Óvíst hvort viljayfirlýsing um Bakka verði framlengd 18. ágúst 2009 18:49
Sex vikum áður en viljayfirlýsing milli stjórnvalda og Alcoa um álver við Húsavík rennur út ríkir fullkomin óvissa um hvort hún verði endurnýjuð, þrátt fyrir eindreginn vilja Alcoa. Efasemdir eru í ríkisstjórninni og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur mjög dvínandi líkur á Bakkaálveri.Á fjórða ár eru liðin frá því Húsvíkingar fögnuðu á Gamla Bauki áformum um álverið. Þótt verkefnið hafi tvívegis hikstað í fyrra, vegna ákvörðunar umhverfisráðherra um heildstætt umhverfismat, og við frestun rannsóknarborana, hefur undirbúningur haldið áfram í samræmi við viljayfirlýsingu milli Alcoa, ríkisstjórnarinnar og sveitarfélagsins. Hún er hins vegar að renna út þann 1. október og óvíst er hvort ríkisstjórnin vilji framlengja.Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra kveðst ekkert vilja segja um málið að svo stöddu annað en að verið sé að fara yfir það. Það gangi þó ekki að fyrirtækið sé með orkuna fyrir norðan endalaust í panti. Menn vilji fara að sjá ákvarðanir um nýtingu þessarar miklu orku í heimabyggð.Fjármálaráðherra, sem fer með eign ríkisins í Landsvirkjun, kveðst fremur vilja sjá orku Þingeyinga nýtta til fjölbreyttari og umhverfisvænni atvinnustarfsemi og efast um endurnýjun viljayfirlýsingar um álverið. Steingrímur J. segir að það þýði ekkert að framlengja slíkt ár eftir ár þegar hvergi bóli á neinum framkvæmdum. Menn þoli það ekkert mikið lengur að bíða með alla þá fjárfestingu sem þegar liggi í orkurannsóknum á þessu svæði og fara ekki að fá í sjónmál neinar tekjur. Það væri að sínu mati ekki góður kostur að óbreyttu að framlengja viljayfirlýsinguna. Kveðst Steingrímur telja mjög dvínandi líkur á að af þessum áformum verði.Ekkert hik virðist hins vegar á Alcoa-mönnum. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, segir fyrirtækið hafa staðið við sinn þátt í viljayfirlýsingunni og það vilji halda þessu verkefni áfram. Verið væri að vinna að ákveðnum leiðum í því skyni, enda hafi fyrirtækið mikinn áhuga á þessu verkefni. Kveðst Tómas hafa fulla trú á því að það verði einhverjar lausnir í því máli.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Fleiri fréttir Virkjuðu viðbragðsáætlun vegna flugslyss Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira