Fleiri fréttir

Sex mánaða fangelsi fyrir að káfa á ungri stúlku

Hæstiréttur staðfesti í dag sex mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms yfir rúmlega 37 ára gömlum karlmanni. Maðurinn var sakfelldur fyrir kynferðisbrot og áfengislagabrot með því að hafa lagst við hlið ungrar stúlku og káfað á brjóstum hennar innan klæða og niður eftir. Auk þess veitti hann stúlkunni og vinkonu hennar sem voru undir lögaldri áfengi á heimili sínu.

Drög að neyðarlögunum voru lögð í sumar

Drög að neyðarlögunum sem samþykkt voru á Alþingi þann sjötta október síðastliðinn og gerðu Fjármálaeftirlitinu kleift að taka yfir rekstur bankanna voru saminn mánuðum áður en lögin voru lögð fyrir Alþingi. Vísir hefur heimildir fyrir því að stór hluti vinnunar hafi farið fram í sumar og var hún unnin af starfsmönnum viðskiptaráðuneytisins.

Forsetinn líkir aðgerðum Breta við atriði úr Dr. Strangelove

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands líkir aðgerðum Breta gagnvart Íslendingum við atriði úr kvikmyndinni Dr. Strangelove. Þar á forsetinn við það þegar ríkisstjórn Bretlands beitti hryðjuverkalögum sínum gegn íslensku bönkunum.

93% samdráttur í sölu á nýjum bílum

Líkt og Vísir sagði frá fyrr í dag hefur sala á nýjum bílum dregist nokkuð saman á Íslandi. Í síðustu viku var 21 nýr bíll seldur í landinu en á sama tíma í fyrra seldust 325 bílar. Það er samdráttur upp á rúm 93% á milli ára.

Magnús Pétursson nýr ríkissáttasemjari

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað Magnús Pétursson, fyrrverandi forstjóra Landspítala, til þess að gegna embætti ríkissáttasemjara til næstu fimm ára frá 1. nóvember 2008.

Uppsagnir og lækkun launa hjá 365

Yfir 20 manns verður sagt upp hjá 365 hf., sem rekur meðal annars Vísi, nú um mánaðamótin og þá grípur fyrirtækið til launalækkana til að bregðast við breyttu efnahagsástandi

Fundu fíkniefni í Draumnum

„Já, þeir komu hingað og voru eitthvað að gramsa hérna,” segir Ragnar Júlíusson, starfsmaður Draumsins um húsleit lögreglunnar þar í gær.

Lögreglustjóri fjalli aftur um mál Mónakó og Monte Carlo

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur fellt úr gildi þá ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að takmarka þann tíma sem veitingastaðirnir Mónakó og Monte Carlo í miðborg Reykjavíkur hafa til þess að selja áfengi. Segir ráðuneytið að annmarkar hafi verið á málsmeðferðinni.

Skólameistari hvetur kennara til varkárni í kreppuumræðu

Skólameistari Flensborgarskólans í Hafnarfirði sendi kennurum og öðru starfsfólki skólans bréf í byrjun október og hvatti þar til þess að stigið yrði varlega til jarðar í öllum umræðum um efnahagsástandið á Íslandi í kennslustundum.

Fíkniefni fundust í söluturni í Reykjavík

Allnokkuð af fíkniefnum fannst við eftirlit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Við húsleit í söluturni í Reykjavík fundust ætluð fíkniefni, ólöglegt tóbak og munir sem taldir eru vera þýfi. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði en aðgerðin var framkvæmd í samvinnu við tollyfirvöld.

Kappakstur og ofsaakstur orsök banaslyss

Rannsóknarnefnd umferðarslysa segir að ökumaður bifhjóls sem lést í slysi á Kringlumýrarbraut við Listabraut í mars á þessu ári hafi verið í kappakstri við ökumann bifreiðar og ekið á ofsahraða.

Hekla seldi tvo nýja bíla í síðustu viku

Mikill samdráttur hefur verið í sölu á nýjum bílum í október. Í síðustu viku var seldur 21 nýr bíll á Íslandi. Jón Trausti Ólafsson markaðsstjóri Heklu staðfestir í samtali við Vísi að einungis tveir nýir bílar hafi selst hjá fyrirtækinu á sama tíma. Hann segir Heklu hinsvegar hafa fengið mikil viðbrögð erlendis frá við nýjum vef sem opnaður var á fimmtudaginn.

Enn engar upplýsingar um laun eins ríkisbankastjóra

Laun eins ríkisbankastjóra af þremur eru enn ekki gefin upp. Illugi Gunnarsson, segir nauðsynlegt að mál þessi séu uppá borðinu og vill að laun embættismanna almennt lækki í samræmi við það sem er að gerast í einkageiranum.

Fjórtán þúsund í alvarlegum fjárhagserfiðleikum

Hartnær fjórtán þúsund Íslendingar eru í alvarlegum fjárhagserfiðleikum. Einstæðir feður eru mun líklegri til að lenda í vanskilum en einstæðar mæður en langfjölmennasti hópur þeirrra sem eru á vanskilaskrá eru barnlausir karlmenn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Creditinfo Ísland.

Stjórnvöld bera ábyrgð á umdeildri stýrivaxtahækkun

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hélt ræðu í þinginu fyrir stundu. Fór hún um víðan völl og ræddi meðal annars um umdeilda stýrivaxtahækkun Seðlabankans í vikunni. Deilt hefur verið um hvort hækkunin sé skilyrði frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða ekki. Ingibjörg sagði vaxtahækkunina vera á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og ekki væri hægt að benda bara á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Undirrituðu yfirlýsingu um samstarf við strandeftirlit

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Thad W. Allen, yfirmaður bandarísku strandgæslunnar, rituðu í gær, 29. október 2008, undir yfirlýsingu um samstarf strandgæslunnar og Landhelgisgæslu Íslands á fundi í Washington.

Seðlabankinn greinir frá einum hluta samkomulagsins við IMF

Seðlabankinn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðunnar undanfarið um hver hafi átt hugmyndina að því að hækka stýrivexti Seðlabankans. Ráðherrar í ríkisstjórninni hafa að mati bankans „undrast“ hækunina og sumir hverjir sagt að hún hafi ekki verið eitt af skilyrðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í rökstuðningi sínum á dögunum fyrir hækkuninni sagði bankinn að hækkunin væri hluti af því samkomulagi sem náðst hafi við IMF.

Skuldir þjóðarbúsins verða 100 prósent af landsframleiðslu

Skuldir ríkissjóðs munu fara úr 29 prósentum af vergri landsframleiðslu í ár í 100 prósent af vergri landsframleiðslu á næsta ári vegna þeirrar efnahagskreppu sem gengur yfir landið. Það mun jafnframt taka ríkissjóð nokkur ár að vinna sig út úr hallarekstri ríkissjóðs. Þetta kom fram í ræðu Geirs H. Haarde forsætsiráðherra sem flutti skýrslu um stöðu efnahagsmála og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Skjárinn segir öllum upp

Skjárinn, sem sér um rekstur SkjásEins, hefur sagt upp öllum sínum starfsmönnum. „Í ljósi mikils samdráttar á auglýsingamarkaði, ójafnrar samkeppni frá RÚV og óvissu um innkaupsverð á sjónvarpsefni frá útlöndum hefur Skjárinn tilkynnt öllum starfsmönnum sínum að þeim verði sagt upp frá og með 1. nóvember,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Framkvæmdastjórinn segist vonast til að úr rætist þannig að uppsagnirnar þurfi ekki að taka gildi. Hjá Skjánum eru 40 fastráðnir og fimm verktakar.

Munnlegur málflutningur í Keilufellsmáli

Munnlegur málflutningur fer í dag fram í máli Ríkissaksóknara gegn fjórum Pólverjum sem ákærðir eru fyrir að hafa ráðist á sjö samlanda sína í Keilufelli í mars. Árásin var hrottaleg og beittu árásarmenn meðal annars kylfum, exi, slaghömrum og járnröri. Þeir hafa allir neitað sök í málinu.

Sígarettusala í fríhöfnum um átta prósent af heildarsölunni

Um 1,2 milljónir pakka af sígarettum voru seldar í fríhafnarverslunum á Keflavíkurflugfelli, Reykjavíkurflugvelli og Akureyrarflugvelli í fyrra. Þetta kemur fram í svari Árna Mathiesen fjármálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Síldveiðiskip í Tromsö laus allra mála

Síldveiðiskipin Guðmundur VE og Vilhlem Þorsteinsson EA, sem staðin voru að meintum ólöglegum veiðum í norskri lögsögu á laugardag og var beint til Tromsö, eru nú laus allra mála og farin aftur til veiða.

Hugsanlega kveikt í bílum

Elds varð vart í mannlausum bíl sem stóið fyrir utan fyrirtæki við Krókháls í Reykjavík um klukkan hálfþrjú í nótt. Þegar slökkviliðið kom á staðinn skíðlogaði í bílnum og var lakk farið að sviðna á nálægum bíl.

Þrír á slysadeild eftir bruna í Rjúpufelli

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var sent að fjölbýlishúsi við Rjúpufell í Reykjavík um klukkan hálftólf í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um eld í íbúð þar.

Þekkt lögfræðistofa kannar réttarstöðu Íslands

Íslenska ríkisstjórnin hefur samið við eina af helstu lögfræðistofum Lundúnar til þess að kanna möguleika á skaðabótakröfu breskra stjórnvalda vegna hruns bankakerfisins. Þetta kemur fram á vef Financial Times.

Skora á stjórnvöld að hækka atvinnuleysisbætur

Framsýn- stéttarfélag skorar á stjórnvöld að hækka atvinnuleysisbætur hið fyrsta til þess að koma til móts við þá einstaklinga sem þegar hafa misst vinnuna og þann mikla fjölda sem býr við ótryggt atvinnuöryggi og gætu því staðið uppi atvinnulausir á næstu vikum og mánuðum.

Elsti taílenski staður landsins lækkar verð

Taílenski matsölustaðurinn Síam í Hafnarfirði hefur ákveðið að lækka verð á öllum sóttum réttum um þrjúhundruð krónur. Vinsælustu réttirnir fara úr 1790 krónum í 1490 krónur.

ESB trúðboð í boði ríkisins

Þingmaður Framsóknarflokksins segir að ríkisbankinn Nýi Glitnir boði skoðun sem gengur þvert gegn hagsmunum þjóðarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir