Innlent

Lögreglumenn höfnuðu kjarasamningi

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Lögreglumenn höfnuðu með miklum meirihluta kjarasamningi sem gerður var við hið opinbera í sumar. Mikil óánægja hefur verið meðal lögreglumanna undanfarin misseri með launakjör og starfsaðstæður. Því höfnuðu rúmlega 91% félaga í Landssambandi lögreglumanna samningnum.

Atkvæðagreiðslu vegna kjarasamnings lauk á hádegi í dag. Á heimasíðu landssambandsins segir að 747 hafi haft atkvæðisrétt. 413 nýttu atkvæðisrétt sinn, eða 55,3%. Já sögðu 7,5%, nei sögðu 90,6% og rúmlega 2% skiluðu auðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×