Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nítján þúsund sigldu með ferjunni Baldri Metaðsókn var í Breiðafjarðarferjuna Baldur í júlí en um nítján þúsund farþegar og um fjögur þúsund bílar fóru með ferjunni. Á sama tíma í fyrra sigldu rúmlega fimmtán þúsund manns með ferjunni og um 3.500 bílar. 12.8.2009 04:00
Makríllinn dreifður um alla lögsöguna Umfangsmestu rannsóknir á makrílgöngum á hafsvæðinu við Ísland og á Norður-Atlantshafi eru langt komnar. Rannsóknirnar eru tilkomnar vegna deilna um útbreiðslu makríls hér við land og rétt Íslendinga til veiða úr stofninum. Niðurstaða þeirra mun liggja fyrir í september en ljóst er að mikið er af makríl víða í íslensku lögsögunni. 12.8.2009 03:30
Áfram verður hlýtt á landinu Mikið blíðskaparveður var víða á landinu í gær, og sólin skein skært í miðborg Reykjavíkur. Ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá Bæjarins bestu í Tryggvagötu og var ekki að sjá að gestir sem biðu þar létu það nokkuð á sig fá í góða veðrinu. 12.8.2009 03:15
Vilja dreifa umferð um Esjuna Unnið hefur verið að því í að búa til nýja göngustíga um hlíðar Esjunnar í sumar til að dreifa umferð um fjallið en ágangur þar hefur verið óvenju mikill. Að sögn Bergþóru Einarsdóttur, flokksstjóra hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, sem hefur umsjón með Esjuhlíðum, hefur verið stöðugt streymi upp að Þverfellshorni, sem er vinsælasta gönguleiðin. 12.8.2009 03:15
Fundur VG: Félagshyggjustjórnin megi ekki stranda á Icesave Það var þétt setinn bekkurinn á félagsfundi Vinstri grænna í Kraganum, en aðstandendur fundarins telja að yfir hundrað manns hafi setið fundinn. Meðal gesta var stór hluti þingflokks Vinstri grænna og jafnvel flokksmeðlimir úr öðrum kjördæmum. 11.8.2009 23:52
Fleiri en hundrað á félagsfundi VG í Kraganum Yfir hundrað manns eru mættir á félagsfund Vinstri grænna í Kraganum í félagsheimili VG að Hamraborg 1-3. Meðal þeirra sem sitja fundinn eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson, þingmenn flokksins, sem svara spurningum félaga eftir bestu getu. 11.8.2009 22:11
Er tilbúinn að skoða skattaafslátt gegn upplýsingum „Ég er alveg tilbúinn að taka þetta til skoðunar," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, aðspurður um þá hugmynd að veita fjármagnseigendum skattaafslátt í skiptum fyrir upplýsingar um innistæður þeirra á aflandsreikningum. 11.8.2009 20:52
Þrisvar dópaður undir stýri á einni viku Lögreglan á Akureyri greip tvítugan pilt í dag grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þetta er í annað skiptið á jafnmörgum dögum sem lögregla hefur afskipti af drengnum, því um hádegisbilið í gær var sami drengur stöðvaður fyrir sama brot. Þá tók lögregla hann einnig um síðustu helgi fyrir fíkniefnaakstur. 11.8.2009 21:17
Hvalfjarðargöngin opnuð eftir slys Verið er að opna Hvalfjarðargöngin, en þeim var lokað eftir að þriggja bíla árekstur varð þar á fimmta tímanum. 11.8.2009 19:50
Vill veita skattaafslátt í skiptum fyrir upplýsingar Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri vill að skoðaður verði möguleiki á að veita fjármagnseigendum sem eiga fé á huldureikningum erlendis skattaafslátt, veiti þeir sjálfviljugir upplýsingar um innistæður sínar. 11.8.2009 19:46
Siggi stormur framkvæmdi tannlækningar á syni sínum Tíu ára drengur, sem var sárþjáður af tannpínu um verslunarmannahelgina, neyddist til að leggjast undir hnífinn heima í stofu hjá föður sínum þar sem ómögulegt var að fá aðstoð tannlæknis. Varaformaður tannlæknafélagsins harmar atvikið. 11.8.2009 19:24
Vinnueftirlitið rannsakar alvarlegt slys í álveri Vinnueftirlitið rannsakar alvarlegt slys sem varð í álverinu á Grundatanga í gærkvöldi þegar starfsmaður brendist illa á báðum fótum. 11.8.2009 19:12
Atvinnuleysi viðskiptamenntaðra tólffaldaðist undanfarið ár Sjö sinnum fleiri kennarar eru atvinnulausir nú en á sama tíma í fyrra og tólf sinnum fleiri viðskipta- og hagfræðingar. Helmingur atvinnulausra eru með framhaldsmenntun eða er faglærður. 11.8.2009 19:06
Sextug kona meðal þeirra sem notaðir voru í lánasjóðssvindli Nöfn leikskólakennara, bókasafnsfræðings, fyrrverandi verðbréfasala og manns sem skráður er til húsa í félagsbústöðum voru notuð til að svíkja út fjörutíu milljónir króna úr Íbúðalánasjóði. Sextug kona sem notuð var í svikunum segist ekki skilja af hverju hennar nafn var notað. 11.8.2009 19:03
Ríkisstjórnarsamstarfið að veði í Icesave Össur Skarphéðinsson segir að ef ekki verði meirihluti fyrir Icesave frumvarpi ríkisstjórnarinnar, verði stjórnin og einstakir ráðherrar að íhuga stöðu sína. Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þurfa að rökstyðja afstöðu sína í Icesave málinu, fyrir almennum flokksmönnum í Vinstri-grænum, á félagsfundi í kvöld. Fullyrt er að ríkisstjórnin standi og falli með afstöðu þeirra í málinu. 11.8.2009 18:55
Milljarða lóðasala Kópavogsbæjar gæti endað fyrir dómstólum Milljarða lóðasala Kópavogs í Glaðheimum er í uppnámi og kann að enda fyrir dómstólum. Kaupandi vill rifta samningi, en bærinn neitar. 11.8.2009 18:48
Óvissa um gjaldeyrisforðann vegna Icesave Hundruð milljarða króna galdeyrisforði Íslendinga gæti lent í klóm Breta ef Icesave-samningurinn gjaldfellur. Óvíst er að sá hluti forðans sem geymdur er í Bandaríkjunum njóti friðhelgi samkvæmt samningum. Aðstoðarmaður fjármálaráðherra, fellst ekki á þetta. 11.8.2009 18:31
Vill sjá reglur um eignarhald fjölmiðla „Það er talað um það í stjórnarsáttmálanum að endurskoða fjölmiðlalögin, en einungis nefnt sjálfstæði ritstjórna," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. 11.8.2009 18:19
Undirstrikar nauðsyn breikkun Suðurlandsvegar Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að svar Kristjáns Möllers, samgönguráðherra, við fyrirspurn sinni um Suðurlandsveg og gangagerð undirstriki nauðsyn þess að hafnar verði framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar. 11.8.2009 17:17
Þriggja bíla árekstur í Hvalfjarðargöngum Þriggja bíla árekstur varð í Hvalfjarðargöngunum á fimmta tímanum. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraliðinu voru ökumenn einir í öllum þremur bílunum. Þeir eru allir komnir í sjúkrabíla og fara tveir þeirra á sjúkrahús á Akranesi en einn til 11.8.2009 16:39
Ferfalt fleiri konur vilja Útskálaprestkall Tíu umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Útskálaprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi. Þar af eru átta konur, eða ferfalt fleiri en karlumsækjendur. Frestur til að skila inn umsóknum rann út 6. ágúst, en embættið veitist frá 1. september næstkomandi. 11.8.2009 17:44
Ferðamaðurinn kominn úr Kreppu Erlendur ferðamaður sem slasaðist í ánni Kreppu fyrr í dag er kominn um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hann reyndist ekki alvarlega slasaður en kaldur og hrakinn og afar skelkaður. 11.8.2009 15:00
„Stjórn Seðlabankans á ekki að vera kaffisamsæti flokksgæðinga“ Þingmenn Borgarahreyfingarinnar mótmæltu kosningu í Seðlabankaráð og landskjörstjórn á þingfundi í dag. Þór Saari, þingmaður flokksins, gagnrýndi að kosið væri í bankaráð Seðlabankans með pólitískum hætti. 11.8.2009 14:41
Þingvallanefnd kosin á Alþingi Alþingi kaus í dag sjö manna Þingvallanefnd úr röðum þingmanna. Eftirfarandi þingmenn voru kjörnir. 11.8.2009 14:37
Bankaráð Seðlabankans kosið á Alþingi Sjö manna bankaráð Seðlabanka Íslands var kjörið á Alþingi í dag. Þrír koma nýir inn í bankaráðið en það eru þau Hildur Traustadóttir, Magnús Árni Skúlason og Katrín Olga Jóhannesdóttir 11.8.2009 14:19
Líf í höfnum landsins Ólína Þorvarðadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir reynslu af lögum um strandveiðar sem tóku gildi í vor vera góða. Mun meiri umsvif væri í höfnum landsins og að landanir væru fleiri en áður. 11.8.2009 14:02
Þyrla sækir slasaðan ferðamann Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi og Norðurlandi voru kallaðar út eftir hádegi í dag vegna erlends ferðamanns sem slasaðist í ánni Kreppu, sem er norðan Vatnajökuls. 11.8.2009 13:21
Óhugsandi að Samfylkingin slíti ríkisstjórnarsamstarfinu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist alls ekki vera þeirrar skoðunar að ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og VG standi og falli með Icesave málinu. 11.8.2009 13:17
Stjórnin stendur og fellur með Icesave Ríkisstjórnin stendur og fellur með Icesave málinu, samkvæmt heimildum fréttastofu. Allt íslenskt efnahagslíf sé í gíslingu málsins. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra segir svo ekki vera, en væntir lausnar. 11.8.2009 12:04
Efast um hvort eðlilegt sé að breska fjársvikadeildin hjálpi Íslendingum „Er það eftirsóknarvert, sem enginn gagnrýnir núna, að rannsóknardeild um alvarleg fjársvikamál í Bretlandi komi hér og skipti sér af málefnum okkar banka?" Þessarar spurningar spyr Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra í viðtali við netvarpið. 11.8.2009 11:16
„Mjög gott samband á milli okkar Steingríms“ Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segir samband sitt og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra og formanns Vinstri grænna, vera afar gott. Ögmundur kveðst ekki hafa líf ríkisstjórnarinnar í höndum sér. Hann segist einungis vera einn af 63 fulltrúum þjóðarinnar á Alþingi. 11.8.2009 10:40
Björguðu kisa úr sjálfheldu Kisi litli lenti í sjálfheldu þegar að hann var að leika sér í rafmagnsstaur á Seltjarnarnesi í gær. Staurinn er nokkuð hár og þegar kisi var kominn upp á topp þorði hann ekki niður. Seltirningar sem áttu leið um kenndu í brjósti um kisa og ákváðu að kalla á aðstoð lögreglunnar. Sökum anna komst lögreglan ekki á staðinn. Það kom ekki að sök því að bæjarstarfsmenn hjá Seltjarnarnesbæ sýndu af sér mikið snarræði og björguðu kisa. 11.8.2009 10:30
Færeyingar mættir í síldarævintýrið Þrjú færeysk skip hafa nú blandað sér í síldarævintýrið norðaustur af landinu, en afli íslensku síldveiðiskipanna í síðasta mánuði er meiri í júlímánuði en nokkru sinni, síðan að Norsk- íslenski síldarstofninn hrundi seint á sjöunda áratug síðustu aldar. 11.8.2009 08:17
Brotist inn í iðnaðarsafnið á Akureyri Brotist var inn í iðnaðarsafnið vi Krókeyri á Akureyri í gærkvöldi og þaðan stolið nokkrum tugum þúsunda króna. Þjófurinn komst undan, en brátt féll grunur á ungan mann, sem lögreglan heimsótti skömmu síðar og upplýstist málið þar. 11.8.2009 08:15
Brenndist í álverinu á Grundartanga Starfsmaður í álveri Noðruráls á Grundartanga brenndist á fótum við störf sín í gærkvöldi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Ekki lliggur fyrir hvernig slysið atvikaðist, eða hversu alvarlega maðurinn brenndist. 11.8.2009 08:14
Með röng veiðarfæri fyrir misgáning Skipstjórinn á togarnum Sólbak EA, sem varðskip færði til hafnar á Akureyri í gærmorgun eftir að hann var staðinn að meintu landhelgisbroti á Vestfjarðamiðum í fyrradag, játar að hafa fyrir misgáning verið með röng veiðarfæri á svæðinu. 11.8.2009 08:12
Líf ríkisstjórnarinnar í höndum Ögmundar Haldi Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra fast við andstöðu sína við Icesave-málið er ríkisstjórnarsamstarfi VG og Samfylkingarinnar úr sögunni. Um það eru þingmenn í báðum flokkum sammála. 11.8.2009 06:00
Svínaflensulyf sögð slæm fyrir börn Alls hefur 101 greinst með svínaflensu, A(H1N1)v, á Íslandi frá því í maí 2009 og komu 29 ný tilfelli upp um helgina. Þar af eru 55 karlar og 46 konur. Þriðjungur er á aldrinum 15 til 19 ára en aðeins níu hafa greinst sem eru eldri en 40 ára. Hafa 46 fengið flensuna erlendis en 52 hér á landi. Óvíst er um þrjú tilvik. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir flensuna byrjaða að smitast innanlands. 11.8.2009 06:00
Eiginfjárframlag ríkisins: Aðgerða sparisjóðanna beðið Sex sparisjóðir sem sóttu um eiginfjárframlag á grundvelli neyðarlaganna í vor hafa enn ekki fengið slíkt framlag. Fjármálaráðuneytið bíður enn eftir aðgerðum sumra þeirra áður en unnt er að afgreiða beiðnirnar. 11.8.2009 05:45
Óttast að Ísland einangrist á nýjan leik Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að reynt verði til þrautar í dag og á morgun að ná samkomulagi um fyrirvara við samþykki Alþingis á ríkisábyrgð vegna Icesave-samningsins. Hann segist óttast að Ísland einangrist verði málinu ekki lokið fljótlega. 11.8.2009 05:30
Hvalveiðigróðinn kæmi í útflutningi „Það kemur í ljós hvort þetta fer til Japans, Noregs eða Færeyja. Við erum bara að skoða það,“ segir Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna ehf. Þegar hafa Hrefnuveiðimenn veitt 46 hrefnur og stefnt er að því að fara yfir eitt hundrað dýr áður en vertíðinni lýkur. 11.8.2009 05:15
Hlaupa hundrað kílómetra til styrktar Mæðrastyrksnefnd Þrettán félagar úr CrossFit Iceland munu hlaupa 100 kílómetra á fimmtudaginn til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Leggja þeir af stað frá Skipaskaga klukkan fimm um morguninn, hlaupa meðfram Akrafjalli, hringinn í Hvalfirði og enda í Reykjavík. 11.8.2009 05:00
Ný rennibraut Laugardalslaugar kostar um 17 milljónir Endurbætt rennibraut í Laugardalslauginni verður opnuð á næstunni og í síðasta lagi á þriðjudaginn eftir viku, á afmæli Reykjavíkurborgar, að sögn Loga Sigurfinnssonar, forstöðumanns Laugardalslaugar. 11.8.2009 04:45
Stefnir í metfjölda fæðinga á þessu ári Samtals 2.101 barn hafði fæðst á fæðingardeildum Landspítalans í gær. Það er 72 börnum fleiri en fæðst höfðu á sama tíma í fyrra. Að sögn Guðrúnar G. Eggertsdóttur, yfirljósmóður á Landspítalanum, stefnir því í metár í fæðingum, þar sem áætlaðar fæðingar í september og október eru mjög margar. 11.8.2009 04:30
Færri Bretar og Hollendingar Umtalsvert færri Bretar og Hollendingar ferðuðust hingað til lands í nýliðnum júlí en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt samantekt Ferðamálastofu yfir fjölda ferðamanna sem fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 11.8.2009 04:15