Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sakar heilbrigðisráðherra um rógburð Framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands sakar Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra um rógburð í garð íslenskra lækna. Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri félagsins, 17.4.2009 11:10
Tíðinda að vænta um jöklabréfin Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að hugsanlega megi vænta frétta af ráðstöfunum vegna jöklabréfa á ársfundi Seðlabanka Íslands sem fer fram í dag. Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Steingrímur sagði að unnið væri hörðum höndum að því að leysa vandamál sem jöklabréfin hafa skapað. 17.4.2009 10:49
Mustang er 45 ára í dag Í dag eru 45 ár síðan að glæsibifreiðin Ford Mustang leit fyrst dagsins ljós. Mustang klúbburinn á Íslandi ætlar að fagna þessum tímamótum í húsnæði Brimborgar að Bíldshöfða á morgun. 17.4.2009 10:08
Mest atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16-24 ára Á fyrsta ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 12.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,1% vinnuaflsins. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára, eða 12,6%. Atvinnuleysi mældist 9,2% hjá körlum og 4,8% hjá konum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar um vinnumarkaðinn. 17.4.2009 09:32
Færri umferðarslys árið 2008 en 2007 Út er komin skýrsla slysaskráningar Umferðarstofu fyrir árið 2008. Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni Ríkislögreglustjóra. 17.4.2009 09:12
Frumvarp um stjórnarskrárbreytingar af dagskrá Samkomulag náðist í gærkvöldi á Alþingi um að taka frumvarp um breytingar á stjórnarskránni af dagskrá þingsins og því verða engar breytingar gerðar á stjórnarskrá lýðveldisins að sinni. Samkomulag náðist í gærkvöldi um að taka málið út af dagskrá Alþingis. 17.4.2009 07:06
Tveir stútar og eitt innbrot í Reykjavík Nóttin var fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og raunar um land allt. Þó voru tveir teknir fyrir ölvunarakstur í borginni og tilkynnt var um innbrot í iðnaðarhúsnæði í Höfðahverfi um fimmleytið í nótt. Enn er þó óljóst hvort einhverju hafi verið stolið. 17.4.2009 06:42
Hægrahrunið hófst í júní á síðasta ári Vinstriflokkarnir hafa aldrei mælst með meira fylgi en nú. Í könnunum Fréttablaðsins frá því í október hefur samanlagt fylgi vinstriflokkanna ekki farið undir fimmtíu prósent en að jafnaði verið nær sextíu prósentum. Í síðustu tveimur könnunum blaðsins, sem gerðar voru í apríl, mældist samanlagt fylgi vinstriflokkanna svo yfir sextíu prósentum. 17.4.2009 06:30
Minnir á grísku byltinguna „Það misbýður réttlætiskennd minni að sjá lögregluna handtaka fólkið sem hefur komið sér fyrir í þessu húsi,“ segir Stefania Kromydaki, grískur háskólanemi sem var við mótmælin á Vatnsstíg þegar lögreglan leiddi hústökufólkið burt í járnum. 17.4.2009 06:00
Banna andlegar og líkamlegar refsingar Óheimilt er að beita börn líkamlegum eða andlegum refsingum eftir að Alþingi samþykkti samhljóða breytingar á barnaverndarlögum í gær. Viðurlög eru sektir eða allt að þriggja ára fangelsisdómur. 17.4.2009 05:30
Borgin hirðir ekki garðaúrgang Reykjavíkurborg mun ekki losa borgarbúa við garðaúrgang í ár, eins og verið hefur mörg undanfarin ár. Borgarbúar verða því sjálfir að losa sig við garðaúrgang og greinar. 17.4.2009 05:30
Sakaður um dylgjur og róg Ummæli Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra um að læknar kynnu að misnota ávísanakerfi í heilbrigðisþjónustu vöktu hörð viðbrögð þriggja þingmanna á Alþingi í gær. 17.4.2009 05:00
Sjá ekki framtíð í krónunni Meirihluti, eða 61,9 prósent, segist ekki vilja að íslenska krónan verði framtíðargjaldmiðill hér á landi. 38,1 prósent vill halda í krónuna. Ekki er munur á afstöðu eftir kyni, en íbúar á landsbyggðinni eru heldur jákvæðari gagnvart krónunni en íbúar á höfuðborgarsvæðinu. 57,7 prósent íbúa á landsbyggðinni segjast ekki vilja að krónan verði framtíðargjaldmiðill, en 64,5 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu eru sama sinnis. 17.4.2009 04:00
Gætum hafið veiðarnar strax Karl V. Matthíasson, oddviti Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir sérkennilegt hjá sjávarútvegsráðherra að kynna áform fyrir næstu ríkisstjórn. Allsendis sé óvíst með aðkomu Steingríms J. Sigfússonar að þeirri stjórn. 17.4.2009 03:30
Þjóðgarðurinn stækkaður Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra undirritaði nýja reglugerð um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs til norðurs í þjóðgarðinum í gær. Hún tók einnig fyrstu skóflu-stunguna að nýrri gestastofu þjóðgarðsins á Skriðuklaustri. 17.4.2009 03:00
Þiggur laun bæjarfulltrúa til viðbótar þingfararkaupi Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna benti á það á opnum Borgarafundi á Akureyri í Sjónvarpinu í kvöld að Kristján Þór Júlíusson væri á launum sem bæjarfulltrúi og þægi laun fyrir það til viðbótar við þingfararkaupið. Á sama tíma væri verið að reyna að lækka laun hjá Akureyrirbæ um 5%. Kristján sagði þetta rétt en það væri ekki verið að ræða á sama tíma um að hækka skatta líkt og flokkur Steingríms gerði. 16.4.2009 20:35
Rannsóknasetur í orkuvísindum stofnað Í dag undirrituðu Háskóli Íslands, Keilir, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, HS Veitur og HS Orka hf. samstarfssamning um uppbyggingu rannsóknaseturs í orkuvísindum. Samstarfið felur í sér að byggja upp á Ásbrú aðstöðu til þess að stunda rannsóknir á sviði orkuvísinda, sérstaklega á sviði jarðvarma og annarrar endurnýjanlegrar orku og innlendrar orkuframleiðslu. Rannsóknarsetrið verður nýtt sem kennsluaðstaða í orkuvísindum við Keili, Háskóla Íslands og aðra innlenda skóla og kennslustofnanir. Jafnframt við rannsóknir á vegum stofnaðila sem og annarra aðila. 16.4.2009 20:00
Segir Sjálfstæðisflokkinn traðka á lýðræðinu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé að traðka á lýðræðinu og hafi ekki þjóðarhagsmuni að leiðarljósi heldur sérhagsmuni í tengslum við stjórnarskrármálið. Hún segir flokkinn koma í veg fyrir að auðlindirnar verði í þjóðareign og að fólk fái sjálft að óska eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Bjarni Benediktsson formaður Sjálsfstæðisflokksins segir þetta alrangt. Óljóst er hvenær þinglok verða. 16.4.2009 19:20
Flokkarnir vita ekki hversu mikið þeir skulda Stjórnmálaflokkarnir hafa ekki hugmynd um hversu mikið þeir skulda. Skrifstofur flokkanna vita nokkurn veginn um eigin skuldir, en heildarskuldum flokka og flokksfélaga hefur í engu tilviki verið safnað saman. 16.4.2009 19:15
Sterkur þorskárgangur Jákvæðar fréttir bárust loks af þorskinum í dag, mikilvægasta nytjastofni Íslendinga, þegar Hafrannsóknstofnunin skýrði frá því að fyrsta mat á stærð þorskárgangsins árið 2008 benti til þess að hann væri sterkur. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró, segir þetta óvænt og góð tíðindi sem gefi vonir um að sterkur árgangur komi í veiðistofninn eftir fjögur ár. 16.4.2009 19:00
Ástþór uppfyllir ekki skilyrði Framboðslistar Lýðræðishreyfingar Ástþórs Magnússonar teljast ekki uppfylla skilyrði kosningalaga í tveimur af sex kjördæmum. 16.4.2009 19:00
Stál í stál í þinginu Átökin á milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðu á Alþingi hafa harðnað, en samkomulag um hið umdeilda stjórnarskrármál náðist ekki í dag. Stál í stál, segir forseti Alþingis. 16.4.2009 18:45
Enginn seðlabankastjóri á landinu um stund Seðlabankastjóralaust var á landinu um tíma í dag þegar að Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri hélt af landi brott á fund við norræna seðlabankastjóra. Þá var Svein Harald Öygard seðlabankastjóri rétt ókominn að utan af fundi sem hann hafði átt með fulltrúum seðlabanka frá öðrum ríkum. 16.4.2009 18:06
Óttast lokun skurðstofu í Vestmannaeyjum Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja hefur sent Ögmundi Jónassyni heilbrigðisráðherra bréf vegna meintrar ákvörðunar ráðherrans um að skurðstofu í bænum skuli lokað í einn og hálfan mánuð í sumar. Í bréfinu kemur fram að bæjarstjórn hafi fundað með fulltrúum Heilbrigðisstofnunar fyrir fáeinum vikum þar sem þeir hafi sýnt sjónarmiðum heimamanna fullan skilning og tekið yrði tillit til þeirra í sparnaðaraðgerðum. 16.4.2009 18:00
Sjálfstæðisflokkur missir einn og VG bætir við sig Samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Rúv og Morgunblaðið í Norðausturkjördæmi missir Sjálfstæðisflokkur einn þingmann og Vinstri grænir bæta við sig einum þingmanni. Vinstri grænir mælast með mest fylgi eða 28% en Framsóknarflokkurinn mælist með 25,6% fylgi í kjördæminu. 16.4.2009 17:46
Senda ESB athugasemdir vegna bankahrunsins Utanríkisráðuneytið, í samráði við forsætisráðuneyti, fjármálaráðuneyti, viðskiptaráðuneyti, Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið, hefur sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins athugasemdir af Íslands hálfu varðandi viðbrögð við fjármálahruninu og nauðsynlegar aðgerðir til að stemma stigu við afleiðingum þess. 16.4.2009 17:39
Vilja 25 manna nefnd til að fjalla um heildarendurskoðun stjórnarskrár Sjálfstæðismenn vilja að Alþingi kjósi hlutfallskosningu 25 manna nefnd til að undirbúa tillögur að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Gert er ráð fyrir að tillögur þeirrar nefndar liggi fyrir innan tveggja ára. Sjálfstæðismenn kynntu hugmynd að þingsályktunartillögu þessa efnis á fundi 16.4.2009 17:03
Átján ára ljóðskáld í framboð fyrir lýðræðishreyfinguna - myndband „Mér finnst að við ættum ekki að borga skuldir sem bankarnir stofnuðu til,“ segir Ragnheiður Svava Þórólfsdóttir, yngsti frambjóðandi Íslands en hún býður sig fram fyrir Lýðræðishreyfinguna. 16.4.2009 16:07
Segir strandveiðarnar vera ódýrt kosningaloforð Grétar Mar þingmaður Frjálslynda flokksins segir að strandveiðar Steingríms J. Sigfússonar séu ekkert annað en ódýrt kosningaloforð. „Hann gæti eins lofað öllum kíló af gulli eftir kosningarnar,“ segir Grétar Mar. 16.4.2009 16:05
LÍÚ telur strandveiðarnar ekki mikið gæfuspor Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir að hann telji strandveiðarnar sem Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra boðaði í dag ekki vera mikið gæfuspor. Þarna sé verið að taka afla frá útgerðum/sjómönnum sem stunda atvinnuveiðar og flytja yfir í einhvern annan flokk. 16.4.2009 15:49
Engin sátt í stjórnarskrárnefnd Engin sátt náðist milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar á fundi í stjórnarskrárnefnd alþingis sem var að ljúka. Þinglok eru því enn í uppnámi og óljóst hvenær þinginu lýkur. 16.4.2009 15:24
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórtán ára þroskaheftri stúlku. 16.4.2009 14:54
Ákærður fyrir morðtilraun Hinn rúmlega tvítugi Frans Friðriksson hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann á að hafa veist að manni og stungið hann með hnífi vinstra megin í brjósthol með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættulega áverka. Þá er Frans einnig ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann á að hafa skorið félaga fórnalambsins þegar hann reyndi að forða honum frá atlögu Frans. 16.4.2009 14:32
Tillögu Ólafs vísað til forsætisnefndar Borgarráð vísaði í dag tillögu Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um að upplýsa um öll fjárframlög til sveitarfélaga og einstaklinga innan þeirra framboða sem fengu háa fjárstyrki frá fyrirtækjum og hagsmunatengdum aðilum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. 16.4.2009 14:25
Frjálsar strandveiðar í boði Steingríms J. Sigfússonar Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, áformar að koma á nýjum flokki veiða, “strandveiðar”, þar sem heimilaðar verða frjálsar handfæraveiðar við ströndina. Ráðstafað verði 8.127 tonnum af óslægðum botnfiski til strandveiða á yfirstandandi fiskveiðiári. Nýja kerfið komi í stað byggðakvótans, en fyrirkomulag byggðakvóta er umdeilt og hefur valdið margvíslegum þrætumálum. Í tilkynningu um málið segir að strandveiðarnar munu þó í meginatriðum takmarkast annars vegar af þeim heildarafla sem ráðstafað er sérstaklega í þessu skyni og hins vegar af stærð báta. Gert er ráð fyrir að strandveiðum verði í fyrstu komið á til reynslu. Síðan verður metið hvernig til hafi tekist og framhald ákveðið. Markmiðið er nýting sjávarauðlindarinnar á nýjum grunni þar sem mönnum verði gert mögulegt að stunda frjálsar veiðar með ströndinni á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Núverandi stjórn fiskveiða er gagnrýnd fyrir að erfitt sé fyrir nýja aðila að hefja veiðar í atvinnuskyni. Með strandveiðunum er opnað á takmarkaðar veiðar þeirra sem ekki þurfa að vera handhafar veiðiheimilda. Þannig er til að mynda ungu og áhugasömu fólki auðveldað að afla sér reynslu og þekkingar um leið og sveigjaleiki er aukinn. Til strandveiða verði ráðstafað þeim heimildum sem nú mynda byggðakvóta, þ.e.a.s. 6.127 tonn af óslægðum botnfiski auk 2.000 tonna viðbótar sem ráðherra ákveður. Þetta magn myndi stofn strandveiðanna, en fyrirmyndin er sótt í verklag við línuívilnun, sem nokkur reynsla er komin á og þykir hafa gengið vel. Öllum verður frjálst að stunda þessar veiðar sem uppfylla þau almennu skilyrði sem sett verða. Alls eru, í dag, skráðir um 720 haffærir bátar undir 15 brúttótonnum. Um 650 þessara báta hafa stundað fiskveiðar í atvinnuskyni á síðastliðnum árum. Varanlegar aflaheimildir eru bundnar við 350 þeirra en til viðbótar eru um 140 bátar með varanlegar aflaheimildir en eru ekki með gilt haffæri sem oftast er þá innlagt. Til viðbótar er einhver fjöldi báta sem varanlegar aflaheimildir eru ekki bundnar við og ekki hafa gilt haffæri. 16.4.2009 14:21
Meira kannabis tekið á þremur mánuðum en þremur árum Afbrotatölfræði fyrir marsmánuð hefur nú verið birt á vef ríkislögreglustjóra. Þar kemur m.a. fram að fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 hefur lögreglan lagt hald á 6.001 kannabisplöntu sem er 23% meira en samanlagt magn kannabisplantna sem lögreglan haldlagði á árunum 2005-2008. 16.4.2009 14:04
Þriðjungur þingmanna samþykkti listamannalaun Einungis þriðjungur þingmanna á Alþingi Íslendinga greiddi atkvæði með fjölgun listamannalauna þegar frumvarpið var samþykkt á Alþingi í morgun. Alls greiddi 21 þingmaður frumvarpinu atkvæði sitt. Níu greiddu atkvæði gegn því en 29 voru fjarstaddir við atkvæðagreiðsluna. Alls sitja 63 þingmenn á Alþingi. 16.4.2009 13:19
Bannað að beita börn refsingum Alþingi samþykkti í morgun frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur og félaga hennar úr Vinstri grænum um að óheimilt og refsivert verði að beita börn líkamlegum og andlegum refsingum. Kolbrún sagði í samtali við fréttastofu, 16.4.2009 13:02
Þjóðhættulegir betra orð en fífl Ég fékk spurningu um það afhverju lönd innan Evrópusambandsins væru í vandræðum og þá var bent á Lettland og Írland í því samhengi. Ég svaraði því bara þannig að ESB tekur ekki af okkur valdið til þess að kjósa fífl yfir okkur," sagði þingmaður Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason, sem uppskar gagnrýni á framboðsfundi flokkanna í Suðvesturkjördæmi í gær fyrir ummæli sín. 16.4.2009 12:31
Dagar skóflustungna hjá ráðherrum runnir upp Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri í dag um klukkan korter í fimm. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu kemur fram að Gestastofan verði fyrsta byggingin hér á landi sem verði byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. 16.4.2009 12:09
Ekki einu sinni búið að slá tjaldborg um heimilin í landinu „Það er ekki búið að slá skjaldborg um stöðu heimilanna í landinu. Það er ekki einu sinni búið að slá tjaldborg," sagði Björn Þorri Viktorsson lögfræðinur í samtali við fréttastofu í gær. 16.4.2009 11:34
Árni Páll kallaði andstæðinga sína fífl Þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og oddviti listans, Árni Páll Árnason, kallaði pólitíska andstæðinga sína fífl á fjölmennum og vel heppnuðum framboðsfundi sem haldinn var í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær. 16.4.2009 11:03
Vonar að tengillinn sé kominn á sinn stað Freyr Eyjólfsson, dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu, átti viðtal við Ástþór Magnússon í gær sem þegar hefur vakið mikla athygli ef marka má fyrstu viðbrögð manna. Í viðtalinu sakaði Ástþór Ríkisútvarpið um 16.4.2009 10:34
Fundi sérnefndar um stjórnarskrármál lauk án niðurstöðu Sérnefnd um stjórnarskrármál fundaði á Alþingi í morgun og hófst fundurinn klukkan kortér yfir átta. Sérnefndinni hefur verið falið að leysa ágreining sem uppi er um frumvarp til stjórnarskipunarmála. Fundinum lauk fyrir stundu án þess að niðurstaða fengist í málið og er áætlað að nefndin hittist á ný í hádeginu. 16.4.2009 10:23
Fólk flúði landið á fyrsta ársfjórðungi Alls fluttu 711 fleiri frá landinu en til þess á fyrsta ársfjórðungi 2009 en á sama tímabili í fyrra. Frá landinu fluttu flestir, eða 764, til Póllands, 375 fluttu til Danmerkur, 268 fluttu til Noregs og 176 til Svíþjóðar. Á þessum þremur mánuðum fluttu flestir til landsins frá Póllandi, eða 399, 290 fluttu frá Danmörku, 78 fluttu frá Bretlandi og 77 frá Bandaríkjunum, eftir því sem fram kemur á vef Hagstofunnar. 16.4.2009 09:33