Innlent

Vatnsleki í Öskju

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Frá Öskju á háskólasvæðinu. Mynd/GVA
Frá Öskju á háskólasvæðinu. Mynd/GVA
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um níuleytið í morgun vegna vatnsleka í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Þegar slökkvilið kom á staðinn var kalt vatn á rúmlega 200 fermetra stórum gólffleti á annarri hæð hússins sem er rúmlega 8500 fermetrar að stærð. Dælu- og sjúkrabíll fóru á staðinn og gekk vel að dæla vatninu úr húsinu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×