Fleiri fréttir

Seðlabankinn mismunar við afgreiðslu á gjaldeyri

Seðlabanki Íslands mismunar einstaklingum og fyrirtækjum við afgreiðslu á gjaldeyri, fullyrðir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem segir að menn virðist geta fengið undanþágur ef þeir eiga góða vini á réttum stöðum.

Miðstýring á að minnka hjá lögreglu

Meiriháttar skiplagsbreytingar eru framundan hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fimm sjálfstæðar lögreglustöðvar verða settar upp, miðstýring minnkar og fjölmennara lið lögreglu fer út í hverfin.

Segja Landsbankann ekki hafa afskrifaði milljónir Björgvins

Lansbankinn hefur aldrei afskrifað neinar kröfur á Björgvin G. Sigurðsson fyrrum viðskiptaráðherra. Þar með staðfestir bankinn orð Björgvins í grein sem hann ritaði í Morgunblaðið í dag. Það er fréttavefurinn sunnlendingur.is sem sem segist hafa fengið gögn í hendurnar sem staðfesti þetta.

Saka stjórn HB-Granda um að fegra bókhaldið

Miðstjórn ASÍ telur tillögu stjórnar HB-Granda um hundruð milljón króna arðgreiðslur til eigenda siðlausa við núverandi aðstæður og skorar á stjórnina að draga tillöguna til baka ella greiða starfsfólki áður umsamdar launahækkanir án tafar.

Rýmingu aflétt í Bolungarvík

Veðurstofan í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum hefur afturkallað hættustig á reit 4 í Bolungarvík og er rýmingu aflétt því samfara. Óvissustig er þó áfram á reitnum.

Byr vill leysa erlenda tékkamálið

„Almenna reglan er að selja ekki erlenda tékka nema okkar viðskiptavinum. Við leitum þó allra leiða til að aðstoða fólki með slík mál og erum tilbúin að skoða hvert mál fyrir sig," segir markaðsfulltrúi Byrs, Salóme Rúnarsdóttir, varðandi vandkvæði Kanadafara sem vilja fá erlenda tékka þannig þeir geti borgað umsýslugjald vegna atvinuleyfis út í Kanada.

Lýsa vantrausti á störf forseta og samninganefndar ASÍ

Drífandi stéttarfélag fagnar góðum uppgjörum sjávarútvegsfyrirtækja undanfarið. Staða margra fyrirtækja er góð þrátt fyrir þrengingar í þjóðfélaginu. Það sýnir að málflutningur þeirra stéttarfélaga er kröfðust þess að launahækkunin kæmi til framkvæmda 1. mars, var hárréttur.

Byrgisstelpa stal frá nágrannanum

Ólöf Ósk Erlendsdóttir var dæmd í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað, fíkniefnabrot og hylmingu auk eignaspjalla. Þar á meðal stal hún margvísislegum hlutum frá nágranna sínum sem bjó í sama fjölbýlishúsi og hún sjálf.

Heilaskaddaður dæmdur fyrir kynferðisbrot

Karlmaður var dæmdur fyrir kynferðislega áreitni í Héraðsdómi Austurlands í dag. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa káfað á brjótum utanklæða og innanklæða á fótlegg konu og báðum innanverðum lærum. Kynferðisbrotið átti sér stað á heimili konunnar í lok ágúst árið 2008 en þau voru kunnug.

Hraðakstur minnkar í Hafnarfirði

Sjö ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Kirkjuvöllum í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði.

Framboðsfrestur til Alþingis rennur út á föstudaginn langa

Alþingi samþykkti í hádeginu frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um Alþingiskosningar. Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að framboðsfrestur fyrir þingkosningarnar renni út klukkan tólf á föstudaginn langa. Frestur til að tilkynna framboð rennur sem sagt út klukkan 12 á hádegi 11 dögum fyrir kjördag í stað 15 daga eins og nú er og auglýsingar á framboðum skulu birtast eigi síðar en fimm dögum fyrir kjördag í stað tíu daga.

Í vitlausum banka og kemst ekki til Kanada

Ég byrjaði á því að fara í Landsbankann þar sem ég tók út orlof og ætlaði að greiða umsýslugjaldið," segir hinn tvítugi Finnur Torfi Þorgeirsson, sem er einn af fjölmörgum sem ætlar að nýta sér möguleikann á því að fara til Manitoba í Kanada og starfa þar í kreppunni.

Formaður ungra frjálslyndra hættir við leiðtogaframboð

Viðar Guðjónsson formaður ungra frjálslyndra er hættur við að sækjast eftir oddvitastöðu fyrir Frjálslyndaflokkinn í Reykjavík-suður, í komandi kosningum. Hann ætlar heldur ekki að taka neitt annað sæti á listanum og segist í tilkynningu munu gera ítarlega grein fyrir þessari ákvörðun við hentugt tækifæri, eins og hann orðar það.

Orkuveitan býst við að áfrýja dómnum

Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur gerir ráð fyrir að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem felur í sérð að Orkuveitan þarf að greiða Hafnarfjarðabæ 7,6 milljarða króna vegna viðskipta með hlut í HS Orku hf. og HS Veitum hf.

Lúðvík Geirsson: Dómur héraðsdóms er fagnaðarefni

„Þetta er fullnaðarsigur, nákvæmlega í anda þess sem ég átti alla tíð von á,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar um nýfallinn dóm í máli bæjarins gegn Orkuveitu Reykjavíkur. Bærinn vildi að OR stæði við gerðan samning um sölu á hlut í Hitaveitu Suðurnesja og á þau sjónarmið féllst dómarinn í morgun. Orkuveitan þarf því að greiða bænum 7,6 milljarða króna auk dráttarvaxta. „Í okkar huga hefur þetta verið skýrt. Við gengum frá lögmætum samningi og gengum að tilboði Orkuveitunnar. Það var þeirra að standa við það samkomulag. Dómurinn er afdráttarlaus í því og ég fagna því að þetta sé út af borðinu.“

Orkuveitan þarf að greiða Hafnarfjarðarbæ 7,6 milljarða

Hafnarfjarðarbær hafði betur í dag í dómsmáli gegn Orkuveitu Reykjavíkur og þarf Orkuveitan að greiða bæjarfélaginu rúma 7,6 milljarða króna auk dráttarvaxta, gegn afhendingu á hlutum í HS Orku hf. og HS Veitum hf., eða Hitaveitu Suðurnesja, auk 1500 þúsund króna í málskostnað.

Brandendurnar mættar

Fyrstu brandendurnar komu til landsins í gær og sáust í Hornafirði. Vefurinn Sunnlendingur hefur það eftir Brynjólfi Brynjólfssyni, starfsmanni Fuglaathugunarstöðvar Suðurlands, að þær séu á nákvæmlega réttum tíma miðað við undanfarin ár. Þá sást einnig stór gæsahópur fljúga til lands á Hornafirði í gær.

Þungatakmarkanir á vegum víða um land

Hálka er næstum horfin af öllum þjóðvegum landsins nema hvað hálkublettir eru sums staðar enn á fjallvegum, einkum á Vestfjörðum. Hins vegar hefur Vegagerðin gripið til þungatakmarkana á þjóðvegum víða um land vegna hættu á slitlagsskemmdum, þegar frost er að fara úr vegunum. Nánar má fræðast um það á vef Vegagerðarinnar.

Steypuklumpar féllu af tengivagni

Mildi þykir að ekki fór verr þegar tengivagn losnaði aftan úr dráttarbíl á mótum Grensásvegar og Fellsmúla í gærkvöldi og níðþungir steypuklumpar losnuðu á vagninum og féllu á götuna.

Flett ofan af bruggurum

Lögregla upprætti bruggstarfsemi í iðnaðarhúsi við Stórhöfða í Reykjavík í gærkvöldi og handtók tvo menn á staðnum. Hald var lagt á um það bil 200 lítra af gambra og tæki til að sjóða hann.

Skinney sloppin af hættusvæði

Fiskiskipið Skinney, sem er á heimleið frá Tævan, þar sem það var smíðað, er nú komið í gegnum hættusvæðið við Sómalíu, þar sem sjóræningjar hafa herjað á skip og rænt þeim. Eins og við greindum frá fyrir helgi var nokkrum skipum safnað saman á mörkum svæðisins og síðan var siglt í skipalest undir herskipavernd í gegnum svæðið.

Kveikt í mannlausum jeppa

Grunur leikur á að kveikt hafi verið í mannlausum jeppa sem stóð úti í kanti á Reykjanesbrautinni í grennd við Reykjanesbæ í nótt. Þegar lögregla kom á vettvang um fjögurleytið í nótt var bíllinn alelda og var kallað á slökkvilið til að slökkva í honum. Hann er gjörónýtur og var flakið flutt til Keflavíkur til nánari rannsóknar.

Dóttir Fritzl bar vitni gegn föður sínum í dag

Elísabet dóttir Josef Fritzl, sem ákærður hefur fyrir að hafa haldið henni nauðugri í kjallara heimilis þeirra árum saman og getið með henni sjö börn, bar vitni gegn honum í gegnum myndbandsupptöku við réttarhöldin í dag.

Reglum breytt til hagsbóta fyrir framleiðendur á landsbyggðinni

Gerðar hafa verið breytingar á vöruvalsreglum ÁTVR sem munu leiða til mikils sparnaðar í dreifingarkostnaði fyrir framleiðendur á landsbyggðinni. Breytingarnar fela í sér að við sérstakar aðstæður getur ÁTVR samið beint við birgja um afhendingu vöru, sem ætluð er til dreifingar á nærsvæði framleiðenda, á öðrum dreifingarstað en í vöruhúsi ÁTVR á Stuðlahálsi.

Lítill tilgangur með siðareglum kjörinna fulltrúa

Ólafur F Magnússon borgarfulltrúi segir siðareglur kjörinna fulltrúa hafa harla lítinn tilgang á meðan kjörnir fulltrúar vilja ekki gefa upp þau fjárframlög og styrki sem þeir hafa þegið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi en á fundi borgarstjórnar í dag var m.a. ræt tum fjárframlög til kjörinna fulltrúa og siðareglur borgarfulltrúa.

Rafmagn komið á í Grafarholti

Rafmagn komst á að nýju í Grafarholti kl. 20:55 - en háspennubilun orsakaði rafmagnsleysi í norðanverðum hluta Grafarholts um kl. 20:20.

300 lítrar af gambra í bruggverksmiðju uppi á Höfða

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lokaði bruggverksmiðju í Iðnaðarhúsnæði uppi á Stórhöfða seinni partinn í dag. Að sögn varðstjóra voru um 300 lítrar af gambra gerðir upptækir auk eimingartækja. Einn var handtekinn vegna málsins.

Segir arðgreiðslur HB Granda siðlausar

Eitt prósent af hagnaði HB Granda á síðasta ári gæti staðið undir þeim launahækkunum sem teknar voru af almennu starfsfólki fyrirtækisins með samningi Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra segir arðgreiðslurnar siðlausar.

Skuldir þjóðarbúsins meiri en haldið var

Skuldir þjóðarbúsins eru mun meiri en hingað til hefur verið talið eða allt að 200 prósent af landsframleiðslu. Forystumenn ríkisstjórnarinnar segja tillögur frá stjórnarandstöðunni myndu auka enn á vandann.

Indefence mótmælti við breska þinghúsið

Indefence hópurinn afhenti í dag breskum þingmönnum mótmælaskjal vegna beitingu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi í haust. Áttatíu og þrjú þúsund manns höfðu skrifað undir skjalið.

Alveg eins hægt að banna tískusýningar

Það er með ólíkindum að meðan landið brennur virðast öfgahópar stjórna því sem gerist á ríkisstjórnarfundum segir Ásgeir Þór Davíðsson, eða Geiri á Goldfinger, sem telur alveg eins hægt að banna tískusýningar. Hann hyggst láta lögfræðinga fara yfir réttarstöðu sína gagnvart aðgerðum ríkisstjórnarinnar.

Félagsmálaráðherra: Mansal verður ekki liðið

Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, sem í dag kynnti aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali, fagnar aðgerðaáætluninni og segir „að með henni sé langþráðum áfanga náð í baráttunni gegn mansali á Íslandi.“ Að sögn Ástu er mansal eitt andstyggilegasta form skipulagðrar alþjóðlegrar glæpastarfsemi og miklu skiptir að koma lögum yfir þá sem það stunda og veita fórnarlömbum þess vernd og aðstoð. „Skilaboð stjórnvalda eru skýr, hér verður mansal ekki liðið," segir Ásta.

Segist hafa útskýrt málin fyrir dómara

Erlendur Gíslason, skiptastjóri Baugs, mun halda áfram sem skiptastjóri þrotabús Baugs, þrátt fyrir gagnrýni í fjölmiðlum vegna starfa sem lögmannsstofan Logos, sem Erlendur er meðeigandi í, vann vegna

Lögreglan haldlagði 300 kannabisplöntur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í íbúð í Kópavogi í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 300 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar en íbúðin var undirlögð af þessari starfsemi.

Þrjár formlegar kvartanir til Jafnréttisstofu

Eins og greint var frá fyrr í dag hefur Jafnréttisstofu borist formleg kvörtun vegna kosningar í bankaráð Seðlabankans. Í tilkynningu frá Jafnréttisstofu kemur ennfremur fram að formlegar kvartanir hafi einnig borist vegna skipana í í bankaráð Nýja Kaupþings og í stjórnarskrárnefnd. Jafnréttisráð segist líta á öll möguleg brot á jafnréttislögum alvarlegum augum og mun því taka kvartanirnar til afgreiðslu.

Nektardansstaðir verði bannaðir með öllu

Í aðgerðaráætlun þeirri sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag og beinist gegn mansali, er gert ráð fyrir því að nektardansstaðir verði bannaðir með öllu.

Ráðherrar þurfa nú þegar að greina frá hagsmunum sínum

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í dag að tillögur sem lagðar voru fyrir Alþingi í gær um reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings eigi þegar í stað að gilda um ráðherra í ríkisstjórninni.

Karpað um kostnað við stjórnlagaþing

Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokks vakti athygli á fyrirhuguðum kostnaði við boðað stjórnlagaþing í liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Eins og greint var frá í gær telur fjármálaráðuneytið að stjórnlagaþing muni kosta frá 1,1 milljarði króna og allt að 2,2 milljörðum.

Kostnaður við skrifstofu hjá Evrópulögreglunni tvöfaldaðist

Kostnaður við rekstur skrifstofu Ríkislögreglustjóra hjá Evrópulögreglunni í fyrra var tvöfalt meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tengslafulltrúi Ríkislögreglustjóra segir dómsmálaráðuneytið nú kanna framtíðarfyrirkomulag starfsins. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins segir það þegar hafa skipt sköpum við lausn stórra glæpamála.

Sjá næstu 50 fréttir