Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vill ekki tjá sig um uppsagnir Icelandair Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair vill ekki tjá sig um fyrirhugaðar uppsagnir félagsins að svo stöddu. Í samtali við Vísi í morgun benti hann á fjölmiðlafulltrúa félagsins en ekki hefur tekist að ná tali af honum í morgun. 23.6.2008 08:25
Segja skipulagt fyrir forsetann „Tillagan virðist fyrst og fremst gerð með það í huga að taka út lóðina Miðskóga 8,“ bókuðu fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks þegar meirihluti Á-lista í skipulagsnefnd Álftaness samþykkti breytingu á deiliskipulagi Vestur-Skógtjarnarsvæðis. 23.6.2008 06:00
Búið að finna eiganda hvolpsins Lögreglan á suðurnesjum er búin að finna eiganda hvolpsins sem fannst í hrauni við Kúagerði skammt frá veginum þar sem keyrt er að Keili. Málið verður rannsakað enn frekar. Dýralæknir sem annaðist hvolpinn segir hann á góðum batavegi og muni jafna sig að fullu. 22.6.2008 18:07
Hátt í 90% keyra minna eftir eldsneytishækkun Hátt í níutíu prósent landsmanna eru farin að keyra minna eftir að bensínverðið rauk upp, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2. Fleiri konur spara við sig í dýrtíðinni en karlar og þeir sem hæstar hafa tekjurnar eru ólíklegastir til að draga úr notkun bílsins. 22.6.2008 18:32
Baðstrandargestir leita skjóls undir rofabörðum Enn er áratugur hið minnsta þar til skjól skapast við eina baðstrandarsvæði Reykvíkinga - Ylströndina í Nauthólsvík. Umsjónarmaður svæðisins segir dapurt að borgaryfirvöld hafi ekki hugsað fyrir skjólmyndun. Barátta hans fyrir skjóli hefur skilað gróðurbelti sem nú teygir sig fáeina sentímetra í loft upp. 22.6.2008 19:40
Þyrla landhelgisgæslunnar sá enga ísbirni Þyrla landhelgisgæslunnar flaug eftirlitsflug nú í dag til þess að kanna hvort einhverjir ísbirnir væru á vappi. Flaug þyrlan yfir svæði frá Aðalvík að Sauðárkróki en sáu enga ísbirni á leiðinni. 22.6.2008 18:20
Bilun í jarðskjálftamæli Glöggir lesendur heimasíðu Veðurstofu Íslands ráku upp stór augu þegar jarðskjálftamælir stofunnar sýndi jarðskjálfta upp á 5,7 á richter rúma 11,5 km SSA af Bárðarbungu um klukkan 15:00 í dag. 22.6.2008 17:25
Segir Svan ófrægja Hannes Hólmstein Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tjáir sig um greinar Svans Kristjánssonar prófessors sem birtust í Fréttablaðinu í vikunni á heimasíðu sinni. 22.6.2008 16:54
Taugaveiklunarbragur á ríkisstjórninni Húsnæðisaðgerðir ríkisstjórnarinnar eru krampakenndar ákvarðanir til að friðþægja háværa hagsmunaaðila, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslyndra. Hann telur að aðgerðirnar viðhaldi þenslunni og lengi í verðbólgunni. 22.6.2008 12:15
Hringurinn farinn að þrengjast um hundaníðinginn Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki haft uppi á eiganda hvolpsins sem fannst grafinn lifandi í gærmorgun. Fjölmargir hafa hringt og nokkrar vísbendingar hafa borist vegna málsins. Fólki blöskrar meferðin á hvolpinum sem dýralæknir telur að muni ná sér. 22.6.2008 09:48
Stungið á hjólbarða sjö bifreiða í Reykjanesbæ Lögreglan á Suðurnesjum kærði í nótt tvo ökumenn fyrir ölvun við akstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá voru tveir aðilar handteknir fyrir óspektir í miðbæ Reykjanesbæjar í nótt. 22.6.2008 09:24
Fengu hrefnu í trollið Áhöfnin á Guðmundi VE 29 frá Vestmannaeyjum, fékk hrefnu í trollið hjá sér þar sem skipið var á síldveiðum við Jan Mayen. Þorbjörn Víglundsson skipverji á Guðmundi greinir frá þessu á bloggsíðu sinni. 22.6.2008 09:18
Sjálfstæðisflokkurinn tapar þriðjungi á landsbyggðinni Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst saman um tæp sex prósentustig frá því í apríl. 32,8 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 22.6.2008 07:00
Þjóðin vill íbúðalánasjóð áfram Þjóðin vill ekki leggja niður Íbúðalánasjóð og láta banka og lífeyrissjóði sjá um að lána fólki til húsnæðiskaupa. Þetta kemur fram í nýrri könnun fréttastofu Stöðvar 2 sem leiðir í ljós að aðeins tæp tvö prósent landsmanna vill að sjóðurinn verði lagður niður. 21.6.2008 21:00
Útthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ Í gær var í fyrsta sinn úthlutað úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Þeir 25 afburðastúdentar sem valdir voru úr hópi glæsilegra fulltrúa ungra námsmanna komu úr 14 framhaldsskólum og þeir sækjast eftir inngöngu í 15 ólíkar námsleiðir. 21.6.2008 18:05
Grófu hund lifandi við Kúagerði Í hádeginu í dag barst lögreglunni tilkynning um hund sem hefði fundist í hrauninu skammt frá Kúagerði, þar sem ekið er í áttina að Keili. 21.6.2008 16:56
Afhjúpuðu útsýnisskilti Útsýnisskilti var afhjúpað við Höfðabakka neðan við Hólahverfið í Breiðholti klukkan tvö í dag. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður borgarráðs og íbúi í Breiðholtinu afhjúpaði skiltið. 21.6.2008 16:12
Ræddu samgöngu- og öryggismál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Aleqa Hammond, utanríkisráðherra í grænlensku landsstjorninni, og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, ræddu meðal annars samgöngu- og öryggismal á fundi sem þau áttu i gær. 21.6.2008 13:48
Banaslys á Hafnarfjarðarvegi Nítján ára piltur er látinn eftir umferðarslysið sem varð á Hafnafjarðarvegi við Kópavogslæk um hálffimmleytið í nótt. Aðrir sem í bifreiðinni voru eru á batavegi. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að hinn látni sé 19 ára piltur en ekki sé unnt að gefa upp nafn hans að svo stöddu. 21.6.2008 13:25
Hundsar andfeminiskann áróður Sóley Tómasdóttir, ráðskona í Femínistafélagi Íslands, segir það einkennilegt að fjölmiðlar þurfi ávallt að bera á borð andfeminiskann áróður rétt eftir að feminisk umræða hefur verið í umræðunni. 21.6.2008 12:33
Harður árekstur á Biskupstungnabraut Harður árekstur varð á Biskupstungnabraut um hálftíuleytið í gærkvöldi. Fólksbifreið var ekið inn á Biskupstungnabraut í veg fyrir annan bíl. 21.6.2008 09:52
Þrír mikið slasaðir eftir bílveltu Þrjú ungmenni eru mikið slösuð eftir umferðarslys sem varð á Hafnarfjarðarvegi á móts við Fífuna á fimmta tímanum í nótt. 21.6.2008 09:42
Sinubruni í Fossvogsdal Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað í Fossvogsdalinn vegna sinubruna þar um áttaleytið í kvöld. Að sögn slökkviliðsins tók um tuttugu mínútur að slökkva eldinn. Töluvert hefur verið af útköllum vegna sinubruna það sem af er þessu sumri, að sögn slökkviliðsmanna. 20.6.2008 21:44
Þung umferð um Suðurlandsveg Nokkuð þung umferð er á Suðurlandsvegi, að sögn lögreglunnar á Selfossi og lögreglunnar á Hvolsvelli. Allt hefur þó gengið vel fyrir sig. Þær upplýsingar fengust jafnframt hjá lögreglunni að Borgarnesi að þar væri nokkuð þétt umferð. 20.6.2008 19:50
Kjaradeilu háskólamenntaðra vísað til sáttasemjara Samninganefnd ríkisins ákvað í dag að vísa kjaradeilu BHM og þriggja stéttafélaga til ríkissáttasemjara. Samstarfshópur stéttarfélaganna fundaði með Samninganefnd ríkisins og sáttasemjara í dag og eftir fimm klukkustunda fund var ákveðið að málið færi á borð ríkissáttasemjara. 20.6.2008 19:15
33 kaupsamningum þinglýst - rösklega 200 á sama tíma í fyrra Alls var 33 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu dagana 13. júní til og með 19. júní á þessu ári. Til samanburðar má geta að dagana 15 - 21 júní í fyrra var 213 kaupsamningum þinglýst. Þá var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri í liðinni viku og 5 í Árborg. 20.6.2008 17:42
Búið að slökkva eldinn við Gvendargeisla Búið er að ráða niðurlögum eldsins við Gvendargeisla í Grafarholti. Þar kviknaði í gasgrilli með þeim afleiðingum að eldurinn læsti sig í þakklæðningu og rúða brotnaði, að sögn slökkviliðsmanna. 20.6.2008 17:35
Hæna handsömuð í Hafnarfirði Það er víða á landinu sem lögreglumenn þurfa að glíma við það erfiða verkefni að fanga dýr. Skemmst er að minnast viðureigna lögreglunnar á Sauðárkróki við tvo hvítabirni sem á endanum voru báðir felldir. 20.6.2008 16:49
Síbrotamaður áfram í varðhaldi Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir síbrotamanni sem setið hefur á bak við lás og slá frá 23. maí. Skal maðurinn sitja í varðhaldi til 18. júlí. 20.6.2008 16:37
Óviðunandi bið eftir húsnæði fyrir Byrgisfólk Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segir óviðunandi að ekki skuli vera búið að opna heimili fyrir fyrrverandi vistmenn í Byrginu. Meðferðarheimilinu var lokað í kjölfarið að Kompásþáttar Stöðvar 2 um Byrgið var sýndur rétt fyrir jólin árið 2006. 20.6.2008 16:24
Veiðarnar þola ekki dagsljósið Sigursteinn Másson fer fyrir hópi kvikmyndaliðs á vegum Alþjóða dýraverndunarsjóðsins - IFAW, sem ætlaði í dag að ná myndum af hrefnuveiðimönnum að störfum. Hrefnuveiðimenn eru hættir veiðum í dag og segja ekki koma til greina að veiða með myndatökulið í eftirdragi. Sigursteinn segir augljóst að veiðimennirnir álíti að veiðarnar þoli ekki dagsljósið. 20.6.2008 15:50
Dópið falið í fölsku lofti Hluti dópsins sem Hollendingur reyndi að smygla til landsins með Norrænu var falið í fölsku lofti í húsbílnum. Þetta kemur fram í Austurglugganum í dag. 20.6.2008 15:39
Ný lög um almannavarnir taka gildi Ný lög um almannavarnir sem samþykkt voru á síðasta starfsdegi Alþingis í vor taka gildi í dag. 20.6.2008 15:17
Reglugerðir um íbúðalán taka gildi á morgun Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra setti í dag þrjár reglugerðir á grundvelli laga um húsnæðismál sem fela í sér hluta þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin kynnti í gær. 20.6.2008 14:54
Kvikmyndatökulið truflar hrefnubát við veiðarnar Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna, segir að kvikmyndatökulið hafi komið í veg fyrir hrefnuveiðar í dag. Hvalaskoðunarbáturinn Elding 2 hefur fylgt hrefnuveiðibátnum eftir í allan dag og nú er svo komið að veiðimenn hafa ávkeðið að snúa til hafnar, tómhentir. 20.6.2008 14:37
Hveravallabjörninn var hross Sporin sem pólskir ferðamenn rákust á nærri Hveravöllum í gær og talin voru eftir bjarndýr reyndust vera eftir hross. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Blönduósi. 20.6.2008 14:35
Ólafur Ragnar ræðir um framtíð orkumála á CNN Ólafur Ragnar Grímsson forseti er í viðtali í þættinum Principal Voices sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni CNN um helgina. Í þættinum er fjallað um framtíð orkumála og er viðtalið við Ólaf Ragnar meðal helstu efnisatriða þáttarins. 20.6.2008 14:17
Ísbjarnarbúrið var sótthreinsað fyrir komuna til landsins Búrið, sem flutt var inn til landsins frá Danmörku þegar fanga átti hvítabjörn sem gekk á landi við Hraun á Skaga í Skagafirði fyrr í vikunni, var sótthreinsað fyrir komuna til landsins. Þetta staðfestir Hjalti J. Guðmundusson, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun 20.6.2008 14:07
Jóhanna: Bankarnir fóru offari Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, segir að viðskiptabankarnir hafi farið offari á fasteignamarkaði fyrir fjórum árum. Hún vonar að forystumenn bankanna læri af reynslunni. 20.6.2008 14:06
Ránið breytti lífi mínu „Þetta var byrjunin á því besta sem komið hefur fyrir mig,“ segir Óskar Örn Gíslason, einn þremenninga sem sviðsettu rán í 11-11 í Garðabæ fyrir rúmu ári. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 20.6.2008 13:46
Grund byggir hjúkrunarheimili í Urriðaholti Grund hyggst reisa hjúkrunarheimili í Urriðaholti fyrir hundrað heimilismenn og er áætlað að framkvæmdir hefjist seint á næsta ári. 20.6.2008 13:31
Neikvætt að Sádar komi kvenmannslausir Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, þykir ekki gott að engin kona skuli vera í 17 manna sendinefnd frá ráðgjafarþingi Sádi-Arabíu sem kemur til landsins um helgina. ,,Það er alveg ljóst að Sádar eiga býsna langt í land í lýðræðis- og jafnréttismálum," segir Sólveig. 20.6.2008 13:20
Nesstofa opnuð á ný Nesstofa var opnuð síðastliðinn laugardag með pompi og prakt í blíðskaparveðri að viðstöddu fjölmenni. 20.6.2008 13:09
Kannabis getur greinst í þvagi sex vikum eftir neyslu Þeir sem neyta kannabisefna gætu geta lent í því að vera sviptir ökuréttindum, löngu eftir að þau eru hætt að hafa áhrif á aksturinn. Tveir menn voru sakfelldir í Hæstarétti í gær fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en þeir höfðu verið sýknaðir í Héraðsdómi Vesfjarða. Um tíu dagar liðu frá því annar þeirra neytti kannabis og þar til hann var tekinn, og nokkrir dagar í hinu tilviku. THC sýra greindist í þvagsýnum mannana en ekkert í blóðsýnum. Jakob Kristinsson, lyfjafræðingur hjá Rannsóknarstofu í lyfjafræði við Háskóla Íslands, segir heppilegra ef lögin væru skýrari í þessum efnum. 20.6.2008 13:08
Varað við breytingum á Gunnuhver Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra varar fólk við að fara að Gunnuhver á Reykjanesi þar sem enn hafi orðið breytingar á honum. 20.6.2008 12:39