Innlent

Sex ungmenni flutt á slysadeild með brunasár

Úr myndasafni.
Úr myndasafni.

Sex ungmenni voru fyrir stundu flutt á slysadeild með brunasár eftir að eldur kviknaði að öllum líkindum út frá gasi í litlum skúr í Grundagerði í Reykjavík í kvöld.

Lögreglan og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins eru á staðnum og samkvæmt upplýsingum hjá slökkviliðinu er búið að slökkva eldinn.

Ekki fengust frekari upplýsingar um aðdraganda brunans eða líðan fólksins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×