglustjórann því miður á góðri leið með að missa lögreglumennina frá sér.

Enn fundað í fjárlaganefnd

Kristján Þór Júlíusson, einn fulltrúa Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd, segir enn unnið að fyrirvaraleiðinni í nefndinni. Enn hefur nefndin ekki náð saman.

Tollverðir felldu líka kjarasamninga

Tollverðir felldu í dag nýjan kjarasamning félagsins sem undirritaður var 3. júlí síðastliðinn. Á kjörskrá voru 115, en alls greiddu 48 atkvæði í rafrænni kosningu á heimasíðu Tollvarðafélagsins.

Fjórir lögreglubílar stöðvuðu einn á Sæbrautinni

Fjórir lögreglubílar stöðvuðu einn fólksbíl á Sæbrautinni milli klukkan 21 og 22 í kvöld. Lögregla vildi ekki gefa neinar upplýsingar um hvað væri á seyði, en staðfesti hins vegar að slíkur fjöldi bíla hefði farið í mál á svæðinu.

Dýrbítur gengur laus í Mosfellsdalnum

Hreinn Ólafsson, bóndi í Helgadal segir að bændur á svæðinu hafi síðasta hálfa mánuðinn fundið sex dauðar ær sem augljóslega hafi veið drepnar af hundi.

Frí frá þingstörfum hvarfla ekki að Þráni

Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segir það ekki hvarfla að sér að taka sér frí frá þingstörfum þó restin af þingflokknum vilji að hann geri það.

Vilja leikfrestun vegna svínaflensu

Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur óskað eftir þvi við mótanefnd knattspyrnusambands Íslands að leik Grindavíkur og ÍBV á sunnudag verði frestað.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn höfnuðu líka kjarasamningum

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn höfnuðu í dag kjarasamningum sem gerðir voru í sumar með afgerandi meirihluta. Póstatkvæðagreiðsla um framlengingu og breytingar á kjarasamningum sem skrifað var undir í júlí hófst 6. ágúst og lauk í dag.

Davíð Oddsson á Austurvelli

Um þrjúþúsund manns eru mættir á samstöðufund á Austurvelli, en þar á meðal er Davíð Oddsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri.

Búsáhaldabylting í ítölskum smábæ

Kirkjuklukkurnar í ítalska smáþorpinu Mezzema hljóðnuðu fyrr í mánuðinum fyrir tilstuðlan prestsins á staðnum. Ástæðan var sú að ferðamaður hafði kvartað yfir hávaðanum sem þær framkölluðu snemma á morgnana.

Langflestir ganga niður Laugaveginn

Langflestir vegfarendur á Laugavegi og Skólavörðustíg í júlí eru fótgangandi samkvæmt könnun sem voru gerð var á ferðavenjum þeirra. „Veðrið hefur leikið við okkur í sumar og margir gengið Laugaveginn til að versla, skoða í glugga, fá sér matarbita eða bara til að njóta mannlífsins," segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir formaður umhverfis- og samgönguráðs í tilkynningu.

Lögfræðingar á fundi fjárlaganefndar

Hópur lögfræðinga sem fenginn var til þess að útbúa breytingar á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave settist á fund með fjárlaganefnd rétt uppúr klukkan þrjú í dag.

Annað innbrotið í Langholtskirkju á skömmum tima

Innbrotið í Langholtskirkju í nótt er annað innbrotið í kirkjuna á skömmum tíma. Brotamennirnir sem fóru inn í kirkjuna í nótt höfðu ekkert upp úr krafsinu nema ef vera skyldi að hafa svalað skemmdarfýsn sinni en þeir komust inn með því að brjóta rúðu á skrifstofu kirkjunnar.

Lögreglumenn höfnuðu kjarasamningi

Lögreglumenn höfnuðu með miklum meirihluta kjarasamningi sem gerður var við hið opinbera í sumar. Mikil óánægja hefur verið meðal lögreglumanna undanfarin misseri með launakjör og starfsaðstæður. Því höfnuðu rúmlega 91% félaga í Landssambandi lögreglumanna samningnum.

Hörður Arnarson ráðinn forstjóri Landsvirkjunar

Hörður Arnarson, forstjóri Sjóvár, hefur verið ráðinn forstjóri Landsvirkjunar. Hann tekur við af Friðriki Sophussyni sem hefur verið forstjóri Landsvirkjunar undanfarin tíu ár eigi síðar en 1. janúar 2010.

Bíræfnir brotamenn brutust inn í kirkju

Brotist var inn í Langholtskirkju í nótt eða í morgun, en lögreglan fékk tilkynningu um málið um tíuleytiið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki vitað hvort einhverju var stolið.

Blómasali í Mosfellsbæ grunaður um græsku

Lögreglu barst í morgun tilkynning um par af erlendum uppruna sem gekk milli húsa í Mosfellsbæ og seldi plastblóm til styrktar rúmenskum börnum. Íbúar hverfisins fengu þá tilfinningu að um svik væri að ræða og gerðu lögreglu viðvart.

Varaði Icelandair Cargo við vopnaflutningum til Georgíu

Sendiherra Rússlands segist hafa varað Icelandair Cargo við vopnaflutningum til Georgíu eftir að stríð milli Rússa og Georgíumanna skall á fyrir rúmu ári. Framkvæmdastjóri Icelandair Cargo kannast ekki við það.

InDefence með samstöðufund vegna Icesave

Indefence hópurinn stendur fyrir samstöðufundi vegna Icesave samkomulagsins á Austurvelli í dag. Hópurinn vill sanngjarnan Icesave samning sem þjóðin geti staðið við.

Uppsagnir munu ekki hafa áhrif á þjónustu Krabbameinsfélagsins

Skipulagsbreytingar á Leitarsviði Krabbameinsfélagsins munu ekki hafa nein áhrif á þá þjónustu sem Krabbameinsfélag Íslands veitir skjólstæðingum sínum, hvorki í þéttbýli né dreifbýli. Vísir greindi frá því í gær að sex geislafræðingar á Leitarsviði myndu missa vinnuna.

Tveimur mótorhjólum stolið - 300 þúsund í fundarlaun

Tveimur torfærumótorhjólum var stolið úr bílakjallaranum við Helluvað 13 í fyrrinótt, milli klukkan tvö og þrjú að því er eigandinn telur. Um er að ræða Honda hjól og Yamaha hjól, annað blátt og hvítt og hitt rautt og hvítt. Þeir sem gætu vitað hvar hjólin eru niður komin eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000

Sigrún ráðin framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar

Stjórn Samfylkingarinnar hefur ráðið Sigrúnu Jónsdóttur stjórnmálafræðing sem framkvæmdastjóra flokksins frá með septembermánuði næstkomandi. Hún gegndi tímabundið störfum framkvæmdastjóra eftir að Skúli Helgason lét af störfum í vor.

Vatnsleki í Öskju

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um níuleytið í morgun vegna vatnsleka í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Þegar slökkvilið kom á staðinn var kalt vatn á rúmlega 200 fermetra stórum gólffleti á annarri hæð hússins sem er rúmlega 8500 fermetrar að stærð. Dælu- og sjúkrabíll fóru á staðinn og gekk vel að dæla vatninu úr húsinu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliðinu.

Fjárlaganefnd lýkur Icesave umfjöllun í dag

Fjárlaganefnd Alþingis mun ljúka umfjöllun um Icesave málið í dag eða í kvöld, segir Guðbjartur Hannesson, formaður nefndarinnar í samtali við fréttastofu. Fjárlaganefnd fundaði um málið í morgun og ákvað nefndin að fá með sér hóp til að vinna texta að breytingum á frumvarpinu í samræmi við óskir nefndarinnar.

Framkvæmdastjóri Borgarahreyfingarinnar hættur

Jóhann Kristjánsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri þingflokks Borgarahreyfingarinnar eftir þrjá mánuði í starfi. Hann segist hætta í góðri sátt. „Það stóð aldrei til að ég yrði þarna til eilífðarnóns.“

Sjá næstu 50 fréttir