Fleiri fréttir

Skuldin tífaldaðist

Skuld vegna vangoldinnar brunatryggingar hjá Tryggingamiðstöðinni (TM) upp á 1.549 krónur er komin upp í 14.613 krónur hjá einstaklingi sem seldi íbúðina sína í janúar síðastliðnum. Þrátt fyrir að hann seldi íbúðina í janúar nær greiðslutímabilið frá 1. september 2008 til 3. mars 2009 og hefur skuldin því nálega tífaldast á um ellefu mánuðum.

Málningu slett á sendiráðið

Lögregla handtók mann fyrir að sletta rauðri málningu á dyr sendiráðs Danmerkur við Hverfisgötu í gær.

Reiknar ekki með nýjum samningum

Engin ástæða er til að gefa sér að Íslendingar þurfi að fara í nýjar samningaviðræður vegna Icesave, sagði Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi í gær. Hann vonar að svo fari ekki.

Óbreytt frumvarp bryti mannréttindi

Ragnar Aðalsteinsson lögmaður, sem sérhæfir sig í mannréttindum, telur að ef frumvarpi um kyrrsetningu eigna verði ekki breytt kunni það að skerða mannréttindi skattborgaranna.

Laun staðgengla forseta lækkuð

Samkvæmt frumvarpi efnahags- og skattanefndar verða laun handhafa forsetavalds hér eftir fimmtungur af launum forseta, en ekki full laun hans. Handhafar þessir gegna störfum forseta þegar hann er forfallaður.

Styrkja ferðasjóð langveikra barna

Ópal Sjávarfang, í samstarfi við verslanir sem selja laxinn þeirra og Icelandair, stendur um þessar mundir fyrir verkefninu „Gefðu með þér“ sem er tileinkað Vildarbörnum Icelandair – ferðasjóði langveikra barna.

Lögreglumaður: Ekki fleiri skútumál í bráð

„Það verða ekki fréttir af smyglskútum í fjölmiðlum næstu ár,“ skrifar formaður Lögreglufélags Austurlands á vef félagsins. Til að lögregla komi upp um slík mál í framtíðinni þurfi að vera starfhæf lögregla í landinu, og stjórnvöld virðist stefna að því að svo verði ekki.

Mun halda sjó næstu áratugi

Ekki er talin ástæða að svo stöddu til að ráðast í framkvæmdir til að verja þjóðveginn við Jökulsárlón. Garðar sem gerðir voru út með Jökulsá á Breiðamerkursandi hafa dugað ágætlega, að sögn sérfræðinga Vegagerðarinnar.

Illa gengur að manna störfin

Einhver bið verður á því að allir foreldrar barna sem sóttu um pláss á frístunda­heimilum Reykjavíkurborgar fái pláss fyrir börn sín. Yfirmaður frístundaheimilanna segir koma á óvart hversu erfitt sé að manna stöður.

Aldrei fleiri í Háskóla Íslands

Menntamál Heildarfjöldi nema í Háskóla Íslands í haust verður á sextánda þúsund. Aldrei hafa fleiri nemar verið skráðir í Háskóla Íslands frá upphafi. Um fjórtán þúsund stúdentar hafa þegar staðfest skólavist vegna náms við Háskóla Íslands á næsta misseri en á annað þúsund umsóknir eru enn í vinnslu. Umsóknum um nám í Háskólann fjölgaði um tuttugu prósent milli áranna 2008 og 2009.

Guðlaugur: Ég skildi ekki textann

Líkt og fjallað var um á Vísi í dag, áminnti Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Guðlaug Þór Þórðarson fyrir að tala ensku í ræðustól Alþingis.

Þarf að semja aftur vegna Icesave

Fyrirvarar við Icesave samkomulagið hafa það í för með sér að semja þarf við Breta og Hollendinga upp á nýtt. Þetta er mat lagaprófessors við Háskóla Íslands.

Pólskt þjófagengi í gæsluvarðhaldi

Þrír pólverjar sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald fyrir helgi eru taldir tilheyra skipulögðu gegni innbrotsþjófa sem grunað er um að hafa brotist inn í hundruð heimila síðustu vikur og mánuði. Lögreglan rannskar hvort þýfinu hafi verið smyglað úr landi.

Nágrannakona í Óðinsvéum: Blóðslettur á gluggum

Blóðslettur sáust á gluggum íbúðarinnar, segir nágranni 13 ára gömlu stelpunnar sem myrt var af föður sínum í Óðinsvéum í gær. Hann barði hana yfir 20 sinnum með skiptilykli í andlit og höfuð en sagðist ekki hafa ætlað að bana henni heldur berja hana þar til hún missti meðvitund.

Lekaholur þéttar við Sigöldu

Þess hefur verið freistað við Sigöldustíflu í sumar að draga úr allt að tvöhundruð milljóna króna árlegu tekjutapi vegna vatnsleka með því að þétta botn miðlunarlóns virkjunarinnar.

Umtalsverð lækkun launa handhafa forsetavalds

Í frumvarpi efnahags- og skattanefndar sem lagt var fram á Alþingi í dag er gert ráð fyrir því að laun handhafa forsetavalds verði samanlagt fimmtungur launa forseta þann tíma sem þeir fara með forsetavald um stundarsakir.

Fleiri en 15 þúsund nemar við Háskóla Íslands

Heildarfjöldi nema í Háskóla Íslands í haust verður á sextánda þúsund. Um 14 þúsund stúdentar hafa þegar staðfest skólavist vegna náms við Háskóla Íslands á næsta misseri en á annað þúsund umsóknir eru enn í vinnslu. Umsóknum um nám í Háskólann fjölgaði um 20% milli áranna 2008 og 2009 og hefur mjög stór hluti þeirra sem sóttu um nám staðfest skólavist. Aldrei hafa fleiri nemar verið skráðir í Háskóla Íslands frá upphafi.

Skammaður fyrir að tala ensku í þingsal

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fékk skömm í hattinn fyrir að tala ensku í þingsalnum við óundirbúinn fyrirspurnatíma í þingsalnum í dag.

Ekkert liggur fyrir um skipun þjóðleikhússtjóra

Ekkert liggur fyrir um skipun nýs þjóðleikhússtjóra og engar upplýsingar fengust um hvenær von væri á ákvörðun menntamálaráðherra þar að lútandi þegar eftir því var leitað.

Þráinn sagði sig úr þingflokknum - Margrét baðst afsökunar

Þráinn Bertelsson sagði sig formlega úr þingflokki Borgarahreyfingarinnar í dag. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, las upp bréf frá Þráni, þess efnis, við upphaf þingfundar í dag. Í bréfinu segist Þráinn hafa slitið samskiptum við fólk sem telji orðheldni vera merki um alvarlega heilabilun.

Á von á tólfburum

Kona í Túnís mun brátt ala 12 börn eftir því sem breska blaðið The Sun fullyrðir. Konan, sem er kennari, á von á sex drengjum og sex stúlkum.

Vill reglur um sjósund

„Það er verið að taka um að setja Ermasundsreglur. Það er krafa sumra. En það eru allir sammála um að það verði að setja skýrar reglur," segir sjósundkappinn Benedikt Lafleur um öryggi sjósundkappa en íþróttinn nýtur sívaxandi vinsælda hér á landi.

Sjálflýsandi hross til varnar slysum

Nokkuð var um tilkynningar um laus hross í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í liðinni viku. Undanfarin sumur hafa hlotist nokkur slys þegar vegfarendur hafa ekið á hrossin í myrkrinu.

Reykjavíkurbiskup leiður yfir brottrekstri

„Kaþólsku kirkjunni á Íslandi þykir leitt að stjórn Landakotsskóla ses. hafi átt í erfiðleikum,“ skrifar Pétur Bürcher, Reykjavíkurbiskup í tilkynningu sem Kaþólska kirkjan sendi frá sér til fjölmiðla.

Landakotsskóli: Breytist fram á síðasta dag

Skólastjóra Landakotsskóla, Fríðu Regínu Höskuldsdóttur, var sagt upp störfum um helgina. Stjórn skólans tók ákvörðunin á föstudaginn og svo fékk Fríða uppsagnarbréf afhent um helgina. Ekki var óskað eftir því að hún ynni þriggja mánaða uppsagnarfrest. Aðstoðarskólastjórinn, Sigríður Hjálmarsdóttir, tekur við starfinu tímabundið. Stjórnin segir uppsögnin hluta af hagræðingu.

Gripu til vopna eftir Facebookdeilur

Búið er að sleppa piltunum fjórum sem grunaðir eru um að hafa ógnað manni sem var við vinnu sína í Höfðahverfi í Reykjavík með skotvopni.

Leikskólinn opnar eftir svínaflensu

Leikskólinn Aðalþing hóf störf í dag eins og aðra daga og ekki kom til formlegrar lokunar en sex starfsmenn skólans greindust með svínaflensuna fyrir skömmu.

Michael Hudson: Geta Íslendingar borgað?

Ísland er til umfjöllunar í grein í Financial Times í dag eftir hagfræðiprófessorinn Michael Hudson sem hefur starfað sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórna Bandaríkjanna, Kanada, Mexíkó og Lettlands. Hann skrifar um skuldastöðu Íslands og Lettlands og spyr hvort ríkin geti greitt erlendar skuldir.

Framsóknarmenn einhuga um andstöðu gegn Icesave

Einhugur er í þingflokki Framsóknarflokksins um flokkurinn standi einn gegn niðurstöðu Icesave-málsins. Þetta segja bæði Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður og Siv Friðleifsdóttir, reynslumesti þingmaður flokksins.

Sumrinu framlengt í Nauthólsvík

Ákveðið hefur verið að framlengja sumrinu á Ylströndinni í Nauthólsvík og hafa þar opið til 31. ágúst, en til stóð að loka Ylströndinni í dag.

Í hættu á bátstuðru

Félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja fengu útkall rétt fyrir hálf ellefu í gærkvöldi vegna tuðru sem var í vanda stödd við Bakkafjöru. Þetta kemur fram á fréttavefnum eyjar.net.

Annað kjötránið á stuttum tíma

Um tólf hundruð kílóum af kjöti hefur verið stolið frá Kjöthúsinu á Smiðjuvegi í sumar. Um 7-800 kílóum var stolið þaðan í nótt og í maí var stolið þaðan 500 kílóum.

Björgunarsveitir kallaðar út vegna sjósundkappa

Allar björgunarsveitir í Skagafirði voru kallaðar út á laugardaginn eftir að tilkynning barst til lögreglunnar um að sjósundkappi hefði horfið í miðju Drangeyjarsundi. Þetta kom fram á Feykir.is.

Stjórnarformaður OR fordæmir árásir hugleysingja

Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur skrifar harðorða grein í Morgunblaðið þar sem hann fordæmir árásir á heimili fjölskyldna stjórnenda í orku- og stóriðjufyrirtækjum.

Nýskráningar dragast saman um 76 prósent

Mikil fækkun er í nýskráningum ökutækja það sem af er ári. Í tölum frá Umferðarstofu kemur fram að 3.732 ökutæki hafi verið skráð á árinu samanborið við 15.345 ökutæki á sama tímabili í fyrra. Þetta gerir 75,68 prósenta fækkun milli ára.

Íslensk upplýsingatækni til Sameinuðu þjóðanna

Ein af skrifstofum Sameinuðu þjóðanna (OCHA) hefur tekið í notkun samskipta- og upplýsingagátt frá íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software fyrir samræmt hjálparstarf á hjálpar- og hamfarasvæðum. Lausnin byggir á íslensku hugviti og hefur meðal annars verið nýtt af stjórnvöldum í Mexíkó fyrir hjálparstarf vegna inflúensufaraldurs (H1N1) þar í landi.

Harður árekstur á Höfðabakka í gærkvöldi

Tveir voru fluttir á sjúkrahús með sjúkrabílum eftir harðan árekstur þriggja bíla á Höfðabakka í Reykjavík í gærkvöldi. Fólkið mun ekki vera alvarlega slasað en bílarnir eru mikið skemmdir. Tildrög slyssins eru óljós.

Tilkynnti um innbrot sem hann framdi sjálfur

Þjófur, sem braust inn í mannlaust íbúðarhús á Akureyri um helgina, reyndi nýstárlega leið til að leiða grun frá sjálfum sér. Hann hafði samband við húseigandann og sagði honum að sér hafi sýnst, þegar hann átti leið þar framhjá, að það hafi verið brotist inn hjá honum.

Brennt barn forðast eldinn

Nítíu prósent þeirra erlendu fjármálafyrirtækja sem fjárfest hafa á Íslandi telja ólíklegt að þau rói á íslensk mið á næstunni ef marka má nýja könnun.

Sjá næstu 50 fréttir