Fleiri fréttir

Símasvindl: Ekki hringja tilbaka í 0088

Síminn varar fólk við að hringja til baka í númer sem byrja á 0088. Það landsnúmer er ekki til en fólk er rukkað um þúsundir króna þegar hringt er í númerin. Undanfarið hefur borið á því að fólk fær hringingu úr þessum númerum, 1-2 stuttar hringingar, og þegar hringt er tilbaka tapar fólk þúsundum króna á þessu eina símtali.

Stýrivaxtahækkun hluti af samkomulagi við IMF

Stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands upp í 18 prósent í dag er hluti af samkomulagi sem gert var við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þetta kom fram í máli Davíðs Odddssonar, formanns stjórnar Seðlabankans.

Indefence.is í útrás á átta tungumálum

Tæplega sextíu þúsund manns hafa nú skráð nafn sitt við þjóðarávarp til Breta á síðunnni Indefence.is. Í ávarpinu er notkun breskra stjórnvalda á hryðjuverkalögum til að frysta eignir íslenskra banka í Bretlandi er mótmælt.

Slógust á skemmtistað í Eyjum

Lögreglan á Vestmannaeyjum var kölluð að skemmtistað í bænum aðfaranótt laugardagsins vegna líkamsárásar

Vilhjálmur: Þetta er hræðilegt

„Þetta er meira en ég reiknaði með, þetta er alveg hræðilegt,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins þegar hann er spurður út í stýrivaxtahækkun Seðlabankans.

Beðið eftir svörum frá Seðlabanka Evrópu og Bandaríkjanna

Seðlabanki Íslands hefur beðið Seðlabanka Evrópu og Bandaríkjanna um lán til þess að takast á við yfirstandandi fjármálaerfiðleika. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Helsinki í morgun.

Sló mann í höfuðið með glerflösku

Sautján ára piltur hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega árás á annan mann á Akureyri í sumar.

Steingrímur J: Hin kalda hönd IMF er lögst á stýrið

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG óttast að stýrivaxtahækkun Seðlabankans sé aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal þegar IMF fer að ráðskast með málin hér á landi. „Ég vissi þetta upp á mína tíu fingur að það yrði mjög stíf krafa af þeirra hálfu að keyra á svona harðlínupeningastefnu og það myndi þýða mjög vonda hluti í vöxtum,“ segir hann.

Telur stýrivaxtahækkun skynsamlega til að styðja við krónuna

Yngvi Örn Kristinsson, aðalhagfræðingur Landsbankans, telur að sú ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti um sex prósent hafi verið skynsamleg. „Þetta er væntanlegt gert til þess að styðja við gengi krónunnar meðan við förum í gegnum það sem eftir er að verðbólgukúfnum," segir Yngvi.

Enn engar upplýsingar um tildrög sprengingar

Sex unglingar liggja enn á sjúkrahúsi, þar af einn á gjörgæsludeild Landsspítalans, eftir sprengingu sem varð í vinnuskúr borgarinnar í svonefndum Grundargerðisgarði í smáíbúðahverfinu í Reykjavík í gærkvöldi.

Óútskýrð ljós sáust á himni

Ljósfyrirbrigði sást á himni við suðurströndina undir klukkan ellefu í gærkvöldi og bárust lögreglunni á Hvolsvelli, í Vestmannaeyjum og Veðurstofunni nokkrar tilkynningar um það.

Bílbruni við Krókháls

Eldur kviknaði í mannlausum bíl sem stóð á bílastæði við Krókháls í Reykjavík í nótt.

Heyrði hrikaleg hljóð og sá blóðuga unglinga

Áslaug Þóra Harðardóttir, íbúi í Grundargerði, þar sem eldur kveiknaði út frá gasi í skúr í kvöld sagði í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins að hún hafi heyrt mikla sprengingu og talið að um jarðskjálfta hafi verið að ræða. Fljótlega hafi hún áttað sig á því að svo væri ekki því hún heyrði mikil hróp og hrikaleg hljóð. Í framhaldinu hafi blóðug ungmenni flúið frá slysstaðnum. Sjálf hafi hún aðstoðað brennda stúlku.

Bústaðakirkja opnuð í kjölfar gassprengingar

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins beinir þeim tilmælum til þeirra sem voru á slysstað í Grundargerði þegar eldur kveiknaði út frá gasi í skúr í kvöld gefi sig fram og mæti í Bústaðakirkju. Samkvæmt lögreglunnni á höfuðborgarsvæðinu verður upplýsingum safnað saman og sálræn aðstoð veitt. Óljóst er hvort fleiri hafi verið í skúrnum þegar hann sprakk.

Hannes Smárason: Of geyst farið í útrásinni

Hannes Smárason segist ætla að leggja allt sitt fé í að byggja upp íslenskt samfélag að nýju. Of geyst hafi verið farið í útrásinni en auðvelt sé að gagnrýna það sem aflaga fór eftirá.

Sex ungmenni flutt á slysadeild með brunasár

Sex ungmenni voru fyrir stundu flutt á slysadeild með brunasár eftir að eldur kviknaði að öllum líkindum út frá gasi í litlum skúr í Grundagerði í Reykjavík í kvöld.

Þrír af árásarmönnunum á Hverfisgötu handteknir

Lögreglan handtók fyrir skömmu þrjá af fjórum árásármönnum sem ruddust inn í hús við Hverfisgötu með bareflum á laugardagskvöldið og börðu fjóra menn sem þar búa. Tveir íbúanna voru fluttir á slysadeild með höfuðáverka.

Ekkert ferðaveður á Mývatns- og Möðrudalsöræfum

Stórhríð er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði og ekkert ferðaveður. Mikið hvassviðri, skafrenningur og éljagangur er víða norðan og austanlands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Vissi ekki af tilboði breskra yfirvalda varðandi Icesave

Forsætisráðherra og Seðlabankinn segjast ekki hafa vitað af tilboði breskra fjármálayfirvalda um að færa Icesave reikninga undir breska ábyrgð með hraði. Forsætisráðherra segist ekki hafa vitað um tvö hundruð milljarða punda lánaósk Landsbankans því til tryggingar. Björgólfur Thor Björgólfsson segir bæði forsætisráðherra og Seðlabankann hafa vitað af þessu og fara því með rangt mál.

Hagnast vel á síldveiði

Hásetahlutur á einu síldveiðiskipanna fór í 4,4 milljónir fyrir einn mánuð nýlega og er þetta hæsti skiptahlutur sem sögur fara af hérlendis. Hásetahlutur fyrir árið í heild stefnir í tuttugu milljónir króna á nokkrum skipanna.

Heppin bankastjóri missti af verðlausum kaupum

Tæknin kom í veg fyrir hlutabréfakaup Birnu Einarsdóttur, núverandi bankastjóra Nýja Glitnis, í Glitni og um leið í veg fyrir gjaldþrot viðkomandi, sem hefði þýtt að hún mætti ekki sinna starfinu.

Skuldabyrði almennings snarhækkar

Skuldabyrðar almennings vegna bankahrunsins og ástandsins hafa snarhækkað um 30 milljarða á einum mánuði. Sá sem tók hámarkslán Íbúðalánasjóðs fyrir fjórum vikum horfir nú fram á nærri hálfa milljón bætast ofan á höfuðstólinn. Á meðan lánin hækka skipar félagsmálaráðherra sérfræðingahóp.

Björgólfur Thor: Seðlabankinn svarar með hálfkveðnum vísum og aðdróttunum

Bankastjórum Seðlabankans var kunnugt um boð breska fjármálaeftirlitsins um flýtimeðferð, segir Björgólfur Thor Björgólfsson í yfirlýsingu. Hann hefur sagt að bresk yfirvöld hafi boðist til að taka yfir alla Icesave-reikninga degi áður en neyðarlögin voru sett. Það var þó gegn því að Landsbankinn greiddi 200 milljónir punda, eða því sem nemur um 37 milljörðum króna, sem tryggingu.

Geir segir ekki tímabært að ræða ESB-aðild

Geir H. Haarde forsætisráðherra vill bíða með að ræða Evrópusambandsaðild þar til Íslendingar eru komnir í gegnum mestu erfiðleikana. Þetta kom fram í máli hans á blaðamannafundi eftir fund norrænu forsætisráðherranna í Helsinki í dag. Þar var meðal annars rætt um stöðu mála á Íslandi og fór Geir formlega fram á lán frá nágrannaþjóðunum.

Segja Björgólf Thor fara með rangt mál

Í bréfi til bankastjórnar Seðlabanka Íslands mánudaginn 6. október sl. kynnti bankastjórn Landsbanka Íslands að bankinn þyrfti fyrirgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir punda frá Seðlabanka Íslands vegna útstreymis sem orðið hefði í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum.

Leggja til sameiginlegan gjaldmiðil með Noregi

Frjálslyndi flokkurinn hefur lagt fram minnisblað um þau atriði sem hann mun leggja áherslu á í störfum sínum á Alþingi næstu vikur. Þar er m.a. stungið upp á að Ísland og Noregur standi saman að gjaldmiðli og peningamálastefnu. Verið er að kynna minnisblaðið á blaðamannafundi sem hófst kl. 15.30.

Gylfi fer fyrir hópi sem skoðar vanda lántakenda

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað fimm manna sérfræðingahóp sem falið hefur verið að skoða hvort og þá hvaða leiðir séu færar til að bregðast við vanda lántakenda vegna verðtryggingar.

Breskum ferðamönnum fjölgar í kreppunni

Fimmtungi fleiri fleiri Bretar komu til Íslands í september og á fyrri hluta októbermánaðar í ár en á sama tíma í fyrra samkvæmt frétt á breska ferðafréttavefnum Travel Weekly.

Íslendingar verða ekki skuldsettasta þjóð í heimi

Íslendingar verða ekki skuldsettasta þjóð í heimi þrátt fyrir þau lán sem tekin verða á næstunni vegna efnahagsþreninganna. Hins vegar hefur engin þjóð fengið jafnmikinn skell vegna efnaghagskreppunnar.

Fingralangir á ferli á Suðurlandi

Nokkur þjófnaðarmál komu til kasta lögreglunnar á Selfossi í liðinni viku. Þannig var tilkynnt um innbrot í íbúð að Reykjabraut á Laugarvatni á föstudag. Þaðan var stolið skartgripum og áfengi. Sá sem þarna var að verki hafði spennt upp hurð til að komast inn í íbúðina þar sem hann rótaði heilmkið til.

ÍAV segja upp 151

Íslenskir aðalverktakar hafa sagt upp 151 starfsmanni „í ljósi mikils samdráttar í íslensku efnahagslífi.“ Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að mikil óvissa sé um öflun nýrra verkefna og sökum þess neyðist ÍAV til þess að grípa til uppsagna.

Seðlabankinn þurfi að afskrifa vel á annað hundrað milljarða

Búist er við að Seðlabankinn þurfi að afskrifa vel á annað hundrað milljarða króna vegna taps á endurhverfum viðskiptum við fjármálastofnanir hér á landi. Þetta kom fram í máli Ásmundar Stefánssonar á opnum fundi efnahags- og skattanefndar. Vísaði Ásmundur til talnanna sem vinnutalna.

Námsmenn erlendis fái 500.000 króna neyðarlán

Garðar Stefánsson formaður Sambands íslenskra námsmanna erlendis segir forsendur úthlutunarreglna LÍN fyrir veturinn 2008-2009 brostnar. Í bréfi sem sent hefur verið menntamála- og fjármálaráðherra kemur fram að íslenskir námsmenn erlendis séu í miklum kröggum þar sem lán þeirra og sjálfsafafé dugi ekki lengur fyrir skjólagjöldum og lágmarksframfræslu.

Sjá næstu 50 fréttir