Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan stuggaði við unglingum á Miklubraut Unglingarnir sem mótmæltu háu bíómiðaverði í dag gripu til þess að stöðva umferð á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Nokkuð lið lögreglu kom á staðinn og stuggaði við unglingunum sem flest létu sér segjast og hurfu á braut. Að sögn vaktstjóra lögreglunnar eru þó enn nokkrir krakkar á vappi um svæðið. 25.4.2008 16:51
Novator fagnar samningi um sölu á Fríkirkjuvegi 11 Novator fagnar því að meirihluti borgaráðs hafi samþykkt fyrir sína hönd kauptilboð félagsins í húseignina að Fríkirkjuvegi 11. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu 25.4.2008 16:40
Lýst eftir klappara Þegar Ágúst Fylkisson réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í gær mátti heyra karlmann öskra; "Já, já." og klappa ákaflega. 25.4.2008 16:39
Hætt við mikla uppbyggingu að Keilugranda 1 Hugmyndum um mikla uppbygginu á lóðinni við Keilugranda 1 var hafnað á fundi borgarráðs í dag og var skipulagsstjóra falið að vinna með umsækjendum að nýjum hugmyndum í stað þeirra sem hafnað var 25.4.2008 16:27
Lægstbjóðandi uppfyllti ekki kröfur Vegagerðar Vegagerðin hefur ákveðið að ganga til samninga við Ístak um að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar á kaflanum frá Strandarheiði til Njarðvíkur. 25.4.2008 16:08
Ágúst biðst afsökunar: „Gerðist í hita leiksins“ Ágúst Fylkisson, maðurinn sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í gær, biðst afsökunar á hátterni sínu. Í samtali við Vísi segist hann sjá eftir atvikinu en bendir á að aðdragandinn að því að upp úr sauð hafi verið lengri en fram hafi komið í fréttum. Hann ætlar að senda frá sér tilkynningu um atvikið á morgun. 25.4.2008 15:57
Öldungur í Kópavogi kærður fyrir kynferðislega misnotkun 75 ára gamall karlmaður úr Kópavogi hefur verið kærður til lögreglunnar fyrir að misnota stúlku kynferðislega á átta ára tímabili, frá því því að hún var tólf ára til tvítugs. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti við Vísi að málið væri til rannsóknar. 25.4.2008 15:38
Skurðstofur víða lokaðar í einhvern tíma í sumar Sjúkrahúsin á suðvesturhorni landsins munu flest loka einhverjum af deildum sínum í sumar en þau hafa samræmt starfsemi sína í kjölfar samninga sem undirritaðir voru fyrr á árinu. 25.4.2008 15:18
Sala sumarleyfisferða með svipuðu móti og í fyrra Sala sumarleyfisferða hjá ferðaskrifstofunum Heimsferðum og Terra Nova hefur verið með svipuðu móti í ár og á sama tíma í fyrra. 25.4.2008 15:18
Rafbyssur gætu komið í veg fyrir átök „Lögreglan hefur engan áhuga á því að standa í slagsmálum við fólk sem er að mótmæla," segir Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landsambands lögreglumanna. 25.4.2008 14:44
Mótmælaaldan breiðist út Mótmæli vörubílstjóra undanfarið hafa ekki farið fram hjá nokkrum manni. Nokkrir ungir menn fylgdu fordæmi þeirra á Kringlumýrarbrautinni í dag þar sem þeir söfnuðust saman og mótmæltu verðinu á bíómiðanum sem þeim finnst allt of hátt. 25.4.2008 14:38
Tilboð vegna Vestmannaeyjaferju enn í skoðun Tilboð Vestmannaeyinga í smíði og rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju er enn á samningaborðinu. 25.4.2008 14:32
Áfrýjar ekki fangelsisdóminum í Færeyjum Birgir Páll Marteinsson hefur ákveðið að áfrýja ekki sjö ára fangelsisdómi sem hann fékk í Færeyjum, fyrir þátt sinn í Pólstjörnumálinu. 25.4.2008 14:12
Bókaverðlaun barnanna 2007 veitt á sumardaginn fyrsta Borgarbókasafn veitir Bókaverðlaun barnanna ár hvert fyrir tvær bækur, aðra frumsamda og hina þýdda. 25.4.2008 14:10
Fundu 50 grömm af kókaíni við húsleit í miðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í fyrrinótt hald á allnokkurt magn af fíkniefnum í húsleit í miðborg Reykjavíkur. Talið er að um sé að ræða tæplega 50 grömm af kókaíni og lítilræði af marijúana. 25.4.2008 13:52
Fráleitt að afsala sér forræði yfir Hallargarðinum Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði telur fráleitt að undirrita samning þar sem Reykjavíkurborg afsalar sér í raun forræði yfir Hallargarðinum öllum og afhendir þar að auki einkaaðilum lóð sem börn og ungmenni hafa nýtt sér til leikja um áratugi. 25.4.2008 13:47
Sektaður fyrir hnefahögg í Austurstræti Karlmaður á þrítugsaldri hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til að greiða 70 þúsund króna sekt fyrir að hafa ráðist á annan mann og kýlt hann í andlitið þannig að hann féll í götuna og hlaut stóran opinn skurð á vör og í munnholi. 25.4.2008 13:46
Lára Ómarsdóttir hefur sagt upp störfum Lára Ómarsdóttir hefur ákveðið að láta af störfum hjá fréttastofu Stöðvar 2. Ástæðan eru ummæli í netútsendingu, sem henni var ekki kunnugt um, vegna mótmæla á Suðurlandsvegi á miðvikudaginn var. 25.4.2008 13:31
Fjórði hver ók of hratt um Suðurhóla Tæplega fjórðungur ökumanna sem ók um Suðurhóla í Breiðholti á einni klukkustund á þriðjudag ók of hratt og á von á sektum. 25.4.2008 13:24
Flugslysaæfing í Vestmannaeyjum Flugslysaæfing fer fram á Vestmannaeyjaflugvelli dagana 24. – 27. apríl næstkomandi. „Æfð verða viðbrögð við slysi þegar 40 farþega flugvél hlekkist á við lendingu á Vestmannaeyjaflugvelli með þeim afleiðingum að eldar kvikna og fjöldi manns þarfnast tafarlausar aðhlynningar,“ segir í tlkynningu frá Flugstoðum. 25.4.2008 13:24
Fá ekki að sjá fjármálaupplýsingar meints fíkniefnasala Hæstiréttur hafnaði á miðvikudaginn kröfu sýslumanns um aðgang að upplýsingum um fjármál manns sem er nemandi við Háskólann á Bifröst. 25.4.2008 11:49
Staðfestir gæsluvarðhald í hraðsendingarmáli Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Tómasi Kristjánsssyni sem handtekinn var í tengslum við svokallað hraðsendingarmál. 25.4.2008 11:47
Sektað fyrir brot á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir Samkeppniseftirlitið hefur sektað Fiskmarkað Íslands um um tíu milljónir króna fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman kaup og slægingu á fiski og þannig raskað samkeppni á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir. 25.4.2008 11:21
Sörli ÍS-66 í togi til hafnar Níu tonna þilfarsbátur, Sörli ÍS-66, með tvo menn um borð, sendi út neyðarkall um níuleytið í morgun. 25.4.2008 11:12
Samskip sýknað og lögmaður sektaður Hæstiréttur snéri á miðvikudag úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í Dísarfellsmálinu svokallaða við. Kona krafðist skaðabóta á hendur Samskipum en eiginmaður hennar lést þegar Dísarfell, skip félagsins, sökk árið 1997. Héraðsdómur dæmdi Samskip til að greiða konunni tæpar tvær milljónir króna í miskabætur en Hæstiréttur sýknaði Samskip af þeirri kröfu á miðvikudag. Þá var lögmaður konunnar dæmdur til að greiða hundrað þúsund krónur í sekt vegna ummæla sem hann lét falla í héraðsdómsstefnu. 25.4.2008 11:10
Mýrarhúsaskólamáli verður áfrýjað Máli stúlkunnar í Mýrarhúsaskóla, sem renndi hurð á höfuð kennara síns, verður áfrýjað. Þetta segir Guðmundur Pétursson, lögmaður móður stúlkunnar. 25.4.2008 10:46
Vilja að lýðræðisleg niðurstaða kosninga verði virt Alþjóðaþingmannasambandið hvetur stjórnvöld í Simbabve til þess að taka á móti svæðisbundnum þingmannasamtökum og kosningaeftirlitsmönnum ef til þess kemur að endurtaka þurfi forsetakosningar þar í landi. 25.4.2008 09:24
Árásarmanni hefur verið sleppt Ágúst Fylkisson, sem var handstekinn fyrir að ráðast á lögregluþjón á Kirkjusandi í gær, var sleppt úr haldi seint í gærkvöldi eftir yfirheyrslur hjá lögreglu. 25.4.2008 09:23
Góð veiði á kolmunnamiðunum við Færeyjar Góð veiði hefur verið hjá íslensku kolmunnaskipunum í Færeysku lögsögunni, suðvestur af eyjunum. 25.4.2008 08:23
Sautján ára piltur í tómu tjóni eftir hraðakstur Sautján ára piltur, með aðeins tveggja mánaða gamalt ökuskírteini til reynslu, var stöðvaður eftir að bíll hans mældist á 136 kílómetra hraða á Suðurlandsvegi á milli Selfoss og Hveragerðis í gærkvöldi. 25.4.2008 08:22
Þrjár stúlkur gripnar í fánaþjófnaði Lögreglan á Selfossi kom að þremur sautján ára stúllkum undir miðnætti í gærkvöldi,þar sem þær voru í óða önn að draga niður fána úr fánaborg BYKO verslunarinnar við Austurveg. 25.4.2008 07:16
Nýr meirihluti í Bolungarvík Samningar náðust um samstarf milli A-lista Afls til áhrifa og D-lista Sjálfstæðisflokks um myndun meirihluta í bæjarstjórn Bolungarvíkur, um miðnættið. Málefnasamningur hefur verið undirritaður með fyrirvara um samþykki fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík og flokksfélags A-lista. 25.4.2008 00:46
Árásarmaðurinn hefur komið fram sem talsmaður bílstjóranna Maðurinn sem réðst á lögreglumann við Kirkjusand í dag heitir Ágúst Fylkisson. Hann hefur undanfarið komið fram sem einn af talsmönnum vörubílstjóra í mótmælum þeirra. Aðrir talsmenn bílstjóranna hafa í dag fordæmt atvikið og sagt að árásarmaðurinn tengist vörubílstjórum ekki á nokkurn hátt. Maðurinn hefur verið yfirheyrður og er hann laus úr haldi lögreglu. 24.4.2008 20:09
Straumur sagði 15 upp í vikunni Fjármálafyrirtækin hafa sagt á annað hundrað manns upp störfum á þessu ári. Straumur sagði í vikunni upp fimmtán manns, en helmingur þeirra starfaði hér á landi. 24.4.2008 19:11
Enginn trúboðahópur hjá Sniglum Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var ranghermt að svokallaður trúboðahópur Sniglanna hefði staðið fyrir hópakstri á Akranes í dag. Berglind Ólínudóttir, ritari Sniglanna, segir engan slíkan hóp til. 24.4.2008 22:10
Bretar hafa áhuga á varnarsamstarfi Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands segir að Bretar hafi áhuga á samstarfi um varnir Íslands, meðal annars með þátttöku í loftrýmiseftirliti við landið. Geir Haarde forsætisráðherra átti fund með Gordon Brown í morgun. 24.4.2008 19:07
Mótorhjólaslys á Akureyri Vélhjólamaður slasaðist á Akureyri eftir hádegið í dag. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, missti stjórn á mótorhjóli sínu á Hörgárbrautinni og féll við það í götuna. 24.4.2008 17:52
Yfirlýsing frá Láru Ómarsdóttur Lára Ómarsdóttir, fréttamaður á Stöð 2 hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar atviks sem átti sér stað í gær. Í beinni útsendingu á Vísi í gær spurði Lára útsendingarstjóra hvort hún ætti að finna einhvern sem væri tilbúinn til að kasta eggi í átt að lögreglunni þegar mótmælin við Rauðavatn stóðu sem hæst í gær. Yfirlýsing Láru er eftirfarandi: 24.4.2008 17:40
Gæti átt ársfangelsi yfir höfði sér Maðurinn sem réðst á lögregluþjón við Kirkjusand í dag gæti átt yfir höfði sér allt að eins árs óskilorðsbundið fangelsi. Árásin er að sögn lögfræðings brot gegn valdstjórninni og líkamsárás. 24.4.2008 16:47
Myndband: Lögreglumaður laminn á Kirkjusandi Lögreglumaður var sleginn í andlitið á Kirkjusandi í dag þegar lögreglan hugðist afhenda bílstjórum þá bíla sem haldlagðir voru í mótmælunum í gær. 24.4.2008 15:56
Fordæma árás á lögregluna Einar Árnason vöruflutningabílstjóri segist fordæma það atvik sem varð þegar maður réðst á lögregluna við Kirkjusand í dag. Átökin brutust út þegar til stóð að afhenda bílstjórum þá bíla sem lögreglan haldlagði við mótmæli í gær. 24.4.2008 15:36
Átök við strætólóðina á Kirkjusandi Til átaka kom fyrir nokkrum mínútum milli vörubílstjóra og lögreglu á Kirkjusandi. Um einn bílstjóra var að ræða. 24.4.2008 14:57
Sportbílaeigendur mótmæla Sportbílaeigendur fjölmenntu að gatnamótum Suðurlandsbrautar og Kringlumýrabrautar til að mótmæla í dag. 24.4.2008 14:40
Samkeppniseftirlitið hindrar að kaupsamningurinn verði efndur Hafnarfjörður stefndi í gær Orkuveitu Reykjavíkur til að greiða 7,7 milljarða króna auk dráttarvaxta fyrir 14,6 prósenta hlut bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja. 24.4.2008 14:21
Vetnisknúin ljósavél í Eldingu Vetni var í fyrsta sinn notað til að knýja vél um borð í farþegaskipi í dag en þá sá vetnisknúnin ljósavél hvalaskoðunarskipinu Eldingu fyrir öllu rafmagni um borð. 24.4.2008 13:30