Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórn Faxaflóahafna gerir athugasemdir við Geirsgötustokk Á fundi sínum í dag samþykkti stjórn Faxaflóahafna samhljóða bókun varðandi fyrirhugaðan stokk í Geirsgötu. 9.6.2008 22:08
Auglýsti eftir íslenskum klámmyndaleikurum - Fékk 30 svör Einstaklingurinn, sem auglýsti eftir íslenskum klámmyndaleikurum á heimasíðunni einkamal.is, segist hafa fengið góð viðbrögð við auglýsingunni. 9.6.2008 20:27
Utanríkisráðherra ræddi viðskiptamál við ítalskan starfsbróður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fundaði í dag með Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu, í Róm. 9.6.2008 22:13
Fjögurra bíla árekstur á Reykjanesbraut Um klukkan 14:00 var tilkynnt um fjögurra bíla árekstur á Reykjanesbraut skammt austan við Grindavíkurveg. Ökumenn þriggja bifreiða höfðu stöðvað en þá kom sá fjórði og ók aftan á öftustu bifreiðina. Hinar þrjár lentu svo saman við höggið. Tvær bifreiðar voru óökufærar eftir óhappið. Tveir ökumenn fundu til eymsla í háls og baki. 9.6.2008 18:33
Jón Steinar konungur sératkvæðanna Enginn hæstaréttardómari hefur skilað viðlíka fjölda sératkvæða í dómum réttarins og Jón Steinar Gunnlaugsson. Umdeildustu dómararnir skila flestum sératkvæðum. Lögspekingar telja þau ýmist eðlilegan fylgifisk flókinna mála eða merki um flokkadrætti og slæman samstarfsanda í Hæstarétti. 9.6.2008 18:30
Eldur á Álfaskeiði Eldur kom upp í tveggja hæða íbúð við Álfaskeið í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan 16 í dag. Einn drengur var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp en sakaði ekki. Íbúðin er mikið skemmd á efri hæðinni en slökkvilið hefur ráðið niðurlögum eldsins. Eldsupptök eru ókunn. 9.6.2008 18:03
Sóley Tómasdóttir: Kynjaskipt leikföng hefta val barna Eins og Vísir greindi frá í dag eru leikföngin sem fylgja barnaboxum á McDonald's þessa dagana skipt eftir kynjum og fá strákar myndir af leikmönnum á EM og stelpur leikföng tengt dansi. Vísir leitaði til Sóleyjar Tómasdóttur, varaborgarfulltrúa og femínista hvað henni fyndist um að McDonald‘s væru með kynjaskipt leikföng. 9.6.2008 17:07
Dísilolíulítrinn nálgast 200 krónur Dísilolíulítrinn nálgast nú óðfluga 200 króna markið eftir að hann hækkaði um sjö krónur í dag hjá bæði Shell og Olís. Þá hækkaði bensínlítrinn um sex krónur hjá félögunum báðum. 9.6.2008 16:39
Guðni: Ekki hægt að greiða sjómönnum bætur Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir seinagang í viðbrögðum við áliti mannréttindanefndar SÞ varðandi kvótakerfið. Hann segir að ófremdarástand hefði skapast ef sjómönnum yrðu greiddar bætur. 9.6.2008 16:30
Átta árangurslaus fjárnám hjá formanni bæjarráðs Sýslumaðurinn í Keflavík hefur gert átta árangurslaus fjárnám hjá Herði Harðarssyni, formanni bæjarráðs í Vogum. Hörður segist ætla að axla ábyrgð ef málið fer í gjaldþrot. Hann segir heift og persónuleg illindi hlaupin í deilur bæjarstjórna Voga. 9.6.2008 16:14
Vill hefja endurskoðun á fiskveiðikerfi strax Karl V. Matthíasson, varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, segist hafa viljað sjá í svarbréfi ríkisstjórnarinnar til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna að skýrar væri kveðið á um tímasetningar um endurskoðun og uppstokkun núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis. Af því leyti segist hann vera glaður með bréfið en að endurskoðunarvinnan þurfi að hefjast strax. 9.6.2008 16:06
Segja samgönguyfirvöld vinna gegn Sundagöngum Umhverfis- og samgönguráð borgarinnar gagnrýnir að samgönguyfirvöld skuli vinna gegn Sundagöngum, miklu hagsmunamáli landsmanna allra, á meðan þrenn jarðgöng á landsbyggðinni séu sett á framkvæmdaáætlun. 9.6.2008 15:45
Samfylkingin hræðist ekki Óskar "Það eru einhverjir framsóknarmenn sem hafa áhyggjur af því að við séum ekki stolt af Óskari Bergssyni en það er rangt," segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. 9.6.2008 15:04
Ummæli Jakobs gera hann ekki vanhæfan og varða ekki áminningu Ummæli Jakobs Frímanns Magnússonar, framkvæmdastjóra miðborgarmála, um Dag B. Eggertsson, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, gera hann ekki vanhæfan til þess að sinna starfi sínu hjá borginni. 9.6.2008 14:48
Rýtingur í bakið Kormákur Geirharðsson, vert á Ölstofu Kormáks og Skjaldar, segir ekki koma til greina annað en að þeim takist að hnekkja ákvörðun borgaryfirvalda um að stytta opnunartíma Ölstofunnar og Vegamóta en bréf þess efnis barst í síðustu viku eins og greint var frá í Fréttablaðinu á laugardag. Hann er sérstaklega ósáttur við að fá bréfið í kjölfarið á fundi sem hann sat með þeim sem með þessi mál fara, þar á meðal borgarstjóra og lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. 9.6.2008 14:36
Steingrímur segir svarbréf ríkisstjórnarinnar ,,galopið og loðið" Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir svarbréf Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra til mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna vera ,,næstum því eins aumt og það getur verið." Hann segir flokk sinn gagnrýna viðbrögð ríkisstjórnarinnar ,,harðlega." 9.6.2008 14:10
Kynjaskipt leikföng í barnaboxum McDonald’s Nú þegar Evrópumótið í fótbolta er hafið eru komin ný leikföng í barnabox McDonald´s skyndibitakeðjunnar, fóboltamyndir af leikmönnum í keppninni. Myndirnar eru hins vegar ætlaðar strákum en fyrir stúlkurnar eru leikföng tengd dansi. McDonald’s á Íslandi fær leikföngin að utan en segir þetta fara eftir því sem flestir krakkarnir vilja. Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR í Landsbankadeild kvenna telur að það ætti að vera sömu leikföng eða að minnsta kosti val. 9.6.2008 14:04
Á landleið með fullfermi af síld Að minnsta kosti tvö síldveiðiskip eru nú á landleið með fullfermi úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem þau fengu skammt frá Jan Mayen og þar eru sjö önnur íslensk skip að veiðum. 9.6.2008 13:30
Bakarísstelpa stígur fram: Hnetuvínarbrauð afþídd í bakaríum „Bakkelsið kom næstum allt inn frosið og svo vorum við látin hita það upp," segir Heiðrún Backmann, fyrrverandi starfsmaður Bakarameistarans. Svo virðist sem bakaríin baki ekki bakkelsi á staðnum heldur láti afgreiðslustúlkur hita upp forbakaðar og frostnar vörur. 9.6.2008 12:58
Vélhjólamaður á batavegi Líðan mannsins sem slasaðist í mótorhjólaslysi á Sæbraut í gær er stöðug og er hann á batavegi. 9.6.2008 12:55
,,Við hugsum málið ekki nægjanlega pólitískt" Guðmundur Þóroddsson fyrrum forstjóri Orkuveitunnar og REI segir embættismenn eins og sjálfan sig ekki hafa hugsað REI-málið ,,nægjanlega pólitískt." 9.6.2008 12:49
Vara ferðamenn við óvæntum hættum Skoskur ferðamaður slasaðist þegar hann féll í íshelli í Sólheimajökli í gær. Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sett upplýsingaefni inn á Netið til að vara erlenda ferðamenn við ýmsum óvæntum hættum hér á landi. 9.6.2008 12:46
Alþingi gefið utan undir með bráðabirgðalögum Formaður þingflokks frjálslyndra segir ríkisstjórnina hafa gefið Alþingi utan undir þegar hún samþykkti bráðabirgðalög um Viðlagatryggingu Íslands vegna Suðurlandsskjálftans. Hann segir að bregðast verði við sívaxandi áráttu einstakra ráðherra til að beita bráðabirgðalagavaldi. 9.6.2008 12:30
Skjálftahrina farin að reyna á taugar Sunnlendinga Sunnlendingar hrukku enn upp við jarðskjálfta laust fyrir miðnætti og aftur undir morgun. Íbúar á skjálftasvæðinu segja að ástandið sé farið að reyna að taugar þeirra. 9.6.2008 12:28
Ráðherra boðar gangskör í geðheilbrigðismálum Geðheilbrigðismál verða tekin til sérstakrar endurskoðunar þegar starfshópur verður settur á laggirnar í sumar. Munu málefni réttargeðdeildarinnar á Sogni falla undir þá endurskoðun. Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í samtali við Vísi. 9.6.2008 12:24
Meismaður hafði slasað tvo fyrir handtöku Yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum telur lögreglumenn ekki hafa beitt of miklu harðræði þegar maður var handtekinn fyrir utan félagsheimilið á Patreksfirði eftir sjómannadagsball þar í bæ í síðustu viku. Hann segir að það hefði verið ábyrgðarhluti að láta manninn ganga lausan þar sem hann hefði verið búinn að slasa tvo menn. 9.6.2008 12:18
Lúðvík sammála Gunnari og Kristjáni Þór Búist er við verulegum samdrætti á tekjum ríkissjóðs eins og spár fjármálaráðuneytinsins gera ráð fyrir. Lúðvík Bergvinsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar tekur undir með Gunnari Svavarssyni formanni fjárlaganefndar og Kristjáni Þór Júlíussyni varaformanni fjárlaganefndar og segir að fjárlög ,,verði að taka mið af ástandi efnahagsmála hverju sinni." 9.6.2008 12:06
Tönn brotin í dyraverði á Selfossi Tönn brotnaði í munni dyravarðar sem skallaður var á skemmtistaðnum 800 bar á Selfossi aðfaranótt sunnudags. 9.6.2008 11:58
Brotist inn í þjónustuhús á Þingvöllum Lögreglan á Selfossi rannsakar nú innbrot í þjónustuhús þjóðgarðsins á Þingvöllum á Hakinu sem átti sér stað í morgun. 9.6.2008 11:49
Ofbeldisbræður sakfelldir fyrir líkamsárás Tveir bræður hafa í Héraðsdómi Suðurlands verið sakfelldir fyrir að ráðast á annan mann í sameiningu en þeim er ekki gerð refsing vegna þess rannsókn málsins dróst úr hófi fram. 9.6.2008 11:22
Sektaður fyrir að hafa valdið ítrekaðri hneykslan á almannafæri Héraðsdómur Suðurlands hefur sektað karlmann um 90 þúsund krónur fyrir að hafa sex sinnum valdið hneykslan á almannafæri vegna ölvunar. 9.6.2008 11:05
Tíu mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið ölvaður og án ökuréttinda í tvígang. 9.6.2008 10:49
Meisaður eftir sjómannadagsball - myndband Lögreglumaður á Patreksfirði beitti varnarúða eða meis til þess að yfirbuga mann fyrir utan félagsheimili staðarins þegar lokadansleikur sjómannadagsins fór fram í síðustu viku. 9.6.2008 09:44
Vilhjálmur: Forysta flokksins kom ekki að ákvörðun minni "Forysta Sjálfstæðisflokksins kom ekki að þessari ákvörðun minni," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson um þá ákvörðun hans að láta af embætti sem oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. 9.6.2008 08:36
Sveitt í tölvuleikjakeppni Um þrjú hundruð ungmenni hafa setið sveitt frá því á föstudag og keppt í tölvuleikjum í Egilshöll. 8.6.2008 20:00
Hestamenn óttast þriðjungs hækkun á heyi Hestamenn óttast að hey muni hækka um allt að þriðjung eftir tæplega tuttugu prósenta hækkun síðasta vetur. Þá bendir ýmislegt til að skortur geti orðið á heyi. 8.6.2008 19:45
Gísli Marteinn gefur ekki upp hvort hann sæki eftir leiðtogastöðu á ný Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill ekkert gefa upp um hvort hann ætli að sækjast eftir því að leiða flokkinn fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. 8.6.2008 19:15
Dæmi um "tveir fyrir einn" tilboð í laxveiðiár Dæmi eru um að tveir fyrir einn tilboð bjóðist nú í laxveiðiár. Þetta er nokkuð sem menn muna vart að gerst hafi áður. Talið er að verð á laxveiðileyfum muni fara lækkandi á næstu árum. 8.6.2008 17:40
Borgarstjóri væntir mikils af samstarfinu við Hönnu Birnu Ólafur F. Magnússon borgarstjóri væntir mikils og góðs af komandi samstarfi sínu við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. 8.6.2008 15:42
Tvö málverk seld á 25.000 kr. á menningarhátíð Grand rokk Hinu hefðbundna málverkauppboði á menningarhátíð Grand rokk lauk fyrir stundu. Alls voru 12 málverk boðin upp og fóru tvö þeirra á 25.000 kr. 8.6.2008 17:32
Ágæt þáttaka í Kvennahlaupinu í Eyjum Ágæt þáttaka var í Kvennahlaupinu í Vestmannaeyjum í dag. Hlaupið átti að vera í gær en var frestað vegna aftakaveðurs, roks og rigningar. 8.6.2008 17:20
Alvarlegt mótorhjólaslys á Sæbrautinni Alvarlegt mótorhjólaslys varð á Sæbrautinni um miðjan dag í dag. Var ökumaður hjólsins fluttur á slysadeild. 8.6.2008 16:13
Magnús Þór vill auka þorskveiðar en friða loðnuna á móti Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður Frjálslyndra vill að Íslendingar auki sóknina í þorskinn en friði loðnuna á móti. Magnús ræddi málið á fundi Landsráðs flokksins um helgina og benti á reynsluna frá Barentshafi máli sínu til stuðnings. 8.6.2008 15:26
Vegagerðin hættir við könnun á misnotkun á litaðri olíu Vegagerðin er hætt við frekari athugun á því hvort björgunarsveitarmenn frá Akranesi hafi misnotað heimild sveitarinnar til að nota litaða olíu á björgunarbíla 8.6.2008 14:30
Verulega dregur úr eftirspurn eftir bandarískum pallbílum Verulega hefur dregið úr eftirspurn hér á landi eftir bandarískum pallbílum. Bílasali á Selfossi segir að markaðurinn með slíka bíla sé dapur. 8.6.2008 13:30