Innlent

Nítján ökumenn teknir um helgina

Nítján ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu um helgina, fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fikniefna. Langflestir, eða sautján voru teknir fyrir ölvunarakstur, samkvæmt samantekt lögreglunnar.

Karlmenn voru í miklum meirihluta, líkt og oftast áður. Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna fíkniefnaaksturs. Annar þeirra var kona á stolnum bíl og var talsvert af þýfi í bílnum líka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×