Innlent

Anders Fogh heimsækir Ísland

Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO.
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO. Mynd/ AFP
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sækir Ísland heim á fimmtudag. Er þetta fyrsta heimsókn nýs framkvæmdastjóra NATO til aðildarríkis bandalagsins.

Anders Fogh Rasmussen mun eiga fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, og utanríkismálanefnd Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×