Fleiri fréttir Tekinn með hass við komuna til Eyja Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á um 80 grömm af hassi sem fundust á karlmanni við komu hans til Eyja með Herjólfi í gærkvöld. 4.7.2008 11:13 Eldur í þvottavél í fjölbýlishúsi að Vesturgötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var fyrir stundu kvatt að Vesturgötu 73 vegna elds í þvottavél. Ekki er vitað hversu mikill eldurinn enda er slökkvilið rétt að koma á staðinn. 4.7.2008 11:11 Þrjú fíkniefnamál á Landsmóti Unglingar á Landsmóti hestamanna á Hellu voru að skemmta sér fram undir morgun að sögn vaktstjóra lögreglunnar. Gestur á mótinu sagðist lítið hafa getað sofið vegna láta en lögregla segir ekki mikil læti hafa verið á svæðinu. Einn var settur í fangageymslu og þrjú fíkniefnamál komu upp. Búist er við 12-15 þúsund manns um helgina og verður gæsla aukin í samræmi við það. 4.7.2008 11:11 Útlendingastofnun lét Paul Ramses vita í byrjun maí ,,Paul Ramses var boðaður á fund Útlendingastofnunar í byrjun maí en kom ekki. Lögreglumaður talaði við hann í síma og hann var látinn vita af synjuninni á beiðni um hæli á Íslandi" segir Haukur Guðmundsson forstjóri Útlendingastofnunar. 4.7.2008 11:03 „Ég er tilbúinn að mæta í réttarsal“ Jón Ólafsson athafnamaður segist tilbúinn að standa fyrir máli sínu í réttarsal. Hann segir það vont hlutskipti að vera grunaður maður í 6 ár. Ákæra í skattsvikamálinu verður birt honum í dag. 4.7.2008 10:59 Ákærður fyrir hundraða milljóna króna skattsvik Ákæra á hendur Jóni Ólafssyni athafnamanni verður birt honum í dag. Hann er ákærður fyrir hundraða milljóna skattsvik og bókhaldsbrot. Þrír eru ákærðir með honum. Rannsókn tók um 5 ár. 4.7.2008 10:37 Annar í gæsluvarðhald vegna stóra hassmálsins Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um tengsl hans við stóra hassmálið í Norrænu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 4.7.2008 10:36 Ljósmæður funda með samninganefnd ríkisins Samningafundur hjá Ljósmæðrafélagi Íslands og samninganefnd ríkisins hófst hjá ríkissáttasemjara nú klukkan tíu. 4.7.2008 10:24 Facebook-hópur stofnaður til stuðnings Paul Ramses Stofnaður hefur verið hópur til stuðnings Keníumanninum Paul Ramses á vinatengslavefnum vinsæla Facebook. Alls höfðu 132 notendur síðunnar skráð sig í hópinn í morgun. Kallast hópurinn Útlendingastofnun: Sækið Paul Ramses og virðið mannréttindi fólks! 4.7.2008 09:38 Ókeypis skotpróf á 30 ára afmæli Skotveiðifélagsins Í tilefni 30 ára afmælis Skotveiðifélags Íslands í ár hyggst félagið bjóða félagsmönnum sínum, án endurgjalds, að taka skotpróf áður en þeir halda til veiða. 4.7.2008 07:11 Hyggjast mótmæla við dómsmálaráðuneytið Efnt verður til mótmæla í hádeginu í dag fyrir utan dómsmálaráðuneytið í Skuggasundi. 4.7.2008 07:04 Handteknir fyrir skemmdarverk á bílum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra menn við Hólabraut í Hafnarfirði seint í nótt. 4.7.2008 07:02 Hópslagsmál í Reykjanesbæ Mikil hópslagsmál brutust út í nótt á bar í miðbæ Reykjanesbæjar. Þurfti lögreglan á Suðurnesjum að senda allt tiltækt lið sitt á fjórum lögreglubílum á staðinn til að stilla til friðar. 4.7.2008 06:59 Þriggja ára drengur fannst einn á rölti um Breiðholt í kvöld Lögregla var kölluð út í kvöld þegar vegfarandi í Breiðholti kom auga á 3 ára gamlan dreng á gangi. Drengurinn var einn síns liðs, illa klæddur en í fullorðinsskóm. 3.7.2008 23:07 Um 6000 manns við setningu Landsmóts Um sex þúsund manns voru viðstaddir formlega setningu Landsmóts hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu í blíðskaparveðri í kvöld. 3.7.2008 22:03 Boðað til mótmæla vegna Ramses-málsins Búið er að boða til mótmæla fyrir utan Dómsmálaráðuneytið klukkan 12 á morgun. 3.7.2008 20:39 Amnesty sendir Birni bréf Íslandsdeild Amnesty International sendi Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra bréf í kvöld vegna máls Paul Ramses sem vísað var úr landi í dag. Farið var með Paul til Ítalíu en aðbúnaður pólitískra flóttamanna þar í landi hefur lengi verið gagnýndur. 3.7.2008 19:48 Flugbrautahlauparinn sér ekki eftir neinu "Við ætluðum að reyna að bjarga lífi Paul Ramses. En því miður held ég að það hafi ekki tekist," segir hinn 21 árs gamli Haukur Hilmarsson sem í morgun hljóp inn á flugbraut á Kelflavíkurflugvelli. 3.7.2008 18:50 Enn langt á milli aðila Lítið þokaðist á fundi samninganefnda Læknafélags Íslands og ríkisins sem haldinn var í dag. 3.7.2008 18:06 Fékk ekki bréf um brottvísun úr landi Paul Ramses fékk ekki að sjá bréf um synjun á beiðni um hæli fyrr en í gærkvöldi. Bréfin hefðu átt að berast honum í apríl. Eiginkonu Paul finnst þetta ótrúleg vinnubrögð. 3.7.2008 16:33 28 ára lyfjafræðingur fékk ekki að tjalda “Ef þið eruð með börn þá megið þið tjalda, ef þið eruð að fara að búa til börn þá farið þið annað,” sagði umsjónarmaður tjaldsvæðisins í Laugarási í Biskupstungum þegar lyfjafræðingurinn Kristín Laufey Steinadóttir ætlaði að tjalda ásamt tveimur vinkonum sínum. 3.7.2008 16:09 Flugvallahlauparar fámálir Búið er að yfirheyra mennina sem hlupu út á flugbraut í morgunn. Þeir voru þöglir sem gröfin við skýrslutöku og gáfu ekki upp ástæðu gjörða sinna. 3.7.2008 16:21 Fasteignagjöld stúdenta hækka í Reykjavík Reykjavíkurborg hefur hækkað fasteignagjöld Stúdentagarða sem Félagsstofnun stúdenta rekur á háskólasvæðinu og við Lindargötu. Hækkunin nemur 5,25% á mánuði. 3.7.2008 16:09 Vinna saman gegn tóbaksnotkun sjúklinga Landspítali og Lýðheilsustöð hafa gengið til samstarfs um að vinna gegn tóbaksnotkun sjúklinga með skipulagðri fræðslu, viðeigandi meðferð og gerð fræðsluefnis fyrir starfsfólk á sjúkrahúsinu. 3.7.2008 16:35 Borgin ekki bótaskyld vegna hálkuslyss við leikskóla Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Reykjavíkurborg af kröfu leiðbeinanda við leikskóla um að skaðabótaskylda borgarinnar yrði viðurkennd vegna hálkuslyss árið 2003. 3.7.2008 16:29 SUS mótmælir aldurstakmarki á Írskum dögum 3.7.2008 16:21 Miðborgarþjónar starfandi fram á haust Miðborgarþjónar verða starfandi í miðborginni um helgar fram á haust samkvæmt ákvörðun borgarráðs í dag. Tilraun hefur verið með slíka þjóna undanfarnar vikur eftir að samið var við Öryggismiðstöðina að manna stöðurnar. 3.7.2008 15:43 Frítt í strætó flækir rekstur Strætós Ármann Kr. Ólafsson, stjórnarformaður Strætós bs,. segir það flækja rekstur fyrirtækisins þegar sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ólíkar gjaldskrár. 3.7.2008 15:26 Deiliskipulag á Pósthúsreit samþykkt í borgarráði Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag deiliskipulagsbreytingu á skipulagi Kvosarinnar varðandi svokallaðan Pósthússtrætisreit. 3.7.2008 15:26 Ekkert ólögmætt við að beita Dyflinnarsamningnum Björn Bjarnason dóms-og kirkjumálaráðherra segir ekkert ólögmætt né athugavert við að beita Dyflinnarsamningnum frekar en öðrum milliríkjasamningum. 3.7.2008 15:15 Valllendismóa fórnað fyrir fótboltavöll Pálmi Jónasson fréttamaður vaknaði í morgun við læti í stærðarinnar jarðýtu sem var að fletja út valllendismóa við svefnherbergisgluggan hans. Hann segir ótrúlegt að ósnortnum valllendismóa sé fórnað fyrir fótboltavöll. 3.7.2008 14:39 Áfram frítt í strætó fyrir námsmenn næsta vetur Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun þá tillögu borgarstjóra að halda áfram niðurgreiðslum í strætó fyrir námsmenn í Reykjavík, skólaárið 2008 til 2009. 3.7.2008 14:36 Brottrekstur Bifrastardrengsins var ekki mistök Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst segir það ekki hafa verið mistök að vísa nemendunum sem urðu uppvísir að fíkniefnamisferli frá skólanum, þrátt fyrir að komið hafi í ljós að einn þeirra væri ekki eigandi fíkniefnanna. Í síðustu viku felldi úrskurðarnefnd í kærumálum háskólanema ákvörðunina um brottrekstur eins þeirra úr gildi. Ágúst segir skólann vera að skoða það mál. 3.7.2008 14:21 Mikill meirihluti stjórnenda telur efnahagshorfur slæmar Í ársfjörðungslegri könnun Capacent Callup kemur fram að 76% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækum landsins telja aðstæður í efnahagslífinu séu frekar eða mjög slæmar. Ríflega 22% telja horfurnar hvorki góðar né slæmar en 2% telja þær góðar. 3.7.2008 14:06 „Vonlaust að búa á sorphaug" „Þetta er ófremdarástand,“ segir íbúi í blokk á Þórðarsveig. Eigandi blokkanna breytti rusla- og hjólageymslum í íbúðarhúsnæði. Nú safnast ruslið upp fyrir utan blokkina og mávar kroppa í matarleifar. 3.7.2008 13:53 „Furðum okkur á ákvörðun yfirvalda“ Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, furðar sig á ákvörðun yfirvalda að senda Keníubúann Paul Ramses aftur til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarsamkomulagsins í stað þess að umsókn hans til stöðu flóttamanns sé tekin til umfjöllunar hér á landi. 3.7.2008 13:13 Kaupmenn takmarki hækkanir á vörum Stjórn Verkalýðsfélags Akraness lýsir yfir gríðarlegum áhyggjum yfir stöðu efnahagsmála vegna mikillar verðbólgu og himinhárra vaxta sem eru að sliga mörg íslensk heimili. 3.7.2008 13:03 ,,Hún er ekki aðstoðarkona mín" Jórunn Frímannsdóttir segir skrif Þorleifs Gunnlaugssonar um samvinnu hennar og sviðsstjóra velferðarsviðs vera sérstök. ,,Ég þekkti Stellu ekki persónulega áður en hún var ráðin. Hún er ekki aðstoðarkona mín," segir Jórunn. 3.7.2008 13:00 Segir Svandísi Svavarsdóttur vera að skjóta sig í fótinn Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í menntaráði borgarinnar, segir að Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, sé að skjóta sig í fótinn með því að segja að ekki hafi áður komið fyrir að meirihluti í borgarstjórn hafi verið í minnihluta í ráðum borgarinnar. 3.7.2008 12:55 100% mæting hjá meirihlutanum Fundur borgarráðs Reykjavíkur stendur yfir og er 100 prósent mæting hjá fulltrúum meirihluta Sjálfstæðisflokks og F-lista. Vísir greindi frá því í gær að minnihlutinn var í meirihluta á fundum samgönguráðs og menntaráðs. 3.7.2008 12:11 Grímseyjarhrottinn á Litla-Hraun Alexander Jóhannesson, drengurinn sem gekk berserksgang í Grímsey, var fluttur á Litla-Hraun í morgunn. Meðan hann beið eftir að hefja afplánun tók hann þátt í hópslagsmálum fyrir utan heimili sitt á Akureyri og var handtekinn af sérsveitinni í Grímsey. 3.7.2008 11:36 Vonast til að viðræður geti haldið áfram Samninganefndir Læknafélags Íslands og ríkisins hittast á fundi hjá ríkissáttasemjara klukkan eitt til þess að reyna að ná samkomulagi um nýjan kjarasamning. 3.7.2008 11:18 Mikill samdráttur í sölu lúxusbíla Verulegur samdráttur hefur orðið á sölu lúxusbifreiða eftir því sem segir í tilkynningu Brimborg til fjölmiðla. 3.7.2008 10:47 SUS ályktar gegn Íbúðalánasjóði Samband ungra sjálfstæðismanna tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í bráðabirgðaniðurstöðu eftirlitsstofnunar ESA um starfsemi ríkisrekins Íbúðalánasjóðs. 3.7.2008 10:45 Segir sviðsstjóra pólitíska aðstoðarkona Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, segir Jórunni Frímannsdóttir hafa fengið sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkur með sér í ,,pólitískan slag" en saman hafa þær skrifað greinar um búsetuúrræði með félagslegum stuðningi. 3.7.2008 10:35 Sjá næstu 50 fréttir
Tekinn með hass við komuna til Eyja Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á um 80 grömm af hassi sem fundust á karlmanni við komu hans til Eyja með Herjólfi í gærkvöld. 4.7.2008 11:13
Eldur í þvottavél í fjölbýlishúsi að Vesturgötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var fyrir stundu kvatt að Vesturgötu 73 vegna elds í þvottavél. Ekki er vitað hversu mikill eldurinn enda er slökkvilið rétt að koma á staðinn. 4.7.2008 11:11
Þrjú fíkniefnamál á Landsmóti Unglingar á Landsmóti hestamanna á Hellu voru að skemmta sér fram undir morgun að sögn vaktstjóra lögreglunnar. Gestur á mótinu sagðist lítið hafa getað sofið vegna láta en lögregla segir ekki mikil læti hafa verið á svæðinu. Einn var settur í fangageymslu og þrjú fíkniefnamál komu upp. Búist er við 12-15 þúsund manns um helgina og verður gæsla aukin í samræmi við það. 4.7.2008 11:11
Útlendingastofnun lét Paul Ramses vita í byrjun maí ,,Paul Ramses var boðaður á fund Útlendingastofnunar í byrjun maí en kom ekki. Lögreglumaður talaði við hann í síma og hann var látinn vita af synjuninni á beiðni um hæli á Íslandi" segir Haukur Guðmundsson forstjóri Útlendingastofnunar. 4.7.2008 11:03
„Ég er tilbúinn að mæta í réttarsal“ Jón Ólafsson athafnamaður segist tilbúinn að standa fyrir máli sínu í réttarsal. Hann segir það vont hlutskipti að vera grunaður maður í 6 ár. Ákæra í skattsvikamálinu verður birt honum í dag. 4.7.2008 10:59
Ákærður fyrir hundraða milljóna króna skattsvik Ákæra á hendur Jóni Ólafssyni athafnamanni verður birt honum í dag. Hann er ákærður fyrir hundraða milljóna skattsvik og bókhaldsbrot. Þrír eru ákærðir með honum. Rannsókn tók um 5 ár. 4.7.2008 10:37
Annar í gæsluvarðhald vegna stóra hassmálsins Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um tengsl hans við stóra hassmálið í Norrænu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 4.7.2008 10:36
Ljósmæður funda með samninganefnd ríkisins Samningafundur hjá Ljósmæðrafélagi Íslands og samninganefnd ríkisins hófst hjá ríkissáttasemjara nú klukkan tíu. 4.7.2008 10:24
Facebook-hópur stofnaður til stuðnings Paul Ramses Stofnaður hefur verið hópur til stuðnings Keníumanninum Paul Ramses á vinatengslavefnum vinsæla Facebook. Alls höfðu 132 notendur síðunnar skráð sig í hópinn í morgun. Kallast hópurinn Útlendingastofnun: Sækið Paul Ramses og virðið mannréttindi fólks! 4.7.2008 09:38
Ókeypis skotpróf á 30 ára afmæli Skotveiðifélagsins Í tilefni 30 ára afmælis Skotveiðifélags Íslands í ár hyggst félagið bjóða félagsmönnum sínum, án endurgjalds, að taka skotpróf áður en þeir halda til veiða. 4.7.2008 07:11
Hyggjast mótmæla við dómsmálaráðuneytið Efnt verður til mótmæla í hádeginu í dag fyrir utan dómsmálaráðuneytið í Skuggasundi. 4.7.2008 07:04
Handteknir fyrir skemmdarverk á bílum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra menn við Hólabraut í Hafnarfirði seint í nótt. 4.7.2008 07:02
Hópslagsmál í Reykjanesbæ Mikil hópslagsmál brutust út í nótt á bar í miðbæ Reykjanesbæjar. Þurfti lögreglan á Suðurnesjum að senda allt tiltækt lið sitt á fjórum lögreglubílum á staðinn til að stilla til friðar. 4.7.2008 06:59
Þriggja ára drengur fannst einn á rölti um Breiðholt í kvöld Lögregla var kölluð út í kvöld þegar vegfarandi í Breiðholti kom auga á 3 ára gamlan dreng á gangi. Drengurinn var einn síns liðs, illa klæddur en í fullorðinsskóm. 3.7.2008 23:07
Um 6000 manns við setningu Landsmóts Um sex þúsund manns voru viðstaddir formlega setningu Landsmóts hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu í blíðskaparveðri í kvöld. 3.7.2008 22:03
Boðað til mótmæla vegna Ramses-málsins Búið er að boða til mótmæla fyrir utan Dómsmálaráðuneytið klukkan 12 á morgun. 3.7.2008 20:39
Amnesty sendir Birni bréf Íslandsdeild Amnesty International sendi Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra bréf í kvöld vegna máls Paul Ramses sem vísað var úr landi í dag. Farið var með Paul til Ítalíu en aðbúnaður pólitískra flóttamanna þar í landi hefur lengi verið gagnýndur. 3.7.2008 19:48
Flugbrautahlauparinn sér ekki eftir neinu "Við ætluðum að reyna að bjarga lífi Paul Ramses. En því miður held ég að það hafi ekki tekist," segir hinn 21 árs gamli Haukur Hilmarsson sem í morgun hljóp inn á flugbraut á Kelflavíkurflugvelli. 3.7.2008 18:50
Enn langt á milli aðila Lítið þokaðist á fundi samninganefnda Læknafélags Íslands og ríkisins sem haldinn var í dag. 3.7.2008 18:06
Fékk ekki bréf um brottvísun úr landi Paul Ramses fékk ekki að sjá bréf um synjun á beiðni um hæli fyrr en í gærkvöldi. Bréfin hefðu átt að berast honum í apríl. Eiginkonu Paul finnst þetta ótrúleg vinnubrögð. 3.7.2008 16:33
28 ára lyfjafræðingur fékk ekki að tjalda “Ef þið eruð með börn þá megið þið tjalda, ef þið eruð að fara að búa til börn þá farið þið annað,” sagði umsjónarmaður tjaldsvæðisins í Laugarási í Biskupstungum þegar lyfjafræðingurinn Kristín Laufey Steinadóttir ætlaði að tjalda ásamt tveimur vinkonum sínum. 3.7.2008 16:09
Flugvallahlauparar fámálir Búið er að yfirheyra mennina sem hlupu út á flugbraut í morgunn. Þeir voru þöglir sem gröfin við skýrslutöku og gáfu ekki upp ástæðu gjörða sinna. 3.7.2008 16:21
Fasteignagjöld stúdenta hækka í Reykjavík Reykjavíkurborg hefur hækkað fasteignagjöld Stúdentagarða sem Félagsstofnun stúdenta rekur á háskólasvæðinu og við Lindargötu. Hækkunin nemur 5,25% á mánuði. 3.7.2008 16:09
Vinna saman gegn tóbaksnotkun sjúklinga Landspítali og Lýðheilsustöð hafa gengið til samstarfs um að vinna gegn tóbaksnotkun sjúklinga með skipulagðri fræðslu, viðeigandi meðferð og gerð fræðsluefnis fyrir starfsfólk á sjúkrahúsinu. 3.7.2008 16:35
Borgin ekki bótaskyld vegna hálkuslyss við leikskóla Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Reykjavíkurborg af kröfu leiðbeinanda við leikskóla um að skaðabótaskylda borgarinnar yrði viðurkennd vegna hálkuslyss árið 2003. 3.7.2008 16:29
Miðborgarþjónar starfandi fram á haust Miðborgarþjónar verða starfandi í miðborginni um helgar fram á haust samkvæmt ákvörðun borgarráðs í dag. Tilraun hefur verið með slíka þjóna undanfarnar vikur eftir að samið var við Öryggismiðstöðina að manna stöðurnar. 3.7.2008 15:43
Frítt í strætó flækir rekstur Strætós Ármann Kr. Ólafsson, stjórnarformaður Strætós bs,. segir það flækja rekstur fyrirtækisins þegar sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ólíkar gjaldskrár. 3.7.2008 15:26
Deiliskipulag á Pósthúsreit samþykkt í borgarráði Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag deiliskipulagsbreytingu á skipulagi Kvosarinnar varðandi svokallaðan Pósthússtrætisreit. 3.7.2008 15:26
Ekkert ólögmætt við að beita Dyflinnarsamningnum Björn Bjarnason dóms-og kirkjumálaráðherra segir ekkert ólögmætt né athugavert við að beita Dyflinnarsamningnum frekar en öðrum milliríkjasamningum. 3.7.2008 15:15
Valllendismóa fórnað fyrir fótboltavöll Pálmi Jónasson fréttamaður vaknaði í morgun við læti í stærðarinnar jarðýtu sem var að fletja út valllendismóa við svefnherbergisgluggan hans. Hann segir ótrúlegt að ósnortnum valllendismóa sé fórnað fyrir fótboltavöll. 3.7.2008 14:39
Áfram frítt í strætó fyrir námsmenn næsta vetur Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun þá tillögu borgarstjóra að halda áfram niðurgreiðslum í strætó fyrir námsmenn í Reykjavík, skólaárið 2008 til 2009. 3.7.2008 14:36
Brottrekstur Bifrastardrengsins var ekki mistök Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst segir það ekki hafa verið mistök að vísa nemendunum sem urðu uppvísir að fíkniefnamisferli frá skólanum, þrátt fyrir að komið hafi í ljós að einn þeirra væri ekki eigandi fíkniefnanna. Í síðustu viku felldi úrskurðarnefnd í kærumálum háskólanema ákvörðunina um brottrekstur eins þeirra úr gildi. Ágúst segir skólann vera að skoða það mál. 3.7.2008 14:21
Mikill meirihluti stjórnenda telur efnahagshorfur slæmar Í ársfjörðungslegri könnun Capacent Callup kemur fram að 76% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækum landsins telja aðstæður í efnahagslífinu séu frekar eða mjög slæmar. Ríflega 22% telja horfurnar hvorki góðar né slæmar en 2% telja þær góðar. 3.7.2008 14:06
„Vonlaust að búa á sorphaug" „Þetta er ófremdarástand,“ segir íbúi í blokk á Þórðarsveig. Eigandi blokkanna breytti rusla- og hjólageymslum í íbúðarhúsnæði. Nú safnast ruslið upp fyrir utan blokkina og mávar kroppa í matarleifar. 3.7.2008 13:53
„Furðum okkur á ákvörðun yfirvalda“ Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, furðar sig á ákvörðun yfirvalda að senda Keníubúann Paul Ramses aftur til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarsamkomulagsins í stað þess að umsókn hans til stöðu flóttamanns sé tekin til umfjöllunar hér á landi. 3.7.2008 13:13
Kaupmenn takmarki hækkanir á vörum Stjórn Verkalýðsfélags Akraness lýsir yfir gríðarlegum áhyggjum yfir stöðu efnahagsmála vegna mikillar verðbólgu og himinhárra vaxta sem eru að sliga mörg íslensk heimili. 3.7.2008 13:03
,,Hún er ekki aðstoðarkona mín" Jórunn Frímannsdóttir segir skrif Þorleifs Gunnlaugssonar um samvinnu hennar og sviðsstjóra velferðarsviðs vera sérstök. ,,Ég þekkti Stellu ekki persónulega áður en hún var ráðin. Hún er ekki aðstoðarkona mín," segir Jórunn. 3.7.2008 13:00
Segir Svandísi Svavarsdóttur vera að skjóta sig í fótinn Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í menntaráði borgarinnar, segir að Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, sé að skjóta sig í fótinn með því að segja að ekki hafi áður komið fyrir að meirihluti í borgarstjórn hafi verið í minnihluta í ráðum borgarinnar. 3.7.2008 12:55
100% mæting hjá meirihlutanum Fundur borgarráðs Reykjavíkur stendur yfir og er 100 prósent mæting hjá fulltrúum meirihluta Sjálfstæðisflokks og F-lista. Vísir greindi frá því í gær að minnihlutinn var í meirihluta á fundum samgönguráðs og menntaráðs. 3.7.2008 12:11
Grímseyjarhrottinn á Litla-Hraun Alexander Jóhannesson, drengurinn sem gekk berserksgang í Grímsey, var fluttur á Litla-Hraun í morgunn. Meðan hann beið eftir að hefja afplánun tók hann þátt í hópslagsmálum fyrir utan heimili sitt á Akureyri og var handtekinn af sérsveitinni í Grímsey. 3.7.2008 11:36
Vonast til að viðræður geti haldið áfram Samninganefndir Læknafélags Íslands og ríkisins hittast á fundi hjá ríkissáttasemjara klukkan eitt til þess að reyna að ná samkomulagi um nýjan kjarasamning. 3.7.2008 11:18
Mikill samdráttur í sölu lúxusbíla Verulegur samdráttur hefur orðið á sölu lúxusbifreiða eftir því sem segir í tilkynningu Brimborg til fjölmiðla. 3.7.2008 10:47
SUS ályktar gegn Íbúðalánasjóði Samband ungra sjálfstæðismanna tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í bráðabirgðaniðurstöðu eftirlitsstofnunar ESA um starfsemi ríkisrekins Íbúðalánasjóðs. 3.7.2008 10:45
Segir sviðsstjóra pólitíska aðstoðarkona Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG, segir Jórunni Frímannsdóttir hafa fengið sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkur með sér í ,,pólitískan slag" en saman hafa þær skrifað greinar um búsetuúrræði með félagslegum stuðningi. 3.7.2008 10:35