Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tilkynning um færð á landinu: Holtavörðuheiði er lokuð Holtavörðuheiði er lokuð vegna ófærðar. Þá er Ófært á Eyrarfjalli, Lágheiði, Hólasandi og á Öxi. Óveður er á Kjalarnesi. Á Vesturlandi er Holtavörðuheiði lokuð. Hálkublettir eru á Fróðarheiði. Snjóþekja og krapi er á Laxárdalsheiði. 8.5.2009 20:06
Íhaldsþingmaður segir Brown hafa blekkt þingheim Graham Brady, þingmaður breska Íhaldsflokksins, sem spurði Brown forsætisráðherra Bretlands í breska þinginu í fyrrdag um ábyrgð á innistæðum í Kaupþingi í Bretlandi, segir að forsætisráðherran hafi blekkt þingheim með svari sínu. 8.5.2009 18:45
Viðurkenna ábyrgð á Christie - Snúa út úr með AGS Bresk yfirvöld viðurkenna ábyrgð breskra yfrivalda í málefnum Christies spítalans sem geymdi fé sitt í sjóðum Kaupþings Singer Frieldand sem heyrði undir breska fjármálaeftirlitið. Þetta kemur fram í svörum þeirra vegna fyrirspurnar fréttastofu Stöðvar 2. 8.5.2009 19:25
Kattadrápið: Húsavík biðst afsökunar „Þetta var of langt gengið," segir Tryggvi Jóhannsson, framkvæmda- og þjónustufulltrúi Húsavíkurbæjar, um kattardrápið á Húsavík. Hann segir að þetta sé eina tilvikið þar sem húsköttur er skotinn þar í bæ. Kötturinn Carras var skotinn af færi á þriðjudagskvöldinu af meindýraeyði á Húsavík. Ástæðan var sú að nú stendur yfir átak þar sem reynt er að losa bæinn við lausagöngu katta. 8.5.2009 20:00
Kalla eftir upplýsingum frá AGS um meinta leynifundi Íslensk stjórnvöld ætla að óska eftir upplýsingum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um hvort sjóðurinn standi í leyniviðræðum við Breta um Icesave deiluna. Fulltrúi sjóðsins hér á landi vísar þessu á bug. 8.5.2009 18:52
Ný ríkisstjórn á sunndaginn Ný ríkisstjórn mun væntanlega taka við völdum á sunnudaginn eftir fundi flokksráðs Vinstri grænna og flokksstjórnar Samfylkingarinnar. Endurreisn atvinnulífsins og stöðugleiki verða mikilvægustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar segir forsætisráðherra. 8.5.2009 18:45
Krefjast tafarlausra aðgerða Einstæð tveggja barna móðir, sem segist ekki lengur eiga í sig eða á, var í hópi mótmælenda sem kröfðust í dag tafarlausra aðgerða til að bæta erfiða stöðu heimilanna í landinu. 8.5.2009 18:45
Ragnar áður neyddur í fíkniefnasmygl Handtaka Ragnars Erlings Hermannssonar í Brasilíu í síðustu viku á rætur sínar að rekja til mislukkaðrar smygltilraunar Ragnars á fíkniefnum frá Danmörku til Íslands fyrir tveimur mánuðum. Það reyndist honum dýrkeypt því í staðinn var honum gert að sækja fíkniefni til Brasilíu þar sem hann situr nú í fangelsi. 8.5.2009 18:38
Ferðamenn varaðir við - varist fjallvegina Lögreglan varar ferðamenn að fara ekki um Holtavöruheiði, Þverárfjall og um norðurland. á þessum slóðum er ekkert ferðaveður að sögn lögreglu. Þar er blnd hríð, hálka og snjór. Mikið hefur verið um óhöpp og hafa bifreiðar farið út af veginum. 8.5.2009 18:00
Skaut köttinn Carras með haglabyssu á Húsavík Meindýraeyðir á Húsavík skaut köttinn Carras innabæjar á þriðjudagskvöldinu en eigandinn, Huld Hafliðadóttir, er afar ósátt við aðfarirnar. Samkvæmt reglugerð sem bærinn hefur sett þá er lausaganga katta bönnuð í bænum. 8.5.2009 17:51
Síminn lokar fyrir nafnlaus smáskilaboð Síminn hefur ákveðið að krefjast auðkennis af öllum þeim smáskilaboðum sem send eru af heimasíðu þeirra frá og með deginum í dag. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir rafrænt einelti en nokkuð hefur borið á mis-smekklegum nafnlausum skilaboðum sem ekki hefur verið hægt að rekja til eigandanna. 8.5.2009 17:01
Í fangelsi fyrir að þykjast vera eldri maður Landamæralögreglan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði sómalskan karlmann, Omar Abdi Yasin fæddan árið 1980, við vegabréfaeftirlit í Leifsstöð þann 3.maí síðast liðinn. Omar framvísaði sænsku vegabréfi manns að nafni Faisal Hussein Abdi, fæddum árið 1963, í blekkingarskyni. 8.5.2009 16:44
Segir Brown illa upplýstan Íslensk stjórnvöld hafa óskað etir skýringum frá breskum stjórnvöldum vegna ummæla Gordon Brown forsætisráðherra Breta í gær. Brown sagði meðal annars að stjórnvöld bresk stjórnvöld væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um hversu hratt Íslendingar muni greiða til baka það tjón sem þeir eru ábyrgir fyrir í Bretlandi. 8.5.2009 16:37
InDefence hópurinn krefst tafarlausra viðbragða frá stjórnvöldum Ólafur Elíasson, einn forsvarsmanna InDefence hópsins segir það algjörlega óhugsandi að láta Gordon Brown forsætisráðherra Breta komast upp með málflutning á borð við þann sem hann viðhafði í breska þinginu á miðvikudag. Þar kenndi Brown Íslendingum um það að ekki væri búið að greiða til baka milljónir punda í krabbameinssjóði Christie spítalans í Manchester, þrátt fyrir að sjóðurinn hafi aldrei verið á ábyrgð íslenska Fjármálaeftirlitsins eins og Brown staðhæfði. 8.5.2009 16:18
Í vandræðum á Vatnajökli Hópur gönguskíðamanna sem telur átta manns er í vandræðum á Vatnajökli og eru björgunarsveitarmenn á leið til þeirra. Að sögn Landsbjargar amar ekkert að fólkinu en hópurinn hefst við í tjölfum á milli Grímsvatna og Esjufjalla. 8.5.2009 15:44
Sakar fjármálaráðherra um ritskoðun Siðanefnd SÍA, Sambands Íslenskra auglýsingastofa, hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjödæmi hafi ekki verið heimilt að nota mynd af Steingrími J. Sigfússyni í leyfisleysi í auglýsingum sínum. Auglýsingin birtist í nokkrum svæðismiðlum í kjördæminu nú fyrir kosningar og vakti nokkra athygli. Viggó Örn Jónsson einn eiganda auglýsingastofunnar Jónsson & Lemacks sem gerðu umræddar auglýsingar segir niðurstöðuna ekkert annað en ritskoðun. Hann hefur áhyggjur af því að fjármálaráðherra landsins sé að skipta sér af því hvað birtist í fjölmiðlum og hvað ekki. 8.5.2009 15:38
Hugsanlegt að Brown hafi reynt að beita AGS þrýstingi Þorvaldur Gylfason telur ekki óhugsandi að forsætisráðherra Breta hafi reynt að beita stjórnendur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þrýstingi á bakvið tjöldin. Þorvaldur telur þó að slíkar tilraunir geti varla borið árangur. 8.5.2009 15:23
Kríuhólaárásarmönnum sleppt Lögreglan mun ekki krefjast gæsluvarðhalds yfir sex mönnum sem voru handteknir í tengslum við líkamsárás í Kríuhólum í Breiðholti eftir hádegið í gær. 8.5.2009 14:32
Jóhanna og Steingrímur buðu mótmælendum á fund Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tóku á móti mótmælendum fyrir framan Stjórnarráðið í dag og buðu síðan nokkrum fulltrúum þeirra á fund. Á myndinni má meðal annars þekkja Sturlu Jónsson, vörubílstjóra, sem hefur verið iðinn við að mótmæla síðustu misserin. 8.5.2009 13:25
Um áttatíu manns mótmæla ástandinu Um áttatíu manns mættu á Austuvöll í dag en klukkan eitt hafði verið boðað til mótmæla framan Alþingishúsið vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í málefnum heimilanna. Hópurinn hefur nú fært sig frá Austurvelli yfir að Stjórnarráðinu eins og ráð var fyrir gert. ASÍ hvetur almenning til að taka þátt enda þolinmæðin gagnvart aðgerðarleysi stjórnvalda þrotin. 8.5.2009 13:08
Hörður mætir ekki á mótmælin - segist samt ekki sofnaður „Ég gleðst bara yfir því að aðrir séu að vakna til lífsins," segir Hörður Torfason tónlistarmaður og talsmaður Radda fólksins. 8.5.2009 12:53
Bíræfni bílþjófurinn ákærður vegna brota sinna Maður sem sigldi undir fölsku flaggi í nóvember á síðasta ári og gekk meðal annars undir viðurnefninu Bífræfni bílþjófurinn þarf nú að svara fyrir hegðun sína fyrir dómstólum. Maðurinn framvísaði skilríkjum sem hann hafði stolið nokkru áður á bílasölum og fékk að reynslukeyra ýmsar bifreiðar. Bílasölurnar heyrðu síðan lítið í honum og lögregla fór í málið. Hann náðist nokkrum dögum síðar í Borgarnesi. Hann er nú ákærður fyrir að hafa ekið tveimur bifreiðum í heimildarleysi og að hafa stolið hljómflutningstækjum úr annarri bifreið. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í dag. 8.5.2009 12:43
Inflúensan breiðist út hægar en áður Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.489 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 272 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild segir að flest ný staðfest tilfelli séu í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada en þau voru mun mun færri í morgun en í gærmorgun í daglegri skýrslu Sóttvarnarstofnunar ESB. 8.5.2009 12:15
Ráðuneytum fækkað um eitt og uppstokkun á öðrum Ráðuneytum verður fækkað um eitt, samkvæmt tillögum starfshóps um breytingar á stjórnarráði, og tilfærslur á verkefnum verða umtalsverðar. 8.5.2009 12:04
Össur kallar breska sendiherrann á sinn fund Utanríkisráðherra hefur ákveðið að kalla breska sendiherrann á sinn fund vegna ummæla Gordons Browns forsætisráðherra Bretlands um ábyrgð Íslands gagnvart því að Christie spítalinn í Manchester hafi tapað fé hjá Kaupþingi í Bretlandi. 8.5.2009 11:59
Efla Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna Efla á Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna með því að tvöfalda starfsemi hennar og opna nýja starfsstöð. 8.5.2009 11:23
ASÍ hvetur til mótmæla á Austurvelli í dag Í dag klukkan 13 verður efnt til mótmæla fyrir framan Alþingishúsið vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í málefnum heimilanna. Frá Austurvelli verður síðan gengið að Stjórnarráðinu. ASÍ hvetur almenning til að taka þátt enda þolinmæðin gagnvart aðgerðarleysi stjórnvalda þrotin. 8.5.2009 10:58
SA leggjast eindregið gegn fyrningarleiðinnni Samtök atvinnulífsins skora á Samfylkinguna og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð að hverfa frá öllum hugmyndum um upptöku og uppboð aflaheimilda sjávarútvegsfyrirtækja sem nefnt hefur verið fyrningarleiðin. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að það sé mikilvægt að stöðugleiki ríki í rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja eins og annarra fyrirtækja. 8.5.2009 10:50
Hannes rannsakar kommúnista Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði hyggst rannsaka íslenska kommúnista á árunum 1918 til 1998. 8.5.2009 10:38
Engin niðurstaða í morðrannsókn Engin niðurstaða hefur fengist í rannsókn á morði íslenskrar stúlku í Dóminíska Lýðveldinu í fyrra samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var myrt á herbergi á hótelherbergi þar sem hún 8.5.2009 09:38
Ófært víða vegna veðurs Ófært er á Eyrarfjalli, Lágheiði, Hólasandi, Vatnsskarði eystra og Öxi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 8.5.2009 09:11
Póstbíll valt nálægt Höfn Póstbíll valt skammt frá Hornafjarðarfljóti í gærkvöldi og slasaðist kona sem ók honum. Hún dvaldi á Heilsugæslunni á Höfn í Hornafirði í nótt. Talið er að hún hafi misst stjórn á bílnum í snarpri vindhviðu. 8.5.2009 07:23
Sex eru enn í haldi vegna átaka í gær Sex Pólverjar eru enn í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á blóðugum átökum í fjölbýlishúsi við Kríuhóla í Reykjavík í gærdag. Þremur hefur verið sleppt en einn er enn á sjúkrahúsi. 8.5.2009 07:14
Ók ölvaður á 147 kílómetra hraða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í nótt ökumann eftir að bíll hans hafði mælst á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Smáralind, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar. Hann var því á rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Auk þess kom í ljós að ökumaðurinn var ölvaður og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum. 8.5.2009 07:11
Tveir húsbrunar í nótt Gamalt hesthús í Grófinni í Keflavík eyðilagðist í eldi í nótt. Nokkurn reyk lagði yfir bæinn og hringdu margir í lögreglu. Engir hestar voru í húsinu. Slökkviliðið slökkti eldinn og voru nálæg mannvirki ekki í hættu. 8.5.2009 07:04
Dæmdur fyrir nauðgun og morð í Írak Fyrrum hermaðurinn Steven Green var fundinn sekur um að hafa nauðgað og svo myrt hina 14 ára gömlu Abeer Qassim al-Janabi í Írak árið 2006. Málið vakti óhug en hann, auk þriggja annarra hermanna tóku þátt í árásinni. Tveir þeira héldu henni niðri á meðan þeir nauðguðu stúlkunni. Í kjölfarið myrtu þeir hana og fjölskyldu hennar auk þess sem þeir brenndu húsið þeirra. 7.5.2009 23:26
Dópbýlið: Martröð leigusalans „Við vorum að reyna selja þessa eign," segir eigandi bónadabýlisins við Berufjörð en lögreglan á Eskifirði fann hátæknivædda kannabisverksmiðju á bóndabýlinu nú í vikunni. Einn maður leigði húsnæðið en samkvæmt eigandanum þá sagðist hann ætla að halda úti ferðaþjónustu á svæðinu. 7.5.2009 20:52
Í hungurverkfalli í fimmtán daga Verulega er farið að draga af alsírskum flóttamanni sem hefur verið í hungurverkfalli í fimmtán daga, en mál hans hefur ekki verið tekið formlega fyrir í dómsmálaráðuneytinu. Maðurinn, sem dvelur á heimili fyrir hælisleitendur á Suðurnesjum, er orðinn máttfarinn vegna næringarskorts. 7.5.2009 22:11
Klósettstríð heldur íbúð í gíslingu „Ég tel mig hafa sýnt mikla þolinmæði, en nú er málið orðið verulega slæmt," segir Leó R. Ólason, eigandi að kjallaraíbúð á besta stað í miðborg Reykajvíkur. Hann keypti 40 fermetra íbúð handa syni sínum á Bergþórugötu 51 en þá kom babb í bátinn. Klósett sem nýtist íbúðinni er í eigu sameignar hússins og er í niðurníðslu. Leó óskaði þá eftir því á húsfundi að baðherbergisaðstaðan yrði gerð upp en honum var neitað um það. Sjálfur segist Leó haf mætt algjöru skilningsleysi af hálfu húsfélagsins. 7.5.2009 21:11
Brasilíufangi: Styrktarreikningur Stofnaður hefur verið reikningur til stuðnings fjölskyldu Ragnars Erlings Hermannssonar sem nú situr í fangelsi í Brasilíu. 7.5.2009 19:41
Niðji ósáttur við notkun dópbýlisins Dópbýlið við Berufjörð nálægt Eskifirði er skráð á eignarhaldsfélagið Þrjár systur sem löggiltur endurskoðandi á. Lögreglan fann hátæknivædda kannabisverksmiðju á gamla bóndabænum sem nú hafði öðlast nýjan tilgang, nefnilega kannabisræktun. 7.5.2009 19:23
Keilufellsfórnarlamb nú árásamaður Níu menn eru í haldi lögreglu eftir líkamsárás í Breiðholti og tveir eru á sjúkrahúsi, annar með höfuðáverka. Einn árásarmannanna var áður fórnarlamb í Keilufellsárásinni. 7.5.2009 18:35
Litlar upplýsingar um óskattskyld félög þingmanna Skattayfirvöld hafa litlar upplýsingar um óskattskyld félög sem stjórnmálamenn hafa stofnað í kringum prófkjör sín. Rekstrarform þeirra er það sama og til að mynda trúfélaga og líknarfélaga. Slík félög þurfa hvorki að skila skattframtölum né ársreikningum til skattayfirvalda. 7.5.2009 18:31
Háir vextir halda uppi verðlagi Lækkun stýrivaxta hefur engin áhrif á eldri húsnæðislán en leiðir til lækkunar dráttarvaxta og vaxta á yfirdráttarlánum. Forseti ASÍ segir háa vexti halda uppi verðlagi og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að keyra hefði átt stýrivextina niður í 2,5 prósent og láta krónuna taka skellinn. 7.5.2009 18:30
Fjölskylda Ragnars ekki enn heyrt í honum Fangelsin í Brasilíu eru með þeim verstu í heiminum segir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. Hún segir aðbúnaðinn ómannúðlegan og niðurlægjandi. Fjölskylda Ragnars Erlings sem var handtekinn þar í landi fyrir tæpri viku, hefur enn ekki náð sambandi við hann. 7.5.2009 18:25