Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ólafur í byrjun desember: Megum ekki verða að örflokki “Ég tel mjög mikilvægt að þessi borgarstjórnarflokkur og þeir sem að honum standa starfi vel saman og reyni að hafa breidd í málunum þannig að við stöndum undir þessu umboði og verðum ekki að einhverjum örflokki í lok kjörtímabilsins,” sagði Ólafur F Magnússon verðandi borgarstjóri í Silfri Egils þann 2.desember síðastliðin. 23.1.2008 15:39
Rúmlega áttatíu prósent vantreysta Ólafi F. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Vísis bera ekki traust til Ólafs F. Magnússonar, verðandi borgarstjóra. 23.1.2008 15:38
Guðrún Jónsdóttir valin Ljósberi ársins Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi og talskona Stígamóta, var valin Ljósberi ársins 2007. Verðlaunin eru veitt fyrir áralanga, ötula og skelegga baráttu hennar gegn kynferðisofbeldi og klámvæðingu hér á landi í forsvari fyrir Stígamót. 23.1.2008 15:16
Fatafíaskó framsóknarmanna ekki komið til skattstjóra Skattstjórinn í Reykjavík hefur ekki tekið fatamál Björns Inga Hrafnssonar og Óskars Bergssonar til afgreiðslu, samkvæmt upplýsingum frá Gesti Steinþórssyni skattstjóra. 23.1.2008 15:10
Samkomulag um fyrrverandi hús ÁTVR á Seyðisfirði Samkomulag hefur náðst á milli fjármálaráðuneytiosins, Minjaverndar og Seyðisfjarðarkaupstaðar um málefni fyrrverandi verslunarhúsnæðis ÁTVR á Seyðisfirði. Þetta kom fram í fyrirspurn Árna Mathiesen fjármálaráðherra við fyrirspurn flokkssystur sinnar, Arnbjargar Sveinsdóttur. 23.1.2008 14:58
Þak sett á lyfjakostnað allra sjúklinga Þak verður sett á lyfjakostnað allra sjúklinga á þessu ári og síðar einnig á aðra kostnaðarþætti sjúklinga í heilbrigðisþjónustu. Nefnd um greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðisþjónustu vinnur að því að einfalda það kerfi sem nú er við lýði. 23.1.2008 14:44
Sjálfstæðismenn sakaðir um tvöfeldni í útrásarmálum Sjálfstæðismenn voru gagnrýndir fyrir tvöfeldni í orkumálum og öðrum málum í umræðum um fyrirspurn Valgerðar Sverrisdóttur, varaformanns Framsóknarflokksins, á Alþingi. 23.1.2008 14:35
Allir efstu menn á F-lista í Íslandshreyfingunni Helstu trúnaðarmenn Íslandshreyfingarinnar funduðu um borgarmálin í gærkvöld. Allir efstu menn á F-listanum eru félagar í Íslandshreyfingunni. 23.1.2008 14:32
Óska eftir fundi með þingmönnum vegna uppsagna hjá HB Granda Bæjarstjórn Akraness ákvað á fundi sínum í gær að óska þegar í stað eftir fundi með þingmönnum Norðvesturkjördæmis í kjölfar þess að stjórnendur HB Granda hafa ákveðið að segja upp öllu starfsfólki fyrirtækisins, sem vinnur við fiksvinnslu á Akranesi. 23.1.2008 12:49
Eyjagoss minnst með viðburðum í allan dag Þrjátíu og fimm ár eru í dag liðin frá því að eldgos hófst í Vestmannaeyjum og Eyjamenn sigldu allir sem einn til lands á fiskiskipaflota sínum. 23.1.2008 12:45
Fimm mánaða tafir á tvöföldun Reykjanesbrautar? Framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar gætu frestast um allt að fimm mánuði náist ekki samkomulag við undirverktaka um framhald þeirra. Fulltrúar Vegagerðarinnar, Jarðvéla og undirverktaka þeirra funda um framtíð verkefnisins í dag. 23.1.2008 12:30
Vilhelm Þorsteinsson að slá botninn í síldarvertíðina Áhöfnin á fjölveiðiskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA er þessa stundina að slá botninn í síldarvertíðina, sem kennd er við sumargotssíld. 23.1.2008 12:15
Hátt í 50 skjálftar við Grindavík Jarðskjálftahrina hófst í Grindavík laust fyrir klukkan tvö í nótt með skjálfta upp á fjóra á Richter. Skjálftarnir í hrinunni eru að nálgast 50. 23.1.2008 12:03
Var ekki boðinn borgarstjórastóllinn Svandís Svarasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn, segir rangt að sjálfstæðismenn hafi boðið henni borgarstjórastóllinn eins og Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri, fullyrti í gær. 23.1.2008 11:57
Þorbjörg Helga: Björn Ingi gaf tóninn Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir það skref Björns Inga Hrafnssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, að slíta samstarfi við sjálfstæðismenn í haust hafa fært pólitíkina í borginni á nýjan stað. 23.1.2008 11:24
Farþegar í sjokk þegar að flugvél nauðhemlaði á Kastrup Flugvél frá Iceland Express þurfti að hætta við flugtak á síðustu stundu í Kaupmannahöfn í gærkvöldi vegna bilunar. Farþegar um borð urðu nokkuð skelkaðir að sögn eins þeirra. 23.1.2008 11:23
Steingrímur formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþings fyrstur karla Steingrímur J. Sigfússon var í gær valinn formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins, fyrstur karla. 23.1.2008 11:13
Rúmlega 45 skjálftar hafa mælst í Grindavík Um 45 minni skjálftar hafa mælst eftir að skjálfti upp á fjóra á Richter skók Grindavík með þeim afleiðingum að hlutir féllum úr hillum. Skjálftarnir eru flestir á milli einn og tveir á Richter en þó mældist annar skjálfti upp á fjóra rétt fyrir klukkan sex í morgun. Veðurstofan reiknar með að skjálftarnir haldi eitthvað áfram en fjari út á næstu klukkustundum. 23.1.2008 10:32
Hefur efasemdir um sannsögli Björns Inga ,,Björn Ingi segir hvað? Og hver hafði samband við Björn Inga? Ég fullyrði að þetta er rangt að honum hafi verið boðið upp í dans að þessu sinni vegna þess að hann spilaði sig út úr pólitíkinni með því sem hann gerði í haust,“ sagði Agnes Bragadóttir, blaðamaður Morgunblaðsins, í spjalli við Heimi og Kollu í morgunþætti Bylgjunnar, Í bítið, í morgun. 23.1.2008 10:28
„Ónotatilfinning að vera rifinn upp á náttfötunum" Í dag eru liðin 35 ár frá upphafi eldgossins á Heimaey, stærstu eyju Vestmannaeyjaklasans. Elliði Vignisson bæjarstjóri segist muna vel eftir þessum degi þrátt fyrir að hafa verið aðeins fjögurra ára gamall þegar gosið hófst. 23.1.2008 10:08
Ræður ráðamanna á erlendri tungu liggi fyrir á íslensku Samfylkingarmennirnir Mörður Árnason og Karl V. Matthíasson hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem því er beint til forseta Íslands og ráðherra að ræður og ávörp sem þeir flytja á erlendri tungu liggi fyrir á íslensku samtímis eða svo skjótt sem auðið er. 23.1.2008 10:03
Allir eiga að geta skráð sig á heilsugæslustöð Allir eiga að geta skráð sig á heilsugæslustöðvar og ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að loka fyrir skráningar á stöðvarnar. 23.1.2008 09:46
Eldgossins í Eyjum minnst í dag Þrjátíu og fimm ár eru í dag liðin frá því að eldgos hófst í Vestmannaeyjum og eyjamenn sigldu allir til lands í fiskiskipaflota sínum. 23.1.2008 09:28
Jarðskjálftar upp á 4 á Richter við Grindavík í nótt Jarðskjálftahryna hófst í Grindavík laust fyrir klukkan tvö í nótt með skjálfta upp á fjóra á Richter. Hann fannst greinilega í bænum og hlutir féllu úr hillum. 23.1.2008 07:53
Umtalsverð auking á stuðningi almennings við Íbúðalánasjóð Stuðningur almennings við starfssemi Íbúðalánasjóðs jókst umtalsvert í fyrra en stuðningur íbúðakaupenda við íbúðalánastarfssemi banka og sparisjóða fór verulega þverrandi. 23.1.2008 07:48
Rúmlega 80% bera ekki traust til Ólafs F Magnússonar 81,4% af þeim sem kosið hafa í skoðanakönnun Vísis segjast ekki bera traust til Ólafs F Magnússonar sem borgarstjóra. 22.1.2008 23:33
Vinskapur hafði ekkert með lögfræðiálit að gera Bjarnfreður Ólafsson skattalögfræðingur segir álit sitt á skattamálum Framsóknarflokksins og frambjóðenda hans ekki tengjast þeim persónum sem eigi hlut að máli. „Þetta er einföld lögfræðileg niðurstaða og ætti að vera alveg óumdeild. Hún er ekkert tengd persónum enda er Óskar Bergsson kær vinur minn, Björn Inga þekki ég hinsvegar ekkert." 22.1.2008 21:59
Greiði skatta og skyldur af mínum hlunnindum „Ég greiði skatta og skyldur af mínum launum og hlunnindum og geri nákvæmlega það sem mér er sagt að gera frá mínum endurskoðanda,“ segir Björn Ingi Hrafnsson um þær ásakanir að hann hefði átt að greiða skatt af styrk sem hann fékk til fatakaupa fyrir kosningar árið 2006. 22.1.2008 21:14
Frjálslyndir á norðausturlandi styðja nýjan meirihluta Hin ýmsu félög tengd stjórnmálaflokkunum hafa sent frá sér yfirlýsingar þar sem nýr meirihluti í borginni nýtur annaðhvort stuðnings eða hann er fordæmdur. Kjördæmisráð Frjállyndaflokksins í norðausturkjördæmi lýsir yfir stuðningi í yfirlýsing. 22.1.2008 21:25
Dagur fór að hafa áhyggjur vegna fréttar Vísis „Það var vegna fréttar á Vísi sem ég heyrði í Ólafi á mánudagsmorgun. Hann var þá léttur og sagði þetta af og frá og ætlaði að leiðrétta þetta við blaðamann svo þetta yrði úr sögunni,“ sagði Dagur B Eggertsson fráfarandi borgarstjóri í viðtali við Kastljósið nú í kvöld. 22.1.2008 21:42
Flugvöllur í Vatnsmýri til langrar framtíðar Reykjavíkurflugvöllur verður áfram í Vatnsmýri til langrar framtíðar, segir Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri. Hann segir stefnuskrá nýja meirihlutans vera sjötíu prósent F-lista plagg. 22.1.2008 19:06
Útförin var stórkostleg leikflétta Hin leynilega útför Fischers á bökkum Ölfusár í gærmorgun varð til þess að margir sem vonuðust til að geta kvatt hann, urðu af tækifærinu, þeirra á meðal Boris Spasský. 22.1.2008 19:03
Ólafur hefur umbylt embætti forseta Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur umbylt embætti forseta Íslands frá því hann tók við því meðal annars með því að nýta málskotsréttinn. Á fyrirlestri sem haldinn var um forsetann í dag var Ólafur kallaður útrásarforseti. 22.1.2008 18:49
Óánægður viðskiptavinur hindraði aðkomu sjúklinga að Læknavaktinni „Það var haft samband við mig og ég benti á að maðurinn gæti talað við skrifstofuna eftir helgi sem er mjög eðlilegt vinnulag," segir Gerður Árnadóttir læknir á Læknavaktinni en óánægður viðskiptavinur lét illa eftir að honum var neitað um endurgreiðslu fyrir skömmu. 22.1.2008 18:40
Kjartan Magnússon stjórnarformaður Orkuveitunnar Nýr meirihluti í borginni er byrjaður að leggja drög að skiptingu helstu ábyrgðarhlutverka innan borgarkerfisins. 22.1.2008 17:10
Björn Ingi og Óskar brutu gegn skattalögum Frambjóðendur Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík árið 2006 hefðu átt að gefa fatastyrk sem þeir fengu upp til skatts sem hlunnindi eða gjafir, að mati lögfræðings. Fréttablaðið hefur það eftir Birni Inga Hrafnssyni borgarfulltrúa að hann hefði ekki séð ástæðu til að gefa styrkinn upp til skatts því að um svo lágar upphæðir hafi verið að ræða. 22.1.2008 16:55
Útlit fyrir að F-listi fái engan formann í nefndum og ráðum Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri, segir að ákvörðun Margrétar Sverrisdóttur og Guðrúnar Ásmundsdóttur um að standa með gamla meirihlutanum í borginni sé merki um að þær séu að bregðast kjósendum sínum. Hann óttast ekki að Margrét slíti meirihlutanum fái hún tækifæri til þess. Úlit er fyrir að F-listi fái ekki formann í neinum nefndum og ráðum vegna ákvæða í sveitarstjórnarlögum. 22.1.2008 16:51
79 prósent treysta ekki Ólafi F. samkvæmt könnun Vísis 78,9 prósent þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Vísis í dag segjast ekki bera trausts til Ólafs F. Magnússonar sem borgarstjóra. 1600 manns hafa tekið þátt í könnunni þegar þetta er skrifað. Ef þú hefur ekki enn telið þátt getur þú kosið hér. 22.1.2008 16:27
Segir frjálslynda ekki geta stutt Ólaf nema hann starfi í flokknum Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir flokkinn ekki geta lýst yfir stuðningi við Ólaf F. Magnússon, verðandi borgarstjóra, eða borið pólitíska ábyrgð á honum nema hann taki til starfa innan flokksins í fullu samráði við frjálslynda í Reykjavík. Þetta kemur fram á vefsíðu Jóns. 22.1.2008 16:25
„Ólafur er vinur minn“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðisflokksins segir að ekki verði mikið um óvænt tíðindi á fundi borgarstjórnar á fimmtudaginn þegar kosið verður í nefndir og ráð á vegum borgarinnar. „Við erum að undirbúa fundinn og höfum rætt í okkar hóp hvernig verður en það kemur allt í ljós á fimmtudaginn,“ segir Vilhjálmur. „Við erum með ágætis fólk sem hefur skilað góðu starfi síðustu misseri,“ segir hann. 22.1.2008 16:20
Þjófur eða þjófar á ferð í borginni að degi til Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar íbúa á höfuðborgarsvæðinu við þjófi eða þjófum sem taldir eru brotist inn í nokkur íbúðarhús á svæðinu að degi til á virkum dögum meðan íbúarnir eru að heiman. 22.1.2008 15:51
Íslenskir aðalverktakar og svissneskt félag bjóða lægst í Óshlíðargöng Íslenskir aðalverktakar og Marti Contractors frá Sviss áttu lægsta tilboðið í gerð Óshlíðarganga en tilboð vegna þeirra voru opnuð í dag hjá Vegagerðinni. 22.1.2008 15:14
Margrét og Guðrún binda sig við fráfarandi meirihluta Borgarfulltrúar Samfylkingarnnar, Vinstri - grænna og Framsóknarflokks ásamt öðrum og þriðja manni F-lista hafa ákveðið að starfa áfram saman að heildum og hafa nána samvinnu um málflutning og tillögugerð. 22.1.2008 14:55
Styðja uppbyggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri Fastanefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga um samgöngumál lýsir yfir fullum stuðningi við fyrirhugaða byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri í Reykjavík. 22.1.2008 14:39
Rúmlega tólfhundruð manns hafa skráð sig á mótmælalista Rúmlega tólfhundruð manns hafa nú skráð sig á mótmælalista á netinu þar sem vinnubrögðum við myndun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Ólafs F. Magnússonar er mótmælt. 22.1.2008 14:21